Morgunblaðið - 28.12.1968, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 1968
Aðgöngumiðasala í Ungmennafélagshúsinu
í dag frá kl. 4—6 og sunnudag kl. 2—6.
Húsmæður !
Óhrelnlndl og blettlr, *vo
sem fitublettir, eggja-
blettir og blóbblettir,
hverla á augabragSi, ef
notað er HENK-O-MAT f
forþvottinn eða til að
leggja f bleyti.
Siðan er þvegið á venju-
legan hátt úr DIXAN.
HENK-O-MAT, ÚRVALSVARA FRÁ
Alþjóðlegi Ungtemplaradagurinn 1968:
Betri heimur?
ÞEGAR ungtemplarar í hinum
ýmsu löndum koma á þessu ári
fram með kjörorð sitt „Við
byggjum betri heim í samein-
ingu“, er sú hætta fyrir hendi,
að margir telji þetta fljótfærnis-
lega ákvörðun, og það meira að
segja sumir í okkar röðum. Svo
mikill kuldj er talinn ríkja í
samskiptum þjóðanna og menn
beittir slíku ofbeldi, arðráni og
óréttlæti, að engin von sé til, að
úr rætist. Og þess vegna er líka
valin þveröfug leið.
Þeir, sem berja hæst bumbur,
fá ekki áheyrn hjá stórvelda-
samsteypum. Sameinuðu þjóð-
irnar og hinar ýmsu stofnanir
þeirra vinna mikið umbótastarf,
og mörg félög og jafnvel hei'lar
þjóðir veita beina aðstoð, en
hjálpin við hina nauðstöddu
virðist ekki nægileg eða þá illa
skipulögð. Það sýnist vera miklu
meira vit í að fylgja hörmunga-
kenningunni: að jörðin verði
víti, þegar fólkinu fjölgi um of,
þá verði hungursneyð á stórum
svæðum, byltingar og kynþátta-
styrjaldir, vatnsskortur, jarð-
hræringar, skriðuföll og aðrar
náttúruhamfarir.
Það virðist eðlilegt að örvænta
og gefast upp eða snúa sér frá
eymdinni og leita afþreyingar í
skemmtanaheimi okkar eða flýja
lífið með einhverju móti. Það
gerum við víst flestöll á einn
eða annan hátt.
En æskan krefst þess, að eitt-
hvað sé gert til úrbóta. Hún
hefur sterka réttlætiskennd. Hún
er róttæk, en jafnframt óbundin
gömlum kenningum og kreddu-
festu í skoðunum, og það ætti
að geta rutt braut nýjum, áhrifa-
miklu og vel skipulögðu átaki
í þessum efnum.
Við getum tekið sem dæmi eitt
mikilvægt atriði um óréttláta
skiptingu meðal íbúa jarðarinn-
ar. Hér á landi þykja bað sjálf-
sögð grundvallarréttindi, að íbú-
arnir læri að lesa og skrifa. Öll
börn eiga kost þeirrar mennt-
unar, sem þeim hæfir bezt, í
hvaða stétt og stöðu sem for-
eldrarnir eru. Hins vegar er mál-
um svo háttað, að meiri hluti
íbúa jarðarinnar á þess engan
kost að læra að lesa, hvað þá
meir. Um þrír fjórðu hlutar af
400 millj. Indverja eru ólæsir og
óskrifandi. Og í mörgum Evrópu-
löndum er stór hluti íbúanna
ólæs. Nýju Afríkuríkin heyja
harða baráttu til að auka mennt-
unina — þeir ólæsu eru í meiri-
hluta. Hin öra fólksfjölgun veld-
ur því, að með ári hverju vex
sá fjöldi, sem hvorki kann að
lesa né skrifa. Til samanburðar
má nefna, að | af útgjöldum
allra landa heims til hermála
mundi nægja ti'l að kenna a.m.k.
95% af íbúum jarðarinnar að
lesa.
Það þarf þess vegna meira en
fjárhagslega aðstoð og matvæla-
sendingar til að bæta úr brýnni
þörf. Til að framfarir geti orðið,
þarf að mennta þjóðirnar. í
auknu hjálparstarfi felst skiln-
ingur á þvi, að eigi bræður og
systur í fátæku löndunum að
geta hagnýtt sér aukna menntun
og nýjar atvinnugreinar, verður
víða að koma til þjóðfélagsleg
bylting, svo að sem flestir geti
notið góða af auknum þjóðar-
tekjum og framförum á sviði
efnahagslífsins. Að s'ama skapi
verður þetta fólk þá hæfara að
verjast hvers konar yfirgangi.
Það er aðkallandi verkefni að
herða sóknina fyrir því að
byggja betri heim. Og margir,
sem nú eru ungir, kunna siðar
að taka beinan þátt í þessu mikla
mannúðarstarfi. Við ættum ekki
að vera hrædd við að takast þá
ábyrgð á hendur. Að því mun
líka koma fyrr eða síðar. Heim-
urinn er allt í kringum okkur.
Við getum ekki hlaupizt frá hon-
um.
Í.U.T.
íslenzkir ungtemplarar.
Stjórn Félogs íslenzhro mynd-
Iistormnnno endurhjörin —
- UNGÓ -
GAMLÁRSKVÖLD
HLJÓMAR leika
Fuiltrúi í stjórn Bandalags ísí.
lietamanna er Magnús Á. Árna-
son.
Samþykkt var að bjóða Fkrni
Jónssyni að gerast heiðurstfélagi
í FÍM vegna brautryðj andastarfa
hans í þágu félagsins og ísienzkr
ar mynd’listar. Finnur hefur
þek'kzt boðið og eru heiðursféiag
ar niú þrír, hinir eru Jóh. Kjarval
og Lennart Segerstrále fré Finn-
landi.
Samiþykkt var að bjóða eftiír-
töldum listamönnuim inngöngu í
félagið: Ágúsit Petersen, Jóni
Gunnari Árnasyni. Jens Kristleifs
syni, Kristínu Eyfells og Ragn-
hildi Óskarsdóttur.
Hin árlega sýning í Hassedby-
hö'll verður opnuð upp úr ára-
mótum og sýna þar atf íslaods
hálfu eina mynd hver þeir Finn-
ur Jónsson, ViJhjáJmur Bergsson,
Hringur Jóhannesson, Hörður Ág
ústfsson og Jens Kristleifsson.
AÐALFUNDUR Félags íslenzkra
myndlistarmanna var nýlega hald
inn. Stjóm var endurkjörin, þeir
Sigurður Sigurðsson, formaður;
Valtýr Pétursson, gjaldkeri og
Kjartan Guðjónsson, ritari. Vara-
menn: Hjörleifur Sigurðsson og
Ragnar Kjartansson.
Á sýningamefnd urðu nokkrar
breytingair og tóku sæti í henni
Bragi Ásgeirsson og Einar Há-
konarson. Aðrir í sýhingamefnd
voru endurkjömir þeir Steinþór
Sigurðsson, sem er foxmaður
nefndarinnar, Benedikt Gunnars
son, Kristján Davíðsson, Sigur-
jón Ólafsson, Jóhann Eyfells og
Guðmumdur Benediktsson.
I
Wst'fehir.!tter
RITSTJÓRN • PRENTSMIÐJA
AFGREIÐSLA'SKRIFSTOFA
SÍMI 10-100
— Hljómar, Pops og Ömar Ragnarsson —
NÝÁRSSKEMMTUN FYRIR UNGLINGA VERÐUR í ÍÞRÓTTAHÖLLINNI í LAUGARDAI
Á NÝÁRSDAG KL. 20.30.
Húsið skreytt. — Aðgangseyrir kr. 150.00. — Forsala í HLJÓÐFÆRAHÚSINU Laugavegi 94
og í bíl í dag og á morgun við Útvegsbanka íslands.