Morgunblaðið - 18.12.1968, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1968
5
Kaupstaður í hálfa öld
Fyrsta bindi sögu Reykjavíkur á vegum
Sögufélagsins og borgarinnar
KAUPSTAÐUR í hálfa öld
1786—1836 heitir fyrsta bindi í
Safni til sögu Reykjavíkur, sem
nýkomiff er út á vegum Sögu-
félagsins og Reykjavíkurborgar.
Uýffur Björnsson sá um útgáf-
una, en um affdraganda verksins
segir á þessa leiff í formála.
— Hugmyndina að verkinu á
Lárus Sigurbjörnsson, fyrrv.
MUPSTADUR
íhAífa öld
1786 1836
Forsíffa ritsins.
skjalavörður, en síðar tók Pá!l
Líndal, borgarlögmaður, málið
upp við borgarstjórn. Tekin var
upp fjárveiting til útgáfunnar í
fjárhagsáætlun fyrir árið 1967
og um líkt leyti tókust samning-
ar milli borgarinnar og Sögufé-
lagsins um samvinnu við útgáf-
'una. Nefnd skipuð fulltrúum
þessara tveggja aðila hefur haft
yfirumsjón með verkinu. Nefnd-
ina skipa: Björn Þorsteinsson,
sagnfræðingur, Einar Bjarnason,
TÍkisendurskoðandi, Lárus Sigur-
björnsson, fyrrv. skjalavörður,
Magnús Már Lárusson, prófessor,
Páll Líndal, borgarlögmaður og
Lýður Björnsson, sem bjó verkið
undir prentun.
Kaupstaður í hálfa öld hefur
að geyma helztu réttindaskjöl
borgarinnar frá 1786 til 1838, út-
tektir á húsum, úthlutun lóða,
allar fundargerðir borgarafunda
og öll borgarabréf. Rakinn er að-
dragandinn að stofnun bæjar-
stjórnar í Reykjavík. Bókin er
23 arkir, prýdd 46 Reykjavíkur-
myndum frá 1836 og eldri, og eru
■tvær þeirra litprentaðar.
Á fundi, sem fréttamenn áttu
með útgefendum bókarinnar í
Höfða í gær, sagði formaður
Sögufélagsins, Björn Þorsteins-
son m. a., að í þessu fyrsta bindi
Safns til sögu Reykjavíkur væri
fjallað um danska tímabilið í
sögu borgarinnar. Þetta væri sag
an af því, hvernig Reykjavík
hefði orðið íslenzk og greint
væri frá grundvallaratriðum
sjálfstæðisbaráttunnar. „Bókin
er ómissandi öllum þeim, sem
láta sig sjálfstæðisbaráttuna ein-
hverju varða og íslenzka verz.-
unar- og málsögu,“ sagði Björn
ennfremur, og hann bætti við:
„Það er að sjálfsögðu aðallega
á valdi Reykvíkinga sjálfra,
hvernig tekst til með þessa út-
gáfu. Bækurnar verða að seljast,
ef framhald á að verða á útgáf-
unni, en útgefendur treysta því
að Reykvíkingar hafi svo mikinn
áhuga á sögu borgar sinnár, að
bækurnar Safn til sögu Reykja-
víkur muni skipa virðulegan sess
á reykvískum heimilum.“
Áformað er; að næstu bækur
í þessum flokki verði fundar-
gerðir borgarstjórnarinnar, a.m.k.
fram til 1908, manntöl og vaktara
skjölin. Elztu Reykjavíkurmann-
tölin geyma m. a. mikinn menn-
ingarsögulegan fróðleik, greina
lestrarkunnáttu manna, bókaeign
og ýmis persónufræði. Þá er einn
ig fyrirhugað að birta kjarnann
úr skjölum Innréttinga * Skúla
Magnússonar og í undirbúningi
er ritgerðasafn um reykvísk
fræði.
RALEIGH
KING SIZE FILTER
Leiö nútímamannsins til ekta
tóbaksbragðsins frá Ameríku
Úrvalsvörur frá PHILIPS
TILVALDAR JÓLAGJAFIR
ÚTV ARPSTÆKI R AFM AGN SR AKVÉLAR
fyrir straum. fyrir straum og rafhlöðu.
VERÐ FRÁ
KR. 1975.—
VERÐ FRÁ
KR. 1178.—
PLÖTUSPILARAR
með og án magnara.
Transistor
ÚTVARPSTÆKI
VERÐ FRÁ
KR. 1.385.—
GLÆSILEGT ÚRVAL AF ALLS KONAR JÓLASKRAUTI
Á JÓLATRÉÐ - BORÐSKRAUT - LOFTSKRAUT
EINNIG FJÖLBREYTT ÚRVAL AF JÓLATRÉSSERÍUM - ÖNNUMST SERÍUVIÐGERÐIR
heimilistæki sf.
HAFNARSTRÆTI 3
SÍMI 20455