Morgunblaðið - 30.10.1968, Blaðsíða 11
MORGUNIBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 1968
11
Sextugur í dag:
Ólafur Sveinsson
bóndi i Stóru-Mörk
ÓLAFUR Sveinsson, bóndi og
sýslunefndarmaður í Stóru-
Mörk á sextugsafmæli í dag.
Hann er fæddur að Dalskoti í
Vestur-Eyjafjallahreppi 30. okt.
1908. — Foreldrar hans eru
Sveinn Sveinsson, sem andaðist
árið 1930 og Guðleif Guðmunds-
dóttir, sem féll frá á fyrsta degi
þessa árs fullra 90 ára að aldri.
Hjartahrein merkiskona, greind
og leitandi í andanum, vel
skyggn á hinar skoplegu hliðar
tilverunnar. — Hún hélt sxrmi
andlegu reisn til endadsegurs. —
Böm þeirra hjónanna urðu tíu
talsins, en eitt dó í æsku, en síð-
ar bættust í þennan stóra hóp
tvö uppeldisbörn.
Árið 1923 fluttu foreldrar
Ólafs frá Dalskoti að Stóru-
Mörk, einum af vestustu bæjun-
um í Vestur-Eyjafjallahreppi.
Þar standa þrír Merkurbæimir
hátt og horfa vel við sól. Þaðan
er byggðin kvödd þegar haldið
er inn á Þórsmörk og afrétti Ey-
fellinga. — Því hefur oft verið
kveikt undir kaffikötlunum á
Merkurbæjunum og margur vel-
ferðarsopinn drukkinn. Það var
skemmtilegt að koma og dvelja
í Stóm-Mörk og blanda geði við
hinn stóra og glaðlynda systkina
hóp, sem dvaldi þar í föðurgarði
á kreppuáruinum, meðan klukka
landsins gekk enn hægt. Hinir
hversdagslegu hlutir voru bundn
ir í grátbroSlegt stefjamál, sem
óejaldan vair flutt yfir mat-
borðum. Áhyggjur og armæða
átti ekki heima þar á bæ þó hart
væri í ári, heldur hin ósvikna
ekta lífsgleði.
Heimili'ð hennar Guðleifar í
Stóm-Mörk var traust og gott.
Þar var mikið unnið, mikii ráð-
deild og hagsýni, staðið vel í skil
um við alla og hvers manns bón
leyst með gleði. — Þetta er enn
erfðafylgja heimilisins. — Við,
þessi ytri skilyrði ólst afmælis-
barnið upp. Varð snemma sterk-
ur og stæltur. — Islenzka glím-
an varð uppáhaldsíþróttin. Snið-
glíma á lofti uppáhaldsbragðfð
og það sigursælasta. — Þrisvar
sótti hann verðlaun fyrir feg-
urðarglímu út að Þjórsártúni og
einu sinni Skarphéðinsskjöldinn
og í það sinnið kom glímukóng-
uirinn einnig með verðlaun fyr-
ir fegurstu glímuna, — víðsfjarri
honum vom og eru hverskyns
bolabrögð.
Ungur fór Ólafur Sveinsson til
sjóróðra til Sandgerðis og Vest-
mannaeyja og þótti hans rúm vel
skipað, hvort heldur beitt var
bjóð, e’ða greitt var úr netum.
Smiður er hann afkastamikill og
góður og hefur víðar unnið við
húsagerð en í heimagarði og
mörgum hefur hann léð gjörf-
ar hendur og hug, án þess að
þeir, sem verkanna hafa notið
hafi þurft að opna pyngju.
Sveitvmgar hans og samflokks-
menn fóru fljótt að kjósa hann
til hinna ýmsu trúnaðarstarfa og
nú ætla ég að nefna nokkur
þeirra:
I skólanefnd Skógaskóla frá
því skólinn hóf starfsemi, í skóla
nefnd bamaskólans lengi, í
stjórn Kaupfélags Rangæinga, í
skattanefnd meðan þær störfu’ðu.
Lengi í hreppsnefnd. Fyrst kos-
inn í hana 1934, það mun hafa
verið í fyrsta sinn, sem ekið var
á bílum til kosninga undir Eyja-
fjöllum. — Stuðningsmenn Ólafs
í Stóru-Mörk óku hratt með at-
kvæðin. Það var á þeim ámm,
þegar margir höfðu logandi
áhuga á pólitíkinni. — í sýslu-
nefnd var Ólafur kosinn 1946 og
hin síðari ár hefur hann verið
formaður fjárhagsnefndar. —
Sjúkrasamlagsformaður í meira
en tvo áratugi og svona mætti
áfram telja.
Ólafur starfaði lengi og vel í
ungmennafélagi sveitar sinnar,
U.M.F „Trausta" og var formað-
ur þess um skeið. Félagar hans
gerðu hann síðar að heiðursfé-
laga. — Allir sem til þekkja vita,
að hverju því máli, sem Ólafi í
Mörk er trúað fyrir er vel borg-
ið. — Skjöl og skilríki eru fag-
urlega skrifuð og frágangur all-
an megi þeim áfram fylgja — og
tökum við hjónin hér með undir
þær óskir. — Afmælisbamið
mun alltaf bera með sér aðals-
merki hinna fræknu glímu-
kappa, hinn háttvísa vaskleik.
— Hann Ólafur í Stóru-Mörk
getur því morgunhress og upp-
litsdjarfur horft til komandi ára,
likt og sá, sem heilsar óþekktum
glímumanni. Það má spá í um
sigurinn, en víst er um leikregl-
urnar og drengilega glímutök.
Pálmi Eyjólfsson.
ur fínpóleraður og listilegur.
Ólafur Sveinsson á fyrir eig-
inkonu Guðrúnu Auðunsdóttur,
skáldkonu frá Dalsseli. Þau
giftust í maímánuði 1939 og hófu
búskap í Stóru-Mörk árið eftir,
og með þeim hefur alla búskap-
artíðina búið Eymundur bróðir
Ólafs í meira en góðri sam-
vinnu.
Guðrún húsfreyja í Stóru-
Mörk er öndvegiskona, sem bor-
ið hefur skfði á hinn yljandi
heimilisarin, sem vel og lengi
hefur logað á þeim bæ. Þau
hjónin eiga eina dóttur efnilega,
Áslaugu að nafni, sem er gift og
búsett í Reykjavík.
I dag munnu margar kveðj-
ur og óskir berast til hjónanna
í Stóru-Mörk um að Guð og gæf-
Tökum upp í dag
hinar
margeftirspurðu
kuldafóðruðu
regnkápur.
Tízkuverzlunir
(ýuírun
Rauðarárstíg 1
sími 15077.
GENERAL-HJÚLBARÐAR
520 — 10 640 — 13 710 — 15
520 — 12 650 — 13 760 — 15
560 — 12 700 — 13 775 — 15
600 — 12 725 — 13 815 — 15
520 — 13 645 — 14 820 — 15
560 — 13 695 — 14 845 — 15
590 — 13 735 — 14 915 — 15
600 — 13 775 — 14 600 — 16
825 — 14 650 — 16
855 — 14
885 —14
520 — 15
560 — 15
670 — 15
JEPPADEKK
700 — 15
815 — 15
915 — 15
650 — 16
700 — 16
750 — 16
ÞAÐ VAR EINS
GOTT HANN
VAR Á
GENERAL
SNJÓDEKKJUM
SENDUM GEGN
PÓSTKRÖFU UM
LAND ALLTl
HJÚLBARÐINN HF.
LAUGAVEGI 178 — SÍMI 35260.
6XUNNMIN0 t-» HCO
Til sölu í Breiðholti
2ja, 3ja, 4ra og 5 herb. íbúðir
í smíðum.
Seljast tilbúnar undir tréverk
og málningu.
Afhendingartími áætlaður
í okt.—nóv. 1969.
Hagstætt verð og hagkvæmir
greiðsluskilmálar.
Beðið eftir láni Húsnæðis-
málastjómar.
Fasteignasalan Garðastræti 17
símar 24647 15221.
Árni Guðjónsson hrl.,
Þorsteinn Geirsson hdl.,
Helgi Ólafsson sölustj.
Kvöldsími 41230.