Morgunblaðið - 15.11.1968, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1968
imimM
Wmmmm
nustu, svo það mætti halda, að
hann gæti tekið fyrir sig af rétt-
unum hvenær sem væri. í stað
þess klúðrar hann þessu eða
nær i einhverja bölvaða óveru,
hvenær sem hann hefzt eitthvað
að.
Kannski talaði Boissier svona
afþví að honum fannst ferill
Frissa vera eitthvað svipaður
sínum eigin ferli, að þvi undan-
teknu að sjálfur hafði hann
heilsu, sem þoldi takmarkalaus-
an fjölda snafsa og útiveru í
hvaða veðri sem var.
— Það skrítna er, að þó að
þeir settu hann inn í tíu ár eða
tuttugu ár, mundi hann strax
byrja þar sem fyrr var frá horf-
ið, jafnvel þó hann væri orðinn
sjötugur og gengi við hækjur.
Hann hefur fengið það í kollinn
að hann þurfi ekki nema eina
góða ferð og þá sé hann búinn
að tryggja sig fyrir 'lífstíð.
— En nú hefur hann orðið fyr
fyrir slæmu áfalli, útskýrði Ma-
igret. Svo virðist sem hann hafi
verið að fást við skáp úti í Neu-
illy og þá rekizt á lík í herberg-
inu.
— Hvað var ég að segja?
Svona nokkuð gæti ekki komið
fyrir aðra en hann. Og svo stakk
hann af? En hvað ætli hann hafi
gert við hjólið?
— Fleygt því í ána.
— Og hann er nú í Belgíu?
— Sennilega.
— Ég ætla þá að hringja til
Bruxelles, nema þú viljir al'ls
ekki láta handsama hann.
— Jú, sannarlega vil ég láta
handsama hann.
— Veiztu hvar þetta gerðist?
— Ég veit bara, að það var í
Neuilly og að við húsið er garð-
ur með smíðajárnsgrind í hlið-
inu.
_ — Það ætti að vera auðvelt.
Ég kem fljótt aftur.
Maigret var svo nærgætinn að
panta tvo Pernod í viðbót frá
kránni meðan hinn var í burtu.
Það færði með sér ilminn, ekki
einasta frá Tunglstrætistímabil-
inu, heldur og frá Suður-Frakk-
iandi, einkum þó frá lítilli krá í
Cannes, þar sem hann hafði ver
ið í sendiferð og þá kom til sög
unnar atvik, sem lyfti málinu
upp úr hversdagsfarinu og gerði
ferðina líkari skemmtiferð.
Hann hafði nú ekki lofað
konu sinni neitt ákveðið að
hitta hana á Blómatorginu, og
hún vissi vel að það þýddi aldrei
að bíða eftir honum. Boissier
kom aftur og með skjalaböggul,
sem hafði fyrst og fremst inni að
halda tvær embættislegar ljós-
myndir af Alfred Jussiaume.
— Svona lítur peyi út!
Þetta var hvorttveggja í senn
andlit meinlætamanns og götu-
róna. Húðin var teygð á beinun-
um nasahólurnar voru langar og
7
eins og saman klemmdar og
augnaráðið var næstum dular-
fullt og um leið svipmikið. Jafn-
vel á þessum oflýstu Ijósmynd-
um — að framan og frá hlið —
flibbalaus og útstætt barkakýli,
mátti greina hinn djúpa einmana
leika mannsins og sorgarsvip,
sem var þó engan veginn
grimmdarlegur um leið.
Það var eins og hann væri
— Það var hann Óli — hann bauð mér í leikhúsið — ég hafði
enga afsökun.
fæddur til að lúta jafnan í lægra
haldi, og því ekki nema eðlilegt,
að verið væri að elta hann.
— Á ég að lesa skýrsluna hans
fyrir þig?
— Það er engin þörf á því
núna. Ég vildi heldur fara yfir
hana af fullkominni óhlutdrægni.
Það sem ég vildi sjá. er skráin.
Boissier var hrifinn af þess-
ari síðustu setningu. Það vissi
Maigret að hann mundi verða,
um leið og hann segði það, því
að hann ætlaði beiniínis að gera
liðþjálfanum til geðs.
— Þú vissir að ég mundi hafa
hana?
— Já, ég var viss um, að svo
væri.
Því að Boissier kunni raunveru
lega sitt verk. Skráin, sem um
var að ræða, var listi tekinn
upp úr bókum Planchards lása-
smiðs, yfir peningaskápa, sem
höfðu verið settir upp meðan
Jussiaume vann þar.
— Bíddu meðan ég slæ upp
Neuilly. Þú ert viss um að þetta
hafi verið þar?
— Já samkvæmt framburði
Ernestine.
Sjáðu til — hún var nú
ekki svo vitlaus að leita til þín.
En hvers vegna einmitt til þín?
— Afþví ég tók hana fasta
fyrir sextán eða sautján árum, og
þá gerði hún mér meira að segja
bölvaðan grikk.
Þetta kom Boissier ekkert á
óvart, svo hversdagslegt var það
í starfinu. Þeir þekktu báðir
hvor á annan. í glösunum mátti
finna ilminn af gulgrænum per-
nod um alla stofuna og hann
virtist hleypa broddflugunni í
ham.
— Banki . .. Nei, áreiðanlega
ekki. Frissi fékkst ekkert við
banka, afþví að hann e: hrædd-
ur við þjófabjöllur . . hér er
olíufélag, sem er farið á haus-
inn fyrir tíu árum . . . ilmvatns-
framleiðandi ... og hann fór á
hausinn i fyrra.
Loksins stanzaði fingurinn á
Boissier við nafn og heimilis-
fang.
— Guilliaume Serre, tann-
læknir, Bæjargötu 43, Neuilly.
Þú kannast við það? Það er rétt
handan við dýragarðinn og ligg
ur eins og Wal'lace-Breiðgat-
an.
— Ég þekki það.
Þeir litu snöggvast hvor á ann
an.
Hrúturinn, 21. marz — 19. apríl
Þú íylgir hugboði þér tekst að bæta vinnu og afköst. Ef
þú átt það skilið, skaltu fara fram á hvað sem þér dettur í hug,
því að miklar líkur eru til þess að þú fáir það.
Nautið, 20. apríl — 20. maí
Undanfarið hefur fólk svarað samvinnu þinni snúðugt, en
málin eru að snúast við. Reyndu að vera góður.
Tvíburarnir, 21. maí — 20. júní
Reyndu að vinna þér í hag. Vertu ekki svona ákveðinn í
sambandi við persónulegar óskir annarra í fjölskyldunni.
Krabhinn 21. júní — 22. júlí
Hömlur eru á ferðalögum. Þeir sem öllu ráða virðast ekki hafa
mætur á hugmyndum þínum í svipinn. Þolinmæðin dugar bezt.
Ljónið 23. júlí — 22. ágúst
Bezt er að fara að öllu með ró. Þú ert tungulipur, og getur
grætt mikið á því, en ekki á áhættu!
Meyjan 23. ágúst — 22. september
Þér gengur betur, ef þú ert ekki svona kröfuharður við aðra.
Djúphyggja þín forðar þér frá illindum. Reyndu að hlýða á tón-
list í kvöld.
Vogin, 23. september — 22. október
Ef þú kemst hjá eigin sýndarmennsku, geturuðu haft mikil
áhrif á þá, sem þér eru mikilvægastir. Þú hefur hugboð um, að
þér megi takast að bæta fjárhaginn.
Sporðdrekinn, 23. október — 21. nóvember
Vinir þínir eru afar hjálpsamir við að útvega þér góð sam-
fcönd, en því miður er allt of auðvelt að róða sér inn í illdeilur.
Bogamaðurinn, 22. nóvember — 22. desember
Góður dagur til að kanna dulspeki. Fylgdu hugboðum þínum,
og rannsakaðu ofan í kjölinn, því þú verður margs vísari.
Steingeitin, 22. desember — 19. janúar
Nú hefst hálfur mánuður, sem gerir þér miklu auðveldara að
tjá þig. Þú gerir mikið til að bæta ráð þitt og verður býsna frum-
legur. Forðaztu það að dæma þá, sem ákvörðunarvaldið hafa.
Vatnsberinn 20. janúar — 18. febrúar
Reyndu að ganga dálítið lengra í fjármálum og íhugun, þannig
færðu betri yfirsýn. Fylgdu kenningum um viðskiptamál. Reyndu
að vinna upp, það sem miður hefur farið menningarlega.
Fiskarnir, 19. febrúar — 21. marz
Reyndu að bæta ráð þitt í dag, og auka hæfni þína og vit-
neskju. Ef kostur er, skaltu fá þér hjálp,-