Morgunblaðið - 22.11.1968, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 22.11.1968, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1968 Sjdleiðin, sem var einu sinni farin — rœtt við leikarana Valgerði Dan og Þorstein Cunnarsson ÞEGAR ég kem, situr hann við skrifborðið og teiknar upp út- veggi á gömlu verzlunarhúsi, sem í eina tíð var vettvangur lífs og athafna austur á Eskifirði. Hún kemur framan úr eldhúsi, eilítið rjóð í andliti og hefur skil ið svuntuna eftir. f annarr hend- inni heldur hún á gamalli leik. skrá frá Leikfélagi Reykjavíkur, — Hvenær vaknaði áhugi ykk- ar á leiklistinni? Valgerður? — Ég held ég geti ekki til- tilgreint neitt ákveðið í þessu Hiidur í „Sjóðleiðinni til Bag- dad“. efni, segir hún og brosir. Frá því ég man fyrst eftir mér hefur leik húsið alltaf heillað mig. Ég lék að vísu eitthvað í barnaskóla, eins og reyndar flestir gera, og ekki man ég íengur, hvað það var. En síðan átti ég þetta ein- göngu með sjálfri mér alt þar til ég fór í leiklistarskóla L.R.; bað var haustið 1962 og þar kom ég fyrst fram í „Romeo og Júlíu“. Árið eftir lék í bamaleikritinu „Almansor konungsson“ og svo fékk ég ýmis „statistahlutverk“ t.d. í „Þjófar ,lík og falar kon- ur“ og „Sú gamla kemur í heim- sókn“. Þá fékk ég líka að vera hvíslari nokkrum sinnum. Það var mjög garnan. Hún talar hægt og horfir út um gluggann á meðan. Það er eins og henni >sé þvert um geð að tala um sjálfa sig og því teitar hún aðstoðar í haustinu úti. — Svo kemur fyrsta stóra hlut verkið? — Já. Þegar ég er búin með skólann, fæ ég hlutverk Hildar í „Sjóleiðinni tiil Bagdad“ eftir Jökul Jakobsson. — Hvernig fannst þér þá? Það kemur glampi í augun og hún lítur af glugganum. — Gaman! Það er bragð af þessu eina orði og nú brosir hún og horfir beint á mig. Það er ekki lengur haust fyrir utan gluggann. — Og síðan koma hlutverkin hvert af öðru? — Já. Næst fékk ég lítið hlut- verk í „Húsi Bernörðu Alba“. Hauetið 1966 tók ég við hlutverki Öndu baronessu í „Dúfnaveizl- unni“ og það sama leikár lék ég líka Clementínu í „Tve'gigja þjónn“. í fyrravetur var ég svo Pamela í „Indíánaleik“. — Hvað með Dísu? — Ég lék Dísu í leikför Þjóð- leikhússins með „Galdra Loft“ til Norðurlanda. — Fannst þér eitthvað öðru vísi að leika fyrir frændur okk- ar á Norðurlöndunum? — Ég veit ekki. — Hún 'hugsar sig um. — Þó að nokkuð hafi verið af íslendingum á sýningun um, skildi megnið af leikhúsgest- unum ekki sýninguna nema í stórum dráttum. Þess vegna tók ég betur eftir því, 'hvað fólk ein- beitti sér við að hlusta. — Var Disa þitt óskahlutverk? — Mig hafði alltaf langað til að leika hana frá því ég fyrst las „Galdra Loft“, en hvort hægt var að kalla hana óskahlutverk; það veit ég ekki. — En fyrsta hlutverkið? — Jú, mér þótti mjög vænt um Hildi og þykir það raunar enn, þegar ég hugsa til hennar. Ég held, að fyrsta hlutverkið eigi alltaf mikil ítök í hverjum leik- ara. Nú hefur Þorsteinn lokið við að teikna upp útveggina á „Gömlu búð“ á Bskifirði og hann kemur til okkar. Við fáum okk- ur aftur í bollana. — Áhuga minn á „leikhús- standinu" get ég rakið allt aft- ur til 7 ára aldurs, segir Þor- steinn. Þá var mér gefið brúðu- leikhús í afmælisgjöf, en áður hafði ég mikinn áhuga á að teikna. f þessu brúðuleikhúsi hófst minn leikhúsferill og ég man sérstaklega eftir „Gullna hliðinu“, sem ég sá í Iðnó 1948. Það var leikið lengi á eftir fyrir fullu húsi í brúðuteikhúsinu mínu. f barnaskóla lék ég eitthvað smávegis og ég man, að Árni Tryggvason var einu sinni leik- stjóri okkar, þegar ég var í gagn fræðaskóla. Fyrsta veturinn minn í menntaskóla var Leikfé- lag Reykjavíkur að hefja æfing- ar á „Browningþýðingunni" og þá vantaði ungan skólapilt ’í eitt hlutverkið. Árni Tryggvason benti á mig og Gísli Halldórsson, sem var leikstjóri, kom og spurði, hvort hann mætti ekki prófa mig. Ég var til í það, og svo var ég prófaður og prófað- ur, þar til ég heyrði einn góðan véðurdag, að frumsýningin yrði eftir viku. Ég hafði víst staðizt prófið. Eftir þetta var ég sjálfskipað-, ur í Herranóttina og ték ég í henni næstu þrjú árin. Frægasti samleikari minn þar er eflaust Ómar Ragnarsson, en við Ómar vorum sambekkingar og lékum saman öll árin í leikritum eins og „Vængstýfðir englar“ og „Þrettándakvöld". Ég held ég fari með rétt mál, að í þessum leikjum hafi bæði Benedikt Árnason og Helgi Skúlason þreytt frumraun sína sem leik- stjórar. Jafnframt þessu var ég svo eins og grár göttur niðri í Iðnó og lék þar nokkur smá'hlut- verk. Þegar áhuginn var orðinn yfir- þyrmandi fór ég í leikskóla Þjóð- teikhússins og tók millibekkja- próf. Þar lék ég smáhlutverk í „Blóðbrullaupi", sem Gísli Hall- dórsson setti á svið. Svo komst ég að því, að stúdentshúfan krafðist allrar minnar athygii. Ég lagði leiklistina á hilluna í bili; tók stúdentspróf og fór tií Kaupmannahafnar að nema arkitektúr. Sigrún og Þórarinn í „Manni og konu“. og Þórarin í „Manni og konu“. — Já. Þetta er í fyrsta sinn, sem við vinnum saman í sýningu frá upphafi, segir Þorsteinn. Og okkur þykir báðum vænt um þennan samleik. Dísa í „Galdra Lofti“. Gunnar E yjólfsson í hlutverki Galdra Lofts John Taplow í „Browningþýðingunni". Þorsteinn Ö. Stephensen í hlutverki Crocker-Harris. — Komstu þá ekkert á sviðið á meðan? — Jú, jú. Ég hélt mér við efn- ið; kom heim á sumrin og lék. Fyrst fór ég í leikför um landið með „Kviksand", en tvö næstu sumar var ég í Grikklandi og vann m.a. við rannsóknir á æva- gömlu leikhúsi í Delfí. Næsta sumarið, sem ég kom heim, lék ég í Sumarleikhúsi Gísla Hall- dór.vsonar, en Gísli hefur jafnan stutt mig í leikíistinni með ráð- um og dáð, og fórum við þá með tvö leikrit eftir Jökul Jakobs- son; „Gullbrúðkaup" og „Tert- una“. Sumarið 1966 fór ég svo í leikför með L.R. með „Sjóleið- ina til Bagdad“ og þar hófust kynni okkar Vallýar. Ég lít á hann spyrjandi, en sé svarið strax í augnaráðinu, sem hann sendir Valgerði. Það er greinilegt, að sjóleiðin til Bag- dad var að minnsta kosti einu sinni farin. — En svo lýkur þú leiknámi? — Já, þegar ég var búinn með arkitektúrinn, fór ég í leiklistar- 'skóla L.R. og lauk þar prófi síð- astliðið vor. í vetur sem leið lék ég svo í „Sumrinu ’37“, eftir Jökul og má því með sanni segja, að Jökull hafi leikið eigi all lítið hlutverk í leiklistarferli okkar Vallýar, það sem af er. — Og riú leikið þið Sigrúnu — Það var svolítið skrýtið, segir hún og brosir. Við vorum eiginlega hálf feimin hvort við annað á fyrstu æfingunum; en nú er það horfið. Hún lítur spyrjandi á Þor- stein, sem kinkar kolli. — Jú, það er alveg horfið, segir hann svo. — En hvernig er að leika sama hlutverkið svona kvöld eftir kvöld? Engin þreyta? Þau líta hvort á annað og Val- gerður svarar. — Ég hef leikið sama htutverk ið oftast 80 sinnum — það var í Sjál'eiðinmi — og það er svo langt í frá, að ég fyndi til nokk- urs leikleiða. Auðvitað getur leik ari verið misjafnlega upplagður, eins og hver annar, en þreyta á hlutverkinu? Ég held ekki. — Bara það að hafa nýtt fólk í salnum skapar nýja og ferska sýningu, segir Þorsteinn. — Hvernig er svo ástandið hjá ungum íslenzkum leikurum í dag? Þau líta hvort á annað og bera sig saman. Hann kallar hana Vallý — hún kaílar hann Steina sinn. Svo er það hann, sem kveð- ur upp dóminn, en hún kinkar kolli, brosir og er sammála Steina sínum. — Við eigum í dag á að skipa óvenjustórum hópi ungra og efnilegra leikara. —- Hann segir þetta hægt og er alvarlegur á svip. — En starfsaðstaðan er ekki í alla staði hin ákjósanleg- asta. Ég ætla mér þó ekki þá dul að grafast fyrir þær meinsemdir, sem valda, eða öðrum skyldum, en það verður ævinlega einkenn- andi fyrir starf leikarans, að þroski hans er mjög nátengdur þeim verkefnum, sem leikhúsið veitir honum. Leikarinn verður að leika; öðru vísi dafnar hann ekki. Það eru mörg nærtæk dæmi þess að ungir leikarar hafa sjálf- ir skapað sér þessa vinnuaðstöðu og er það vel. Hins vegar held ég, að okkur sé hollt að hafa í huga skyldur okkar við áhorf- endur, því leiklistinni verður tæplega fundið göfugra hlutverk en að skemmta; en það álít ég stærstu gæfu íslenzks leikhúss, að íslendingar eru áhugasamir og forvitnir leikhúsgestir. — En hvað með blöðin t.d.? Gera þau nóg fyrir leikhúsið? — Mér finnast íslenzku blöðin ekki nógu jákvæð í þessum efn- um, segir Valgerður. Gagnrýni eftir hverja frumsýningu er vægast sagt nokkuð einhæf mynd af íeikhúsmálum almennt; það þarf að vekja áhuga fólks- ins á leikhúsinu. — Ef á það er litið, þá eruð þið með íþróttasíð- ur á hverjum degi nærri því. — Takið þið mikið mark á skrif um gagnrýnenda? Enn líta þau hvort á annað. Nú Framhald á bls. 20 Jón í „Sumrinu ’37“.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.