Morgunblaðið - 30.10.1968, Side 19
MORGUNBLAÐH), MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 1968
19
Leikmynd: Una Collins
Á LAUGARDAGSiKVÖLD frum-
Þóra Friðriksdóttir (Helen), Brynja Benediktsdóttir (Jo) og Bessi Bjarnason (Peter).
sýndi Þjóðleikhúsið öðru sinni
sjónleikinn „Hunangsilm“ (A
Taste of Honey) eftir ensku
skáldkonuna 'Shelagfh Delaney,
en hann var fyrst sýndur á litla
sviðinu í Lindarbse í maí 1967.
Helga heitin Valtýsdóttir fór þá
með eitt hlutverkið, en vegna
veikinda hennar varð að hætta
sýningum fyrr en upphaflega var
ætlað. Nú hefur leikurinn verið
tekinn upp á ný á sviði Þjóðleik-
hússins með sömu áhöfn, nema
Þóra Friðriksdóttir fer með
hlutverkið sem Helga heitin lék.
Enskur leikstjóri, Brian Murphy,
var ráðinn til að búa þessa
seinni uppfærslu fyrir sviðið, en
hafði einungis tíu daga til verks-
ins, enda er sýningin í megin-
dráttum mjög áþekk þeirri fyrri,
sem Kevin Pakner setti á svið.
Önnur ástæða þess kann að vera
sú, að báðir hafa þeir unnið og
starfað hjá Joan Littlewood í
Theatre WorkShop í Lundúnum,
en það var einmitt hún sem
„uppgötvaði" höfundinn og
sýndi leikinn fyrst. Þrátt fyrir
sterka líkingu með uppfærslun-
um í ytra tilliti og heildartúlk-
un, fer ekki milli mála að Brian
Murphy hefur náð meiri dýpt í
sýninguna; túlkunin er nærfærn-
ari, innilegri, áhrifasterkari en
fyrir hálfu öðru ári. Hitt leiðir
af sjálfu sér, að nýliðinn í leikn-
um, Þóra Friðriksdóttir, stend-
ur illa að vígi gagnvart öðrum
leikendum, þareð 'hún hefur að-
eins fengið tíu daga til að full-
móta hlutverkið, sem er vægt
isagt furðuleg ráðstöfun. Þriggja
vikna æfingatími með leikstjór-
anum hefði verið algert lág-
mark, ef leikhúsinu Vcœ einhver
alvara með sýningunni.
Þegar hinn stutti og alls ófiull-
nægjandi æfingatími er hafður
í huga, má heita vel af sér vikið
að skila hlutverkinu þó einsog
Þóra gerði á frumsýningu. Hún
var að vísu óörugg í textanum,
og sumstaðar voru glompur i
mótun persónunnar, en útlínur
hennar voru skýrar og gervið
gott. Margt í fari Helenar túlk-
aði hún ágæta vel, t.d. frekjuna,
lostann, eigingirnina og óðagot-
ið, og var t.d. bragð að átökum
þeirra mæðgna undir lokin. Mér
fannst túlkun hennar veiga-
minnist í upphafi, og eins gætti
sumstaðar til lýta látibragðs-
kækja, sem hún hefur sýnt fyrr,
t.d. í fótaburði.
Brynja Benediktsdóttir lék að-
al'hlutverkið, Jo, sem leikurinn
snýst allur um, og vann eftir-
minnilegan sigur. Framsögnin
var fuilkomlega eðlileg og
skemmtilega blæbrigðarík, lát-
bragð hennar allt ungpíulegt, og
reyndist henni furðuauðvelt að
draga fram duttlunga og geð-
sveifiur stúlkunnar. Hinsvegar
hefði mátt koma skýrar fram í
túlkuninni hið algera umkomu-
leysi stúlkubarnsins og úrræða-
leysið sem beinlínis rekur hana
í faðm Jimmies, en það er líka
leikstjórnaratriði.
Bessi Bjarnason var óiborgan-
legur í hlutverki Peters, hins öl-
kæra og eineygða elskhuga móð-
urinnar. Hver 'hreyfing hans og
áherzla var hnitmiðuð, og hygg
ég að drykkjuatriðið í iseinna
þætti sé með því bezta sem hann
hefur afrekað; þar hafði hann
fullkomið og hrífandi vald á
hverju viðbragði, hverri hreyf-
ingu, hverju tilliti. Raunar er
löngu vitað, að Bessi er einn af
okkar fremstu skapgerðarleikur-'
um, einsog hann sannaði til
dæmis í „Horfðu reiður um öxl“
og „.Húsverðinum", og er túlk-
un hans á Peter Smith enn ein
árétting þess.
Sigurður Skúlason lék kynvill-
inginn Geoffrey, vandmeðfarið
hlutverk, og gerði piltinn ákaf-
lega geðugan. Margt í samleik
þeirra Brynju var hugnæmt og
þekkilegt, en Sigurður hafði
persónuna ekki fullkomlega á
valdi sínu; honum auðnaðiist til
dæmis ekki að sýna manngerð-
ina sem hann átti að túlka, og
fyrir bragðið urðu viðbr-ögð
Peters þegar hann sá piltinn
fyrst nánast óskiljanleg. Áhorf-
endur vita að vísu af því sem á
undan er komið hverskonar per-
sóna Geoffrey á að vera, en Sig-
urður ber það alls ekki utaná
sér, og í því lá vissulega einn af
veiku hlekkjunum í sýningunni.
Gísli Alfreðsson lék lítið hlut-
verk blökkumannsins Jimmies
látlaust og nærfærnislega, en
var helzti þvingaður — mér
fannst vanta hina barnslegu,
náttúrlegu, upprunalegu drætti
í mynd negrans.
„Hunangsilmur" er haglega
samið leikrit, þétt í sér, samfellt
og glitrandi af skemmtilegum
tilsvörum og fenskleik æskunn-
ar. Aðferð höfundar er raunsæ,
en samt er víða beitt tækni og
leikbrögðum söngleiksins til að
rjúfa hið natúralíska form. Brian
Murphy hefur haft þann sama
hátt og Kevin Palmer að láta
persónurnar tala beint til áhorf-
enda, þegar svo ber undir, og er
það mjög í anda verksins. Hins-
vegar naut þessi leikmáti sín
ekki, þareð leikendur virtust
eiga erfitt með að gera þassa út-
úrdúra eðlilega og sannferðuga.
Það kom að jafnaði annarlegur
upplestrartónn í framsögnina,
þegar talað var beint til áhorf-
enda.
Þó „Hunangsilmur“ sé einn
angi þeirrar leikhúsvakningar í
Englandi, sem kom í kjölfar
fyrsta verks Johns Osbornes,
„Horfðu reiður um öxl“, er
það hvergi nærri eins eindregið
í mótmælum sínum og mörg
verk hinna svonefndu „reiðu
ungu manna". Shelagh Delaney
lýsir að vísu iskuggahliðum stór-
borgarinnar, en tekur þeim sem
sjálfsögðum hlut og skopast jafn-
vel að þeim með köflum. Per-
sónur hennar eru í senn mann-
legri og fyndnari en reiðir menn
á borð við Jimmy Porter; þær
eru á sinn hátt þroskaðri, skynja
lífið dýpri skynjun og eiga meiri
hlýju, þó þær séu alveg jafn-
varnarlausar gagnvart þeim öfl-
um í þjóðfélaginu og innra með
sjálfum sér isem ráða örlögum
þeirra.
Satt að segja fer undralítið
fyrir þjóðfélaginu sem slíku í
„Hunangsilmi“, þó ómurinn frá
því berist inní herbergiskytru
mæðgnanna. Leikurinn fjallar
nær eingöngu um eina persónu,
Jo, sem lifir í nokkurskonar
ævintýraheimi í miðju fátækra-
hverfinu. Þessi heimur lýtur sín-
um eigin lögmálum og er sjálf-
um sér nægur. Lýisingin á einka-
heimi Jo er „raunsæ“ á ytra
borði, en hann er engu að síður
lokaður og Jo þar allsráðandi.
Aðrar persónur leiksins þiggja
líf sitt af henni: tilfinningatengsl
þeirra við Jo ákvarða hlutverk
þeirra í leiknum. Er athyglis-
vert hve margvíslegum blæ-
brigðum hin kornunga skáld-
kona nær fram í sarr>gkiptum
ungu stúlkunnar við hinar per-
sónurnar, og þá einkanlega þau
Helen og Geoffrey.
Leikmynd Unu Collins er ein-
föld og hugkvæmniislega stíl-
færð, greinilega unnin upp úr
leikmynd „Fyrirheitisins“, en
hefðu ekki hýbýli mæðgnanna í
fyrra þætti mátt vera eilítið
óyndislegri?
Þýðing Ásgeirs Hjartarsonar
er ljós og lipur, en á stöku stað
Allar
' ge rdi r
Myndamóta
Fyrir auglýsingar
Baekur og timarit
Litprentun
Minnkum og Stœkkum
OPÍÐ frá kl, 8-22
MYNDAMOT hf.
simi 17152
MORGUNBLAÐSHIÍSINU
er af henni bókmáiskeimur sem
á illa við efnið. í frumgerð sinni
er leikritið á mjög óhátíðlegu
talmáli, og hefur það löngum
reynzt íslenzkum þýðendum
óþægur ljár i þúfu.
Prumsýningargestir tóku leikn-
um vel, en þeir voru óskiljan-
lega fáir, og virðist eimsætt eftir
frumsýninigarnar í haust, að
Þjóðleiktoúsið ætti að leita eftir
nýjum frumsýningargestum, og
mundi þá pjattið og tildrið á
frumsýningum væntanlega
minnka, sem væri mjög til bóta.
Ástæða er til að hvetja áhuga-
fólk um leiklist til að sjá „Hun-
angsilm“, því sýningin er um
marga hluti merkileg og á ef-
laust eftir að batna á næstu
tveimur til þremur vikum.
Sigurður A. Magnússon.
Nýtt...Nýtt
Chesteríield
filter
með hinu ffóða
Chesterfíeld
bragði...
Chesteríield
M8d«k»U.S.A
Loksins kom iiiter
sáffaretta með sönnu
tóbaksbraffði
Reynið góða bragðið
Reynið
Chesteriield iiiter
Brynja Benediktsdóttir og Þóra Friffriksdóttir í hlutverkum
mæðgnanna.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ:
Hunangsilmur
Höfundur: Shelagh Delaney
Þýðandi: Ásgeir Hjartarson
Leikstjóri: Brian Murphy