Morgunblaðið - 30.10.1968, Qupperneq 2
2
MORGUiNBLAÐIÐ, MIÐVTKUDAGUR 30. OKTÓBER 1068
Norræna félagid
í Norræna húsið
AÐALFUNDUR Norræna fé-
lagsins var haldinn í Norræna
húsinu sl. fimmtudagskvöld.
Sigurður Bjarnason, ritstjóri,
form. félagsins setti fundinn
og stjórnaði honum. Fram-
kvæmdastjóri félagsins, Einar
Pálsson, flutti skýrslu um fé-
lagsstarfið.
í stjórn félagsins voru kjörnir
þeir Vilhjálmur Þ. Gíslason
fyrrv. útvarpsstjóri, Thorolf
Smith fréttamaður og dr. Sigurð-
ur Þórarinsson.
Aðrir í stjóm félagsins eru
Sigurður Bjarnason form., dr.
Páll ísólfsson, frú Arnheiður
Jónsdóttir og Lúðvík Hjálmtýs-
son forstjóri. í varastjórn em
Gils Guðmundsson alþm. Páll
Líndal borgarlögmaður, Bárður
Daníelsson arkitekt, Hans R.
Þórðarson stórkaupm. og frú Val
borg Sigurðardóttir.
ELLEFU ljósmæður voru út-|
skrifaðar frá Ljósmæðraskóla'
fslands um síðustu mánaða-i
mót. Þá var þessi mynd tek-1
in af ljósmæðrunum, en þær
eru, fremri röð frá vinstri:'
Hanna Jónsdóttir, Akranesi, I
Steinunn Valdimarsd., Rvík,j
Halldóra Ásgrimsdóttir, Siglu ,
firði, Elín Stefánsd., Syðri-'
Reykjum, Biskupstungum, (
Eisa Sigurðardóttir, Innri- j
Njarðvik, Ágústa Kristjáns-.
dóttir, Kópavogi. Efrj röð frá'
vinstri: Gunnjóna Jónsdóttir, (
Hóli, önundarfirði, Svandís |
Jónsdóttir, Hvammstanga,
Ásta Lóa Eggertsdóttir, Rvík,'
Sigríður Jónsdóttir, Rvík og(
Kristin Oddsdóttir, Rvík. —j
Ljósm.: Studío Gests.
Samband eigenda íslenzkra
hesta stofnað í Danmörku
Mun beita sér fyrir hreinrœktun íslenzks
hestakyns þar, hestamannamótum os. frv.
Einkaskeyti til Mbl. Kaup-
mannahöfn 29. okt.
SAMBAND eigenda íslenzkra
hesta í Danmörku er nú orðið að
veruleika. Á stofnfundi, sem hald
inn var sl. sunnudagskvöld á
heimili Gunnars Jónssonar, verk
Björn Sigurjðnsson
skákmeistari T.R.
ÞÁTTTAKENDUR í haustmóti
Taflfélags Reykjavíkur, sem nú
er nýlokið, voru upphaflega 72,
en 70 þeirra luku keppni. í meist
araflokku tefldu 24 keppendur 9
umferðir eftir Monrad-kerfi og
urðu úrslit sem hér segir:
Björn Sigurjónsson hlaut 714 v.
úr 9 tefld. skákum.
Björgvin Víglundsson 7 —
Björn Theodórsson 6 —
Gylfi Magnússon 6 —
Júlíus Friðjónsson 5*4 —
Björn Jóhannesson 5t4 —
Jóhann Örn Sigurjónsson 5 —
Þetta er Hinrik Frehen, sem Páll
páfi VI hefur skipað fyrsta bisk-
up hins nýstofnaða Reykjavíkur-
biskupsdæmis, eins og Morgun-
blaðið skýrði frá í gær. Frehen
biskup er 51 árs og hefur und-
anfarið verið yfirmaður alþjóð-
legrar stofnunar kaþólsku kirkj-
unnar í Róm.
Sigurður Jónsson 5 —
Bragi Björnsson 5 —
Svavar Svavarsson 5 —
Magnús Gunnarssn 5 —
Frank Herlufsen 5 —
Af 24 keppendum í meistara-
flokki hafa 8 teflt í landsliðs-
flokki íslendinga.
f 1. flokki tefldu 16 þátttakend
ur 9 umferðir eftir Monrad-kerfi
og bar Jóhann Þorsteinsson sig-
ur úr býtum með 7*4 vinning, en
2.—i. sæti skipuðu þeir Jón Þor-
leifur Jónsson, Þórir Oddsson og
Þorsteinn Bjarnar með 6*4 vinn-
ing hver og flytjast upp í meist-
araflokk.
f 2. flokki var keppt í tveim-
riðlum. 1. og 2. sætið í a-riðli
skipuðu þeir Steingrímur Stein-
þórsson og Kristj'án Guðmtunds-
son með 6 vinninga af 8 tefldum
tskákum, en þriðji varð Skjöldur
Vatnar með 5% vinning. í b-
riðli urðu þeir Helgi Jónsson og
Sigurður Sigurjónsson efstir með
614 vinning hvor af 9 skákúm,
en þriðji í röðinni varð Tryggvi
Ólafsson með 6 vinninga.
Keppendur í unglingaflokki
voru 12. Unglingameistari Tafl-
félags Reykjavíkur varð Ög-
mundur Kristinsson með 5 vinn-
ingum af 7 mögulegium, 2. í röð-
inni varð Snæbjörn Einarsson
líka með 5 vinninga og þriðji
Magnús Ólafsson með 4% vinn-
ing.
Keppni um hraðskákmeistara-
titil Taflfélags Reykjavíkur 1968,
fer fram í Skákheimilinu sunnu-
daginn 3. nóvember n.k. kl. 2 e.h.
Bikarkeppni Taflfélags Reykja-
víkur hefst á sama stað fimmtu-
daginn 7. nóvember kl. 20.
(Frá Taflfélagi Reykjavíkur)
fræðings, við Hilleröd, sam-
þykktu 38 eigendur íslenzkra
hesta að stofna samband það,
sem Gunnar Jónsson, ásamt
nokkrum öðrum hestaeigendum,
hefur undirbúið um nokkurt
skeið.
Meðlimir sambandsins eru því
nú 38 talsins. Formaður sam-
bandsins var kjörinn Gunnar
Jónsson. Aðrir í stjórn eru Frits
Hug, forstjóri frá Hammershöj á
Jótlandi, varaformaður, Henrik
Langvad, verkfræðingur frá
Helsinge, gjaldkeri, frú Marit
Jónsson, eiginkona Gunnars, ætt
artöfluskrásetjari og Thomas P.
Olesen, forstjóri frá Vedbæk, rit-
ari.
Um tilgang samtakanna var
eftirfarandi samþykkt á fundin-
um:
„Tilgangur sambandsins er að
vinna að því að brei'ða út þekk-
ingu á íslenzka hestinum og
rétta notkun hans, svo og að
vinna að og hafa forgöngu um
hreinræktun íslenzks hestastofns
í Danmörku eftir þeim leiðum,
sem íslenzku ræktunarsambönd-
in hafa ákvarðað, og að lokum
að safna öllum vinum íslenzka
hestsins saman til starfa að sam-
eiginlegum verkefnum, sem
stuðla mega að framangreindu."
„Sambandið mun bæði varð-
andi sportmennsku og hrossa-
rækt leggja áherzlu á að varð-
veita og styrkja hina sérstöku
eiginleika íslenzka hestsins, þar
á meðaj hinn sérstaka íslenzka
gang, ásamt hreysti hestsins og
villihesta „karakter". Samtökin
munu halda fast við skilyrðis-
lausa hreinræktun og munu því
beita sér fyrir að upp verði tek-
in ættartöfluskrá yfir íslenzka
hesta í Danmörku þar til að um-
sjón þeirrar skrár verður tryggi-
lega falin viðameiri landssam-
tökum.“
„Þá mun sambandið beita sér
fyrir verðlaunasýningum stóð-
hesta og reiðhesta eftir þeim regl
um, sem um slíkt gilda á íslandi,
og þjálfa dómara og reiðmenn.
Þá mun sambandið beita sér fyr-
ir hestamannamótum og sýning-
um á kynbótahrossum."
Gunnar Jónsson, sem sjálfur
hefur átt íslenzka hesta í 7—8
ár, hefur unnið miki'ð starf varð
andi stofnun sambandsins. Stofn
unin verður á réttum tíma, ef svo
mætti segja, því hestar eru nú
fluttir 'inn frá íslandi í stórum
stíl. Þar til í sumar voru áðeins
9 eigendur íslenzkra hesta í
Danmörku, en tala þeirra fer nú
hraðvaxandi, og með því að hafa
samband við hestainnflytjendur,
mun sambandið stöðugt fá sam-
band við nýja eigendur íslenzkra
hesta.
Gunnar er leiður yfir þvi, að
ennþá koma hingað ekkert nema
hryssur. Þegar það ber við, að
hingáð koma fylfullar hryssur,
mun sambandið gera sitt til þess
að ekki verði notuð slæm hest-
folöld til undaneldis sem stóð-
hestar.
Þar sem vísað er til viðameiri
stofnunar i kaflanum um tilgang
sambandsins, er átt við að stofn-
að verði danskt hrossaræktarsam
band, er spanni allt landið. En
Gunnar segir, að þá fyrst verði
gengið í slík samtök, er upp
verði teknar reglur tilsvarandi
þeim íslenzku. Er Sanmbandi eig
enda islenzkra hesta í Danmörku
hefur vaxi'ð fiskur um hrygg
mun verða nauðsynlegt að fá
ráðunauta, en þá er hægt að fá
fyrir tilstilli hrossaræktarstofn-
unina Danhorse.
Fyrst um sinn verður um að
ræða mikla frístundavinnu af
hálfu stjórnenda hinna nýju sam
taka. Aðeins einn Dani er í stjóm
inni, Olesen. Gunnar er íslending
ur, kona hans norsk, Frits Haug
einnig norskur og Langvad
hálfur íslendingur.
var íslenzk.
Móðir hans
Rytgaard.
LÁTNIR LAUSIR
Aþenu 29. okt. (AP).
TALSMAÐUR grísku herfor-
ingjastjórnarinnar tilkynnti í
dag að 85 pólitískir fangar hefðu
verið leystir úr haldi og þeim
gefið fullt frelsi. Voru fangar
þessir í haldi á eyjunum Leros
og Yiaros.
Endurskoðendur voru kjömir
Óli J. Ólason kaupm. og Þór Vil-
hjálmsson prófessor.
Töluverðar umræður urðu um
félagsmál. Félagið hefur nú flutt
skrifstofu sína í Norræna húsið
og er hún opin daglega kl. 5—7
síðdegis. Ríkir ánægja meðal fé-
lagsmanna með þann merka
áfanga.
Ingvar Ásmundsson
OL-skák-
mótið
Lugano. Einkaskeyti til MbL
BIÐSKÁKIN úr 4. umferð
milli Björns og Kagan varð jafn
tefli og hlutu íslendingar því
tvo vinninga gegn ísrael.
Eftir fjórar umferðir er staðan
þessi í B-úrslitum:
1. Holland 12 vinninga.
2. -4. Austiírríki, Finnland og
Sviss, 10 vinninga hvert.
5. England 9*4 vinning.
7.-8. ísland og Spánn með 8*4
vinninga hvert.
9. Svíþjóð 8 vinninga.
10. Cuba 7*4 vinning.
11. -12. Belgía og Skotland 5
vinninga hvor.
13.-14. Bratsilía og Mongólía 4*4
vinning hvort.
f 5. umferð tefldu Íslendingar
við Finna. Tveim skákum lauk
í gærkvöldi með jafntefli. Ingi
gen Westerinen og Björn á 3.
borði gegn Koskinen. Skákir
Braga á 2. borði og Jóns á 4.
borði standa báðar verr.
í 6. umferð tefla fslendingar
við Austurríkismenn, — í dag.
í Borgurnesi
ÁRSHÁTÍÐ Sjálfstæðisfélagianna
í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu
verður haldin laugardaginn 2.
nóvember að Hóteli Borgarness
og hefst hún kl. 20. Að venju
verður sameiginlegt borðhald og
ýmsir skemmtíþættir fLuttir með
an setið er að snæðingi.
Á eftir verður dansað og leik-
ur hljómisveitin Fjarkar fyrir
dansinum.
Fjallvegir á Vest- og
Austfjörðum ófærir
FLESTIR fjallvegir á Vestfjörð-
um og allir á Austfjörðum voru
ófærir í gær vegna snjóa. Á Norð
urlandi var ófært til Siglufjar’ðar
og Ólafsfjarðar og á Vaðlaheiði
og Öxnadalsheiði var færð farin
að þyngjast. Flugfélag íslands
gat aðeins flogið til Vestmanna-
eyja og Sauðárkróks í gær, því
veður hamlaði flugi til ísafjarðar
og Akureyrar og snjótoma flugi
til Egilsstaða. í gær var norð-
austanátt um allt land og frost,
mest í Grímsey og á Grímsstöð-
um 9 stig. Snjókoma var á norð-
anver’ður Vestfjörðum, annesjum
norðanlands og á Austfjörðum. I
nótt var áætlað að frostið kæm-
ist víða sunnanlands upp í 5 stig
og upp í 10 stig fyrir norðan.