Morgunblaðið - 29.11.1968, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1968
11
,,Þegar amma var ung" í síðasta sinn
MJÖG góS aðsókn hefur verið á
skemmtanir Leikfélags Reykja-
víkur í Austurbæjarbíói að und-
anförnu. Sýnd eru atriði úr
gömlum revýum sum allt frá ár-
inu 1926. Nú eru sýningar orðn-
ar átta og hefur verið uppselt
á allar nema eina. Ákveðið hefur
verið vegna mikillar eftirspurn-
ar að hafa eina sýningu enn og
verður það í allra s'iðasta sinn.
Sú sýning verður laugardaginn
30. nóvember og hefst sýningin
kl. 23.30. Um 40—50 landskunnir
skemmtikraftar taka þátt í
þessari revýu-sýningu. Af þeim
má til dæmis nefna Lárus Ing-
ólfsson, Brynjólf Jóhannesson,
Árna Tryggvason, Nínu Sveins-
dóttur, Emilíu Jónasdóttur og
fleiri. Ailur ágóði af sýningunni
rennur í Húsbyggingarsjóð Leik-
félags Reykjavíkur. Myndin er
af nokkrum þátttakendum. revý-
unnar.
Jorðsprengjui
vekja óhug
Þrjú Krabbameins-
félög stofnuð d árinu
Bonn, 2V. nóv. NTB.
SENDIHERRA Bandaríkjanna í
Bonn, Henry Cabot Lodge, hvatti
til þess í dag, að allar jarð-
sprengjur á landmærum Austur-
og Vestur-Þýzkalands yrðu fjar-
laegðar í tilefni þess að 16 ára
drengur varð fyrir einni slíkri
sprengju á mánudaginn með
þeim afleiðingum að hann missti
báða fæturna.
Cabot Lodge sagði í yfirlýs-
ingu í dag: „Bandaríkjastjórn
fordæmir þetta siðasta morð og
lýsir yfir því að fjarlægja verð-
ur jarðsprengjurnar frá marka-
'línunni“. Austur- og vesturþýzk-
ir landamæraverðir hlustuðu án
þess að aðhafast nokkuð á sárs-
aukaóp piltsins í þrjá klukku-
tima. Að lokum sóttu austur-
þýzkir verðir piltinn, sem hafði
reynt að flýja til Vestur-Þýzka-
lands.
Kiesinger kanzlari lagð; til á
stjórnarfundi í dag, að vestur-
þýzka landamæralögreglan byði
austur-þýzkum landamærayfir-
völd afnot af vestur-þýzkum
þyrlum til að bjarga særðum
flóttamönnum á jarðsprengju-
svæðum Austur-Þjóðverja.
í FRÉTT frá Krabbameinsfélagi I
fslands, sem Mbl. hefur borizt ]
segir að auk krabbameinsfélaga j
þeirra, sem stofnuð voru fyrir 1
forgöngu Kra'bbameinsfélags ís-
lands í S.-Þingeyjarsýslu og að
Blönduósi á síðastliðnu hausti, !
hafi verið stofnað félag að
Hvammstanga þann 3. október.!
í stjórn voru kosnir: Ásgeir Jcns 1
son héraðslæknir, formaður; Ing
óifur Guðnason hreppsstjóri, rit ■
ari; frú Eva Thorsteinsen gjaid- :
keri; meðstjórnendur eru þær j
frú Elsa Barnadóttir og frú
Guðný Daníelsdóttir Jæknir
Formaður Krabbameinsfélags
íslands, Bjarni Bjarnason lækn- '
ir flutti erindi á stofnfundinum i
'vg sýndar voru ’iokkrar af
fræðsi umy ndum félagsins.
Hið nýja félag gekkst fyrir því
að nýlega voru haldnir fræðslu-
fundir í félagsheimilum héraðs-
ins, „Ásbyrgi“, „Víðihlíð“, á
Hvammstanga og auk þess að
Reykjastkóla. Erindreki Krabba-
meinsfélags íslands, Jón Oddgeir
Jónsson annaðist fundina, sem
voru vel sóttir og gengu margir
í hið nýstofnaða félag, en stjórn
pess mun bráðlega gangast fyrir
leit að leghálsakrabbameini hjá
konum í héraðinu á aldrinum
25-60 ára, sem fram fer á vegum
héraðslæknir í samvinnu við leit
arstöðvar Krabbameinsfélagsins í
Reykjavík.
No. 240 Peysa og pils prjónaö úr
tízku garninu Freesía Crepe.
Gaminu með gæöastimplinum.
Fjölbreyttar uppskriftir finnast i
Sönderborg prjónabókum.
VERZLUNIN DALUR
Framnesvegi 2.
BÍLAHLUTIR
&
£0
Rafmagnshlutir í flestar
gerSir bíte.
KRISTINN GUÐNASON h.f.
Klapparstíg 27. Laugav. 168
Sími 12314 og 21965
TIL LEICU
er rúmgóð 4ra herb. íbúð í Vesturbænum. íbúðin er
nýstandsett.
Tilboð leggist inn á afgreiðs u Morgunblaðsins merkt:
„6553“.
KAUPI VÍXI.A
Kaupi verðtryggða víxla 3ja—6 mán. kr. 100—500 þús.
Tilboð merkt: „Trygging — 6555“ sendist afgr. Mbl.
strax.