Morgunblaðið - 07.02.1969, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1969.
„Leii Ericson
Drive“
HRAÐBRAUTIN Shore Park-
way liggur inn til New York
borgar, og hafa vegayfirvöld
New York ríkis ákveðið að I
breyta um nafn á hraðbraut-
inni utan borgarmarkanna og '
nefna hana Leif Ericson Drive.
í fréttaskeyti frá AP í gær
segir að nú hafi fulltrúi í
skrúðgarða- og hraðbrauta-
nefnd New York borgar lagt
til að breytingin nái einnig
til hraðbrautarinnar innan
borgarmarkanna. Þykir þetta
tíðindum sæta, því flutnings-
maðurinn heitir Angelo J. Arc
uelo og er, eins og nafnið bend
ir til af ítölskum ættum. Til
þessa hafa ítalskir Bandaríkja
menn verið lítt hrifnir af Leifi
heppna.
Arcuelo segir að þótt hann
flytji þessa tillögu sína, sé
hann ekki þar með að viður-
kenna Leif heppna. Kveðst
hann þess fullviss að það hafi
verið Kólumbus, sem fann
Ameríku árið 1492 fyrstur
manna.
(Þess má geta að í frétt-
inni frá AP er sagt að Leifur
sé norskur).
Samstarf stórkaup-
manna og iðnrekenda
— um sölu á íslenzkum iðnvarningi?
FÉLAG íslenzkra stórkaup-
manna hefur sent Félagi ís-
lenzkra iðnrekenda bréf og ósk-
að eftir viðræðum um á hvem
hátt meðlimir Félags ísl. stór-
kaupmanna gætu aðstoðað við
sölu íslenzks iðnvarnings á er-
Iendum mörkuðum og innan-
lands. Hefur stjóm Félags ís-
lenzkra iðnrekenda ákveðið að
taka upp viðræður við Félag ís-
lenzkra stórkaupmanna um þessi
mál.
Björgvin Schram, form. Félags
ísl. stórkaupmanna, sagði Morg-
unblaðinu, að félagsmenn álitu
hyggilegt að nota þau sambönd,
sem kaupsýslumenn hafa vítt um
heim, til að kanna markaðsmögu
leika fyrir íslenzkar iðnvörur. —
Þess vegna hefði félagið sent Fé-
lagi ísl. iðnrekenda óskir um að
félögin tækju upp viðræður um
útflutningsmöguleika og mögu-
leika á samstarfi á því sviði og á
Minni áfengisneyzla
— 1968, miðað við árið á undan
AFENGISNEYZLA landsmanna
var 11.3% minni en árið áður, að
því er segir í tilkynningu frá
Afengisvamarráði. Áfengissalan
hækkaði þó um 37.9 millj. króna,
eða um 7%, en á árinu 1968 varð
veruleg hækkun á áfengi. Miðað
við 100% áfengi var áfengisneyzl
an á mann 2,11 lítrar 1968, árið
þar á undan var hún 2,38 1, 1966
2,32 1 og árið 1965 2,07 lítrar.
Heildarsala útsölustaða var
sem hér seigir:
Reykjavík kr. 448.937.684,00
Akureyri
ísafjörður
Siglufjörður
Seyðisfjörður
Keflavík
Vestmannaeyj ar
40.822.655.00
15.570.950.00
9.763.756.00
11.249.920.00
26.923.365.00
19.63(1.070.00
Loftárás á Biafra
300 FÉLLU, 500 SÆRÐUST
Umuahia, Biafra, 6. febr. (AP)
UM 300 manns fórust og 500
særðust þegar flugvéi úr flug-
her Nígeríu gerði loftárs í dag
á markaðstorgið { bænum Um-
uahiagu, skammt frá Umuahia í
Owerrl héraði í Biafra. Segja
sjónarvottar að mannfjöldi hafi
verið á torginu þegar þota frá
Nígeriu birtist skyndilega. Flaug
hún lágt yfir toigið og skaut á
mannfjöldann úr hríðskotabyss-
um og lét aldflaugasprengjum
rigna yfir hann. Flest særðra og
fallinna voru konur og böm.
Er þetta mesta mannfall, sem
orðið hefur í loftárás Nígeríu-
flughers frá því flugvélar réðust
á bæinn Outchamarket norðan
Skipstapar
í Japan
Tókíó, 6. febr. — NTB —
HÖRKUBYLUR hefur gengið
yfir Japan að undanförnu og
valdið miklu tjóni. í dag gekk
stormurinn yfir Hokkaido eyju
og sökkti 11 japönskum skipum
og eyðilagði um 170 fiskibáta,
sem lágu í höfnum á eyjunni.
Mikil snjókoma hefur verið, og
var herlið kvatt á vettvang í dag
til að aðstoða um tvö þúsund
bíla, sem sátu fastir í snjónum.
Fyrir tveimur dögum var storm
urinn yfir Formósu. Fórst þar
skip, en 16 mönnum var bjarg-
að. Hins vegar steyptist banda-
rísk flutningavél, sem var að
koma til Formósu frá Filipseyj-
um, í sjóinn, og fómst 13 af 14
mönnum um borð. Allir flutn-
ingar í lofti og á láði hafa stöðv
azt í Norður-Japan vegna veð-
urs, og eru margir helztu þjóð-
vegir þar lokaðir.
við Onitsha 1 fyrra. f þeirri árás
féllu 500 og fjöldi særðist. Að
sögn hafa loftáTásir á óbreytta
borgara í Biafra harðnað mjög
undanfarið.
SFHÍ. sofnor
tíl Biofra
STÚDENTAFÉLAG Háskól ís-
lands hefur ákveðið að gangast
fyrir söfnun til styrktr nauð-
stöddum í Biafra í samráði við
Rauða Kross íslands.
Söfnunin fer fram 7.-15. febrú-
ar 1969. Tekið verður á móti
framlögum í anddyri iháskólns og
í Laugavagsútibúi Landsbankans,
þar sem námslánin eru afhent.
SFHÍ heitir á háskólamenn að
leggja sitt af mörkum og sting-
ur upp á því, að hver og einni
gefi 200 krónur.
(Frá stjórn SfFHÍ).
innanlandsmörkuðum. Jafn-
framt var beðið um skrá yfir
allar íslenzkar iðnvörur, sem nú
eru á boðstólum. Kvaðst Björg-
vin vona, að af samstarfi gæti
orðið, því það yrði vafalaust
beggja hagur.
Gunnar J. Friðriksson, form.
Félags ísl. iðnrekenda, sagði
Morg.unlblaðinu, að stjórn félags-
ins hefði ákveðið að taka upp
viðræður við stór-kaupmenn um
þessi mál. Kvaðst hann vona, að
úr samstarfi gæti orðið og að það
leiddi til jákvæðs árangurs. —
Sagði Gunnar, að það væri iðn-
rekendum mikið hagsmunamál
auk þess sem það væri þjóðar-
nauðsyn, að útflutningur á ís-
lenzkum iðnvörum væri sem
mestur og beztur og mætti eins-
kis láta ófreistað til að svo gæti
orðið.
Hvorugur vildi neitt segja um
það, hvernig þessu samstarfi
yrði bezt háttað. Um það væri
of snemmt að segja á þessu stigi
málsins.
Fjallvegir óiærir
ÖXNADALSHEIÐI var ófær í
gær, en í gærmorgun var stórum
bílum og jeppum fært um Holta
vörðuheiði og allt norður í Skaga
fjörð á leiðinni Reykjavík — Ak-
ureyri. 1 dag átti að aðstoða
bíla.
Á Suður- og suðvesturlandi
var færð ágæt og stórum bílum
var fært í Búðardal en ófært
var í Gilsfirði og sennilega ófært
um Svínadal. Á Vestfjörðum
voru allir fjallvegir lokaðir, en
í gær var eitthvað fært innan
sveita, m. a. út frá ísafirðL
Ófært var til Siglufjarðar og ur
fyrir Ólafsfjarðarmúla og færð
var tekin að þyngjast í Eyja-
firði vegna snjókomu. Ófært var uln'
um Dalsmynni, en reynt verður
að ryðja þann veg á mánudag,
ef tíð leyfir.
Vegir á Norðausturlandi voru
ófærir vegna snjóa og sömuleiðis
vegir á Ausrtfjörðum, nema hvað
Suðurfjarðavegur hefur ef til
vili verið fær stórum bílum í
gær.
Þilið, sem dunkurinn hékk á, og borðið, sem hann
hægri sést í gluggann, sem Páll þeyttist út um.
Ljósm. Mbl. Þorgeir Pétursson.
ÞEYTTIST ÚT
UM GLUGGA
— við sprengingu
brauL
Búrfelli, 6. febrúar.
ÞRJATÍU lítra hitavatnsdunkur
sprakk í kaffistofu starfsfólks-
ins hér í gærkvöldi. Tvennt var
í kaffistofunni, þegar sprenging.
in varð, eldhússtarfsfólk — Páll
Jónsson og Kristjana Guðmunds-
dóttir. Við sprenginguna þeyttist
Páll út um glugga og hafnaði
hann í snjóskafli fyrir utan,
ómeiddur en Kristjana meiddist
lítillega á fæti.
Við sprenginguna gengu veggir
kaffistofunnar til um eina 5 sm.
og gat kom á ioftið en megin-
hluti dunksins féll niður í gegn
um borð og á gólfið. Ytra byrði
dunksins flattist út við spreng-
inguna.
— ÞP.
Breyting á lögreglusamþyktinni:
Heimild til
dansleikjahalds
— fyrir unglinga yngri en 16 ára
BORGARSTJÓRN samþykkti í
gær breytingu á lögreglusam-
þykkt Reykjavíkur að því er tek
til heimild unglinga yngri
en 16 ára til veru á dansleikj-
Breyting þessi er m.a. gerð
vegna hins nýja æskulýðsstað-
ar, sem borgin mun reka.
Breytingin fer hér á eftir:
„Unglingum yngri en 16 ára
er óheimill aðgangur og dvöl á
almennum dansleikjum eftir kl.
20.00, öðrum en sérstökum ungl-
ingaskemmtunum, sem haldnar
eru af skólum, æskulýðsfélög-
Kvikmynd um bofnvörpu-
veiðar við Crœnland
MJÖG athyglisverð kvikmynd
fyrir íslenzka áhorfendiur verður
sýnd á kvikmyndasýningu Germ
aníu á laugardaginn kemur (8.
febr. kl. 2 e.h. í Nýja B4ó).
Sýnd er ferð botnvörpuskips
af nýjustu gerð á Grænlands-
VIÐTALSTIMI
BORGARFULLTRÚA
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
Borgarfulltrúar Sjálfstæðififlokksins munu fyrst um sinn
hafa viðtalstíma hvem laugardag milli kl. 2—4 e.h. í
Valhöll v/Suðurgötu 39. Taka þeir þar á móti hvers kyns
ábendingum og svara fyrirspurnum er snerta málefni
Reykjavikurborgar. Tveir borgarfulltrúar munu taka á
móti hverju sinni, og er öllum borgarbúum heimilt að
notfæra sér viðtalstíma þessa.
Laugardaginn 8. febrúar verða frú Auður Auðuns og
Styrmir Gunnarsson til viðtals.
mið og lýst vinnubrögðum um
borð. Ferðin að heiman úr þýzkri
höfn tekur níu daga, og þeigar
komið er á miðin er kastað og
sérmyndir gerðar um nýtingu
vörpunnar. Aflinn er tekinn um
borð og vinnsla hefst, flakað er
í nýtízku vélum og fiskurinn
frystur, en unnið er fiskimjöl úr
úrgangi. Nokkuð er lýst lífi sjó-
mannanna um borð í þessu stóra
nýja skipi.
Tvær aðrar myndir verða
sýndar, þ.á.m. verðlaunakvik-
mynd um eðlis- og efnafræðing-
inn August Kekulé (1829-1886).
Hin myndin er bæði fróðleg og
skemmtileg og er um nagdýrið
hamstur. Fréttkvikmyndin fjall-
ar að þessu sinni m.a. um við-
brögð Þjóðverja við irinrás
Varsjárríkjanna í Tékkóslóvak-
íu, heimsókn de Gaullee í Bonn,
knattspyrnukeppni Þjóðverja og
Austurríkismanna (þóttur í
heimsmeistarakeppni 1970) o.fl.
Öllum er heimill ókeypis að-
gangur að kvikmyndasýningum
Germaníu.
(Frá Germaniu).
um eða öðrum aðilum, sem til
þess hafa leyfi og háðar eru sér
stöku eftirliti. Forstöðumenn
dansleikja er skylt að fylgjast
með því, að ákvæði þessi séu
haldin, að viðlögðum sektum og
eða missi leyfis til veitingahalds
eða skemmtanahalds um lengri
eða skemmri tíma. Hvers kon-
ar þjónusta við böm og ungl-
inga eftir löglegan útivistartíma,
önnur en heimflutningur, er
bönnuð að viðlagðri ábyrgð þess,
er þjónustu veitir. Handhöfum
þjónustuleyfa er skylt að fylgj-
ast með því, að ákvæði þessi
séu haldin.“
- SVÍINN
Framhald af bls. 1
síðustu styrjöld. Það var 25. jan-
úar 1946, sem þessir 146 her-
menn voru afhentir. Mikil mót-
mælaalda hafði risið í Svíþjóð
gegn afhendingunni, en óttazt
var, að hermannanna biði ekkert
nema bráður dauði. Gekk á með
mótmælum, hungurverkföllum
og sjálfspíslum áður en afhend-
ingin fór fram, en síðustu and-
mælin voru þau, að liðsforingi
frá Lettlandi skar sig á háfls á
bryggjunni í Treleborg, fremur
en bíða þann dauðdaga, er hann
taldi á næstu grösum.
Mikið hefur verið rætt um
það í Sviþjóð, hvort rétt hafi
verið að afhenda Rússum her-
mennina og hafa sumir talið
þessa afhendingu helzta stjórn-
málahneyksli í Svíþjóð í seinni
tíð. Bók Enquists fjallar um
þetta mál, og hefur hann rann-
sakað það eftir því sem kostur
hefur verið og talað við mikinn
fjölda fólks, sem á einhvern hátt
var við mál þetta riðið, m.a. hef-
ur hann talað við nokkra þeirra,
sem afhentir voru, en örlög
þeirra urðu ek-ki eins grimm og
óttazt hafði verið.
Á bls. 15 er grein um Per Olov
Enquist.