Morgunblaðið - 15.11.1968, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. NÖVEMBER 1968
»lrteitna<*
Ensk dúnheld og fiðurheld
efni. 30 gerðir af damaski úr
isilki og bómull, hvítt og mis-
litt, á gamla verðinu.
Póstsendum.
HELMA
Hafnarstraeti, sími 11877.
BÍLAHLUTIB
Ra/magnshlutir í flestar
geríír bíla.
KRISTINN GUBNASON h.f.
Klapparstíg 27. Laugav. 166
Simi 12314 og 21965
Vélapakkningar
Be Soto
BMO — Austin Gipsy
Chrysler
Buick
Chevrolet, fLestar tegundir
Dodge
Bedford, dísil
Ford, enskur
Ford Taunus
GMC
Bedford, dísil
Thomas Trader
Mercedes-Benz, flestar teg.
Gaz ’59
Poheda
Volkswagen
Skoda 1100—1200
Renault Dauphine
Þ. Jónsson & Co.
Sími 15362 og 19215.
Brautarholti 6.
■ M MOON SIIK
SNYRTIVÖRUR
L____M____
Halldor Jonsson f
Hafnarstræti 18
sími 22170-4 línur
0 Hitunarkostnaður í
Kópavogi.
Kópavogsbúi skrifar:
„Kæri Velvakandi, birtu fyrir
mig nokkrar línur. Ég á heima
í Kópavogi og mér er heitt í
hamsi — og engin furða þar sem
mér var rétt í þessu að berast
reikningur frá Hitaveitu Kópa-
vogs. Þar er mér gert að greiða
rúmlega 2000 krónur fyrir upp-
hitun og heitt vatn fyrir einn
mánuð. Ég fór á stúfana til þess
að kynna mér málið, og komst
þá að því, að við, sem skiptum
við hitaveituna hér greiðum kr.
18,20 fyrir hvern rúmmetra vatns
á sama tíma og Reykvíkingar
greiða fyrir sama magn kr. 10.77.
Verðið hér í Kópavogi er þann-
ig kr. 7.43 hærra fyrir hvern rúm-
metra en í Reykjavík, eða 68,99
prs. hærra.
Að vísu veit ég að vatnið, sem
Hitaveitan hér selur okkur, er
hitað upp í kyndistöð og þvi
kannski ekki við því að búast,
að það sé jafnódýrt og hvera-
vatnið í Reykjavík, en fyrr má
nú rota en dauðrota. Ég hefi til
dæmis heyrt, að sum háhýsin í
Reykjavík séu með sér kyndistöðv
ar þar sem olía er notuð, og
ibúarnir kæri sig hreint ekkert
um að fá vatn frá Hitaveitunni
þar, þótt þeir eigi kost á því.
Það sé lítið sem ekkert dýrara
að kynda með olíunni, þ.e.a.s.
svartolíu."
f Verma sig við
reikninginn?
„Fastagjaldið hér er líka miklu
dýrara en í Reykjavík. Okkur
er gert að greiða kr. 297.00, en
Reykvikingum kr. 198,30. Gjaldið
er því 49.77% hærra hér.
Þá langar mig til þess að
spyrja ráðamenn hér, hverju það
sæti, að vatnið hér hækkaði úr
10 krónum fyrir rúmu ári í rúm-
lega 18 krónur á sama tíma og
það hækkaði í Reykjavík úr um
Innheimtufólk
Óskum eftir að ráða fólk til innheimtustarfa nú þegar.
Aðalstarf eða aukastarf.
Upplýsingar í síma 82300, en aðeins milli kl. 5 — 7.
HÁDEGISVERÐAR-
FUNDUR
Laugardagur
16. nóv. kl. 12.30.
Matthías Johannes-
sen, ritstjóri ræðir um
BLAÐAMENNSKU.
FUNDARST AÐUR
VERZL. OG SKRIFSTOFUFÓLK, FJÖLMENNIÐ
OG TAKIÐ MEÐ YKKUR GESTI.
HOTEL
8 krónum í kr. 10,77.
Einnig langar mig til þess að
fá upplýst, hvort einhver til-
hæfa sé I þeim orðrómi, að
kyndistöðin hér sé látin greiða
annan kostnað en henni ber.
Loks vil ég spyrja bæjarstjórann
okkar, hvort hann vilji ekki taka
borgarstjórann í Reykjavík sér
til fyrirmyndar með fundarhöld,
þar sem íbúum kaupstaðarins gef
ist tækifæri til að köma þessum
og öðrum spurningum á fram-
færi, en þurfi ekki að leita í
blöðin til þess.
En eitt verð ég að viðurkenna:
Ef reikningum Hitaveitu Kópa-
vogs er ætlað að hita svo í mönn-
um, að þeir geti vermt sig við
þá næsta mánuðinn, þá held ég
að það hafi næstum því tekizt.
Með þökk fyrir birtinguna
Kópavogsbúi."
0 Enn um bjórinn.
„Kæri Velvakandi.
í dálkum þínum 8. nóv. s.l.
birtust nokkrar línur um hinn
margumtalaða bjór, eða bjórmál
okkar íslendinga. Bjórsína er
mjög sár út af því að fá ekki
blessaðan bjórinn, og virðist
leggja mikið á sig til þess að
ná i þennan guða drykk. Einn-
ig talar hún með lítilsvirðingu
um templara, og er mjög áryggju
full út af því, að þeir fái því
áorkað að áfengi fái ekki í fram
tíðinni að flóa hér um í jafn
stríðum straumum og nú er.
Hún gerir sér áreiðanlega ekki
grein fyrir þvi, hversu alvarleg
áfengismálin eru hér, og vil ég
ráðleggja þeirri ágætis konu að
kynna sér viðtöl, sem nýlega áttu
sér stað og voru birt í blöðum,
við Alfreð Gíslason lækni og
Bjarka Elíasson, yfirlögregluþjón
Ég er ekki bindindismaður, hef
gaman af að fá mér glas af víni
af og til, og eins finnst mér góð-
ur sterkur bjór. Aftur á móti
tel ég, að við fslendingar gefcum
verið hreyknir af því að hafa
hér bjórlaust land og þurfum ekk
ert að skammast okkár fyrir það
t.d. gagnvart útlendingum. Berum
þeim bara á borð 1 staðinn okk-
ar heimsins besta vatn.“
£ „Lögverndað smygl.“
„En það er annað, sem kom £
hug minn, þegar ég las pistil
Bjórsínu um bjórsmyglið, sem er
lögleitt hér. Ég tel það forkast-
anlegt óréttlæti og helbera vit-
leysu að gefa nokkrum íslenzk-
um farmönnum forgangsrétt á
því að flytja inn sterkan bjór
og selja hér á óheyrilegu verði;
lögverndaður svartur markaður
og smygl.
Ef hér á að vera bjórlaust land
sem allt er f lagi með, og við
e.t.v. getum verið hreyknir af,
þegar við vitum um reynzlu ann
arra þjóða af bjórmálum, þá get-
um við ekki látið einhvern hóp
eða stétt manna leika sér hér
með lögverndað smygL Það er
þjóðarskömm.
H. J.“
H.J. skrifar sig heitan engu síð
ur en Kópavogsbúinn hér á und
an, en athygli hans skal vakin
á því, að sá bjór sem farmenn
mega hafa með sér inn í landið
lögum samkvæmt, er ekki smýgl
varningur. Það magn, sem þar
er umfram, er hinsvegar smygl,
og sá .innflutningur'* er ekki lög
verndaður, siður en svo.
LÓUBÚÐ
Telpnanáttkjólar frá 129/— Rúllukraga-
Undirkjólar — 95/— peysur — 374/—
Kvensloppar — 551/— Herrasokkair — 29/—
Hvítar nælon- Ódýr nærfatnaður.
skyrtur — 140/— Barnahúfur, lambhús-
Helanca stretch- hettur, vettlingar.
peysur — 156/— Kaupið meðan verðið
Stretchbuxur — 168/— er lágt.
1 LÓUBÚÐ, StarmýrL
—ÁRMÚLI—l
Til söl'u er plata með byggingarétti á 3. hæð í iðnaðar-
húsnæði í Ármúla, um 270 ferm. Timbur fyrir uppslátt
fylgir. Tilvalið fyrir einstaklinga eða fyrirtæki sem
vildu byggja sjálfir yfir starfsemi sína. Teikningax
fyrirliggjandi.
FASTEIGNAÞJÓNUSTAN
Austursitræti 17 (Silli og Valdi).
Símar 16870 og 24645.
Fyrir
barnið
Barnahúsgögn, barnarúm,
barnastólar, barnagrindur,
burðarrúm og fl.
Lítið inn þegar þér eigið
leið um Laugaveginn.
HÚSGAGNAVERZLUN KRISTJÁNS SIGGEIRSSONAR HF. LAUGAVEG113, SÍM113879
i\if uf uf uf «1UR uf Mfvtufu