Morgunblaðið - 07.02.1969, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1969.
hátt og mjðg skemmtilegur. Þau
höfðu fengið ágætan mat og dans
að ofurlítið á eftir. Hann dans-
aði ekkert sérlega vel, en lagði
svo mikla stund á að þóknast
henni, að hún vissi, að hann gæti
ekki verið með hugann við bréf
ið í vasa sínum. Næsta dag hafði
hann hringt snemma og spurt
hana hvort hann mætti ekki
fara með hana í bílnum sínum
að heimsækja Símon. Það fyrsta
sem hún sá þegar hún steig upp
í bílinn hans, var þetta bölvaða
bréf, en nú umslagslaust, en því
hafði verið stundið kæruleysis-
, . ÁLFTAMÝRI 7
LOMAHÚSIÐ
simi 83070
Opið alla daga öll kvöld og
um helgar.
Blómin, sem þér hafið ánægju
af að gefa, fáið þér í Blóma-
húsinu.
lega undir mælaborðið. Enda
þótt það væri freistandi að líta
á það, þá sti'llti hún sig og tókst
fljótt að gleyma því.
Þau fóru sér til skemmtunar
út í Richmond skemmtigarðinn.
Peter gaf sig talsvert að drengn
um, en Símon var einkennilega
hlédrægur. Hún fór að velta
þessu fyrir sér, er hún hellti
kaffinu í könnuna. Kannski var
þetta bara platónisk vinátta, sem
stundum verður með karii og
konu, hugsaði hún með sér þeg-
ar hún var að bera könnuna inn
í setustofuna.
Peter hrökk við og stóð upp.
— Afsakaðu, sagði hann. —
Ég var næstum sofnaður. Ef ein
hver skepna er ofalin, þá er
það ég. Komdu með kaffið hing
að að eldinum.
Hann seildist út með langa
handlegginn og tók kodda af
legubekknum og lagði hann á
gó'lfið en benti henni, að hún
skyldi setjast í hægindastólinn.
— Ég hef verið að hugsa um
að bjóða þér heim, sagði Lísa.
— En hver sagði þér af mér?
Þú sagðist hafa heyrt að mér
liði vel. Var það einhver flug-
maðurinn?
— Já, ég held, að það hafi
verið McCall flugstjóri og einn
þjónninn var líka eitthvað að
spyrja um það.
— Hvað í ósköpunum sagði
Svarti Mack?
— Hann var afskaplega hátíð
legur og sagði, að þú værir fé-
laginu hreinasti kjörgripur. Vin
sæl hjá áhöfnunum og sérstak-
lega góð við krakka — en hann
hélt ekki, að þú mundir verða
langæ þarna.
— Hvað heldurðu, að hann
hafi átt við með því? spurði
Lísa snöggt.
— Ég býst við, að hann hafi
átt við það, að þú mundir innan
skamms fara og giftast einhverj
um lukkupanfíl.
— Hm. Hann er nú ekki van-
ur að vera sérlega ræðinn, sagði
Lísa og reyndi að vera ekki
skjálfrödduð. — Þekkirðu hann
vel, Peter?
— Ég hef flogið talsvert mik-
ið með honum, en þar fyrir get
ég ekki sagt, að ég þekki hann
sérlega vel. Hann er einkennileg
ur náungi. Ágætis flugmaður og
fyrsta flokks flugstjóri. Eitil-
harður þegar agi er annarsveg-
ar, en óhlutdrægur og það líkar
mér vel. Ég dáist alveg tak-
markalaust að honum, en er jafn
framt álltaf dálítið hræddur við
hann. Veiztu það, að hann eyðir
Njótíð ferðarinnar
í heillandi andrúmslofti
Nú 15 ferðir í viku til Japan
Tapan Air Llnes haf* enn á ný fjölgað flugferðum sinum
Irá Evrðpu til Japan og geta nú boðið 15 ferðir á viku til
Japan eftir 3 mismunandi leiðum:
• Daglega yBr Norðurpólinn til Tokyo.*
• 4 ainnum í viku »SilkiIeiðina« um Indland og Hongkong
Ul Tokyo.*
• 4 tinnum 1 viku yfir Atlandshaf um New York og San
Frandsco til Tokyo. Dagleg brottför um sumartímann.
• í sambandi við Air France, Alitalia og Lufthansa.
Þannig er nú um að ræða 15 möguleika á viku hverri til að
komast til Japan og hinna fjarlægari Austurlanda með stórum c»_:» T-„-_ a s_ r •
DC-8 turbo-fan þotum frá Japan Air Lines, en í þeim njótið þér öe8ÍÖ J aPan Line8
hverrarmínútuiandrúmslofti japansks yndisleika oggestrisni. VÍO ferðaskrifstofu yoar.
Skrlfstofur fyrlr Skandinavíu: Kaupmannahöfn’: Imperial-Huset, 1612 V., Sími (01) 11 33 00, Telex 24 94
Stokkhólmur: Sveavagen 9-11, C., Simi (08)23 34 30, Telex 10665
Oslo: Tollbugaten 4, Herbergi 512, Sími 42 24 64 - 41 33 03, Telex 6665
— Þú verður að afsaka ástand ið hér heima, en konan mín vinn
ur úti.
talsverðu af frítímunum sínum
í að halda fyrirlestra og þess-
háttar í hinum og þessum drengja
klúbbum víðsvegar um landið.
Gat hann hafa verið á slíku
ferðalagi, þegar hann var næst
um búinn að aka á þau á stígn-
um, skammt frá kofanum henn-
ar? aÞr var einmitt einhver
vandræðastrákaskóli skammt frá
við veginn, sem hann kom eftir.
— Hann ætti að giftast og eiga
krakka sjálfur, hélt Peter áfram
— Hann er alltof einmana. Á
ekkert skyldfólk nema Beamish-
hjónin í Bagdad. Hefurðu verið
boðun heim til þeirra? Já, vitan-
lega hefurðu það. Þú sagðir
mér það þegar þú fékkst mér
bréfið frá henni Roxane. Það
er hreinasta plága, sem sú kona
getur verið. Þarf álltaf að vera
að fá nýjan andlitsfarða eða
hljómplötur eða guð veit hvað.
Ég skil bara ekki, hversvegna
hún þarf alltaf að vera að níðast
á mér. En líklega er Blake bú-
inn að fá nóg af því.
— Honum virðist þykja mjög
vænt um hana, vogaði Lisa sér
að segja.
— Það ætti honum líka að
Þykja.
— Hvað áttu við?
— Þegar einhver náungi er
svona einn síns liðs, ætti honum
að geta þótt vænt um systur
sína.
— Áttu við, að Roxane sé syst
ir hans Blake McCall?
— Vitanlega. Vissirðu það
ekki?
— Nei, það vissi ég ekki. Ég
hélt hann væri bara einn af
þessum kunningjum hennar. Ég
er víst ekkert sérlega gófuð. En
það er rétt á hann fyrir að halda
að ég væri mamma hans Símonar.
Og he'ldur víst enn. Þú mátt
ekki íáta kaffið kólna.
Um leið og hún rétti honum
kaffibollann, smellti hún snögg
um kossi á ennið á honum. En
hún sá samstundis eftir því,
þegar hún sá löngunarsvipinn á
honum og vissi varla sjálf,
hversvegna hún hafði tekið upp
á þessu. En fregnin um skyld-
leika þeirra Roxane og Blakes
hafði glatt hana svo óstjórn-
lega, að henni fannst hún kom-
ast alveg út úr öllu jafnvægi.
Hrúturinn 21 marz — 19 apríl
Sjálfstjórn þín er vissulega verð allrar aðdáunar, en hún
getur gengið of langt, og þér er nauðsyn að trúa góðum vind
fyrir þeim áhyggjum, sem á þér hvíla
Nautið 20. apríl — 20. maí
Heilsufar þitt hefur ekki verið upp á það bezta upp á síð-
kastið. Þó skyldirðu gæta þess að verða ekki of móðursjúkur
og angra vini þína með óþarfa sjúkdómstali.
Tvíburarnir 21. maí — 20. júní
Hafðu fyllstu gát á, ef þú þarft að skrifa undir einhvers
konar samning, og lofaðu ekki meiru en þú ert viss um að geta
staðið við.
Krabbinn 21. júní — 22. júlí
Hætt er við að ýmsar áætlanir, sem þú hafðir bundið góðar
vonir við standist ekki nánari athugun. Samt skaltu ekki missa
kjarkinn, heldur fitja upp á einhverju nýju.
Ljónið 23. júlí — 22. ágúst
Þú ert væntanlega að hetfjast handa með nýtt verkefni og
rýninn á störf þín.
Jómfrúin 23. ágúst — 22. september
Þunglyndi og dapurð sækja á þig og þú virðist mikla á-
hyggjuefnin og vandamálin fyrir þér. Umgengni þín við starfs-
félaga mætti einkennast af meiri stillingu og hófsemi.
Vogin 23. september — 22. október
Metnað skortir þig ekki. Hins vegar er umburðarlyndi þitt
ekki alltaf upp á marga fiska og þér hættir til að sökkva þér
niður í mál, sem þér koma ekki við.
Sporðdrekinn 23. október — 21. nóvember
Ekki væri úr vegi að gera yfirlit yfir fjárhag þinn og hafirðu
eytt meiru en þú aflaðir skyldirðu reyna að kippa því í lag
hið bráðasta.
Bogamaðurinn 22. nóvember — 21. desember
Bölsýni og sjálfsvorkunnsemi geta komið til með að eyðileggja
daginn fyrir þér, ef þú tekur sjálfan þig ekki taki og kveður
það niður.
Steingeitin 22. desember — 20. janúar
Afskiptasemi þín og málæði gerir samstarfsmönnum þínum
lífið leitt. Hvernig væri að þú stilltir því í hóf og reyndir heldur
að koma vinum þínum á óvart með prúðmennsku.
Vatnsberinn 21. janúar — 19. febrúar
Alls konar tilfinningamál efst á baugi í dag. Þú ættir ekki
að láta þann vin synjandi frá þér fara, sem þarfnast skilnings
þíns og göggskyggni.
Fiskarnir 20. febrúar — 20. marz
Þú skalt búa þig undir, að náinn ættingi eða starfsfélagi geri
þér gramt í geði. Þín ljúfa ltmd ætti að auðvelda þér að taka
slíkum óþægindum með brosi á vör.