Morgunblaðið - 15.11.1968, Page 11

Morgunblaðið - 15.11.1968, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1968 11 Kostnaður 10 millj. kr. minni en áætlað var Glcesilegur gagnfrœðaskóli vígður á Sau ðárkróki Sauðárkróki, 10. nóvember. NÝTT gag'nfræðaskólahús var vígt hér á Sauðárkróki sl. laug- ardag. Athöfnin hófst með þvi að kirkjukór Sauðárkróks söng undir stjórn Eyþórs Stefánsson- ar, tónskálds og sóknarprestur- inn sr. Þórir Stephensen flutti bæn og hugvekju. Því næst hélt formaður byggingarnefndar skól birgðaaðátaða fyrir kennara, snyrtingar, stórt anddyri Oifl. í þeim hluta, sem ófullgerður er, er aðstaða fyrir skólastjóra og kennara og kennslustofur og félagsstarfsemi fyrir nemendur. Áætlaður kostnaður alls þess húss, sem nú er risið af grunni, var rúmar 31 milljón kr. Raun- verulegur byggingakostnaður gerð í lok árs 1966 í samræmi við kostnaðarverð nýbyggðra skóla á þeim tíma. Arkitektar hússins eru Stefán Jónsson og Þorvaldur E. Þor- valdsson. Byggingaverkfr. var Vilhjálmur Þorláksson. Hitalögn teiknaði Kristján Flygenring og raflögn Jón Á. Bjarnason. Aðal- I verktaki var Byggingafél. Hlyn- byggingarinnar f.h. Sauðárkróks bæjar var Jóhann Guðjónsson, byggingafulltr. Geta má þess, að byggingin er að heita má að öllu skagfirzk framleiðsla, bæði hvað fram- kvæmd og húsagerðarlist snert- ir. Skólaborð nemenda og kennara eru teiknuð af arkitektum skól- ans. I þeim hluta fyrsta áfanga, sem óbyggður er, er ætlað að koma fyrir verknámi skólans, og því mikil nauðsyn á því að byggja þann hluta sem allra fyrst. í bygginganefnd skólans eru: Hákon Torfason, form. sr. Þórir Stephensen, Stefán Guðmunds- son, Jónas Þór Pálsson og Magn- ús Bjarnason. Auk bæjarstjóra töluðu Helgi Elíasson, fræðslustjóri, Aðal- steinn Eiríksson, eftirlitsmaður í'jármálaskóla, Stefán Jónsson, arkitekt Friðrik Margeirsson, skólastjóri og Guðjón Ingimars- son, sem einnig stjórnaði sam- komunni. Við þetta tækifæri var sér- staklega minnst tveggja látinna 1956 að Friðrik Margeirsson nú- verandi skólastjóri tók við. Að lokinni vígsluathöfninnl var gestum boðið til kaffidrykkju í féiagsheimilinu, en daginn eft- ir var skólinn settur í hinum nýju og glæsilegu húsakynnum með hátíðlegri viðhöfn. Allan undirbúning að bygg- ingu skólans hafði fræðsluráð með höndum undir formennsku þáverandi og núverandi formanns ráðsins, sr. Þóris Stephensen. Var málið fyrst kannað og ým- issa upplýsinga aflað, enda þá fyrirsjáanlegt að brátt mundi barnaskólahúsið verða allsendis ófullnægjandi fyrir alla skóla- starfsemi staðarins. Hafði nokkru fé áður verið ætlað til byggingu gagnfræðaskóla á fjárhagsáætlun bæjarins. En árið 1964 komst veruleg- ur skriður á málið, lóð var feng- in og fjárveiting tekin upp á fjárlögum Alþingis fyrir árið 1965 til undirbúnings fram- kvæmdanna. Ennfremur fékkst I leyfi til að ráða Stefán Jóns- I son (son Jóns Björnssonar, fyrrv. skólastjóra), sem arkitekt skól- ans. Á fundi fræðsluráðs og bæjar- ráðs, dagana 7.-8. maí 1966 lagði Stefán fram fullgerðar teikning- ar af byggingunni, sem voru sam I þykktar af öllum fræðsluráðs- Nýja gagnfræðaskólabyggingin ans, Hákon Torfason, bæjarstjóri ræður og rakti sögu byggingar- innar og lýsti húsinu. Húsið er um 6.000 m3 að stærð og er % hlutar af fyrsta áfanga byggingarinnar, sem fyrirhugað er að verði 9.000 m3 að stærð. Af þeim hluta, sem nú er byggður, er um helmingur að fullu frágenginn, og í því rými eru 4—5 kennslustofur, bráða- þess hluta, sem nú er byggður er um 14 milljónir kr. og áætlað- ur kostnaður við að fullgera það, sem ófrágengið er af þegar byggðu húsi, er 7—8 millj. kr. þannig að mismunur á áætluðu kostnaðarverði og raunverulegu má ætla að sé 9—10 millj. kr. Húsið kemur þá til með að kosta aðeins % af þeirri upphæð, sem í fyrst var áætlað. Áætlunin var ur h.f. á Sauðárkróki, meistari Björn Guðnason. Aðrir verktak- ar Trésmiðjan Borg h.f. á Sauð- árkróki og Vélaverkst. Kaupfé- lags skagf. Múrarameistari Jón D. Jóhannsson. Málarameistari Haukur Stefánsson. Rafvirkja- meistarar Þórður P. Sighvats, Erlendur Hansen og Birgir Dýr- fjörð. Járnalagnir annaðist Kári Hermannsson. Eftirlitsmaður Frá vígsluathöfninni. Landið þitt II. bindi komið út Steindór Steindórsson, skólameistari ritar staðfrœðilýsingu 700 staða — Bókaútgáfan örn og örlygur h.f. Ihefur niú sent fná sér a/mnað bindi bókarinnar Landið þitt. Bókin er eftir Steindór Stein- dórsson skólameistara og er saga og sérkenni nær 700 svæða og staða í óbyggðum íslands ásamt nafnaskrá yfir bæði bindin. Fyrra bindi bókarinnar er út kom fyrir tveimur árum var tek ið sa/m/an af Þorsbeiini heitmaim Jósefssyni, og má segja að hún hafi verið fyrsta bókin með stað fræðilýsingum er út kom á ís- lenzku. Náði sú bók mjög mikl- um vinsældum og var endur- útgefin. Sagði Örlygur Hálfdán- arson að nú væri annað upp- lag bókarinnar á þrotum. í formála bókarinnar Landið þitt, segir Steindór Steindórsson skólameistari að hann hafi ráð- izit í þetta verkefni með hálfum huga, en það hafi orðið ofan á hjá sér, að verkefnið væri það heií'landi að ekki væri hægt að varpa því frá sér.„Ferðir mínar um óbyggðir landsins eru orðn- ar býsna margar, og mikla skuld á ég öræfunum að gjalda fyrir ótal ánægjustundir. En gera má ráð fyrir, að ferðunum fari brátt fækkandi og að minnsta kosti verði ekki um langdvalir að ræða í óbyggðum á næstu árum. Þess vegna má líta á þessa sam- antekt mína sem viðleitni til að gjalda gamla skuld og hins vegar sem kveðju til liðinna á- nægjustunda. Steindór Steindórsson var á blaðamannafundi er útgáfan efndi tfl fyrir skömmu og sagði að bókin væri í meginefnum eins upp byggð og bók Þorsteins Jós efssonar, það sem helzt skyldi á milli væri að meiri sagnfræði hefði fléttast inn í bók Þorsteins en meiri náttúrufræði í sína bók. Einar Guðjohnsen fram- kvæmdastjóri Ferðafélags fs- lands var viðstaddur á blaða- mannafundinum og lauk hann miklu lofsorði á bók Steindórs og sagði að nær ótrúlegt væri hvað hann hefði getað safnað saman í henni miklum fróðleik. Sem fyrr segir fylgir nafna- skrá bókinni fyrir bæði bindin, og sagði útgefanidi a/ð hér mundi vera um mestu staðarnafnaskrá að ræða sem prentuð hefði ver- ið hérlendis, og raunverulega mætti segja að hún væri 'lykill- inn að notkunn beggja bókanna. Þá kom einnig fram á fundin- um að ætlunin er að reyna að gefa Landið þitt út í heildarút- gáfu árið 1974 og sögðust útgef- andinn og höfundurinn vera mjög þakklátir ef menn sem Steindór Steindórsson. vildu koma athugasemdum á framfæri, eða koma með tillög- ur um viðauka eða leiðrétting- ar. Skal þá hafa samband við Örlyg Hálfdánarson, Hjarðar haga 48, eða Steindór Steindórs- son pósthólf 66, Akureyri. Landið þitt, annað bindi, er 225 bls., prentuð og bundin í Prentsmiðjunni Eddu h.f. Bókin sem Páll Jónsson og Þorteinn Jósefsson hafa tekið, og gerði er prýdd 26 heilsíðuljósmyndum Litróf h.f. mynd'aimótiin. skólafrömuða, þeirra Jóns Þ. Björnssonar og sr. Helga Kon- ráðssonar. Jón var skólastjóri barnaskóla Sauðárkróks árið 1908—1952 og stofnandi og skóla stjóri unglingaskólans frá upp- hafi, og eru því rétt 60 ár frá upphafi unglingafræðslu hér á staðnum. Sr. Helgi stofnaði gagn fræðaskóla hér árið 1946. Gegndi hann skólastjórastarfi til ársins mönnum. Nokkru síðar sam- þykkti menntamálaráðherra teikningarnar og veitti leyfi til að hefja byggingaframkvæmdir. f ágústmánuði 1966, er öllum undirbúningi var lokið, hófust svo byggingaframkvæmdir, sem gengið hafa framúrskarandi vel, og má eflaust þakka það að veru legu leyti Birni Guðnasyni, bygg ingameistara skólans. — Jón. Skrifstofustarf Stórt bókaforlag óskar eftir góðum og reglusömum manni til trúnaðarstarfa. Starfsreynsla og bókhalds- þekking æskileg. Framtíðarstarf að fenginni reynslu. Lífeyrissjóðsréttindi. Góð vinnuskilyrði. Tilboð með upplýsingum merktum: „Bækur — 6503“, sendist Mbl. sem fyrst eða fyrir 26/11. Nemendahefti R.K.Í. fyrir fræðsluþætti sjónvarpsins í SKYNDIHJÁLP fæst í bókaverzlunum og á skrifstofu Rauða kross íslands Öldugötu 4, sími 14658. Amerískar úlpur og barnagallar á I — 6 ára fjölbreytt úrval. Innflutt fyrir gengisbreytingu. Verð: gallar tvískiptir, frá 599.— gallar heilir með skóm og vettlingum 828.— og ú Ipur frá 544.— Hollenzkar stretchbuxur barna, mikið úrval af alls konar barnafatnaði, inn- flutt fyrir 20% innflutningsgjaldið. á homi Kringlumýrarbrautar og Hamrahlíðar, sími 8190. VERZLUNIN KATARÍNA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.