Morgunblaðið - 07.02.1969, Blaðsíða 1
T
31. tbl. 56. árg.
FÖSTUDAGUR 7. FEBRUAR 1969
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Nixon ræðir við leið-
toga 5 Evrópulanda
Verður í Briissel 23. febrúar
Washington, 6. febr. AP-NTB.
• A fundi með fréttamönnum í
Washington í dag tilkynnti
Richard M. Nixon að hann legði
upp í ferð til Evrópu 23. þessa
mánaðar. Fyrirhugað er að for-
setinn fari tii Briissel, London,
Berlínar, Bonn, Rómar og París-
ar, og ræðir þar við ráðamenn
um ýms sameiginleg vandamál.
Með í förinni verða William P.
Rogers utanríkisráðherra og dr.
Henry Kissingar ráðunautur Nix-
ons um varnarmál. 1 ferðinni
heimsækir Nixon aðalstöðvar
NTAO í Briissel, og gengur vænt
anlega á fund Páls páfa.
• A fundinum minntist Nixon á
nokkur þeirra mála, sem hæst ber
um þessar mundir í Bandaríkj-
unum. Taldi hann umræðurnar í
París um Vietnam hafa farið vel
af stað, en það væri undir fram-
haldi þeirra komið hvenær unnt
yrði að hefja heimsendingu
bandariskra hermanna frá Suður
Vietnam, og eins hinu hve vel
gengi að þjálfa her Suður-Viet-
nam.
• Varðandi deilu Araba og Gyð-
inga sagði Nixon að ástandið í
löndunum fyrir botni Miðjarðar-
hafsins væri nú þannig að
Hilton Iátinn
Beverly Hills, Kalifomíu,
5. febr. (AP).
HÓTELEIGANDINN Conrad N.
Hilton jr. andaðist að heimili
■sínu í Beverly Hills á miðviku-
<3ag 42 ára að aldri. Hann var
Jyrsti eiginmaður leikkonunnar
Elisabetar Taylor, og elzti son-
iUr stofnanda Hilton-hótelanna.
Var Hilton jr. forseti Conrad
'Hilton stofnunarinnar, og átti
•saeti 1 stjórn Trans World Airlin-
es oig Hilton International Co.
hvenær sem væri gæti soðið upp
úr. Taldi hann nauðsynlegt a<5
koma á friði milli Araba og Gyð-
inga og sagði að mái þetta yrði
rætt í ferðinni.
• Nixon sagði að viðræðumar
við Ieiðtoga í Evrópu gætu leitt
til þess að fljótlega yrði unnt að
halda fund leiðtoga Sovétríkj-
anna og Bandaríkjanna. Þó sagði
hann að það ætti ekki að vera
neinn skyndifundur, boðaður
fyrirvaralítið, heldur vel undir-
búin ráðstefna.
Nixon heldur af stað frá Was-
hington 23. febrúar, og kemur
samdægurs til Briissel. Hann gist
ir í Brussel fjrrstu nóttina og
Framhald á bls. 27
Róstusamt hefur verið á Ítalíu að undanförau og verkföll tíð.
nýjum hjálmum og skjöldum til að verjast grjótkasti, og var m
artækin voru tekin í notkun í fyrsta sinn nú í vikunni.
Hefur lögreglan þar verið búin
ynd þessi tekin þegar nýju vam-
Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs:
Svíinn Per Olov Enquist
— hlaut t>au fyrir bókina „Hermennirnir"
Helsingfors 6. febr. NTB-FNB
Bókmenntaverðlaunum Norð-
urlandaráðs 1969 var úthlutað í
Helsingfors í dag. Að þessu sinni
hlaut þau sænski rithöfundur-
inn Per Olov Enquist fyrir skáld
sögu sína Legionarerna, sem
fjallar um örlög Eystrarsalts-
landa.
í forsendum úthlutunarnefnd-
ar segir að verðlaunaskáldsagan
sé snjöll listræn tjáning nútíma
manns, sem geri tilraun til að
skilja aðstöðu sina og samtíð-
ar sinnar með blæbrigðaríkri
rannaókn á umdeildum kafla í
sögu Norðurlanda eftir síðustu
heimsstyrjöld.
Kosygin kominn
í leitirnar
Fundur œðstu manna A-Evrópu í Moskvu?
Moskvu, 6. febrúar. NTB.
ALEXEI Kosygin, forsætisráð-
herra, kom í dag fram opinber-
lega í fyrsta skipti síðan í des-
ember þegar hann og Leonid
Brezhnev, aðalieiðtogi sovézka
kommúnistaflokksins, buðu ung-
verska kommúnistaleiðtogann
Janos Kadar velkominn til
Moskvu.
Kosygin kom síðast fram opin
berlega 20. desember, þegar hann
ræddi við hinn nýja sendiherra
Frakka í Moskvu, Roger Sey-
doux, í tvær klukkustundir. Hann
virðist vera við góða heilsu og
ætlaði að taka sér frí frá störf-
um.
Síðan „hvarf“ Kosygin og
hvarf hans vakti stöðugt meiri
forvitni og bollalagt var hvort
honum hefði verið vikið frá
störfum, eða að hama væri veik-
ur. Sovézkir talsmenn sögðu að-
eins, a'ð forsætisráðherrann væri
í orlofi.
Forsætisráðherrann, sem er 65
ára gamall, virtist vera við beztu
heilsu, þegar hann tók á móti
Kadar í dag. Þar sem bæði hann
og Brezhnev tóku á móti Kadar
var kveðinn niður annar orð-
rómur. Það vakti nokkra athygli
í gær, að nafn Brezhnevs var
ekki undir yfirlýsingu, sem gefin
var út eftir heimsókn háttsettra
leiðtoga tékkóslóvakiska komm-
únistaflokksins.
Framhald af bls. Z8
Per Olov Enquist
Norðurlandaráðsverðlaunum
var fyrst úthlutað árið 1962.
Fyrsti verðlaunahafinn var
sænski rithöfundurinn Eyvind
Johnson, aem hlaut þau fyrir
bókina Hans Nádes tid. Hafa
sænsk skáld til þessa fjórum sinn
um fengið verðlaunin, síðast í
fyrra er Per Olov Sundman
hlaut þau. Vaino Linna, sem er
eina finnska skáldið, sem hefur
hlotið verðlaunin, hlaut þau ár-
ið 1963. Tarje Vesaas hlaut þau
1964 og Johan Borgen 1967. Að-
eins einn Dani 'hefur hlotið verð
launin til þessa.
Lengra var skeytið frá Hels-
ingfors ekki, en til skýringar má
bæta því við, að Daninn, sem
talað er um, er Færeyingurinn
WiJliam Heinesen.
Bók Per Olov Enquist fjallar
um afhendingu Svia á hiermönn
um frá Eystrasaltslöndum til
Sovétrikjanna, hermönnum, sem
höfðu barizt með Þjóðverjum í
Framhald á bls. 27
55% styðja
'íholdsilokkinn
London, 6. febr. — NTB —
í NÝ-AFSTAÐINNI skoðana-
könnun í Bretlandi kemur
fram, að kröfur fulltrúa íhalds
flokksins um takmörkun inn-
flytjenda frá Asíu- og Afriku
löndum hafa mjög aukið fylgi
flokksins á kostnað Verka-
mannaflokksins.
Samkvæmt skoðanakönn-
uninni, sem gerð var á veg-
um „The Opinion Research
Centre", nýtur Verkamanna-
flokkurinn nú stuðnings 32%
kjósenda, en hlaut atkvæði
48,7% kjósenda við þingkosn
ingarnar árið 1966. Á sama
tíma hefur fylgi ihaldsflokks-
ins aukizt úr 41,4% í 55%.
f greinargerð með niðurstöðu
skoðanakönnunarinnar segir
O.R.C. félagið, að megin-
ástæða fyrir framgangi íhalds
flokksins að undanfömu sé
ræða, er Edward Heath
flokksleiðtogi flutti nýverið,
en þar krafðist Heath auk-
inna aðgerða til að takmarka
fjölda innflytjenda til að koma
í veg fyrir auknar kynþátta-
óeirðir á Bretlandseyjum.
Svartsýni í Parísar-viðrœðunum:
HARÐNANDI AFSTADA
París og Saigon, 6. febr. AP.
ENN einum fundi um frið í
Víetnam lauk í dag án þess að
nokkuð miðaði í samkomulags-
Bylting var talin
áformuð í Prag
Novotnysinni rœðst gegn frjálslyndi
Prag, 6. febrúar (NTB).
RtfSSAHOLLIR kommúnistar
höfðu sennilega áform á prjónun
um um að taka öll völd í Tékkó
slóvakíu í sínar hendur eftir út-
för Jan Palachs í janúar, að því
er dr. Milan Huebl, fulltrúi í
miðstjórn kommúnistaflokksins,
heldur fram í blaðagrein í dag.
Framhald á bls. 15
átt. Aðalsamningamaður Banda-
ríkjanna Henry Cabot Lodge,
varaði við ástæðulausri bjart-
sýni, og heldur virðist hafa dreg
ið sundur með deiluaðilum vegna
harðra árása fulltrúa Norður-
Vietnams og Þjóðfrelsishreyfing-
ar Viet Cong á ríkisstjóra Suður-
Vietnam. Lodge sagði þó, að
samningatilraunum yrði haldið
áfram af fullum krafti.
Á fundinum skoraði Henry
Caibot Lodge á fulitrúa Norður-
Vietnams og Þjóðfrelsisfylkingar
innar að taka föstum tökum þau
vandamál, er stæðu í vegi fyrir
friði, en fulltrúi Þjóðfrelsisfylk-
ingarinnar lýsti því yfir, að frið-
ur væri óhugsandi meðan Saigon
stjórnin væri við völd og Banda-
rikjamenn neituðu að semja
beint við Þjóðfrelsisfylkinguna.
Fulltrúiim sagði, að ekkert
mundi miða áfram í viðræðunum
meðan núverandi stjórn væri við
völd í Saigon.
Fulltrúi Norður-Vietnam tók
undir or'ð fulltrúa Viet Cong og
þannig virðist afstaða beggja
hafa harðnað verulega. Þess
vegna rikir mikil svartsýni í
París um, að nokkur jákvæður
árangur náist í viðræðunum í
náinni framtíð.
HARÐARI AFSTAÐA 1 SAIGON
Það hefur orðið til að auka
svartsýnina, að afstaða Saigon-
stjórnarinnar virðist einnig hafa
har’ðnað. Nguyen Van Thieu for
seti lýsti yfir því á blaðamanna-
fundi í dag, að Suður-Vietnam-
stjórn mundi ekki fallast á neinar
tilslakanir er brytu í bág við
þjóðarhagsmuni. Með þessari yfir
Framhald á bls. 27