Morgunblaðið - 15.11.1968, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 15.11.1968, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1958 31 Úvissa um gengi frankans Fjármagnsflótti, gullæði og rýrnun varasjóða París, 14. nóvember. AP. Frakklandsbanki tilkynnti í dag, að gull- og gjaldeyrisvara- forði Frakka hefði rýmað um 26.8 milljónir dollara i vikunni sem lauk 7. nóvember. Þetta er mesta rýmun, sem orðið hefur um sjö vikna skeið, en síðan gjaldeyrishöft vom afnumin 4. september hafa sjóðimir rýmað alls um 258.2 milljónir daia. Um leið hefur eftirspum eftir gulli aukizt svo mjög, að hún hefur alclrei verið meiri síðan - ALÞINGI Framhald af bls J2. nokkur skil á hinum þýðingar- miklu störfum, sem unnin eru á skipum hinnar íslenzku land- helgisgæzlu. Dvölin á sjónum og kynni af sjómennsku mundu einnig verða unglingunum heilsu samleg og herðandi. Eðlilegt væri, að þeim yrðu greidd nokk ur laun fyrir störf sín, t.d. allt að hálfum launum, auk fæðis og einhverra vinnu- og hlífðarfata. Það er skoðun flm., að hér sé um ti'lraun að ræða, sem vel sé þess verð, að hún sé gerð. fs- lendingar eru fiskveiða- og sigl- ingaþjóð. Stefna ber að því, að siglingar verði í framtíðinni at- vinnugrein, sem dregur drýgri gjaldeyristekjur í þjóðarbúið en okkar litli farskipafloti gerir nú. Þess vegna er nauðsynlegt að örva áhuga ungra fslendinga á siglingum og farmennsku. Dvöl- in um borð í varðskipunum gæti einnig haft holl uppeldisáhrif á unglingana. Kynnin af löggæzlu störfum varskipjsáhafnanna gætu glætt þegnlegan þroska og ábyrgðartilfinningu hinna ungu pilta. Það er skoðun flm., að æski- legt sé, að þeir, sem til þessara starfa ráðast, séu úr hinum ýmsu landshlutum. Þess skal að lokum getið, að flm, hefur rætt þessa hugmynd við forstjóra Landhelgisgæzlunn ar, sem telur hana athyglisverða. - TEKKOSLÓVAKÍA Framhald af bts. 1 flokks Póllands og Ulbrights, leið toga kommúnistaflokks Austur- Þýzkalands. Það var stjórnmála- legur kyíði þessara tveggja flokks leiðtoga og einhliða upplýsingar, sem stjórnarvöld í Sovétríkjun- um fengu um lýðræðisþróunina og ©fniahagsendurbæfiuirniar í Tékkóslóvakíu, sem voru bein- ar orsakir innrásarinnar sagði Sik. Ég er mjög vantrúaður á þró- unina nú, en þegar til lengdar lætur, er ég bjartsýnn, hélt hann áfram. Sik er í Stokkhólmi, sem gest- ur Utanríkismálafélagsins þar. Hann kom þangað frá Bergen og Kaupmannahöfn, þar sem hann hefur einnig haldið fyrirlestra. Sik var í orlofi í Júgóslavíu, er herir Varsjárbandalagsríkjanna ráðust inn í Tékkóslóvakíu að kvöldi dags 20. ágúst sl. Eins og er, þá er hann búsettur í Sviss, en haon befur ekki beðið um pólitískt hæli þar. MIÐSTJÓRNIN A FUNDI I PRAG M'iðstj'órn kommú'nisbaSlokks Tékkóslióvalkíu kom samain til fundar í dag, og er gert ráð fyr- ir, a@ þair mund íhaldssiamari öfl inmain flokksins og þatu frjáls- lyndari vegaist á. Víðtækur óftti um, að aifbur kumni að verða snú ið íil íhaldisstefmi kom m.ia. fram í tilkynningu frá málmiðínaðar- Sambainidi landsins, er birtist í verkailýðSblaðinu Pruce, þar sem fordæmdar voru bæði amcMaða fhaldssinna við Alexamder Dub- cek leiðtoga kommúnistaflekks- ins og mótimælaaðgerðÍT æsku- fólks giegn Sovétrikjumuim. gullæðið stóð sem hæst í marz. Hvort tveggja er talið sýna vax- andi óvissu um gengi frankans. Tölur Frakklandsbanka eru að- eins taldar sýna hluta stórfellds fjármagnsflótta, sem átt hafi sér stað undanfama daga og eigi rót sína að rekja tii þess, að hugsan- legt er talið að gengi þýzka marksins verði hækkað þrátt fyr ir neitanir vestux-þýzkra yfir- valda. Óvissan er mikil þrátt fyrir það, að í gær var haft eftir de Gaulle, forseta, að „gengisfelling væri mesta fjarstæða sem hugs- azt gæti“ og þrátt fyrir það að í fyrradag greip stjómin til nýrra ráðstafana til að stemma stigu við fjármagnsflótta og treysta gengi frankans með lánatakmörk vmum. Ein af þessum rá’ðstöfun- um var hækkun forvaxta um %% í 6%. Ljóst virðist vera, að hvorki róandi orð de Gaulles né hinar nýju ráðstafanir hafa end- urvakið traust á frankanum held ur þvert á móti ýtt undir al- mennt vantraust á gengi frank- ans. Gullviðskipti, sem hræddir spákaupmenn grípa venjulega til þegar þeim þykir fokið í flest skjól, jukust í 6 milljóair dollara og varð að lengja afgreiðslu- tima um einn stundarfjórðvmg vegna gífurlegrar eftirspurnar. - SKULDBINDING Framhald af hls. 1 boðið til fundar um öll megin- atriði bandarískrar utanrikis- mála- og varnarmálastefnu, þar sem sérstök áherzla var lögð á ástandið í Evrópu og Vietnam. Síðan tilkynnti Nixon, að stjóm Johnsons „gseti ekki ein- ungis tálað fyrir munn núver- andi stjórnar, heldur einnig fyr- ir munn þeirrar næstu“. Á NATO-fundinum í dag benti Denis Healey, varnarmálaráð herra Bretlands á, að fyrir hendi væru í Bandaríkjunum „ríkar skoðanir" á því, að þær byrðar, sem Bandaríkin hefðu orðið að axla í varnarmálum væru meiri en sanngjarnt væri. Healey lagði áherzlu á, að Evrópa yrði að gera meira sjálf fyrir varnir sínar. Síðan sagði hann, að Bretland verði tiltölulega meira fé til varn armála en nokkurt annað aðild- arríki NATO í Evrópu. - ZOND6 Framhald af bls. 1 tunglinu í 2—3000 kílómetra fjarlægð og ekkert benti til þess að reynt hefði verið að koma .flauginni á braut umhverfis tunglið. Vestrænir vísindamenn hafa velt því fyrir sér hvort Zond 6 eigi að safna upplýsingum og fullkomna aðferðir, sem nauð- synlegar séu til að senda mann- að geimfar umhverfis tunglið. — Þeir segja, að slík ferð verði ef til vMl farin í fyrri hluta desem- bermánaðar. Þriggja manna tunglfar Bandaríkjamanna, Ap- ollo 8, sem skotið verður á loft 21. hesember, á að fara um- hverfis tunglið. Verðið hækkaði úr 30.98 dollarar únsan í 40.07 dollara. Að sögn Frakklandsbanka nema vara- gjaldeyrisbirg’ðir 4.173 mMljörð- um franka. 1 Frankfurt í Vestur-Þýzka- landi er sagt að gífurlegt magn franskra franka hafi streymt inn í landið í dag, þrátt fyrir ráð- stafanir frönsku stjórnarinnar, og er talið að þessi fjármagnsstraum ur sé fimm til sex sinnum meiri en eðlilegt sé. 1 London lækkaði sterlings- pund í verði í kauphöllum í kjöl far tilkynninga um aukinn halla á greiðslujöfnuði Breta í október. Kvikmyndasýning Germaniu Á MORGUN, laugardag, verða sýndar frétta- og fræðslumyndir á vegum félagsins Germanía, og eru fréttamyndirnar frá júlí og ágúst í sumar. Fræðslumyndirnar eru tvær. Er önnur umferðakvikmynd og sýnir starfsemi umferðarlögregl- unnar í Vestur-Þýzkalandi, sem m. a. er í því fólgin að leiða umferðina þannig, að sem minnst ar tafir verði á umferðinni og alls öryggis þó gætt. Hin fræðslu myndin nefnist „Ferð Mozarts til Parísar". Eins og nafnið bendir til er þar sagt frá ýmsum atrið- ■um úr ævi Mozarts, ekki ein ungis dvöl hans í París, þar sem hann missti móður sína, heldur einnig ferðum þessa tvítuga undramanns til Múnchen og rnargra annarra borga Þýzka- lands, þar sem hann reyndi án árangurs að fá stöðu við sitt hæfi. Með myndinni eru að sjálf- sögðu flutt mörg af fegurstu verkum meistarans. Sýningin verður í Nýja bíó og hefst kl. 2 e. h. öllum er heimill aðgangur, börnum þó einungis í fylgd með fullorðnum. Mikil aðsókn í Listasafnið SÝNING Listasafns fslands á 16 málverkum eftir Jóhannes Sveins son Kjarval, sem Gunnar heit- inn Stefánsson stórkaupmaður gaf safninu verður vegna mik- illar aðsóknar opin til kl. 10 á laugardags- og sunnudagskvöld, en aðra daga er opið á safn- tíma. Óákveðið er hvað sýning. in verður opin lengi. Þessi mynd er tekin við vatnsflauminn hjá Lagarfljótsbrú. - SYNDAFLOÐ Framhald af bls 32. an út á götuna og lokaði henni, en þa’ð var búið að laga í gær. Þá er ljóst að gífurlegar skemmdir hafa orðið í sveitinini kringum bæinn. Vegir hafa þar skemmzt mjög mikið og lækir og ár flætt yfir bakka sína. Hjá bæ er nefnist Grænanes féll aur- skriða í á og hálfstíflaði hana. Varð hún brátt að fljóti og breytti farvegi sínum. Flæddi áin yfir ræktunarlönd bænda þar í nágrensninu, og var eins og yfir haf að líta, þegar verst lét. Þá hefur áin brotið um 35 metra vegarkafla norðan við Norðfjarð arbrúna, og rennur þar öll í gegn, en ekkert undir brúna. Álag á brúarstólp- ana hefur verið gífurlegt með- an áin rann þar, og eru þeir mjög sprungnir, þannig að ljóst er að styrkja þarf brúna áður en hún verður akstursfær að nýju. Heldur var byrjað að sjatna í ánni í gær. Loks féll um 500 metra breið aurskriða þetta kvöld á ræktun- arlönd hjá bænum Seldal, sem er innst í sveitinni og hefur því valdið miklu tjóni þar. Aurskriður hafa ekki fallið á Neskaupstað frá 1949, en þá féll skriða á bæinn og olli gífur- legu tjóni. Sáralítið lækkar í Lagarfljóti. Hér fer á eftir frásögn frétta- ritara Mbl. á Egilsstöðum af á- standinu þar og í nærsveitunum: Nokkrar truflanir hafa orðið á Grímsárvirkjun vegna flóðanna síðustu daga. Þegar vatnsmagnið mældist mest í ánni, var það um 800 kúbikmetrar á sekúndu, sem er á annað hundrað kúbikmetr- um meira en rennslið í Þjórsá. Vélarnar varð að stöðva í u.þ.b. einn sólarhring vegna hins mikla vatnsmagns. Mikill aur úr Gilsá hlóðst upp við vatnsúrtak frá stöðinni, svo að hún skilar enn- þá ekki nema hálfum afköstum. Einnig þurfti að stöðva vatns- - TEKKAR Framhald af bls. 3 vair fyrir vaildatökiu Dubceks. Þeir sögðu: — Ungverjar hafa erun inn- rásairher eftir 12 ár. Með síð- usfcu saminiinigium Téktoósló- vaika og Rússa hefur hersetan verið gerð lögleg. Að lökum sögðu þeir Karel Rejzek og Ivan Blaha, að þeir hefðu fengið viifcneislkju um að islenzkir blaðaimenn hefðu skýrt mjög ítarlegia og vet frá ástandimiu í Tékkóslóvaikíu. Þeir báðu fyrir þakkir tM ís- lenzkra blaðamainma fyrir góða og samnia frásöigin. Poul Reumerts og Onnu Borg minnzt BRJÓSTMYND af Poul Reum ert og andlitsrissmynd af Önnu Borg voru afhjúpaðar við einfalda en hátíðlega at- höfn í forsal Konunglega leik- hússins í Kaupmannahöfn 12. nóvember sl. Brjóstmyndina gerði myndhöggvarinn prófess or Johannes Bjerg á sínum tíma, er Poul Reumert varð sextugur, en myndin af Önmu Borg var gerð af listmálaran- um Herman Vedels. Leikhússtjóri Konunglega leikhússins, Peer Gregaard, kvaðst vera þakklátur fyrir að hafa haft tækifæri til þess áð kynnast Poul Reumert. — Reumert minntist oft orða Williams Blochs til ungra leik ara, sagði leikhússtjórinn. — Það sem máli skiptir að vita, er hver ég er, hvaðan ég kem, hvert ég fer. Þetta skildi Poul Reumert. Þá lagði Greegaard leikhús- stjóri ennfremur áherzlu á, að það hefði verið Konunglega leikhúsinu mikilvægt að geta hengt upp myndina af önnu Borg, samtímis því sem brjóst myndinni af Reumert var kom ið fyrir í leikhúsinu. Kvaðst hann vera sannfærður um, að það hefði verið ein af æðstu óskum Poul Reumerts, að brjóstmyndm og myndin af konu hans yrðu samtímis fengnar í hendur Kommglega leikhúsinu, Greegaard sagði ennfremur, að minningin um þau Poul Reumert og önnu Borg fæli í sér sönnun þess, hve ástin milli tveggja mann- eskja gæti skipt miklu máli fyrir andagiftina og logandi eldinn í list þeirra. Michael Reumert, hæsta- réttarlögmaður, þakkaði heið- ur, sem Konunglega leikhúsið hefði sýnt foreldrum hans og sagði fyrir hönd fjölskyldu sinnar, að brjóstmyndin af föður hans og myndin af móð- ur hans væru þarna á sinum rétta stað. aflsstöðina við Fjarðarsel í Seyð isfirði um tíma vegna flóða. Vegaskemmdir hafa verið geysimiklar, sérstaklega þó i Skriðdal. Víná þrauzt út úr far- vegi sínum og skemmdi veginn. Brúin yfir Eyrarteigsá er ófær og einnig brúin á Þórisá og Jóku. Haugá rennur nú langt frá sínum upprunalega farvegi, og brúin er á þurru landi. Vatns- dalsá hefur einnig lent upp úr farvegi símum, oig grafið burtu stórt stykki úr veginum að sunn- anverðu. Gert er ráð fyrir að Fagridal- ur verði faer flestum bifreiðum í kvöld, þó mun varlegt að fara með þunga bíla yfir enn um sinn. Fjarðanheiði var fær að nafninu til í kvöld, en þar hefur vegurinn skemmzt töluvert. Leið in til Borgarfjarðar er fær fyrir jeppa, en smáskriður hafa þó hlaupið á hann í Njarðvíkur- skriðum. Á Eystri-Jökuldalsvegi hefur veginn tekið burtu á nokkr um stöðum, en þó er fært norður um Möðrudalsfjallgarða vestan Jökulsá á Dal. óvíst er um vega- skemmdi.r í Fljótsdal, en tals- verðar skemmdir munu þó hafa orðjð þar. Hafin er viðgerð á vegunum, og mun verða fært um flesta vegi fyrir jeppa næstu daga. — Geysimikið verk er þó að koma veginum í samt lag, og alveg óvíst hvað það tekur langan tíma. Sáralítið hefur enn lækkað i Lagarfljóti, og var veginum aust an Ii8.gairfiljótsbrúiar lokiað fyrir allri umferð í kvöld, en þar rennur vatn yfir hann á 3—400 metra kafla. Elztu menn hér muna ekki eftir öðru eins flóði í Lagarfljóti, en þegar flóðið náði hámarki í dag, voru um 30 sm upp í Lagarfljótsbrúna. Það vill til að logn er, en ef hann bvessti af vestan eða suðvestan mætti búast við stórkostlegum skemmdum. - DANIR Framhald af hls. 1 hins vegar um árlegan útflutning á 24.000 tonnum á freðfiski. Svíþjóð hefur hins vegar ekki flutt úr freðfisk til Bretlands síðuistu ár. Engu að síður er gert ráð fyrir, að útflutningurinn alls verði nú rúmlega 32.000 tonn \ fyrir árslok. Er ástæðan sú, að Noregur hefur farið fram úr út- flutningsheimild sinni til Bret- lands. - LANDIÐ ÞITT Framhald af bls. 12. getur sýnilega komið fyrir á allra beztu bæjum. Örlygur Hálfdánarson. XXX Aths.: I grein Jóhanns Hjalt sonar urðu því miður allmargi prentvillur. Segir þar m.a., i Ófeigsfjörður hafi farið í ey 1695, en á að vera 1965. Þá seg a’ð drepsótt hafi geisað á íslan 1945, en á að vera 1495. Á einu stað stendur Bjarnanúp, en á < vera Bjamarnúp, og á öðru Kúavíkur, en á að vera Kúvíku í sömu athugasemd stendur fö urbróður, en á að vera föðu föður. I 28. athugasemd segir i 1,4 hæðarinnar sé holur innan, < á að vera ca. 1/4 (einn fjórði).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.