Morgunblaðið - 29.11.1968, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 29.11.1968, Blaðsíða 28
Suðurlandslíraut 14—- Sími 38550 INNIHTJRÐIR i landsins i mesta urvali 4A4. SIGURÐUR ELÍASSON HF. AUÐBREKKA 52—54, KÓPAVOGI. FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1968 Fimm manna fjölskylda bjargaðist naumiega — er eldur kom upp í húsi á Akureyri Akureyri — Fimmtudag. FIMM manna fjölskylda bjargað- ist naumlega út um glugga þeg- ar eldur kom upp í býlinu Banda gerði í Glerárhverfi um kl. 4.30 í nótt. Húsið er ein hæð, ris og kjallari, gert úr steinsteypu en klætt að innan með timbri. Eldurinn kom upp í kyndiklefa í kjallara, en mikinn reyk lagði fljótlega um allt húsið. Þarna býr Trausti Fjólmundsson með konu sinni og þremur börnum. Þau sváfu uppi í risinu en vökn uðu við reykinn sem þá var orð- inn svo mikill að þau treystust ekki niður stigann. Konan lét sig síga á kaðli nið- ur úr glugga á risinu, vakti upp í næsta húsi og hringdi á slökkvi lið. Á meðan lét Trausti börnin síga niður í kaðlinum og fór síð- astur út. Slökkviliðið slökkti eldinn fljót lega. Brunaskemmdir urðu mikl ar í kjallaranum, en á efri hæð- unum urðu aðeins reykskemmd- ir. f vor brann ofan af þessari sömu fjölskyldu í Grímsey, og var fólkið nýflutt til Akureyrar. Sv. P. I hrakningum á Vesturöræfum — 3 menn í eftirleit náttuðu í fönn Egilsstöðum, 28. nóvember. FÖSTXJDAGINN 22. nóvember fóru 3 menn í eftirleitir á Vest- uröræfi. Voru það Birgir Ás- geirsson á Vaðbrekku, Páll Páls son, Aðalbóli og Snorri Gunn- arsson frá Egilsstöðum í Fljóts- dal. Fóru þeir á rússajeppa frá Aðalbóli í Hrafnkelsdal og voru 4—5 tíma að aka inn að Sauða- kofa, sem er leitarmannakofi á Vesturöræfum og þar gistu þeir. Síld við Hjaltlandseyjor í FYRRINÓTT var nokkur sííd- veiði í góðu veðri á Hjaltlands- miðum. Mtol. hafði í gærkvöldi samiband við Fuglafjörð í Fær- eyjum, en ekkert íslenzkt skip hafði komið þangað. Aftur á móti var vitað að Sóley fór með 230 lestir til Bergen í Noregi og munu íslenzku skipin líklega landa þar. Síldarleitin á Dalatanga hafðr engar aflafréttir í gærkvöldi. Á sildarmiðunum var þó komið ágætt veður, en nóttina áður var bræla. Á laugardaginn fóru þeir gang andi frá kofanum inn í svokall- aða Hrauka, sem eru skammt frá jaðri Vatnajökuls. Ekki urðu þeir kinda varir. Þann dag fóru þeir aftur í sauðakofann og gistu þar næstu nótt. Á laugardagskvöldið fór að snjóa og hlóð niður miklum snjó í logni. Á sunnudagsmorgun var komið versta veður með norðan hvassviðri og snjókomu og voru þeir hríðtepptir í kofanum þann dag. Á mánudagsmorgun birti til um kl. 9.30 og lögðu þeir þá af stað til byggða. Ekki tókst þeim að komast nema %—1 km. frá kofanum á bílnum og urðu þeir að skilja hann þar eftir vegna ófærðar. Lögðu þeir þá af stað gangandi, en þá var aft- ur skollið á versta veður með norðan byl og fannkomu. Kaf- aldsófærð var. Gengu þeir sem leið lá út á Háls og Dysjarárdal og komu að Búrfelli kl. 21 um kvöldið. Var þá enn versta veð- ur og skollið á svarta myrkur. Sáu leitarmenn þá þann kost vænstan að grafa sig í fönn og lágu þeir þar þriðjudagsnóttina, Á þriðjudagsmorgun var veðrið svipað og lögðu þeir af stað í birtingu. Eftir 7 klukkustunda göngu frá náttstaðnum komu þeir aftur að Aðalbóli í Hrafn- kelsdal á 5. degi frá því að lagt var af stað, en áætlað var í upp- hafi að ferðin tæki um 2 daga. Á leiðinni út af Öræfunum urðu þeir varir við 3—4 kindur í Dysj arárdal, ert gátu ekki sinnt þeim vegna veðurofsans. Ekki varð þeim félögum meint af þessum svaðilförum, enda ýmsu vanir. Þess má geta, að Snorri Gunn arsson er 61 árs að aldri, en hin ir mennirnir á rriilli tvítugs og þrítugs. — Hákon. Veturinn hefur farið mildum höndum um borgarbúa og ná- granna þeirra til þessa. Ljósmyndari Mbl. Ól. K. M. átti leið fram hjá Tjörninni fyrir skemmstu og tók þá þessa mynd. Þær eru að ræða um það stöllurnar hvenær skautaísinn ætli eigin- lega að koma, en fuglarnir virðast harðánægðir með að þurfa ekki að leggja ís undir fætur. Menntamálaráðherra á Alþingi: 16 millj. kr. hækkun fjárveit- inga til lánasjóðs námsmanna — fjárhœðir til erlendra námsmanna hœkka um S4,4°Jot en 18°/o til náms- manna hérlendis — Aukning sjóðsins RÍKISSTJÓRNIN hefur nú ákveðið að beita sér fyrir því að hækka allar þær fjárhæðir, sem ganga til íslenzkra námsmanna erlendis um 54,4%, eða sem svar ar til þeirrar hækkunar er varð á erlendum gjaldeyri við geng- isfellinguna og verða því lán og Víðtækar skipulagsbreyt- ingar samþykktar — Á þingi A. S. í. 31. þing Alþýðusambands íslands samþykkti seint í gær Geirþrnður Bernhöfl formaður HVATAR AÐALFUNDUR Sjálfstæðis- kvennafélagsins Hvatar var ný- Iega haldinn. Fór þar fram stjórn arkjör og gerðar voru lagabreyt- ingar, m.a. var fækkað úr 15 í 9 í stjóm félagsins. Formaður var kjörin frú Geir- þrúður Hildur Bernhöft, en frú Auður Auðuns færðist eindregið undan endurkosningu. Varafor- maður var kjörinn frú Gróa Pét ursdóttir, en frú Kristín Magn- úsdóttir gjaldkeri og frú Jónína Þorfinnsdóttir ritari. Aðrar í stjórn voru kjörnar frú Ragnheiður Brynjólfsdóttir, frú Sigurbjörg Runólfsdóttir, frú Sigríður Björnsdóttir, frú Sonja Bachmann, frú Þorgerður Sig- urðardóttir. kvöldi breytingar á lögum sambandsins sem hafa í för með sér all víðtækar breyting ar á skipulagi Alþýðusam- bandsins. Samkvæmt hinum nýju lögum verður ÁSÍ fyrst og fremst byggt upp af landssamböndum en einstök verkalýðsfélög geta einnig átt beina aðild að ASÍ samkvæmt nánari reglum. ASÍ þing skal halda á fjögurra ára fresti í stað tveggja ára nú, en þing einstakra landssamtaka skal hins vegar halda á tveggja ára fresti. Ýmsar aðrar mikilvægar breytingar voru gerðar á lögum Alþýðusambandsins svo sem um stækkun miðstjórnar og sam- bandsstjórnar sem á að koma saman árlega. Að hinu breytta skipulagi ASÍ hefur verið unnið alllengi og m. a. var haldið aukaþing um skipu lagsmálin í janúar sl., etn þá náð- ist ekki samkomulag um breyt- ingar en tveir þriðju hlutar full trúa þurftu að samþykkja þær. Síðan hefur verið unnið að því að samræma hin mismunandi sjónarmið. Þingi Alþýðusambandsins átti að ljúka í nótt með kjöri for- seta sambandsins og miðstjórn- ar, en um miðnætti átti enn eftir að afgreiða ýmis önnur mál þingsins, svo sem kjaramál. INNBROT EITT innbrot var framið í fyrri- nótt; í Vogakaffi, Súðavogi 50 og stolið þaðan tæplega 300 krónum í peningum og 5—7 lengjum af vindlingum. styrkir til íslenzkra námsmanna erlendis á næsta ári jafnhá í er- lendum gjaldeyri og þau voru fyrir gengislækkun. Þá hefur einnig verið ákveðið að lán og styrkir til íslenzkra námsmanna hérlendis muni á næsta ári hækka um 18% frá því sem ráð var fyrir gert, Auk þess hefur ríkisstjórnin einnig ákveðið að leggja til, að lánasjóður íslenzkra námsmanna fái nokkra viðbótar- fjárveitingu, til þess að veita þeim námsmönnum sem brýnust þörf er talið á að hjálpað verði. Framangreindar upplýsingar komu fram í ræðu Gylfa Þ. Gísla sonar, menntamálaráðherra á Al- þingi í gær, en þá mælti hann fyrir stjórnarfrumvarpi um breyt ingar á lögum um lánasjóðinn. Miðar breytingin að því að nýj- um hópum námsmanna á íslandi verði veitt aðild að Lánasjóði íslenzkra námsmanna. Er um að ræða nemendur í kennaraskóla íslands og nemendur í fyrsta Framhald á bls. 27 Scotice hominn í lag VIÐGERÐINNI á sæsímastrengn um Scotice lauk í gærdag laust eftir hádegi og komst þá á aftur eðlilegt símasamband á milli ís- lands og Evrópu. Viðgerðarskip- ið Northern hélt síðan rakleitt að staðnum, þar sem Icecan strengurinn er bilaðiur, en það er um 50 mílur frá Vestmannai- eyjum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.