Morgunblaðið - 03.04.1969, Blaðsíða 4
4
MORG-UNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. APRÍL l»6fl
Ég veit ekki, hvort menn
gera sér almennt grein fyrir
því, hve gýfurlegt fjármagn
og starf hinir litlu kaþólsku
söfnuðir hafa lagt okkur ís-
lendingum frá því sá siður
barst hingað á ný fyrir rúm-
um eitt hundrað árum. Ka-
þólskir menn hafa aldrei
verið margir hér á þessu
tímabili, voru fyrir fjörutíu
árum tæplega 200 og eru nú,
með öllum útlendingum, að-
eins um 1000. Þeim mun
merkara er allt þeirra mikla
starf hér á landi, hinar glæsi
legu bygginar, sem reistar
eru fyrir erlent gjafafé, og
hér eru notaðar til líknar-
starfa. Að sjálfsögðu ber þar
hæst hin glæsilegu sjúkra-
hús. Liggur nú við að hin
mikla bygging Landakots-
spítala taki að skyggja á
sjálfan helgidóminn, Landa-
kotskirkju.
Það ber tvennt til, að mér
finnst tilvalið að velja mér
vígslu Landakotskirkju, sem
páskaefni, þar seirn leita skal
upprilfjunar eldri atburða. Það
á í fyrsta lagi vel við að minm-
ast þessarar helgiathafnar á
páskurn og í öðru lagi eru á
komandi sumri liðin rétt fjöru-
tíu ár frá því þetta glæsilegasta
guðshús landsins var vígt.
Það eykur enn á ánægjuna,
að þessi mikli kirkjulegi við-
burðar er enn í minni fjölda
fól'ks, að sönnu í barnsminni
margra. Þrátt fyrir þetta hef
ég ekki valið þá leið að tala
við neinn þeirra gesta, er
þarna voru viðstaddir, heldur
hitti ég að máli eina starfsmann
kaþólsku safnaðanina, sem enn
starfar hér, oig jafnframt þjón-
aði við þessa athöfn, en það er
séra Boots, sem nú er prestur í
Hafnarfirði, 81 árs að aldri og
hefir dvalizt hér í 48 ár.
En nú skuluim við rilfja upp
fréttir Morgumblaðsins af þess-
um atburði frá því Herrans ári
1929. Þá hefir bygging Landa-
kotskirkju staðið í 2 ár og er
hún nú fullbúin til vígslu.
Fyrst lítum við í Morgunblaðið
laugardaginn 20. júlí 1929. Þar
segir undir fyrirsögninni: „Ross
um kardináli á leið til Islands.
— Á miðvikudaginn lagði van
Rossum kardináli á stað frá
Kaupmannahöfn á leið til Is-
lands. Hafði hann dvalið einn
sólarhring í Kaupmannahöfn,
en ekkert látið á sér bera þar.
Hann er væntanlegur hingað
á sunnuidaginn og á þri'ðjudag
verður kirkjan í Landakoti
vígð. Mikill viðbúnaður er í
Landakoti undir þá athöfn.
Girðingar meðfram Túngötu
hafa verið teknar burtu og verð
ur fólki heimilt að vera inni á
túninu umhverfis kirkjuna á
meðan á vígsluathöfninni stend
ur. Hringinn kringum túnjð
hafa verið settar niður hvítar
fánastengur, með sítuttu milli-
bili, en á brautinni gegnt dyr-
um kirkjunnar, er reist hefðurs
hlið, á því eru skjaldamerki
páfa og kardinálans, en á turni
kirkjunnar eru ' fánastangir
margar."
Svo hljóðar fréttin um vænt-
anlega komu kirkjuhöfðingj-
ans. Næsta dag, hinn 21. júlí
birtist stór og glæsileg mynd af
kirkjuhöfðiingjanum með svo-
felldri undirskrift:
„Van Rossum kardináli kem-
ur hingað kl. 7 í kvöld með
Dr. Alexandrine. í fylgd með
honuim verða þeir Norðurlanda-
biskpuarnir dr. Miiller frá Sví-
þjóð og Brems frá Danmörku.
Auk þess fylgja honum fjórir
embættismenn páfaríkisins á-
samt mörgum kaþólskum presit
Kardináli, biskpuar og prestar, sem voru við vígslu Landakotskirkju. f miðju í fremri röð, eru þeir van Rossum kardinált og
Menlenberg biskup og báðum megin við þá danski og sænski biskupinn. 1 aftari röð fjórði frá vinstri séra Jóhannes Gunnars-
son, síðar biskup, og 3. frá hægri séra Boots og honum á vinstri hönd (með skegg) Ferdinandmunkur. ,
uim af Norðurlöndum. — Þegar
skipið leggur að bakkanum,
mun Lúðrasveit Reykjavíkur
leika, en Meulenberg prefekt
mun fara um borð og bjðða
kardinálann velkominn aftur
til íslands. Þá mun kardinálan-
um og föruneyti hans verða
ekið upp að Landakoti, en þar
fex hin opinbera móttaka fram.
Þegar kardinálinn hefir stigið
út úr bifreiðinni mun hann
ganga til kirkju, en yfir honum
verður haldið himni svo sem
tign hans hæfir. I kirkjunni
mun verða sungin liturgía og
flytur profektinn síðan stutta
ræðu. Þá verða sungin fagnað-
arljóð eftir Stefán frá Hvítadal
(sem birtast í Lesbók Morgun-
blaðsinis í dag). Þau syngur
Sigur'ður Skagfield með aðstoð
Páls ísólfssonar og safnaðar-
ins. —
— Öllum er velkomið að
vera við þessa athöfn.“
Þriðjudaginn 23. júlí er svo
mikil frásögn í Morgunblaðinu
undir fyrirsögninni: Rossum
kardináli kemur til Reykjavík-
ur. — Frá múttökunum hér. —
Klukkan 5 á sunnudaginn kom
„Dronning Alexandrine“ hing-
að og með henni kom van Ross-
um kardináli ásamt skriiara sín
um dr. Vater Drihmann, Mijn-
heer Drihmann gentilhomme
(bróður hins fyrrnefnda),
hollenska umsjónarmanni regl-
unnar, dr. M. Húppers, mon-
signeur Brems, biskupi í Dan-
mörku og dr. M. Muller, bisk-
upi í Svíþjóð. Áður kom með
Botníu V. Richard, yfirmaður
Maríureglunnar, sem starfar
hér á laindi. í dag kemur dr.
Kjelstrup með „Merour". Er
hann staðgönguma’ður norska
„provicarinis", sem ekki treysti
sér að takast þessa ferð á hend
ur sökum elli.
Niðri á bryggju hafði safnast
saman mesti manngrúi en Meul
enberg prefekt var þangað kom
inn í fullum skrúða til þess að
taka á móti gestunum. Féll
hann kardinálanum tvívegis til
fóta og kyssti á hring hans, en
lúðrasveitin lék á bryggjunni.
— Síðan fóru gesitimir í bilum
upp að Landakoti og þangað
streymdi manngrúinn lika.
Austan við spítalann var stigið
af bíluniuim. Þar biðu 12 kór-
drengir í skrú'ffa og með dýr-
grip og helgifána kirkjunnar í
höndunum og ennfremur 14
hvítklæddar smámeyjar með
blómsveiga um höfuð. Ein
þeirra, dóttir Vendelis tirésmiðs,
gekk á móti kardinála, mælti
nokkur orð á þýzku og rétti
honum blómvönd. Síðan hélt
skrúðfylkingin áfram til hinn-
ar nýju kirkju og var borinn
tjaldhiminn yfir kardinálanum
og biskupureum.
Margir voru þeir, sem vildu
fá að komast inn í kirkjuna og
varð allmikil þröng úti fyrir
dyrunum og stóð nokkuð á því
að menn kæmust inn. Þegar
kirkjan var orðin full af fólki
fór fram venjuleg móttökuat-
höfn eftir kaþólskum sið. Sfff-
an settist kardinálinn í heiðurs-
sæti það, er honum var ætlað,
en prefekt Meúlenberg bauð
hann velkominn með ræðu og
mælti á frönsku. Því næst voru
sungin 10 fyrstu erindin úr
fagnaðarljóðum Stefáns frá
Hvítadal, þeim er birtust í Les-
bókinni á sunnudaginn og
sungu erindin til skiptis Sig-
urður Skagfield óperusöngvari
og sönigflokkur niunna. Að því
loknu flutti kardinálinn bæn og
blessun. Var svo gengið út í
hátíðlegri skrúðfylkingu og
kardinálinn leiddur til bústaðar
síns og á me’ðan létk lúðrasveit-
in sálmalag.
Klukkan 10 í gærmorgun
heimsótti kardinálinn forsætis-
ráðherra íslands, er sæmdi
hann stórkrossi Fálkaorðunnar
með stjömu.
Klukkan fimm í gærkvöldi
hófst vígsla kirkjunnar í Landa
koti — var hún þá 'vígð að
utan með mörgum og mikium
„serimonium", sem of langt
yrði að lýsa. Kardinálinn gekk
tvíveigis rangsælis um kukjuna
og stökkti á hana vígðu vatni