Morgunblaðið - 28.12.1968, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. DESEMBE3R 1968
tjlfcgiedBandi H.f. Árvakur, Reykjaivíik.
FxamkvæmdaBtj óri Haraldur Sveinsaon.
Ritstjórar Sigurður Bjarniason frá Vigur.
Mafcthfas Johannes&'en.
Eyjólfur Kcmráð Jónsson,
Ritstjómarfulltrúi Þorbjörn Guðjmmdssoih
Fréttaistjóri Björn Jóhannsson'.
Augiýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson.
Rifetjórn og afgreiðsla ASaisfcræti 6. Sími ift-100.
Auglýsingar Aðafetrœ'ti 6. Sími 22-4-80.
AskTÍftargj'ald kr. 150.00 á mánuði innahlands.
í lausasötu kr. 10.00 eintakið.
Pétur Ottesen
Með Pétri Ottesen, sem í dag verður lagður tii hinztu hvíldar í
ættarhéraði sínu hverfur atf sjónarsviðinu einn svipmesti og
sérkennilegasti íslendingur þessarar aldar. Að baki honum liggur
stórbrotið lífsstarf á svo a’ð segja öllum sviðum þjóðlífsins. Hann
var glæsilegur bóndi, sem sat jörð sína af alhliða myndarskap og
ræktarsemi, héraðshöfðingi í sínum fögru ættarbyggðum og þjóð-
málaleiðtogi og þingskörungur í hart nœr hálfa öld.
Pátur Ottesen var á sinni löngu og farsælu starfsævi viðriðimn
_yel flest meiriháttar mál þjóðar sinnar, með einum éóa öðrum
hætti. Telst það til eindæma að slíkur baráttumaður, sem sótti flest
áhugamál sín af sérstæðu kappi skyldi aka svo heilum vagni heim
að hvergi sá kám á skildi hans.
Gæfa Péturs Ottesen lá í heilsteyptri skapgerð hans, andlegu
sjálfstæði og réttlætistilfinningu, sem sjaldan brást honum.
Áhugamál hans náðu til allra sviða íslenzks þjóðlífs. Enda þótt
landbúnaðurinn stæði næst hjarta hans var efling sjávarútvegs og
fiskiðnaðar honum ekki minna virði. Sjálfur var hann í æsku bæði
bóndi og sjómaður. Hann gerþekkti þessar tvær undirstöðuatvinnu-
greinar landsmanna af eigin reynslu. Vernd fiskimiðanna umhverfis
landið var eitt hans stærsta hugsjónamál. Hverskonar rányrkja var
eitur í beinum hans. Átti hann sinn stóra þátt í umdirbúningi lag-
anna um vísindalega verndun fiskimiða landgrunnsins, sem sefct
voru árið 1948, og allar aðgerðir okkar í landhelgismálum hafa
síðan byggzt á. Traust bænda og útvegsmanma á Pétri Ottesen má
bezt marka af því að hanm sat áratugum saman í stjórnum Búnaðar-
félags íslands og Fiskifélgs Islands samtímis.
★
Þegar Pétur Ottesen var kosinn fyrst á þimg fyrir Borgarfjarðar-
sýslu árið 1916 var komið að riðlun hinna gömlu flokka, sem fyrst
og fremst höfðu byggzt á atfstöðunni til sjálfstæðisbarátfcunnar við
Dani. Gamli Sjálfstæðistfkxkkúrinn gekk klofinn til þessara kosn-
imga og tiiheyrði Pétur Ottesen ,,.þversum-“mönnum hans. Síðar
tók hann þátt í myndun Borgaratflokksins og íhaldsflokksins. Loks
varð hann einn af áhritfamestu Sfcofnendum Sjáltfstæðisflokksins
■árið 1929, og einn af leiðtogum hang til dauðadags.
Það var bjargföst skoðun Péturs Otfcesen, að frumsikilyrði upp-
byggingar og framfara í hinu íslenzka þjóðfélagi væri öflugt ein-
staklings- og félagsframtak. Sterkir einstaklingar skapa sfcerkt
þjóðfélag, var kjarni ræðu, sem hann flutti eitt sinn á landstfundi
Sj álf staéðismanna.
Þegar Pétur Ottesen flutti ræður um mál er voru honum hug-
leikin, hvort heldur var á Alþinigi eða utan þings, var sem gneistaði
af honum krafturinn. Röddin var há og hvell, svipurinn hreinn og
málafylgjan öll karlmannleg og drengileg.
Pétri Ottesen voru ekki tamar krókaleiðir að settu marki. Hann
kaus helzt að fara beinf og hiklaust í samræmi við persónulega
skoðun sína. Fyrir kom að hann færi sínar eigin götur án tillits
til flokksstetfnu í einstökum málum. Skerti það ekki hið mikla
traust, sem hann naut innan Sjálfstæðisflokksins. Innan hans hefur
alltaf verið hátt til lofts og vítt til veggja.
Sjálfstæðis- og öryggismál þjóðar sinnar lét Pétur Ottesen jafnan
mjög til sín taka.
★
-* Líf og starf þessa þjóðmálagarps hefur verið ísienzku þjóðinni
mikils virði. Heiðarleiki hans og vammleysi sköpuðu honum vin-
sældir og traust langt út fyrir raðir samiherja hans. Slíkir stjórn-
málamenn eru í raun og sannleika hverri kynslóð lífsnauðsynlegir,
ekki sízt í örfámennu þjóðfélagi, þar sem návígi dægurbaráttunnar
skapar háskalega tortryggni, dreifir kröftunum og leiðir til úlfúðar
og átaka.
Pétur Ottesen vildi sameina kraíta þjóðar sinnar eftir fremsta
megni. Hann trúði því að stéttir hennar og starfsihópar ættu sam-
eiginlegra hagsmuna að gæta. Bóndinn og sjómaðurinn, verkamað-
urinn og atvinnurekandinn, iðnaðarmaðurinn og menntamaðurinn
væru í raun og sannleika allir í sama báti, sem því aðeins kæmist að
landi að öll skipshöfnin hefði áralagið.
Þessi aldna kempa vann þjóð sinni á Alþingi í 43 ár og sat 52
þing, eða fleiri en nokkur annar. Hann lagði jafnan góðum málum
lið og hafði forystu um margvísleg nýmæli. Af samstarfi við hann
mátti margan lærdóm draga. Þrátt fyrir kapp sitt og þróttmikla
málafylgju var hann ljúflingur í framkomu, yfirlætislaus og aldrei
upp yfir það hafinn að fræðast um menn og málefni. Hann naut
þesss í ríkum mæli á etfri árum sínum að breg*ða sér utan og kynn-
ast nýjum háttum meðal framandi þjóða. Síðast á s.l. sumri rættist
sá draumur hans að heimsækja Grænland, sem um langt skeið hafði
verið óskaland hans og ævintýraheimur. Um þá för skrifaði hann
fróðlegar og skemmtilegar greinar í Morgunblaðið.
Pétur Ottesen varð rúmlega áttræður að aldri. En hugur hans
var ungur og opinn. Hann þráði sífellt a'ð víkka sjóndeildarhring
sinn og var að því til efstu ára. Hann gekk ótrauður til verka sinna
að Ytra-Hólmi að morgni hins hinzta dags, og mætti þar örlögum
sínum. Slík var gæfa hans.
í dag kveður íslenzka þjóðin Pétur Otfcesen og þakkar lif hans og
starf. Morgunblaðið þakkar honum langa og fjölþætta samvinnu
um leið og það vottar konu hans, börnum og öllu skylduliði einlæga
samúð við fráfall hans.
r=CI
X
Næsta skrefið í geimferðasögu Banda-
ríkjanna verður að senda menn til lend-
ingar á tunglinu og það verður líklega
stigið í júní á næsta ári, með geimfarinu
Apollo 11. Áður verður búið að senda
Apollo 9 og 10 til hringferða um tunglið og
þá verður tunglferjan reynd með því að
fljúga henni í um 50 þúsund feta hæð yfir
yfirborði þess.
Byrjunin á ferð Apollo 11, verður ekki
ósvipuð byrjununni á ferð Apollo 8. Satum
us 5. eldflaug flytur geimfarið fyrst á braut
umhverfis jörðu og nokkrar hringferðir
verða farnar meðan geimfararnir yfirfara
tækin. Þá verður þriðja eldflaugarþrepið
ræst að nýju og það sendir farið út fyrir
aðdráttaraflssvið jarðar og áleiðis til tungls
ins. Geimfaramir þrír munu gera stöðuút-
reikninga og beina Apollo 11. nákvæmlega
á rétta braut. 1 um það bil 40 þúsund mílna
fjarlægð frá tunglinu fer aðdráttarafl þess
að segja til sín og geimfarið byrjar að auka
hraðann. Þegar það verður komið hæfilega
nálægt snúa geimfaramir því við þannig að
goshreyfillinn snýr að tunglinu, og setja
hann af stað til að minnka hraðann og
komast á rétta braut. Þegar Apollo verður
kominn á braut í 70 mílna hæð yfir yfir-
borði tunglsins byrja geimfararnir að undir
búa lendinguna. Tveir þeirra skríða gegn-
um ganginn sem tengir stjórnklefann við
mánaferjuna, og koma sér fyrir í henni.
Nokkmm klukkustundum síðar, eftir að
hafa yfirfarið öll tæki og mæla til að full-
vissa sig um að allt sé í lagi, verður mána-
ferjunni sleppt og hún byrjar ferð sína
niður á við. Með því að nota eldflaugar-
hreyfla mánaferjunnar stjóma geimfaram-
ir tveir hraðanum þannig að þeir lækka sig
með um 70 mílna hraða.
í 500 feta hæð verður afl hreyflanna
aukið og ferjan látin „hanga í lausu lofti“
eins og þyrla, meðan geimfararnir kanna
lendingarsvæðið. Ef þeim líst ekki vel á
fyrsta staðinn geta þeir fært sig eitthvað
annað. Stjórnandi mánaferjunnar lætur
hana þá síga hægt og rólega til tungls og
þegar lendingafæturnir nema við yfirborð-
ið drepur hann á hreyflunum.
Vísindamenn héldu í fyrstu að eldflauga-
hreyflarnir myndu þyrla upp geysilegu ryk
skýi, en lendingar Surveyor faranna (ó-
mönnúð könnunarför) leiddu í ljós að yfir-
borðið er ekki ósvipað rökum fjörúsandi á
jörðinni.
FYRSTU SKREFIN
Og hvað gera svo fyrstu mennirnir sem
lenda á tunglinu, þegar mánaferjan stöðv-
ast? Hversu æstir og ánægðir sem þeir
verða, og spenntir að stíga út, munu þeir
sitja kyrrir í nokkrar klukkustundir við að
yfirfara tæki ferjunnar og búa hana undir
flugtak. Aðeins þegar þeir hafa sannfært
sig um að allt sé í lagi, munu þeir búa sig
undir að stíga út. Þeir verða báðir í klunna
legum og þunglamalegum búningum sem
eiga að vernda þá gegn hinum ofsalega
hita og ofsalega kulda sem þeir verða í til
skiptis á yfirborði tunglsins. Á bakinu bera
þeir súrefnisgeymi og innbyggt í fötin er
kælikerfi og talstöð sem þeir nota bæði til
að hafa samband við Apollo 11. og stjóm-
stöðina í Houston. Hægt og varlega, á hönd
um og fótum, skríður annar geimfarinn að
framlúgu mánaferjunnar og opnar hana.
Hann snýr sér við og gengur afturábak
niður stigann sem er á einum lendingar-
fætinum. Hinn bíður í sæti sínu fyrst í
stað og tekur ljósmyndir af félaga sínum,
eins og hver annar ferðamaður. Hann mun
líklega einnig beina sjónvarpstökuvél að
hinum geimfaranum og þær verða sendar
beint til jarðar þannig að stór hluti íbúa
heimsins getur fylgst með fyrstu göngu-
Tunglferjan fer til lendingar. Efst t.v. ræsa geimfararnir eldflaugarhreyfil ApoIIo 11.
til að draga úr ferðinni og komast á braut. Næsta mynd: Geimfararnir snúa ferjunni
að tunglinu og (næsta) losa hana frá. Neðst til hægri heldur ApoIIo áfram hringferð-
um, en tunglferjan fer á aðra braut og lækkar sig til lendingar.
rw UL- 3C -xi=r ixcx