Morgunblaðið - 23.10.1968, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 196«
Laufey í Hamborg
Nokkur minningarorð
Mér hefir oft orðið litið upp í
gluggana í Hamborg síðustu dag-
ana. Þar er nú autt og hljótt. En
hverju sinni, er ég geng þar fram
hjá, gaegjast fram í hugann minrt
ingar um ánægjulegar stundir
þar, um frábæra gestrisni, alúð,
hlýju og glaðværar menningar-
legar samræður, sem allt var
mótað af persónuleika húsfreyj-
unnar, Laufeyjar Pálsdóttur, sem
nú er horfin yfir móðuna miklu,
þangað sem leið allra liggur.
Laufey Pálsdóttir var fædd á
Akureyri 3. september 1887 og
var því rúmlega 81 árs, er hún
lézt 28. sept. sl. Foreldrar hennar
voru Páll Jónsson Árdal, skáld
og barnakennari, og Álfhefður
Eyjólfsdóttir. Ekki var mikið um
veraldarauð á bernskuheimili
Laufeyjar, en Páll faðir hennar
var skáld gott, listunnandi og
lagði fram drjúgan skerf til leik-
t
Maðurinn minn, faðir okkar
og bróðir,
Tómas Þorsteinsson
Ránargötu Sa,
lézt í gærmorgun, 22. október.
Aðstandendur.
listar og annarra menningarmála
á Akureyxi um sína daga. Bar
Laufey þaðan þann menningar-
arf, sem henni entist langa ævi
og hún ávaxtaði dyggilega.
Ung tók hún að vinna, og lagði
þar á nýja braut og óvenjulega
á þeim árum, er hún tók að
nema prentiðn hjá Oddi Bjðrns-
syni; varð hún fyrst íslenzkra
kvenna til að nema þá iðn, að
því mér er tjáð. Náði hún þar
þeirri fæmi sem handsetjari, að
fáir tóku henni fram. Komu þá
þegar fram þær eigindir, sem ein
kenndu hana löngum, mikil af-
köst og vinnuhraði ásamt vand-
virkni, sem aldrei brást, á hvað
sem hún lagði hönd. Síðan stund
aði hún nám í Gagnfræðaskólan-
um, nú Menntaskólanum á Akur
eyri. En hvorki lagði hún fyrir
sig prentiðn né lærdómsstörf,
þótt hlutgeng hefði orðið í hvoru
tveggja.
Árið 1910 giftist hún Jóhannesi
G.V. Þorsteinssyni, kaupmanni.
Var hann þá einn mesti upp-
gangsmaður í verzlun á Akur-
eyri, og hafði um þær mundir
reist húsið Hamborg, sem enn
stendur. Jóhannes var glæsilegur
maður, glaður í lund og hvers
manns hugljúfi. Einn son eign-
uðust þau, Steingrím J. Þorsteins
son, prófessor við Háskóla ís-
lands og einn forystumann þjóð-
arinnar í íslenzkum bókmennta-
fræðum. Varð fæðing hans með
allsögulegum hætti, því að gera
t Konan mín, Margrét Björnsdóttir Blöndal frá Brúsastöðum, verður jarðsett að Undirfelli laugardaginn 26. október kL 2 e.h. Kristján Sigurðsson Stillholti 7, Akranesi. t Innilegt þakklæti fyrir alla aðstoð og auðsýnda samúð við andlát og j ar’ðarför, Tryggva Jónatanssonar. Sérstaklega viljum við þakka læknum og hjúkrunarliði Iyf- læknadeildar Fjórðungssjúkra hússins á Akureyri fyrir alla umönnun í veikindum hans. Aðstandendur.
t Móðir mín, Ingveldur Jónsdóttir, verður jarðsungin frá Foss- vogskirkju fimmtudaginn 24. okt. kl. 1.30. Blóm vinsamlega afbeðin. Ingunn Jóhannesdóttir. t Þakka hjartanlega öllum sem sýndu mér samúð og vinarhug við andlát og jarðarför manns ins míns, Helga Helgasonar Brekkustíg 1. Guðrún Guðmundsdóttir.
t Jarðarför föður okkar, t Þökkum innilega auðsýnda
hluttekningu og samúðar-
Páls Kristjánssonar kveðjur við fráfall og jarðar-
Irú Húsavík, för,
fer fram frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 24. október kL Margrétar Kristjánsdóttur.
3 e.h.
Kristbjörg Pálsdóttir, Jakob Sigurðsson,
Guðný Pálsdóttir. Sigríður V. Jakobsdóttir,
Egill Sæmúndsson,
María Jakobsdóttir,
Magnús Þorsteinsson,
f Krístín Jakobsdóttir,
1 Rico Guidice,
Jarðarför, Birna V. Jakobsdóttir,
Guðfinnur Gíslason,
Sveinsírtu Lovísu Gústaf A. Jakobsson,
Björnsdóttur Guðrún Ragnarsdóttir,
Hringbraut 111, Margrét Jakobsdóttir,
fer fram frá Fössvogskirkju Hörður Jóhannsson,
fimmtudaginn 24. þ.m. kl. Björn H. Jakobsson,
10.30. Sjöfn Erlingsdóttir.
Systkin hinnar látnu.
þurfti keisaraskurð, sem þá var
svo fátítt, að það var í annað
sinni, er sú a'ðgerð heppnaðist
hér á landi og í fyrsta og eina
sinni, sem hún hefur verið gerð
hér í heimahúsi (í borðstofumni í
Hamborg), og þótti þetta mikið
snilldarverk af Steingrími Matt-
híassyni, lækni, sem þá var ung-
ur að árum og reynslu. En þótt
mikils væri um vert snillihand-
tök læknisins, var þó andl’egt og
líkamlegt þrek hinnar ungu
konu eigi síður í frásögur fær-
andi, og mun hafa átt sinn þátt
í, hversu vel tókst. Og ekki hik-
aði Laufey við að leggjast aftur
undir keisaraskurð, er hún átti
síðara barn sitt, og lýsir það vel
áræði hennar og þreki.
Hjónaband þeirra Laufeyjar
og Jóhannesar varð ekki langt,
hann andaðist 1920 eftir langa
og stranga sjúkdómslegu. Lauf-
ey stóð nú ein uppi með ungan
son sinn og umfangsmikið fyrir-
tæki, sem þarfnaðist mikillar
forsjár, þótt allt virtist þá vel
tryggt. Laufey hélt refcstrinum
áfram, og gerðist Jón E. Sig-
urðsson verzlunarstjóri, hinn
ágætasti maður í hvfvetna. Þau
giftust 1925 og 'áttu eina dóttur
barna, Sólveigu Björgu, sem
gift er landsréttarlögmanni í
Odense í Danmörku. Systurson
sinn tók Laufey nýfæddan í
fóstur; hét hann eftir fyrri
manni hennar. Hann lézt einung-
is tuttugu og tveggja ára að
aldri, og var það henni þungur
harmur.
En um þessar mundir fóru
krepputímar og margskyns erf-
iðleikar í viðskiptum í hönd, og
fór svo, að verzlunin Hamborg
varð að hætta. En í engu breytti
það háttum Laufeyjar og þeirra
hjóna um risnu og hjálpsemi,
enda réttist hagur þeirra von
bráðar aftur. Son sinn studdi
Laufsy til náms, og systkinum
sínum og börnum þeirra var hún
haukur í horni, og studdi hún
t
Hjartans þakkir fyrir samúð
og hlýjar kveðjur við andlát
og jarðarför,
Kai Ólafssonar.
Ásta Hallgrímsdóttir,
Inger Blöndahl.
t
Þökkum innilega auðsýnda
samúð og vináttu við andlát
og jarðarför eiginmanns míns
og föður,
Guðmundar Bjarnasonar
Langholtsvegi 87.
Ragnhildur Halldórsdóttir,
Aðalheiður Guðmundsdóttir.
systkinabörn sín á margvíslegan
hátt. Var ættræ'kni hennar og
tryggð með fágætum. Síðari
mann sinn missti hún fyrir rúmu
ári. ,
Laufey Pálsdóttir verður
minnisstæð öllum, er henni
kynntust. Hún var lítil vexti, en
það hvarf fyrir persónuleika
hennar. Hún var mikil hús-
freyja, hagsýn og dugleg, og hélt
heimili sínu óvenju fáguðu,
bæði á ytra borði og með innri
nfcnningarbrag. Voru þau hjón
samhent í því efni, svo að vart
mátti milli sjá. Það var höfðings-
skapur og reisn yfir gestaboðum
í Hamborg, og ekki var síður
ánægjulegt að koma þar hvers-
dagslega, ef svo mætti að orði
kveða, og njóta viðræðna við
húsfreyjuna, finna alúðina og
heyra hana segja frá og ræða
álhugamál sín, sem voru mörg.
Laufey var félagslynd og vann
ótrauð í ýmsum félagsskap hér
í bæ. Lsngst mun hún þó hafa
starfað í kvenfélaginu Framtíð-
inni og var þar löngum í far-
arbroddi. Hún átti sæti í nefnd
þeirri, seim vann að stofnun
KristneShælis, og hún vann
ótrauðlega árum saman að und-
irbúningi Elliheimila á Akur-
eyri. Sýnir það, hver mál það
voru, sem áttu hug hennar. Þá
vann hún mikið í Oddfellow-
stúkunni á AkureyrL Laufey
var listhneigð og listelsk. Fannst
mér oft mikið til um, hverau
næman smekk hún hafði á ljóða-
gerð og kunni vel að meta það,
sem einhvers var vert. Hafði hún
þó lengstum lítinn tima til að
sinna þeim hugðarefnum.
Hin síðari ár átti hún við
mikla vanheilsu að stríða, en ekki
bilaði kjarkurinn, er hún gekk
undir erfiðá skurðaðgerð áttræð
að aldri. Hlaut hún við það
nokkra bót, og væntu vinir
hennar, að enn mundi henni
endast aldur og kraftar; en kall-
ið kom fyrr en varði. Þótt árin
færðust yfir, var Laufey í Ham-
borg alltaf ung. Svo fer þeim,
sem sífellt eiga fangið fullt af
viðfangsefnum og hafa dirfsku
til að sinna þeim, þótt erfið sýn-
ist, og geyma sálina fulla af
góðhug til alls umhverfis sig.
Laufey var Akureyringur af
lífi og sál. Hér í bæ hafði hún
dvalizt alla sína ævi, og hún
vildi hag og sæmd bœjarins sem
irtista, og með öllu sínu starfi
átti hún drjúgan þátt í að auka
hróður bæjarfélagsins og spar-
aði þar ekkert til. Nú er hún
gengin. Bærinn er svipminni
eftir, en minningin lifir um
mikla konu og góða.
Steindór Steindórsson
frá Hlöðum.
- LOFTLEIÐIR
Framhald af hls. 28
varahluti fyrir uim 5 milljónir
dollara, og isagði Sigurður, að
eitt skilyrði flugfélagsin® fyrir
því að gera þessa bugmynd að
veruleika, væri, að fá að flytja
þá tollfrjálst til landsins. Þá
þyrftu Loftleiðir einnig að fá að
minnsta kosti helmingi stærra
flugskýlisrými en það hefur nú
á Keflavíkurflugvelli. Hér væri
eingöngu miðað við að þetta
verkstæði fullnægði þörfum
Loftleiða, en hugsanlegt væri
líka, að félagið tæki að sér að
vinna eitthvað fyrir önnur flug-
félög, og þá yTðu enn fleiri menn
við vinnu á verkstæðinu.
Próf fró Hó-
skóln íslonds
I októbe.rmámuði hafa eftirtald
ir sitúdentar lokið prófum viB
Háskóla íslandsr
Embættispróf í guðfræði:
Guðjón Guðjónsson,
Haufcuir Ágústsson,
Þórhallur Höskuldsson.
B.A.—próf:
Heligi Þorláksson,
Indriði Hallgrímsson,
Óttar Eggertsson.
Loftleiðir haifa lengst af keypt
viðhald fyrir vélar sinar erlend-
is. Aðalviðhald fyrir Skymaster
og Cloudmaster vélar félagsins
var keypt úti í NoregL en þegar
Rolis Royce vélarnar komu til
sögunnar var gerður samningur
við Lockhead-verksmiðjurnar um
viðhald á þeim vélum í New
York. Hefur Halldór Guðmunds-
son haft yfirumsjón með við-
haldsstarfinu vestra fyri-r hönd
Loftleiða.
Sigurður gat þess, að Loftleið-
ir hefðu hinn 12. september el.
skrifað utanríkis-ráðherra bréf
um þessi mál, og óskað eftir
fyrirgreiðslu hans, en Keflavík-
urflugvöllur heyrir undir utan-
ríkisráðuneytið. Værj málið nú
í athugun, og hefði fengið vin-
samlegar undirtektir ríkisstjórn-
arinnar.
Það kom og fram í þassu sam-
tali við Sigurð, að í Árslok lð‘67
starfaði um 715 manns hjá Loft-
leiðum. Á sl. ári greiddu Loft-
leiðir ýmiss konar gjöld vegna
starfsfólks (þ.e. laun, lífeyris-
sjóður, sjúkræjóður. trygginga-
gjöld og þjálfun) fyrir samtals
166,8 millj. kr. Skattar Loftleiða
(þ.e. tekju- og eignarskattur og
útsvör, aðstöðugjöld, launaskatt-
ur, söluskattur, eldsneytisiskatt-
ur, áætlaðir tollar af innflutn-
ingi, rekstrar- og fjárfestingar-
vara) voru 40,9 millj. Aðrir lið-
ir (þ.e. rafm., hiti, lendingar-
gjöld, póstur og sími, álagning
ipnlends kostnaðar olíufélaga
o. fl.) námu 46,5 milljónum og
skattar starfisfólks Loftleiða á ís-
landi voru á «1. ári 48,6 milljónir.
Heildarframlög Loftleiða til þjóð
arbúskaparins árið 1967 eru því
rúmar 300 milljónir króna, auk
þess sem gjaldeyrisskil félagsirns
nárnu 208,8 milljónum.
Sigurður sagði, að endingu, að
allir hlytu að fagna því, þegar
upp .risu fyrirtæki til að veita
fólki atvinnu, en það væri ekki
síður ánægjuefni, þegar eldri
fyrirtækj reyndust þess umkom-
in að auka við istarfsmannalið
sitt í stað þess að fækka því.
íslenzkupróf fyrir erlenda
stúdenta:
Inigrid Westin.
••••••••••••••••••••••
Kjarnfóður
unnið
hér á
landi
Hjartans þakkir færi ég böm
um mínum og tengdabörnum,
svéitungum og öðrum vinum
og frændfólki, fyrir fagrax
gjafir, blómakveðjur og heilla
skeyti á sjötugsafmæli mínu
14. okt. 1968.
Kær kveðja, lifið öll heil.
Sigurlaug Jakobsdóttir,
Hraunsholti.