Morgunblaðið - 30.10.1968, Síða 4
4
MORG-UNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 1068
BÍLALEIGAN
AKBRAUT
SENDUM
NÝIR BtLAR ÁRG. ’69
SÍMI 8 23 47
Sími 22-0-22
Raubarárst'ig 31
&ó&z>ge£<g.Gi.
Hverfiseötu 103.
Simi eftir lokun 31160.
IVIAGIM ÚSAR
4kiphoiti21 s*mar21190
eftirlokun •'«- í 40381
LITLA
BÍLALEIGAN
BergstaSastræti 11—13.
Hagstaett leijujjald.
Sími 14970
Eftir lokun 14970 eSa 81748.
Sijurður Jónsson.
Balastore
§
>
X
Balastore gluggatjöldin
eru í senn þægileg og
smekkleg. Uppsetning er
afar ouðveld, og létt verk
að halda þeim hreinum.
Fáanleg í breiddum fró
40-260 sm (hleypur á 10
sm). Margra óra ending.
>
Vindutjöld
Framleiðum vindutjöld í
öllum stærðum eftir móli.
.... "":~:zzzr>
Lítið inn, þegar'þér eigið
leið um Laugaveginn!
Húsgagnaverzlun
KRISTJÁNS
SIGGEIRSSONAR HF.
Laugovegi 13, sími 13879
Q Eiginkonur — og mál-
glaðar vinkonur
„Góður eiginmaður skrifar:
Herra Velvakandi,
Nú bið ég þig að koma mér til
hjálpar. Komdu fyrir mig á fram
færi þeirri frómu ósk til hinna
símaglöðu kvenna hér í borginni
að lofa þeim húsmæðrum eða eig-
inkonum, sem hafa fyrir heimili
að sjá og vilja rækja það eftir
getu, að fá að vera í friði fyrir
endalausum símtölum á þeim tíma
sem matarundirbúningur stendur
yfir, og helzt af öllu líka fyrri
hluta matmálstímans svo að hús-
móðirin geti í friði komið matn-
um á borðið.
Ég er búinn að vera í góðu
hjónabandi í rúmlega tuttugu ár
og við eigum tvö börn, sem eru
nokkuð uppkomin og eru í
skóla. Konan mín hefur það þvl
all miklu léttara en fyrr, meðan
börnin voru ung, og nú er hún
farin að taka dálitinn þátt í fé-
lagsmálum. Einnig á hún nokkrar
systur og mágkonur. Hún er vin-
sæl af félagskonum sínum og fjöl-
skyldumeðlimum og þurfa þær
því allar mikið við hana að tala.
Um málefnið varðar mig ekki,
vona að það sé öllum meinlaust.
En símtölin á matartímanum
eru að spilia okkar hjónabandi
og eins, þegar maturinn er ekki
til á sæmilega réttum tíma vegna
Til sölu Fíat árg. "62
Tilboð sendist Fosskraft Suðurlandsbraut 32.
2 KONUR ÓSKAST
sem fyrst á bamaheimili í sveit.
Upplýsingar á Ráðningarstofu Reykj avíkurborgar.
Sími 18800.
10 ÁRA ÁBYRGÐ
SIM111400 EGGERT KRISTJANSSON&CO HF
10 ÁRA ÁBYRGD
TIL SOLU
Fjögurra herbergja íbúð við Ál'fheima. Fimmta her-
bergi í kjallara. íbúðin er í mjög góðu standL
Fjögurra herbergja íbúð við Laugaveg með sérlega
góðum kjörum.
Þriggja herbergja íbúð við Framnesveg.
Tveggja herbergja íbúð við Miðstræti,
útborgun kr. 175000.—
Tvær tveggja herbergja íbúðir í steinhúsi
við Klapparstíg.
Nánari upplýsingar gefur
Málflutningsskrifstofa
Einars B. Guðmundssonar, Guðlaugs Þorlákssonar,
Guðmundar Péturssonar, Axels Einarssonar,
Aðalstræti 6, símar: 12002, 13202, 13602.
þess, að síminn hefur gengið lát-
laust, þegar matreiðsla hefur átt
að fara fram. Ég hef talað um
þetta við konuna mína og hún
tekur því vel, en segist bara eiga
svo erfitt með að koma vinkon-
um sínum í skilning um að hún
megi ekki vera að því að tala
við þær.
Ég er ekki í neinum vafa um
það, að ég er ekki eina fórn
þessarar símaástríðu, börnin okk
ar eru það líka, og ég er ekki í
neinum vafa um, að mörg fleiri
heimili hér í borginni og sjálf-
sagt víðar, líða fyrir þetta. Ég
heiti því á þær konur, sem þetta
lesa, og við athugun finna sig
sekar um þau friðrof, er þær
valda á mörgum heimilum að
reyna að velja hentugri tíma til
útrásar sínum hugðarmálum.
Góður eiginmaður".
Já, svona er stundum að eiga
vinsælar eiginkonur. Velvakandi
finnur sárt til með „Góðum eigin
manni“. Hann á líka vinsæla konu
En hún á í engum vandræðum
með sínar vinkonur og þær hana.
Ef þær hringja á óhentugum tíma,
segir hún aðeins: „Heyrðu elsk-
an, ég má ekki vera að því að
tala við þig núna, ég hringi til
þín á eftir.“ — Þær skilja orðið
allar hvað klukkan slær — og
hjónabandi við báða enda er
borgið.
g Hvor á réttinn?
Umferðarmálin eru ofarlega á
baugi og það að vonum. Óhætt
er að fullyrða að allur fjöldinn
vill fara að settum reglum, en
stundum vandast málið, eins og
eftirfarandi bréf frá „Borgara"
gefur til kynna:
„Kæri Velvakandi.
Vilt þú ekki vera svo góður
að upplýsa fáfróðan vegfaranda í
sambandi við eftirfarandi atvik
úr umferðinni:
Nýlega ók ég á hægri akrein
Grensásveg til norðurs og ætlaði
vestur Suðurlandsbraut. Þegar ég
nálgaðist gatnamótin, blasti skyndi
lega við mér málaður trébúkki
með áfestu merki um að fara á
vinstri akrein. Ég hrökk við og
sá að búið er að loka þarna
hægri akreininni að því er mér
virðist að ástæðulausu. Nú lang-
ar mig að fá upplýst eftir allan
hægri-áróðurinn, hver er tilgang-
urinn? Er þetta gert í sambandi
við umferðarljósin? Eða er þetta
gert á móti þeim áróðri um
hægri akstur, sem hér er í al-
gleymingi? Væri nú fróðlegt að
fræðast um þetta, og hvort von
væri á fleiri svipuðum breyting-
um.
Spurningin er: Hvor ökumaður
á þarna rétt, sá, sem ekur á
hægri akrein og sveigir á þá
vinstri, eða sá, sem ekið hefur á
vinstri akrein? — Væri fróðlegt
að fá upplýst um þetta í dálk-
um þínum, Velvakandi sæll.
Borgari".
Velvakandi hefur það fyrir satt
að leysist tvær akreinar upp í
eina eigi sá réttinn, sem áðurvar
á hægri akrein. Þetta á t.d. við
á Miklubraut, þegar tvær akrein-
ar verða að eirmi austan Grens-
ásvegar. En sé akrein alveg lok-
að eins og bréfritari skýrir frá,
þá fer málið að vandast. Velvak-
andi leggur því ekki út á þann
hála is að svara spurningum
„Borgara", en mun fúslega birta
svör þeirra, sem gerst ættu að vita
SKÍÐARÁÐ REYKJAVÍKUR
heldur aðalfund sir.n fimmtudaginn 31. október
kl. 20.30 í Tjarnarbúð (uppi).
STJÓRNIN.
Til leigu
á góðum stað verzlunarpláss. Gæti hentað vel fyrir
herrafataverzlun. Á sama stað til leigu tvö herbergi,
sem mætti sameina verzlunarplássinu með litlum
breytingum. Tiltooð sendist Mbl. merkt: „6778“.
Bronco árgerð 1966
lítið ekinn til sýnis og sölu.
BÍLA- OG BÚVÉLASALAN,
sími 23136.
Húsnæði
Til leigu nú þegar (nálægt Laugavegi)
5 herbergi (um 100 ferm.) hentug fyrir skxif-
stofur, teiknistofur, hárgreiðslustofu, eða
léttan iðnað. Leigist í einu, eða tvennu lagi.
Upplýsingar í síma 1-51-90 kl. 9—12 og 1—5.