Morgunblaðið - 15.11.1968, Page 2
*
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1968
Ný verðlagsákvœði:
Álagning verzlunar skert
um 20-25% að me&altali
* Fulltrúar launþega gengu af fundi Verðlagsnefndar
VERÐLAGSNEFND ákvað a
fundi sínum í gær hámarksálagn.
ingu á ýmsar vörur miðað við
lög um ráðstafanir vegna ákvörð
unar Seðlabanka íslands um nýtt
gengi íslenzkrar krónu. í sam-
tali við Morgunblaðið í gær
sagði verðlagsstjóri, Kristján
Gíslason, að gæta bæri þess, að
þegar lögin um 20% innflutn-
ingsgjaldið voru gefin út, hefði
álagningin verið umreiknuð með
tilliti til þess, að umreikningin
nú miðaðist ekki við þau ákvæði
heldur verðlagsákvæði, sem
giltu frá febrúar s.l.
Kristján nefndi nokkur dæimi
um breytimgu álaigniaigari'nin'ar
frá því í febrúar og mú, og hver
hún var miðað við ákvæðin u-m
20% inmflutnimgisigjaMið.
Á ým-sum kornvörum og
gykri var álaigningin í febrúar
7% í heildisölu en í sm-ásölu
24-30%. Nún-a er hún 6,5%
heildsölu og 22-27% í smásöiu,
en það er óbreytt frá því sem var
meðan 20% igjaildið var í giMi.
Á mýjuim ávöxtum var álagn
ingin 13% í heiidsölu ,en 42% í
smásöl'u. Nú er hún 10% í heild-
sölu og 33% í smásölu, var 11,5%
í heiMsölu og 38% í smásöl-u með
ákvæðúm 20% gjaidsins.
Álagndn-gin á hreinlætisvörum,
svo sem sápu og þvottaefni var
10% í heitldsöki og 28% í smá-
sölu, en er nú 7,5% í heildsölu
og 22% í smásölu. Álagningin
var 9,5% í heildsöl-u og 26% í
smásölu miðað við á'kvæði imn-
flutnin-gsigj aMsins.
Álagnmg á Skófatnað var í
hieildisölu 10% og í sm-ásöl-u 27%,
en er nú 7,5% og 21 %í smásölu.
' Miðað við i-nnfiutnin,gsgjaMið
va-r hún 9,5% í heildsö'lu og 25%
í smiásöiu.
Álagning á leir- og glervörum
var 16% í heildsölu í febrúar og
35% í smásölu, en er nú í heild-
sölu 12% og 25% í smásölu. Mið-
að við ákvæðin vegna innflutn-
ingsgjaldsins þá var hún 15%
í heildsölu og 33% í smásölu.
Þetta er þó aðeims brot af þeim
vöruflokkum sem teknir voru
fyrir á fundi Verðlangsmefndar,
en gefur þó nokkra mynd af
breytingu álagningarinnar.
Morgunblaði’ð sneri sér til
Sveins Snorrasonar, lögfræðings,
sem setið hefur fund Verðlags-
nefndar fyrir verzlunina, og
spurði hann hvað nýju ákvæðin
»táknuðu fyrir verzlunina. Sveinn
sagði, að þau táknuðu raimar 20
—25% skerðingu álagninga-rpró-
sentunnar að meðaltali. I sumum
vöruflokkum væri skerðingin
mun meiri, því að sýnilegt væri
að stórfelldur samdráttur yrði á
eftirspurn sums vamings vegna
minnkandi kaupgetu almennings.
Fulltrúar launþega gengu af
fundi verðlagsnefndar í gær og
barst Morgunblaðinu síðdegis
fréttatilkynning frá Alþýðusam-
bandi Islands og Bandalagi starfs
manma ríkis og bæja, þar sem
segir að fulltrúar samtakamna
hafi í gær gengið á fund félags-
málaráðherra í f jarveru viðskipta
málaráðherra og afhent honum
' mótmælabréf. Báru fulltrúamir
fram kröfu um að staðið yrði
við gefið loforð á sl. ári um auk-
fð verðlagseftirlit og lögð sér-
stök áherzla á að vörubirgðir
yrðu kannaðar og eftirlit haft
með því að þær yrðu seldar á
gamla verðinu. Ennfremur gerðu
þeir tillögur um að tekið yrði
upp betra eftirlit af opinberri
hálfu með verðlagi í viðskipta-
löndum landsins til samanburðar
og til að kanna hagkvæmni í inn
kaupum landsins.
í bréfinu er ráðherra var af-
hent kemur fram, að samtökin
telja að með nýsamþykktum lög
um um ráðstafanir vegna ákvörð
unar Seðlabanka íslands um nýtt
gengi íslenzkrar krónu hafi Verð
lagsnefnd verið svipt löggildandi
valdi sínu í verðlagsmálum í
mjög veigamiklum atriðum og
verksvið hennar á miklum breyt
ingartímum þrengt stórlega.
Síðan segir orðrétt í bréfinu:
Stjórnir samtaka vorra mót-
mæla þessari valdasviptingu
gagnvart Verðlagsnefnd harð-
lega með sérstöku tilliti til þess
að skipun Verðlagsnefndar eins
og hún var ákveðin 1. nóv. 1967
var gerð með samkomulagi við
Alþýðusamband íslands og þá að
sjálfsögðu gert ráð fyrir því, að
hún héldi áfram því valdi og
valdsviði, sem þágildandi lög
kváðu um. Líta stjórnirnar því
svo á að hér sé um brigð að
ræða á nefndu samkomulagi.
Af framangreinum ástæðum
lýsa stjórnir samtaka vorra yfir
því, að þær muni ekki, að ó-
breyttu ákvæði 2. mgr. 2. gr.
nefndra laga endurskipa full-
trúa í verðlagsnefnd, þó þær
kynnu að eiga þess kost og í
annan stað, að þær leggi fyrir
fulltrúa sína í nefndinni að taka
engan þátt í verðlagningu og
verðlagsútreikningum sem beint
leiða af nefndu lagaákvæði, en
lýsa í því efni allri ábyrgð á
hendur ríkisstjórninni. Verði enn
á ný gripið til hliðstæðrar valda
sviptingar nefndarinnar munu
stjórnir samtakanna leggja fyrir
fulltrúa sína í nefndinni að
hætta þar endanlega störfum.
Samþykkt þessi tilkynnist yð-
ur hér með.
Þess má að endingu geta, að
tilnefning launþega, kaupmanna
og vinnuveitenda í Verðlags-
nefnd rennur út um næstu ára-
mót.
Skyrumbúðirnar nýju — 500 gr. dósir.
Gerilsneytt skyr í plastumbúðum
Skyrverð hœkkar vegna nýju umbúðanna
UNDANFARIN ár hafa Mjólkur
samsalan og Mjólkurbú Flóa-
manna unnið að þvi að breyta
framleiðsluháttum, meðferð og
pökkun á skyri. Stefnt hefir ver
ið að því að skyrið yrði betra,
gæðin jafnari og geymsluþolið
lengra. Skyrið yrði tilbúið til
neyzlu og í allri meðferð þess
bæði í framleiðslu og pökkun
væri tryggt ýtrasta hreinlæti.
Þessi framkvæmd hefir verið
all torleyst og tekið langan tíma.
Skyrgerð þekkist ekki nema á
íslandi, en vélakost varð að
sækja til annarra landa. En með
margvíslegum tilraunum og
breytingum hefir tekizt að bæta
aðferð við skyrgerð og skyrpökk
un. Þessar tilraunir hafa verið
gerðar í Mjólkurbúi Flóamanna
Rændu konur veskjum
TVÆR eldri konur voru rændar
veskjum sínum á götum úti í
Reykjavík í fyrrakvöld. í öðru
veskinu voru engir peningar, e»
11—1200 krónur í hinu. Síðar
um kvöldið handtók lögreglan
tvo menn og í gær játaði annar
að hafa rænt aðra konuna og
sagði félaga sinn hafa rænt hina,
en sá neitar enn. Á öðrum mann
inum fundust þúsund krónur.
Það var eingöngu árverkni
tveggja ungra lögregluþjóna,
þeirra Atla Ólafssonar og Óskars
Sigurpálssonar, að þakka að svo
fljótt hafðist upp á ránsmönnun-
um. Lögregl-uiþjónarnir voru á
eftirlitsferð niður við höfn, þeg-
ar þeir veittu tveimur grunsam-
legum mönnum athygli. Menn
þessir stóð-u inn í dimmu sundi
Fundur um
bæjurmúl í Vest-
munnneyjum
Sjálfstæðisfélögin í Vest-
mannaeyjum boða til sameig
inlegs fundar um málefni bæj
arins sunnudaginn 17. nóv.
n.k. í Samkomuhúsinu kl.
16.00. Fulltrúar flokksins og
varafulltrúar í bæjarstjóm
flytja ávörp og svara fyrir-
spumum. Sjálfstæðisfólk fjöl
mennið.
Eyverjar,
Eygló,
Sjálfstæðisfélag Vest-
mannaeyja.
og voru að handfjatla kvenveski,
sem þeir svo ekki gátu gefið
lögregluþjónunum neina skýr-
ingu á. Voru mennirnir tveir
þá fluttir í geymislu í Síðumúla.
Við yfirheyrslur í gærmorgun
lagði svo annar þeirra fram játn
ingu. Sagði hann, að þeir félagar
hefðu verið staddir á veitinga-
húsi kvöldið áður og orðið uppi-
skroppa með peninga. Fór þá fé-
la-gi hans út og skömmu síðar
kom hann aftur og kvaðst hafa
rænt veski af eMri konu í Garða
stræti.
Félagarnir fóru með veskið
niður að höfn, tóku úr því 1200
krónur í peningum, en fleygðu
veskinu í sjóinn. Maður sá, sem
játaði, 'kvaðst ekki hafa viljað
vera minni maður en félagi hans
og þegar hann sá eldri konu
vera að skoða í búðarglugga á
Kirkjutorgi, vatt hann sér að
henni og þreif af henni veskið.
Aftur fóru þeir félagar niður að
höfn til að kanna ránsfenginn,
en þá veittu lögregluþjónarnir
tveir þeim athyglL
Sem fyrr segir neitar hinn
maðurinn öllu ennþá. Menn þess
ir eru 22 og 20 ára.
á Selfossi og þar er skyrið fram
leitt og pakkað.
Á landbúnaðarsýningunni í
haust gafst mönnum kostur á að
kynna sér árangur þessara end-
urbóta og nú næstu daga kem-
ur skyrið til sölu hjá Mjólkur-
samsölunni.
urn sparnað með breyttum fram
leiðsluháttum og pökkun er ó-
hjákvæmilegt að hækka skyr-
verðið um hluta af umbúðakostn
aðinum. En kostirnir við nýjung
arnar eru svo miklir að rétt
þótti að hrinda þeim í fram-
kvæmd.
Fyrstu dagana verður lítið magn
^ð ræða, en í næstu viku verð-
Þessi breytta aðferð við skyr- l*)r væntanlega hægt að fullnægja
gerð er einkum að tvennu leyti íftirspurn.
(Fréttatilkynning frá Mjólkur-
samsölunni og Mjólkurbúi
Flóamanna).
frábrugðin þeirri fyrri. Skyrið
er nú gerilsneytt, en það eykur
geymsluþol þess upp í 5—7 daga
án þess að súrna, ef það er geymt
í kæliskápi. Hin nýjungin er sú
að í stað þess að sía mysuna úr
skyrinu í síu eins og gert hefir
verið til þessa, er hún nú skilin
frá í skilvindu af sérstakri gerð.
Við það verður skyrið mýkra en
þéttara í sér og lítið eitt fyrir-
ferðarminna en áður en hefir þó
sama þurefnainnihald og næring
argildi og fyrr. Auðvelt er að
hræra skyrið út með mjólk, und
anrennu eða vatni ef menn vilja.
Skyrið fer úr skilvindunni gegn
um kælibúnað í pökkunarvélina
og er því pakkað í plastbox í
tveimur stærðum 200 gr. og 500
gr.
Nokkur aukakostnaður fellur á
skyrið við þessar endurbætur.
Umbúðir þessar eru miklu dýr-
ari en pappírinn, sem notaður
hefir verið, og auk þess eru þær
hátt tollaðar. Þrátt fyrir nokk-
Steingrimur sýnir
á Akureyri
Steingrímur Sigurðsson heldur
málverkasýningu í stóra salnum
að Hótel Kea um næstu helgi.
Hann sýnir þar 20 nýjar myndir,
nær allt oliumálverk. Sýningin
verður opnuð kl. 17.30 á föstu-
dag og verður þá opin til kl.
20.00, á laugardag verður hún op-
in allan daginn, e’ða kl. 10—24 og
á sunnudag kl. 19—24, en þá
lýkur sýningunni.
Þetta er 5. sýningin, sem Stein
grímur heldur á tveimur árum.
Fyrirhugaðar eru einkasýningar
í Evrópu og Vesturheimi á næsta
ári.
Síðdegisfundur um gengislækk-
un og Iuusn efnuhugsvunduns
HAGFRÆÐINGAFÉLAG Islands
gengst fyrir síðdegisfundi um
ofangreint efni í Sigtúni laugar-
daginn 16. nóvember. Hefst fund
urinn kl. 2.30.
Framsögumaður verður Guð-
mundur Magnússon, hagfræði-
prófesssor, en að framsögn hans
lokinni mun umræðuhópur nokk
urra hagfræðinga reifa málið nán
ar og svara fyrirspumum og at-
hugasemdum fundarmanna um
eðli gengisbreytingarinnar og
væntanleg áhrif hennar á þjóðar
búskap, atvinnuvegi og lífskjör.
Verða það þeir dr. Jóhannes
Nordal, seðlabankastjóri, Jónas
H. Haralz, forstjóri Efnahags-
stofnunarinnar, Úlfur Sigur-
mundsson, framkv.stj. Kirkju-
sands h.f., og Þorvarður Alfons-
son, framkv.stj. Félags ísl. iðn-
rekenda.
Fundurinn er opinn gestum
utan félagsins, meðan húsrúm
leyfir.
Morgunblaðið sneri sér í gær
til Stefáns Björnssonar, forstjóra
Mjólkursamsölunnar, og sþurð-
ist fyrir um tolla og verð á um-
búðunum.
Stefán sagði, að tollurinn væri
40%. Það þýddi, að skyr í 500
gr. dósum yrði kr. 1.10 dýrara
en í pappírsumbúðum. Skyr í 200
gr. dósum yrði 80 aurum dýr-
ara.
Stefán Björnsson sagði, að
Mjólkursamsalan teldi, að verð-
hækkuninni væri mjög stillt 1
hóf, þar sem 500 gr. dósirnar
kostuðu kr. 2.26 í innkaupi og
200 gr. dósirnar kostuðu kr. 1.73
í innkaupi.
Ekkert olvar-
lega slasað
ENGINN farþeganna fjögurra,
sem fluttir voru í sjúkrahús í
fyrrakvöld, eftir að bifreið
þeirra hafði vcrið ekið á brúar-
stólpa á Hafnarfjarðarvegi, mun
vera alvarlega slasaður. Var líð-
an þeirra eftir atvikum góð í gær.
Kanlmiaður og þrjár konur vonu
í bílnum. Áreksbuiri'rm varð
um kl. 6.30, en Skyggni var þá
mjög slæmt og akstursskilyrði
erfið. Mun ökuimaðurinin ekki
hafia séð 'hamdriðið, ve-gna þess
að endiurSkimismeriki á stólpain/um
lýstu ekki, þao- seim þaru voru þak
in afurslettum. Vairð áireksturinn
mjög harður, þótt bifreiðiin væri
ekki á mikilli ferð. Fólk sliasað-
ist tialsvart, sem fyrr segir, hiiaut
áverka á höfði, mairðist og híaut
skurði í andliti.
VOUGE flytur
Verzlunin Vouge hf. í Hafnar-
firði flytur starfsemi sína nú um
helgina í nýtt og glæsilegt hús-
næði að Strandgötu 31 (hús Oliv
ers Steins).
Hér er um mun stærra hús-
næði að ræða og verður þess
vegna meira vöruúrval á boð-
stólnm en áður.