Morgunblaðið - 07.02.1969, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1999.
*
B(LALEIGANFALURhf
car rental service ©
22*0*22*
RAUÐARÁRSTÍG 31
Hverfisgðtu 103.
Simi eftir lokun 31160.
MAGINIÚSAR
SKIPHOLH 21 54MAR21190
eftir lokun slmi 40381
GÚSTAF A. SVEINSSON
hæstaréttarlögmaður
Laufásvegi 8. - Sími 11171.
LOFTUR H.F.
LJÓSMYNDASTOFA
Ipgólfsstræti 6.
PantiS tíma í síma 14772.
jrBUNAÐARBANKINN
#
er banki liílhsin.s
Haísteinn Sigurðsson
hæstaréttarlögmaður
Tjarnargötu 14, simi 19813.
BÍLAHLUTIR
Rafmagnshlutir í flestar
gerðir bila.
KRISTINN GUÐNASON h.f.
Klapparstíg 27. Laugav. 198
Simi 12314 og 21995
að BEZT
er að
auglýsa í
Morgunblaðinu
0 Örnefni og alfaraleiðir
vestra
Jón G. Jónsson, skrifar:
„Nokkuð er það algengt, þeg-
ar talað er um vegi og staðar-
heiti, að eitt nafn er látið duga
um heil landsvæði eða þjóðvegi,
þótt þar hafi frá fomu fari ver-
ið um glögg markaskil að ræða.
Út yfir tekur þó, þegar heilir
landshlutar eru taldir undir einu
og sama nafninu og það jafnvel í
Útvarpinu, að þetta eða hitt, sem
fréttnæmt þykir, er talið hafa gerzt
á Barðaströnd, þótt atburðurinn,
sem um er talað, hafi orðið suð-
ur í Reykhólasveit. Flestir ættu
þó að vita, að takmörk Barða-
strandahrepps eru frá SkorarhLíð
um suður á Hjarðarnes, og því
ekki um aðra Barðaströnd að
ræða.
Þá langar mig til að fara nokkr
um orðum um tiltölulegan nýjan
þjóðveg, sem í daglegu tali geng
ur undir nafninu „Vestfjarðar-
leið“. Það er þjóðvegurinn frá
Vatnsdal á Barðaströnd til Am-
arfjarðar. 1 bókinni „Landið þitt“
bls. 161 segir svo: Hornatær, um
þær og Dynjandisheiði liggur Vest
f jarðarvegur milli Vatnsfjarðar og
Amarfjarðar. — Þetta er rétt,
svo langt sem það nær, leið þessi
sem mun hafa verið allfjölfarin
fyrr á tímum, var í daglegu tali
kölluð „að fara Homatær", en það
eru mörg fleiri ömefni á þess-
ari leið, ef lýst er legu vegar-
ins, þótt þeirra sé að engu getið,
og ekki á korti heldur, þótt án
efa mörgum fróðleiksfúsum ferða
langi þyki gaman að vita, hvar
hann er á vegi staddur. Vest-
fjarðarleið liggur frá Vatnsfirði
upp Penningsdal um Helluskarð
niður Vatnahvilft um svokallað-
an Smiðjuhvamm, og kemur þá
á Kollagötu, sem hann liggur eft-
ir fyrir botni Geirsþjófsfjarðar
upp svokallað Leiðargil á Dynj-
andisheiði, unz hann sveigir niður
í lítinn dal, sem heitir Afréttar-
dalur, en þar voru höfð til forna
geldneyti. Hlaðinn hefur verið
grjótgarður fyrir mynni dalsins,
og sér enn vel fyrir honum. Mátti
fyrir nokkru glöggt sjá, hvar hlið
ið hafði verið. Skammt þar frá
til hægri þar sem vegurinn sveig-
ir niður í fyrrnefndan dal, er fell
eitt, sem kallað er Samkomuhóll.
Stendur það hjá vatni eigi all-
stóru, sem kallað er Ljótunnar-
v^rtn. Skammt þar frá em gras-
hagar allgóðir, fomar sagnir
herma, að þar hafi flokkar þeir,
er riðu til Alþingis, mætzt, það er
Arnfirðingar, Barðstrendingar og
Rauðsendinga og menn úr syðri
fjörðum, og af því dragi fellið
nafn sitt. Hafa þeir þá eflaust
farið Horntær. Greina mátti fyrir
nokkram ámm þarna marga götu
slóða, einnig hafa fundizt þar
hornístöð og hornhagldir, grænar af
elli, jafnframt slitrum af Söðul-
gjörð. Fundu smalar þetta, án þess
að þeir væm þó neitt að huga
að slíku, — bendir þetta til, að
sagnir þessar hafi við nokkur rök
að styðjast. Þaðan hefðu þeir svo
getað farið yfir hálendið til Þorska
fjarðar.
Eigi skal svo fjölyrt meira um
þetta, en benda má á, að mjög
liggur nú við borð, að gömul ör-
nefni glatist ásamt gömlum alfara
leiðum eða afbakist á einhvern
hátt. Og þó að sjálfsögðu megi
kalla þennan þjóðveg Vestfjarða
leið einu nafni, er það staðreynd,
að hér er um gamla alfaraleið að
ræða með gömlum örnefnum, svo
sem Kollagötu, Smiðjuhvamm og
Leiðargil, sem er þó að engu get-
ið á uppdrætti.
0 Afbakanir á íslands-
kortum
Þá vildi ég með nokkmm orð-
um minnast á nokkur örnefni
þarna í kring, sem mér virðast
hafa afbakazt á síðari ámm á
íslandskortinu. Á kortinu, sem
talið er, að sé endurskoðað 1964
til 1965, em felUn fyrir botni
Trostansfjarðar og Norðdals tal-
in upp í réttri röð sunnan frá
og endað á Lónafellshnúk. Ekki
hefi ég heyrt þetta nafn fyrr og
þykist þó allvel kunnugur á þess-
um slóðum. FelUð hefur frá önd-
verðu heitið ÁrmannsfeU. Þar er
og fjalUð frá Dynjanda að Ósi í
Mosdal kallað Urðarfell, en heit-
ir Urðarfjall, enda ekki um íell
að ræða 1 venjulegri merkingu
þess orðs, þar sem það er 8 til
10 km á lengd. Mosfellsmegin heit
ir það Flatafjall, enda allgreið-
fært þeim megin upp að efstu
brún. Á kortinu er það nafn-
laust. Þar er og talað um Arn-
ólfsfjall, sem hefur frá öndverðu
heitið örnúlfsfjall, enda fremst á
því dys eða grjóthrúga, sem heit-
ir örnúlfshaugur. Fjallið fyririnn
an og ofan Hrafnseyri heitir Ána-
múli. Þar er talið, að landnáms-
miaðurinn Án rauðfeldur sé heygð
ur; er talið, að þeir örnúlfur og
hann hafi viljað láta heygja sig,
þar sem þeix sæju hvor til ann-
ars og landnám þeirra blasti við.
Á kortinu er fjallið nafnlaust, og
þar því enginn ÁnamúU til. Sum-
ir segja kannske, að Utið geri
til, þótt svoha örnefni glatist eða
gleymist, enda má segja, að af-
bökun þeirra sé eyðunni verri,
en þjóðlégt getur það vart tal-
izt, og minnast mættum við hinma
fleygu orða: Landslag yrði Utils
virði, ef það héti ekki neitt. Mik
ið er nú rætt um að gera ísland
að ferðamannalandi, og víst er,
að margar þjóðir hafa miklar tekj
ur af ferðamönnum, og í Noregi
koma ferðamenn hinir sömu ár
eftir ár þangað til að eyða sumar
leyfi sínu á sögufrægum slóðum,
sem þeir hafa tekið tryggð við.
Fullvíst er, að þeir sem eyða
frítímum sínum i hinum suðrænu
sólarlöndum á fjölbreytilegum
skemmtistöðum myndu varLa
verða fjölmennir í þeim hópi, er
óskaði að dvelja hér. Við íslend-
ingar eigum fjölbreytilegt og fag
urt land ásamt sögu okkar og
fornritum, sem margir kunna góð
skil á, þar i flokki myndu verða
margir, er heimsæktu land okk-
ar til að æfa íþróttir eða göngu-
ferðir og klífa bratta tinda. Einn
ig myndu þar í flokki vera menn,
sem kynnast vildu ýmsum merk-
um sögustöðum, sjá þá og skoða,
en minjar eru fáar og örnefnin
ein til frásagnar um tengsl lið-
inna alda við fortíð og nútíð,
þar sem þau eru ekki gleymd
eða glötuð. Menn, sem hefðu á-
huga á slíkum fræðum, hefðu gam
an af að heyra sagt frá þeim
og kynnast af mönnum er kynnu
þar góð skil á, og gætu auk þess
gætt frásögn sína Ufi og litum
með örnefnum er geymzt hefðu
um aldir tengdir atburðum sög-
unnar sjálfrar. Þá þyrftu og að
vera fyrir hendi góðir og vist-
legir dvalarstaðir, einmitt við Vest
fj arðarveg, á hinum sögufrægu
slóðum Hrafna-Flóka. Er Flóka-
lundur, er Barðstrendingafélagið
á og rekur að sumrinu, hinn á-
kjósanlegasti dvalarstaður. Það-
an er örskammt til ýmissa merkra
sögustaða, gott berjaland og veiði
í Vatnsdalsvatni. örskammt það-
an, þegar farinn er Vestfjarða-
tvegur, opnast Geirþjófsfjörður,
lognvær og kyrr miUi brattra
hUða og hára hamraveggja, hul
inn gróskumiklum birkiskógi. Fyr
ir ofan botn fjarðarins er gnótt
berja og veiði nokkur í sjó og
vötnum, þar gerðist og ein af
perlum íslenzkra forsagna, Gísla
saga Súrssonar, og enn kunna
menn skil á ýmsum örnefnum, er
varða sögu hans þar, þótt þau
hafi aldrei komizt á íslandskort-
ið. Einn er sá galli á, að eigi er
bílfært af Vestfjarðaleið niður í
Geirþjófsfirði, en þar sem stytzt
er, mun það vera 3 til 4 km.
Skógrækt ríkisins á nú Botn I
Geirþjófsfirði, og verður ef til
vill til þess að flýta fyrir því,
að gert verði akfært niður í fjörð
inn. Margt er fleira fallegra staða
og sögufrægra á þessum slóðum,
þar eru Dynjandafossar, fagrir
og svipmiklir, og Dynjandadal-
ur, sem vegurinn liggur eftir,
viða vaxinn fögru birkikjarri og
gott berjaland, væri þar hinn á-
kjósanlegasti sumardvalarstaður,
þar er og veðursæld svo að af
ber. Á mörgum þessum slóðum
eru ýmis forn örnefni, er varða
veg Uðinna alda, þótt eflaust týn-
ist sum þeirra innan skamms.
Norðan fjarðarins er svo hinn
merki staður Hrafnseyri, en þar
sveigir vegurinn áleiðis til Dýra-
fjarðar.
Jón G. Jónsson“.
0 Enn um símaþjónustu
öm Snorrason, skrifar:
„Ég skrifaði nýlega nokkrar
Unur um símaþjónustuna í sam-
bandi við lokun, og ég skal engu
þar við bæta.
En hér kem ég i hreinskilni
og af fullri alvöru með tiUögu:
Ef símnotandi greiðir ekki sínar
skuldir, þá afhendist krafan til
lögfræðings, — látum þá borga,
sem eru óskilvísir. En í ham-
ingju bænum! Enga símalokun!
Hún getur kostað Uf, og vill sím-
inn bera þar á ábyrgð?
Vinsamlegast,
Örn Snorrason".
Sendisveinn óskast
hálfan eða allan daginn.
Olíufélagið Skeljungur h.f,,
Suðurlandsbraut 4.
VEITINGASTOFA TIL SÖLU
Veitingastofa ásamt veizlusal og öílu tilheyrandi til
sölu. Hagstætt verð, góðir greiðsluskilmálar.
Húsnæði tryggt til lands tíma.
Tilboð merkt: „6095“ sendist blaðinu fyrir mánudags-
kvöld.
Glæsileg 5 herbergja íbúð
á 1. hæð við Háaleitisbraut, stórt herbergi í kjallara
fylgir, má setja hringstiga niður úr íbúðinni í her-
bergið, ný og falleg teppi á allri íbúðinni. Mikið af
fallegum innréttingum, teppi á stigahúsi, bílskúrs-
réttur. Ágætir greiðsluskilmálar.
FASTEIGNAÞJÓNUSTAN,
Austurstræti' 17, símar 16870 og 24645.
HLJÓMPLÖTUÚTSALA
Hin árlega hljómplötuútsala hefst r dag
20% afsláttur af öllum erlendum hljómplötum
Hljóðfœrahús Reykjavíkur, Laugavegi 96