Morgunblaðið - 07.02.1969, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1989.
27
Baade, 1. stýrimaður
— Þýzkii sjómenn
Framhald af bls. 28
Verður togarinn í Reykjavík-
urhöfn, þar til fjórir skip-
verjar koma frá Þýzkalandi í
stað uppreisnarseggjanna.
Er blaðamaður Mbl. hitti
skipstjórann, Karl Balk, um
borð í togaranum í gær vildi
hann fyrst fátt segja.
„Þetta er bara þýzkt mál —
hreinit þýzkt mál“.
„En hvað gerðist?"
„Við vorum að koma að
heiman og ætluðum að fara
að hefja veiðar á miðunum
milli íslands og Grænlands.
Þá gerðu fjórir uppreisn gegn
stjórn skipsinis“.
„Réðust þeir að ykkur?“
„Þeir réðust að fyrsta stýri
manni og ætluðu að stinga
hann með hnífum. Þeir voru
Karl Balk skipstjóri
drukknir — höfðu broitið upp
gieymslu, þar sem áfengi var
geymt. Þeir drukku í 36 stund
ir“.
„Særðist ekki stýrimaður?“
„Nei, þeir særðu hann
efcki“.
Nú kom stýrimaður, Baade
að nafni, upp í brú, og að-
spurður um hvar þetta gerð-
ist, sagði hann:
„Ég var afturí, þegar þeir
komu og ætluðu að ráðast á
mig“.
„Og höfðuð þér afl gegn
þeim fjórum?“
„Nei, Ne-hei Ég held að ég
sé nú ekkert sterkur".
„En hvað þá?“
„Ég hljóp“.
„Hvert?“
„Hingað, upp í brú“.
„Og vörðust hér?“
„Nei ég sbellti í lás“.
„Hvers vegna réðust þeir að
yður — var einhver ósætti?“
„Nei, ég hafði ekkert gert
þeim. Þeir voru fullir og vit-
lausir og einhver varð að
vera fórnarlambið“.
„Voru þeir svo lokaðir inni
á leið til lands?“
„Nei, nei. Þess þurfti ekki“.
,Sýndu þeir engan mót-
þróa?“
„Nei.“
Er Glúckburg lagðiist að
bryggju kl. 7.55 í gærmorgun
voru eins og fyrr segir lög-
reglumenn á bryggjunni, að
ósk skipstjóra. Voru tveir
handteknir í afturskipinu,
álberandi ölvaðir og reyndu
þeir að sýna mótþróa. Voru
þeir handjiárnaðir. Sá þriðji
var handtekinn á framþilfari
og var sá ódrukkinn. Sá
fjórði var handtekinn í koju
og allir voru þeir fluttir í
fangageymslu lögreglunnar i
Síðumúla.
Er mál skipverjanna í rann
sókn, en í gærkvöldi hafði, að
sögn umboðsmanns togarans
hér, ekki verið tekin ákvörð-
un um hvert framhald þess
verður í ÞýzkalandL
- KOSYGIN
Framhald af bls. 1
LEIÐTOGAFUNDUR?
Kadar kom með járnbrautar-
lest í hálfopinbera heimsókn, sem
talið er að standa muni til sunnu
dags eða mánudags. Talið er, að
Kadar ræði ástandfð í Tékkó-
slóvakíu við sovézka leiðtoga.
Fréttaritarar í Moskvu telja ekki
loku fyrir það skotið að haldinn
verði fimdur æðstu leiðtoga
Austur-Evrópu í Moskvu ein-
hvern næstu daga Austur-þýzki
flokksleiðtoginn Walter Ulbricht
hefur dvalizt í orlofi í Sovétríkj-
unum og hefur ákveðið að lengja
dvöl sína. En heimildarmenn í
Moskvu telja það óliklegt að
slíkur fundur ver'ði haldinn, enda
þótt utanríkisráðherra Tékkó-
slóvakíu, Jan Marko, sé staddur
í Moskvu.
Marko ræddi í dag við Nikolai
Podgorny, forseta, og síðan við
Gromyko utanríkisráðherra. Utan
ríkisráðherrarnir ræddust við á
sjúkrahúsi í Moskvu, þar sem
Gromyko liggur handleggsbrot-
inn. Tékkóslóvakískar heimildir
í Moskvu segja að tiilgangur
heimsóknar Markos sé að kynn-
ast sovézkum leiðtogum.
— BORGARSTJÖRN
Framhald af bls. 28
Æskulýðsráðs og borgarráðs
um nafn á staðnum.
Styrmir Gunnarsson (S)
kvaddi sér hljóðs á fundi borgar
stjórnar í gær þegar til afgreiðslu
var fundargerð borgarráðs frá
4. febrúar og gagnrýndi afstöðu
borgarráðs til málsins. Sagði
ræðumaður, að borgarráð hefði
átt að vísa málinu á ný til
Æskulýðsráðs úr því að borg-
arráð gat ekki fallizt á tií-
lögu Æskulýðsráðs og alla vaga
hefði borgarráð átt að sýna það
veglyndi gagnvart því unga fólki,
sem unnið hefði mikið og
óeigingjarnt starf við að koma
hinu nýja æskulýðsheimili upp
með því að leyfa því að ráða
nafni staðarins, þótt borgarróð
hefði kosið annað nafn.
Jafnframt hvatti ræðumaður
aðra borgarfulltrúa til þess að
sýna sjálfstæðan vilja, vald og
reiisn borgarstjórnar Reykjavík-
ur gagnvart borgarráði, undir-
nefnd borgarstjórnar og sam-
þykkja tillögu um atkvæða-
greiðslu meðal ungs fólks um
nafn á staðnum. Loks lét ræðu-
maður í ljós þá skoðun, að löngu
væri orðið tímabært að taka til
rækilegrar endurskoðunar hlut-
verk borgarráðs í stjórnkerfi
borgarinnar þar sem borgarráð
hefði í vaxandi mæli tekið sér
í hendur vald, sem í raun réttri
ætti að vera í höndum borgar-
stjórnar.
Gunnlaugur Pétursson, borgar
ritari, sem var staðgengill
borgarstjóra, benti á, að Æ-ku-
lýðsráð færi með æskulýðs-
mál í umboði borgarráðis og því
væri ljóst, að borgarráð hefði
ekki farið út fyrir valdsvið sitt í
þessu máli.
Einar Ágústsson (F) lýsti fylgi
við framkomna tillögu og tók
undir þá skoðun, að of mikið
væri af því gert að láta borgar-
ráð taka ákvarðanir um mál.
Hann kvaðst telja líklegt að
frumlegra nafn kæmi upp i slíkri
atkvæðagreiðslu en þau tvö sem
nefnd höfðu verið.
Svavar Gestsson (K) sagði að
gleðilegt væri að heyra nýstár-
lega sjálfistæðisviðleitni meiri-
hlutamanna og væri einkennandi
að hún kæmi fram, þegar -skíra
ætti æskulýðsheimili. Hann lýsti
fylgi við framkomna tillögu.
Guðmundur Vigfússon (K)
kvaðst telja það mikinn kost að
æsikulýðsheimili í hverfum
fylgdu nafni hverfanna. Hann
kvað fráleitt að viðhafa atkvæða
greiðslu um nafnið og fjarstæðu-
kennt að fela Æskulýðsráði fram
kvæmd hennar. Hann kvaðst vísa
til föðurhúsanna fullyrðingum
um að borgarráð hefði dregið til
sín vald úr höndum borgarstjórn
ar.
Sigurjón Björnsson (K) sagðist
ekki sjá að rök Guðmundar Vig-
fússonar um að nafn æskulýðs-
heimilis fylgdi hverfum væru
haldgóð og kvaðst hann fylgja
framkominni tillögu.
Kristján Benediktsson (F) sagði
að það hefði ekki verið ætlun
borgarráðs að lítillækka Æsku-
lýðsráð með því að fallast ekki
á tillögu þess. Hann kvaðst telja
tililöguna fráleita. Hugsanlegt
væri að niðurstaðan yrði eitt-
hvert orðskrípi.
Ulfar Þórðarson (S) kvaðst
ekki vilja láta því ósvarað að
æskufólk í Reykjavík mundi
velja staðnum skrípaheiti. Sagð-
ist hann bera fullt traust til unga
fólksins í þeim efnum.
Styrmir Gunnarsson (S) sagði
að atkvæðagrefðslan yrði væntan
lega framkvæmd á þann veg, að
allir þeir sem kæmu í húsið
fyrstu vikuna fengju atkvæða-
seðil með 20—30 nöfnum. Hann
taldi traust Kristjáns Benedikts-
sonar og Guðmundar Vigfússon-
ar til Æskulýðsráðs ekki mikið,
ef þeir treystu því ekki til að
annast þessa atkvæðagreiðslu.
Birgir tsl. Gunnarsson (S) sagð
ist hafa greitt atkvæði me’ð sam-
þykkt borgarráðs en hann féllist
á þau rök, sem fram væru færð
fyrir því að efna til atkvæða-
greiðslu um nafnið og mundi
greiða tillögunni atkvæði.
Auður Auðuns (S) kvaðst ekki
kunna við annað en tjá sig um
þetta hitamál. Legið hefði fyrir
að ágreiningur hefði verið í
Æskulýðsráði um þetta mál og
m.a. þess vegna hefði borgarráð
tekið að sér að ákveða nýtt nafn.
Að lokinni klukkutíma um-
ræðu um þetta mál í borgar-
stjórn í gær var tillagan sam-
þykkt að viðhöfðu nafnakalli
með 12 atkv. gegn þremur. Þeir
sem sögðu já voru: Sigurjón
Björnsson (K), Svavar Gestsson
(K), Einar Ágústsson (F), Efður
Guðnason (A), Páll Sigurðsson
(A), Rimólfur Pétursson (S),
Þórir Kr. Þórðarson (S), Þor-
björn Jóhannesson (S), Gunnar
Helgason (S), Úlfar Þórðarson
(S), Styrmir Gunnarsson (S) og
Birgir ísL Gunnarsson (S). Á
móti voru Auður Auðuns (S),
Guðmund'ur Vigfússon (K) og
Kristján Benediktsson (F).
- LJÓTUR LEIKUR
Framhald af bls. 28
inga og að eitt helzta deilu-
málið, frjáls eða bundin að-
ild að lífeyrissjóði, yrði leyst.
Hafði mikið verið unnið að
því af hálfu allra aðila í kyrr
þei að ná samkomulagi um
þetta mál, með jákvæðum ár-
angri. Hins vegar brá svo við,
eftir að þeir Lúðvík Jóseps-
son og Ingvar Gíslason höfðu
verið við iðju sína í Alþingis-
húsinu í gær, að málamiðlun-
artilboði um þetta atriði var
algjörlega hafnað.
Einn af nefndarmönnum í
samninganefnd yfirmanna er
Karl Sigurbergsson, sem jafn
framt er einn af varaþing-
mönnum kommúnista. Hann
lýsti því yfir í margra manna
viðurvist í gær, að Lúðvík
Jósepsson biði í Kringlunni,
(kaffistofu alþingismanna)
eftir þvi að taka við ráðherra
embætti. Þegar orð var á
þessu haft við Lúðvik, sem
vissulega var í Kringlunni,
flýtti hann sér úr húsinu!
Með þeirri þokkalegu iðju
að spilla fyrir samningum í
sjómannadeilunni eru Fram-
sóknarmenn og kommúnistar
að leika þann ljóta leik að við
halda atvinnuleysi. Eru þeir
reiðubúnir að taka afleiðing-
unum af þeim verknaði? Eru
Lúðvík Jósepsson og Ingvar
Gíslason og félagar þeirra
menn til þess að bera ábyrgð
á atvinnuleysi þúsunda verka-
manna og verkakvenna um
land allt?
Atvinnuleysinu verður ekki
útrýmt fyrr en bátaflotinn fer
á veiðar. Þess vegna er það
hagsmunamál þess mikla
fjölda, sem nú skortir at-
vinnu, að þetta verkfall leys
ist. Verulegar líkur voru til
þess, að það mundi takast, þar
til útsendarar Framsóknar-
manna og kommúnista hófu
sinn ljóta leik. Þeir menn
verða að taka afleiðingum
gerða sinna.
- SVARTSÝNI
Framhald af bis. 1
lýsingu vildi Thieu gera nánari
grein fyrir þeim ummælum
Nguyen Cao Ky varaforseta, að
Saigon-stjórnin hafi gert margar
tilstlakanir og sé reiðubúin að
gera fleiri tilslakanir.
Van Thieu sagði hins vegar, að
Ky, sem er ráðgjafi suður-
vietnömsku sendinefndarinnar í
París, hefði aðeins átt við þa'ð,
að slíkar tilslakanir væru ein-
göngu í því fólgnar að láta í Ijós
góðan vilja til þess að ná góðum
árangri í viðræðum um undir-
stöðuatriði. Grundvallarskilyrði
Saigon-stjórnarinnar væru
óbreytt og tilslakanir þær, sem
gerðar hefðu verið til a'ð sýna
góðan vilja, hefðu aðeins snert
deiluna um lögun samningaborðs
ins og önnur dagskráratriði París
arviðræðnanna. Ummæli Kys
fælu ekki í sér, að Suður-Viet-
namar væru reiðubúnir að draga
úr styrjaldarrekstri eða breyta
afstöðu sinni. Hann sa^ði, eð
ekki hefði verið skýrt rétt frá
ummælum Kys.
VILJA EKKI RÆÐA HERMAL
Á fundinum í dag reyndi aðal
samningamaður Bandaríkjanna,
Henry Cabot Lodge enn einu
sinni að fá mótaðilana til þess
að ræða um hermál, en lagði um
leið áherzlu á, að þar með væri
ekki sagt að hann viildi gera of
lítið úr pólitískum hliðum deil-
unnar. Hann ífcrekaði, að íbúar
Suður-Vietnam yrðu sjálfir að
gera út um pólitískan ágreining
sinn, en sagði að ef reynt yrði að
leysa hemaðarlegu hliðina rnætti
skapa andrúmsloft er gera mætti
kleift að pólitíski ágreiningurinn
yrði leystuir án erlendra afskipta.
Þess vegna legði Bandaríkja-
stjóm áherzlu á að fyrst yrði
rætt um endurreisn hlutlausa
beltisins og gagnkvæman brott-
flutning.
Fullfcrúar Þjóðfrelsisfylkingar-
innar héldu því fram, að Banda-
ríkjamenn reyndu a’ð breiða yfir
fyrirætlanir um að halda áfram
styrjöldinni með því að reyna að
koma því til leiðar að hemaðar-
leg hlið deilunnar yrði rædd
sérstaklega. Aðalsamningamaður
Þjóðfrelsisfylkingarinnair, Tran
Buu Kiem, sagði að slíkar til-
lögur gerðu B andar íkj arnönnu m
kleift að senda aukið herlið til að
sláfcra íbúum Suður-Vietnam.
Aðalsamningamaður Norður-
Vietnams, Xuan Thuy sagði, að
pólitísk og hernaðarleg mál væru
óaðskiljanleg og sakaði Banda-
ríkjamenn um að brjóta Genfar-
samningana með því að misnota
hlutlausa beltið.
FRIÐUNARAÐGERÐIR
Á blaðamannafundi sínum í
Saigon sagði Thieu forseti, a'ð
mikill árangur hefði orðið af
friðunaraðgerðum á siðasta ári.
Hann hélt því fraim að 89%
suður-vietnömsku þjóðarinnar
byggju á yfirráðasvæði Saigon-
stjórnarinnar. Hann sagði, að
188,700 hermenn kommúnista
hefðu fallið í fyrra, en 36,405 her
menn Saigon-stjórnarinnar og
bandamanna hennar.
Bandariska herstjórnin til-
kynnti í dag að í síðustu viku
hefðu 198 Bandaríkjamenn, 242
Suður-Vietnamar og 3.190 komm-
únistar fallið í Suður-Vietnam.
Suður-Vietnamstjóm bannaði í
dag útgáfu franska blaðsins
„Vietnam Nouveau" á þeirri for
sendu að ritstjóri þess leyfði
kommúnistum að starfa á rit-
stjórninni. Ritstjórinn, Pham Van
Nhon, var handtekinn í desem-
ber, grunaður um njósnir í þágu
Viet Cong.
- NIXON
Framhald af bls. 28
ræðir þar við leiðtoga NATO, en
fer síðdegis næsta dag til Lond-
on þar sem hann dvelst í þrjá
daga. Tilkynnt var í London í
dag að þar færu fram viðræður
þeirra Nixons og Hsuolds Wilsons
forsætisráðherra, en auk þess
væri ákveðið að Nixon gengi á
fimd Elisabetar drottningar, og
að hann ræddi við Edward
Heath, leiðtoga stjórnarandstöð-
unnar.
Dagskrá viðræðna Nixons við
leiðtoga í Evrópu er óbundin, og
sagði Nixon við fréttamenn áð
komið yrði víða við. Sagði hann
það þó einn megin tilgang ferð
arinnar að kanna möguleika á að
efla samstarf vestrænna ríkja.
„Ég vil taka það skýrt fram að
þetta er aðeins fyrsta sporið,“
sagði Nixon, „en mjög er naiuð-
synlegt að ræða við leiðtoga
bandalagsríkjanna áður en við-
ræður geta hafizt við sovézka
leiðtoga."
í París hittir Nixon að sjálf-
sögðu bandarísku fulltrúana á
ráðstefnunni um frið í Vietnam.
en forsetinn hefur ekki gert ráð
fyrir viðræðum við fulltrúa
Suður-Vietnam, né heldur við
fullfcrúa kommúnista.
Varðandi deilu Araba og Gyð-
inga sagði forsetinn að fulltrúar
Bandaríkjanna, Sovétríkjanna,
Bretlands og Frakklands kæmu
saman til að ræða málið á vegum
Sameinuðu þjóðanna í New
York. Sjálfur kvaðst hann ræða
þetta mál í ferð sinni, og einnig
myndu fulltrúar Bandaríkjanna
ræða þáð við leiðtoga viðkom-
andi ríkja. „Við ætlum okkur
ekki að bíða eftir því að eitthvað
nýtt gerist þar,“ sagði forsetinn,
og benti á að ísxael og Arabarík-
in væru suðupottur, sem gæti
þyrfti að ekki syði upp úr.
Að viðræðunum loknum 1
London heldur Nixon til Bonn
26. febrúar. Þaðan fer hann 27.
til Berlínar og samdægurs áfram
til Rómar. Frá Róm fer hann
næsta dag til Parísar, en þaðan
aftur til Rómar 2. marz á’ður en
hann snýr heim til Bandaríkj-
anna á ný.
- STOFNAÐ
Framhald af bls. 1
félagsstafseminnar til allra með-
lima félagsins.
D. Að gefa út sérhæfða bækl-
inga, sem fyrst og fremst verða
miðaðir við að veikja álhuga al-
mennings á því, að alkóhólismi
er sjúkdómur, að alkóhólistar
eru sjúklingar, að það er
hægt að lækna alkóhólisma og
það er þess virði að fyrir ein-
staklinga og þjóðfélagið í heild,
að alkhólistum sé veitt sú að-
hlynning, sem nauðsynleg er til
þess að þeir geti náð bata.
Til undirbúnings og styrktar
þessu starfi hefur stofnframlag
einstaklinga verið áætlað kr.
200, en leitað verður styrktar-
aðila meðal félagshópa og fyrir-
tækja strax að félagsstofnun lok-
innL
f undirbúningsnefndinni hafa
eftirtaldir átt sæti:
Sig. Haukur Guðjónsson, sókn
arprestur; Kristján Gunnarsson,
skólastjóri; Indriði Indriðason,
fulltrúi; Hörður Felixson, skrif-
stofustjóri; Guðlaug Narfadótt-
ir, húsfrú; Geir P. Þormar, öku-
kennari; Ingi K. Jóhannesson,
framkvæmdastjóri; Valdimar
Örnólfsson, íþróttakennari; Jó-
hannes Proppé, fulltrúi hjá
Sjóvá; Kristinn Danívalsson,
SBK, Keflavík; Sigríður M.
Helgadóttir, húsfrú; Friðrik
Theodórsson, sölustjórL Loftleið
um; Vilborg Helgadóttir, hjúkr-
unarkona, Heilsuverndarstöð.,
Reynir Karlsson, framkvstj.
Æskulýðsráðs Reykjavíkur, Ein-
ar Hannesson, form. Í.Ú.T.;
Björn Bjarnason, fyrrv. form.
Iðju; Axel Jónsson, fv. form.
Landssamb. gegn áfengisbölinu;
Árelíus Níelsson, form Bindind-
issam’b. kristil. safnaða; Konráð
Adolphsson, framkvstj. Stjórn-
unarfélags íslands; Steinar Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri
AMI, Örn Valdimarsson.