Morgunblaðið - 05.12.1968, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. DES. 1968
15
- KANTATAN
Framhald af bls. 10
sem mundu sóma aér vel í söng-
sveitinmi Filharmonía.
ALLT HÆGT, EF ÁHUGINN
ER NÓGU MIKULL
Frú Guðný Bjamar, eiginkona
Árma Bjömssonar læknis, á sex
börn, og ég spurði hama hvemig
gengi að komast að heiman á
æfingar.
— í>etta er svo ágætt hjá mér,
sagði Guðný, því ég á • fjögur
böm yfir fermingu og alltaf er
einhver heima. Það er helzt
yngsti strákurinn minn, sem
maldar í móinn, em hann er nú
bara 4ra ára og mikið mömmu-
barn. En ég á einnig dreng, sem
er 12 ára, og ég verð að segja
honum það til lofs, að hann er
duglegur að passa hann. Núna
fyrir hádegisæfinguma eldaði ég
heilmikinn hrísgrjónagraut og
elzti strákurinn, sem er í Tónlist-
arskólanum, ætlar að sjá um að
þeir yngri fengju eitthvað að
borða.
Ég fékk löngun til að fara í
kórinn, eftir að hafa fylgzt með
dætrum mínum tveimur á með-
an þær sungu í kómum. Sú
elzta, Vilborg, er nú við söng-
nám í London, en hin, Kristín, er
við hjúkrunarnám. Það er eigin-
Guðný Bjarnar.
lega þeim að þakka að ég fór út
í það að syngja, því að á meðan
börnin voru lítil fannst mér ég
ekki hafa tíma til þess. Mér
skilst á öðrum barnakonum í
kórnum, að í flestum tilfellum
hafi þær einhver ráð með að
koma börnunum fyrir — það er
nú einu sinni svo að fólk getur
það sem það hefur nógu mikinn
áhuga á. Ef ekki í augnablikinu,
þá seinna.
DR. PÁLL HVATTI MIG VH>
SÖNGNÁMH)
Snæbjörg Snæbjamardóttir,
söngkona, hefur sungið með kóm
um um nokkurt árabil, og auk
þess hjálpað til við að raddæfa
kórkonur, en kórinn veitir með-
limum sínum söngkennslu og til
sögn í nótnalestri endurgjalds-
laust. Snæbjörg er frá Sauðár-
króki og var einmitt að spjalla
við tvær frá sama stað. Þær velt
ust um að hlátri yfir einhverju,
sennilega einhverjum skagfirzk-
um gamanyrðum.
— Það er mikið hlegið á
Króknum, sagði Snæbjörg, og
mikið sungið. Ég var ekki nema
13 ára, þegar ég fór að syngja í
kirkjukómum, og síðan hef ég
sungið sleitula-ust. Ég var við
söngnám bæði í Austurríki og
hér heima. Ég söng í mörg ár í
Dómkórnum undir stjórn dr.
Páls ísólfssonar og ég hugsa um
hann eins og föður minn. Hann
var mér ómetanlegur styrkur við
mitt nám og hvatti mig á alla
lund og fæ ég honum seint full-
þakkað. Ég hef sungið miarga
kafla úr þessu verki áður, undir
hans stjóm, en aldrei sungið verk
ið í heild fyrr en nú.
Mér er sérstaklega minnis-
stætt, þegar orgelið í kirkjunni
heima á Sauðárkróki var vígt.
Þá spilaði Páll eins og herfor-
ingi og ég dúllaði með. Einnig
þegar pípuorgelið á Hólum í
Hjaltadal var vígt, já og svo
hljómleikarnir í Borgamesi . . .
það er víst alltof langt að telja
það upp hér.
Éð hef mjög mikla ánægju af
að syngja í þessum kór, í fyrsta
lagi vegna þess hve mikil og góð
verk hann flytur og í öðm lagi
hve dr. Róbert er heillandi stjórn
andi. Hann minnir mig alltaf á
mann, sem ekki hefur of háan
blóðþrýsting; skapmikill heiðurs
maður þegar á háa c-ið er kom-
ið, en þó svo bljúgur. Stundum
er hann hryggur og ofsakátur í
senn á töfrandi hátt, sem honum
einum er lagið. Vandvirknin
framúrskarandi og alltaf er hann
reiðubúinn að fræða og leiðbeina,
þegar þörf krefur. Það er mikil
og góð reynsla að syngja undir
hans stjóm, og vona ég að við
fáum sem lengst notið heilla-
drjúgra starfskrafta hans.
VÉLRÆN OG MJÚK RÖDD
Gerður Guðmundsdóttir Bjark-
lind er mörgum útvarpshlusteiid
um að góðu kunn, því hún hefur
undanfarin ár séð um þáttinn
„Lög unga fólksins".
— Aðalstarf mitt hjá Utvarp-
inu er annars að sitja við sím-
ann og taka niður au'glýsingar.
Af því verður röddin svona vél-
ræn, eins og þú heyrir, og þá er
gott að geta mýkt hana upp með
söng. En í alvöru talað, þá byrj-
aði ég að syngja í kórnum 1965,
þegar 9. sinfónían var flutt, og
hef sungið þar síðan. Ástæðan er
fyrst og fremst sú, að mig lang-
aði að reyna eitthvað nýtt, ég.
hafði aldrei sungið áður nema
lítilsháttar í kirkjukór, og vildi
gjaman kynnast frekar kórverk-
um og kórsöng. Og nú syng ég
með af einskærri ánægju. Ég var
þreytt og illa fyrir kölluð á síð-
ustu æfingu, sat bara og hlust-
aði og treysti mér ekki til að
opna munninn. Þegar æfingunni
lauk, var ég í ljómandi skapi og
svaf eins og engill alla nóttina.
Já, og síðast en ekki sízt er ég
mikil „selskapsmanneskja", eins
„Voskir menn“
— ellefu
sngnhættir
— eftir Guðmund
— G. Guðmundsson
BÓKAÚTGÁFAN Norðri hefur
•sent frá sér bókina „Vaskir
menn“, eftir Guðmund G. Guð-
mundsson, sem hefur að geyma
ellefu sagnaþætti.
Þættirnir nefnast: Bjarndýra-
banarnir, Hinn mikli veiðimaður,
•Skyttan í Skötufirði, Hugprúði
■Bolvíkingurinn, Oddur sterki af
Skaganum, Byltingarmaðurinn,
Bóndinn í Þjórsá, Læknirinn í
og sagt er á slæmri íslenzku, og
hef gaman af að vera innan run
armað fólk.
— Hvaðan ert þú af landinu?
— Reykvíkingur í húð og hár,
þó móðurætt mín sé að vestan.
Og ég er gift Þingeying — það
er sagt að allir Þingeyingar séu
góðir söngmenn, en ég hef nú
ekki heyrt söngröddina hans enn
þá.
FÉKK NÓG AF DANSLÖGUM
Díana Magnúsdóttir söng um
skeið með danshljómsveitum.
— Þegar ég var mjög ung,
hafði ég geysilegan áhuga á
léttri músík, og ég var langt inn-
an við tvítugt þegar ég fór að
syngja dægurlög með danshljóm
sveitum. En eftir því siem á leið
•Æðey, Frá eymdum til auðs,
•Hetja í harmleik, Vinirnir í
(Dritvík.
Bókina prýða nokkrar myndir,
en hún er 236 blaðsíður að stærð,
aftast er nafnaskrá.
Bókin er prentuð í Eddu hf„
en kápa í Prentverki Þorkels
J óhannessonar.
Brotabrot
Bók eftir Steinar
Sigurjónsson
STEINAR Sigurjónsson hefur nú
sent frá sér smásagnasafn, Brota.
brot, og er það sjöunda bók hans.
fannst mér hún æ innantómari
og ósjálfrátt fór ég að halla mér
að þeirri klassísku. M.a. fór ég
að stunda sinfóníutónleika og þeg
ar ég hafði sungið danslög í rúm
tvö ár, var ég búin að fá nóg.
Vinkona mín benti mér að að
reyna að komast í kórinn og hef
ég haft afar gaman af að vera
með. Þetta er einhvern veginn
músík fyrir mig. Að auki hef ég
mikinn áhuga á þjóðlagasöng, er
í litlum kvartett, þar sem við
syngjum mest létt þjóðlög.
Mér finnst Alþingishátíðar-
kantatan ljómandi verk. Það er
einkum hátíðleikinn yfir verk-
inu, sem verkar heillandi á mig,
fyrir utan þjóðlegheitin. Það
kann ég vel að meta.
1 bókinni eru tuttugu sögur og
þættir og gerir höfundurinn svo-
fellda grein fyrir þeim:
Sumir þáttanna hafa birzt í
blöðum og tímaritum á ýmsum
tímum og eru því feimnir að
sýna sig á ný, eftir því sem á
þeim er að heyra, og verður
því eitthvað um að væla svo
þeir fari ekki í fýlu. Þó má segja
að þeir séu betur á sig komnir
en áður, því oftast var þeim
•hnoðað í hasti og reknir í vals án
nokkurra saka.
Höfundur hefur sjáMur kost-
að útgáfu bóikarinnar. Barbara
Stasch hefur séð um útlit bók-
arinnar og teiknað kápu, en
prentsmiðja Guðmundar Jóhanng
sonar prentaði.
Af þessari bók eru gefin út
300 eintök og verða aðeins 100
til sölu á almennum markaði.
HILDA f
KVENNASKÓLA
Fjórða bókin um Hildu
frá Hóli og skjólstæð-
inga hennar eftir
Martha Sandwall-Berg-
ström. Hildubækurnar
eru einhverjar hug-
þekkustu og skemmti-
legustu telpnabækur,
sem völ er á. _ 170.00.
BALDINTÁTA
KEMUR AFTUR
Önnur bók af þremur
um Baldintátu og fél-
aga hennar eftir Blyton,
höfund Ævintýrabók-
anna. Bækur þessar
segja frá viðburðaríkri
dvöl f heimavistarskól-
anum að Laufstöðum.
Kr. 150.00.
BEVERLY GRAY
f ÖÐRUM BEKK
Ðækurnar um Beverly
Gray eru ævintýrarfkar
og spennandi, enda eru
vinsældir þeirra vtðs
vegar um heim afar
miklar. f þessari bók
segir frá öðru skólaári
þeirra stallsystranna. —
Kr. 220.00.
ÐUiARFUUA
ÍBUNWv'
DULARFULLA
PRINSHVARFIÐ
Ný bók um fimmmenn-
ingana og Snata eftir
Blyton. Enn á ný tekst
j>eim félögum að upp-
lýsa dularfullt mál f
samkeppni við Gunnar
karlinn lögregluþjón,
sem er ærið öfundsjúk-
ur. — Kr. 170.00.
KUSA í STOFUNNI
Þetta er fjórða bókin
eftir ,:ne Cath-Vestly
um pabba og mömmu,
börnin átta og ömmu
þeirra f litla húsinu í
skóginum. Leitun er á
jafngóðum og skemmti-
legum bókum handa
vnari börnunum og
— Kr. 160.00.
FIMM
Á HULINSHEIÐI
Ný bók um félagana
fimm og ævintýri þeirra
eftir Blyton. Sagan er
spennandi og viðburða-
rfk, enda ekki annars
að vænta, þegar hðf-
undur Ævintýrabók-
anna á hlut að máli. —
Kr. 170.00.
Hin sígilda bók þeirra dr.
Símonar Jóh. Ágústssonar
og Halldórs Péturssonar.
Dr. Simon valdi vísurnar
ágætavel og Halldór
skreytti bókina með mjög
skemmtilegum myndum.
Vísnabókin hefur nú kom-
ið út fjórum sinnum og er
löngu klassisk. Ekkert barn
ætti að vaxa úr grasi án
Visnabókarinnar. —
Kr. 150.00.
IÐUNN Skeggjagötu 1 • Reykjavík • Símar 12923 og 19156 HLAÐBOÐ