Morgunblaðið - 07.02.1969, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1969.
Frá Hafísráðstefnunni:
Nauðsyn að stdrefla jöklarannsóknir
Breytingar jökla varða mjög virkjanir fallvatna
Á fimmta fundi Hafísráðstefn-
unnar á miðvikudag voru flutt
fjögur erindi. Sigurður Þórar-
insson flutti erindi um „Breyt-
ingar jökla á tslandi og hugsan-
legar afleiðingar þeirra“. Þor-
leifur Einarsson flutti erindi
um „Loftslag, sjávarhita og haf-
ís á ísöld og nútíma á felandi“.
Sveinbjörn Bjömsson flutti er-
indi um „Hitadreifingu í hafinu
á síðustu öldum samkvæmt
rannsóknum á botnseti“ og
Trausti Einarsson flutti erindi
um „Veðurfarssveiflur og hugs-
anlegar orsakir þeirra“. Öll er-
indin fjölluðu um vísindalegar
athuganir í nútíð og framtíð.
Sigurður Þórarinsson rakti í
stuttu máli jökla'breytingar á ís-
landi síðan sögur hófust og sýndi
fram á að á síðari öldum hafa
tímabil hopunar og framgangs
jökla verið nokkurn veginn sam-
tímis víðast hvar á jörðinni og
taldi hann því ástæðu til að svo
yrði áfram.
Sigurður benti á, að síðasta
áratuginn hefði almennt dregið
úr hopun jökla, a.m.k. kringum
norðanvert Atlantshaf og jökl-
um sem ganga fram fer fjölg-
andi.
Sigurður taldi, að ef í hönd
fer tímabil almenns vaxtar jökla
•hérlendis hafi það í för með sér
vaxandi hættu af hlaupunum úr
Hagavatni, Grænalóni, Vatns-
dalslóni og lónum við Hoffells-
jökul. Einnig benti Sigurður á,
a ðslík þróun í jöklabúskap gæti
valdið stærri Skeiðarárhlaupum
en þeim, sem átt hafa sér stað
síðustu 3 áratugina. Bent var á
nauðsyn þess, að hafa þetta í
huga m.a. þegar gerð verður
vegaáætlun um bílveg yfir Skeið
arársand. Samkvæmt reynslu
undanfarinna alda, sagði Sigurð-
ur, að búast mæbti við vexti í
búskap jökla hérlendis, ef í hönd
fara hafísár.
Um breytingar í jöklum fyrir
miðja 16. öld er lítið vitað, en
t.d. benti Sigurður á, að Breiða-
merkurjökull hafi verið miklu
innar um aldamótin 1700, heldur
en hann er í dag. Taldi hann lík-
legast að þar gæti munð 10—15
km frá upphafi landnáms á ís-
landi hve innar jökullinn hefði
legið þá. Sigurður gerði víðtæk-
ar rannsóknir á jöklasvæðinu í
Austur-Skaftafellssýslu á árun-
um 1936 til 1933 og kannaði hann
m.a. breytingu á jöklum sam-
kvæmt sögnum, annálum, örnefn
um og fleiri heimildum sem til
voru um búskap jökla.
Sigurður benti á, að aukinn
vöxtur í búskap jökla varðaði
mjög þjóðarhag t.d. í sambandi
við virkjanir fallvatna, en af-
leiðingarnar af bættum jökla-
hag taldi hann í stærstu dráttum
þessar: a) Jöklarnir verða fram-
brattari og úfnari, b) Jökulvana
svæði hyljast jökli, c) Sporða-
lón minnka eða hyerfa, d) Jaðra-
lón og ihlaup úr þeim vaxa, e)
Jökulhlaup af völdum jarðelda
breytast e.t.v., f) Rennslissveifl-
ur jökulárna aukast, g) Farvegir
jökulárna verða óstöðugri, h)
Nýtileg vatnsorka í landinu
minnkar.
Taldi Sigurður brýna nauðsyn
á að stórefla jöklarannsóknir á
íslandi og í lok erindis síns kom
hann fram með þá tillögu að
stofnaður yrði sjóður til þess að
efla þessar rannsóknir og afla
fjár til þeirra og kom Sigurður
með þá uppástungu, að slíkur
rannsóknarsjóður bæri nafn þess
manns, sem Haifísráðstefnan er
kennd við, Jön heitinn Eyþórs-
son, veðurfræðing.
Þorleifur Einarsson rakti í
grófum dráttum loftslagsbreyt-
ingar frá því að jökla síðasta
jökulskeiðs tók að leysa og fram
að landnámi, en þær breytingar
eru lítt þekktar með vissu.
Þá ræddi Þorleifur um jarð-
fræðilegar menjar hafíss við ís-
land og benti t.d. á að í Breiða-
víkurlögum á Tjörnesi hafa fund
izt hafísbornir hnullungar í sjáv-
arseti, sem í eru skeljar, einkenn
andi fyrir svellkaldan sjó. Benti
hann á, að þessi jarðlög væru
sennilega um tveggja milljón
ára gömul. Þá gat Þorleifur þess
að í sjávarmyndunum frá síð-
jökultíma hefðu fundizt fáeinir
hafísbornir hnullungar og að
hvort tveggja benti til þess að
hafiss hafi öðru hvoru að
minnsta kosti gætt við strendur
landsins á ísöld. Engar menjar
um hafís eru þekktar frá síðustu
öldum eða fornsögulegum tíma
utan hafísbornir hnullungar á
fjörum austan- og norðanlands,
en þeir hnullungar munu hafa
borizt hingað á síðari öldum.
Þorleifur sagði, að sjávarhiti
hér við land virtist á síðjökul-
tíma hafa verið a.m.k. 2°C lægri
en nú er, en samkvæmt rann-
sóknum á kjörnum af úthafs-
botninum virðist breyting sjáv-
abhitans í núverandi horf hafa
orðið nokkuð skyndilega fyrir
10000 árum.
Þá gat Þorleifur um ýmis at-
riði úr rannsóknum sínum sem
hann hefur gert á Tjörnessvæð-
inu og benti t.d. á, að þar hafi
fundizt skeljar sem séu ættaðar
úr Kyrrahafinu.
Sveinbjörn Björnsson flutti
erindi um hitadreifingu í hafinu
á síðustu ísöld samkvæmt rann-
LAUGARDAG n.k. verður hald-
inn stofnfundur Áfengismála-
félags Islands í Sigtúni og hefst
hann kl. 3. Félagar ÁMÍ munu
enga afstöðu taka til áfengis sem
drykkjar, heldur eru þessi helzt
stefnumál félagsins: Að alkóhól-
istar eigi greiðan aðgang að
sjúkrahjálp, í öðru lagi að hvetja
og hlúa að öllu félagsmálastarfi
verðandi áfengismál í landinu,
og loks að safna sem allra fjöl-
breyttastri fræðslu um áfengis-
mál í sérhverri mynd, og koma
henni til almennings með öllum
tiltækum ráðum.
sóknum á botnseti. Botnset úthaf
anna geyma sögu síðustu ár-
milljóna, en meðal ránnsókna á
þeim eru mælingar á hlutfalli
súrefnissamsæta í skeljum göt-
unga, sem finnast í botnseti.
Með þessum mælingum má
ákvarða hita sjávarins, þegar
götungarnir lifðu.
Stöðugt er unnið að þessum
rannsóknum, en þagar hefur
fengizt allgóð vitneskja um hita
sveiflur nálægt miðbaug í At-
nefnd ÁMÍ var blaðamönnum
tjáð, að félagið ætti sér nokkuð
langan aðdraganda, en hug-
myndin að því fæddist fyrir
þremur árum. Frumiskrefin að
stofnuninni hafa síðan verið stig
in hvert af öðru, þar til alls-
herjarkynning á málefnum fé-
lagsins hófst með sjö blaðagrein-
um, sem birtust í Morgunblaðinu
undir yfirskriftinni — Alkóhál-
isti spyr.
Frumkvöðullinn að stofnun fé-
lagsins hefur verið Steinar Guð-
mundsson, nú framkvæmdastjóri
félagsins, en hann leitaði til val-
ins hóps áhugafólks um stofnun
félagsins, sem mynduðu síðan
20 manna undirbúningsnefnd.
Mun hún skila af sér n.k. laugar-
dag, er félagið verður formlega
stofnað, en þá verður kosin
stjórn í félaginu, sem starfar
næsta ár. Undirbúningsnefnd
hefur gengizt fyrir söfnun stofn-
félaga, og hefur sú söfnun geng-
ið vel, enda munu nú stofnfélag-
ar vera orðnir 800 talsins, enda
keppt að því að fá 2 þúsund
stofnfélaga. Verða allir þeir stofn
félagar, sem ganga í íélagið fyrii
1. marz n.k.
Sunnudaginn 1:5. desember sl.
birtist í fyrs'ta sinn opinberlega
fyribhuguð starfismynd ÁMI,
ásamt markmiðum félagsins, þar
sem landsmenn allir voru hvatt-
ir til að gefa þessu félagi gaum,
sem undirbúningsnefn'din taldi
það eiga skilið. Síðustu daga jan
úar og nú fyrstu dagana í febr-
úar hefur svo 10 þúsund umburð
arbréfum verið dreift víðsvegar
um Reykjavík og nágrenni til
hvatningar fólki um að leggja
þessu máli lið. Það virðist vefj-1
lant'shafi síðustu 2 milljónir éra.
Má þar greina mörg kuldaskeið
auk minni sveiflna, en þessar
ákvarðanir sýna aðeins stærstu
drætti.
Sveinbjörn gat um aðferðir til
þess að bera saman set í sjó og
á landi og einnig til þess að
greina aldur setanna. Benti hann
á, að við gætum haft gagn af
að taka sýnishorn úr þeim set-
lögum sem eru út af Suðurlands-
hafinu, til könnunar á þeim ösku
lögum sem í þeim kunna að
finnast og geta ef til vill varpað
skýrara ljósi á jarðsögu íslands.
Sveinbjörn taldi ástæðu til að
hefja undirbúning á því að bora
i gegn um Bíárðarbungu og
Framhaldá bls. 21
ast fyrir mörgum, að hér sé u«n
að ræða bindindisfélag, en er
tekið skýrt fram að svo sé ekki.
ÁMÍ hefur þegar orðið sér úti
um skrifs'tofuhúsnæði að Skip-
holti 36 og verður þar rekin leið
beiningarstöð, þegar félagið hef-
ur opinberlega starfsemi sína
mánudaginn 10. febrúar n.k. í
byrjun verður lögð aðaláherzla
að fá setta á laggirnar skyndi-
hjúkrunarstöð fyrir alkóhólista,
og kváðu talsmenn undirbúnings
nefndarinnar þetta vera mjög
knýjandi verkefni. Önnur helztu
verkefni félagsins verða þessi:
A. Að safna saman á eina
hönd upplýsingum um biverja
þá starfsemi i áfengismálum,
sem fyrirfinnst í landinu, setja
sig í samband við öll samtök og
stofnanir, opinberar sem að’-ar,
og leita eftir fuilri samvinnu
við alla þessa aðila við gagna-
söfnun, upplýsingadreifingu o.fl.
B. Að setja sig í samband við
allar þekktar stofnanir erlendar,
sem að áfengismálum vinna, og
fá stöðugt frá þeim upplýsingar
um alla framþróun áfengismál-
annna hjá hverju fyrir íig. ÁMI
er þegar í sambandi við sterk-
asta áfengismálafélag veraldar-
innar, National Council on Alco-
holism Inc. í Bandaríkjunum,
sem þegar telur meðlimastofnan
ir víða um heim. Frá þessu fé-
lagi hefur ÁMÍ þegar fengið haf-
sjó upplýsingabæklinga og rita,
sem gefin eru út fyrir sérstaka
starfsh'ópa, - svo sem lækna,
presta, lögfræðinga, kennara, fyr
irlesara og forvígismenn í við-
skiptum, iðnaði og framleiðsiu.
C. Að gefa út fréttabréf um
áfengismál og hverja framvindu
Framhald á bls. 27
Á fundi með undirbúnings-
Stofnað Áfengismálafélag
Markmiðið að hlúa að félagsstarfi varðandi áfengisvanda-
málið og auka áfengismálafrœðslu