Morgunblaðið - 03.04.1969, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 196»
PALL POSTULI
Eftir Colin Cross
PÁLL frá Tarsus var grískur Gyðingur, sem snerist til kristni
eftir opinberun, sem hann fékk á veginum milli Damaskus og
Jerúsalem árið 37 e. Kr. í einu vetfangi breyttist hann úr of-
sóknara kristinna manna í einn af ötulustu forvígismönnum
þeirra. Hann ritaði hálft Nýja testamentið og í kenningum hans
á vestræn menning rætur sínar. Hann fór í trúboðsferðir um
allan heim, jafnvel alla leið til Englands, að talið er. i Efesus,
sem nú er borgarrúst i Vestur-Tyrklandi, varð hann tilefni til
uppþota meðal áhangenda frjósemisgyðjunnar Díönu. Síðar
skrifaði hann til trúskiptinga sinna þar: „Sólin má ekki setjast
yfir reiði yðar, og gefið djöflinum ekkert færi“.
EFTIR því sem talið er sam-
tímalýsing og ekki virðist
ástæða til að véfengja, varPáll
frá Tarsus, hinn atkvæðamikli
frömuður kristinnar trúar, stutt
ur maður og gildvaxinn, ofur-
lítið hjólbeinóttur. Hann var
skeggjaður, sköllóttur, með mik
ið nef og framstæðar brúnir,
sambrýndur. Hann þjáðist af
einhverjum ólæknandi sjúk-
dómi, ef til vill hörundskvilla.
I bréfi til trúskiptinga í Gala
teu skrifaLr hann þakklátur: „Og
það, sem í líkams ásigkomulagi
mínu gat orðið yður til ásteyt-
ingar, óvirtuð þér ekki né
skyrptuð við. . .“
Þetta eitt nægir til að gera
hann frábrugðinn öllum öðrum,
sem koma við sögu hinna fyrstu
ieyndardómsfullu áratuga kristn
innar. Hann er eini aðilinn í
Nýja testamentinu, sem þekkt
ur er að líkamlegu útliti. Mynd
ir af upphaflegum höfundi trú
arbragðanna, Jesú frá Nazaret,
}»fa ávallt byggzt í einu og
öllu á hugmyndaflugi lista-
mannanna.
Auk þess höfum við sönnur
fyrir kynngimögnuðum per-
sónuleika og róttækum hugsun-
arhætti Páls frá fyrstu hendi í
skrifum hans sjálfs. Hin um-
fangsmiklu bréf hans („pistl-
arnir“) fylla nærri hálft Nýja
testamentið. Jesú frá Nazaret
þekkjum við aðeins af frásögn-
um, sem færðar eru í letur kyn
Slóð eða meira eftir lát hans.
Orð Páls, eins og hann sjálfur
las ritara sínum þau, eru að-
gengileg hverjum sem er. Mál-
snilld hans hljómar enn yfir
aldanna haf: „Blessið þá, er
ofsækja yður; blessið en bölv-
ið ekki. Fagnið með fagnend-
um, grátið með grátendum. Ber-
ið sama hug hver til annars;
stundið eigi á hið háa, en hald-
ið yður að hinum lítilmótlegu.
Ætlið yður eigi hyggna með
sjálfum yður; gjaldið engum illt
fyrir illt; stundið það sem fag-
urt er fyrir sjónum allra manna;
ef mögulegt er, að því er til
yðar kemur, þá hafið frið við
alLa menn; hefnið yðar ekki
sjálfir, þér elskaðir, heldur
lofið hinni refsandi reiði að
komast að; því að ritað er: Mín
er hefndin, ég mun endurgjalda
segir Drottinn“.
Ef til vill hafa aðrir kenni-
menn, bæði sköllóttir og ekki
sköllóttir, verið jafn mælskir.
En það sem máli skiptir um
Pál, var að hann var ekki að-
eing prédikari, sem bar fram
viðtekinn boðskap, heldur trú-
arlegur spámaður, maður sem
trúði því að hann flytti boðskap
beint frá himnum. Úr gyðing-
legum sértrúarflokki skapaði
hann sjálfstæð trúarbrögð, þau
útbreiddustu í veröldinni. Sá,
sem helzt er við hann að jafna
hvað snertir trúarlegt mikil-
vægi, er spámaðurinn Múhaméð
höfundur Múhameðstrúarinnar.
Einnig væri hægt að likja hon-
um við Bandaríkjamanninn Jos
eph Smith, sem bætti sinum eig-
in opinberunum við kenningar
kristindómsins og stofnaði hina
sívaxandi og voldugu Mormóna
kirkju.
Eins og Múhameð og Smith,
. byggði Páll trúarbrögð á eigin
L
sýnum. Hvað eftir annað end
urtekur hann staðhæfingar eins
og þessa: „í>ví að ég læt yður
vita, bræður, að það fagnaðar
erindi, sem boðað var af mér,
er ekki mannaverk. Ekki hef
ég heldur tekið við því af
manni, né látið kenna mér það,
heldur fengið það fyrir opin-
berun Jesú Krists“. Hann lýsir
því, hvernig hinn krossfesti
Jesú frá Nazaret birtist hon-
um, hvernig honum var lyft
„allt upp í þriðja himin“.
Þessi einkennilegi maður
fæddist í hafnarborginni Tar-
sus, þar sem nú er suður Tyrk-
land. Hann var kominn af
grískumælandi Gyðingum, sem
ef til vill þafa í upphafi snú-
izt til Gyðingdóms. Á þessum
tíma var Gyðingatrúin á mót-
unarstigi, og tilbeiðsla hennar
á einum, ósýnilegum Guði lað-
aði rnarga til trúskipta. Hún
hafði þá um þriggja alda skeið
Verið að breiðast út við austan-
vert Miðjarðarhaf, frá heima-
landi sínu Palestínu og must-
eri Jerúsalemsborgar.
Það hefur verið reiknað út,
að Gyðingar hafi verið um sjö
prósent af öllum íbúum hins
forna Rómaveldis. Sendimenn,
sem nefndir voru „postular"
fóru út um landsbyggðina frá
Jerúsalem til að hafa eftirlit
með hinum dreifðu byggðarlög
um og innheimta gjöld. Sam-
kvæmt rómverska kerfinu voru
Gyðingar taldir til „guðleys-
ingja“ — það er fólks, sem
neitaði að tilbiðja hin heiðnu
goð — og voru þeir undan-
þegnir ýmsum borgaralegum
skyldum, sem snertu skurðgoða
dýrkun.
Páll var fæddur um það bil
10 e.Kr. og hefur því eftir við-
urkenndum tímatalsreikningi
verið um 14 árum yngri • en
Jesú frá Nasaret, sem hann sá
aldrei. Jesús virðist hafa ver-
ið af fátæku sveitafólki kom-
inn. Páll var sonur efnaðara
borgarbúa; ættingjar hans voru
rómverskir borgarar og því
sennilega taldir til heldri stétt-
arinnar. Gera má ráð fyrir að
Páll hafi hlotið góða updir-
stöðumenntun í grískum fræð-
um, enda þótt bréf hans beri
hvergi vitni um dálæti hans á
þeim, og hann mun hafa ferngið
sína fyrstu trúarlegu upp-
fræðslu í næsta gríska Gyðinga
musteri. Hann tilheyrði þeim
flokki Gyðinga, er nefndist Far
ísear og var þá þegar mjög
áhrifamikill en átti eftir að
verða ailsráðandi innan einnar
aldar.
Farísearnir voru framfara-
flokkur, sem jók við Gamla
testamentið ýmsum munnlegum
hefðum varðandi siðferðilega
hegðun, beint samband milli
Guðs og hinna einstöku til-
biðjenda, og upprisu dauðra.
„Ég er Farisei og sonur Fari-
sea“ sagði Páll, þegar hann stóð
frammi fyrir rétti Gyðinga
vegna trúar sinnar á Jesúm.
(Gyðingatrú Jesú var einnig
Fariseisk.)
Páll hefur að öllum líkind-
um verið óvenjulega trúaður
drengur. Milli tektar og tvítugs
fór hann að heiman til fram-
haldsnáms í trúarlegum fræð-
um í Jerúsalem, sem var mið
stöð trúar hans. Þetta var hin
venjulega leið til að verða rabb
íni það er kennimaður, sem
styðst fremur við lærdóm sinn
en dul prestskaparins. Næstu
aldir, eftir eyðingu musterisins
urðu rabbínarnir meginupp-
spretta Gyðingadómsins;
með Talmud, sem full-
gert var á fimmtu öld e. Kr„
komu þeir Gyðingatrúnni í það
undirstöðuform, sem hún hefur
haft fram á þennan dag. Á
þessu tímabili tók Páll sér
nafnið „Sál“, sem aðeins er he-
bresk útgáfa af Páls-nafninu.
Þegar hann kom til Jerúsal-
emborgar um 25 e.Kr. ríkti þar
mikil ólga og skiptust menn í
hópa, sem deildu sín á milli um
nákvæma túlkun Móse-bók-
anna og dulræna spádóma, sem
finna mátti í verkum eins og
Danielsbók. Páll hefði átt greið
an aðgang að margskonar kenn
urum, en að sögn hans sjálfs
var helzti lærifaðir hans rabb
íninn Gamalíel, rólyndur og
góðgerðasamur maður, sem veitti
forustu þeim flokki innan Gyð
ingdómsins, sem kalla mætti
„frjálslyndan". Gamaliel var
sonarsonur rabbínans Hillel, sem
í byrjun fyrstu aldar e.Kr. mót
aði kennisetninguna: „Gerið
ekki öðrum það, sem yður sjálf
um er ógeðfellt; þetta er allt
lögmálið“. Hillel-Gamaliel skól
inn, sem lagði áherzlu á and-
ann ekki síður en bókstafinn í
lögmálum Gyðinga, átti eftir að
verða þungamiðjan í Gyðing-
dómi framtíðarinnar.
Hin andlega gerjun, sem átti
sér stað í Jerúsalam, var angi
af gífurlegum umbrotum, sem
voru að setja allan hinn gyð-
ám/öiAa/em fy
Bjóðið gestum ykkar upp á ostapinna mcð öli eða sem eftirrétt. Auðvelt
og fljótlegt er að útbúa pá og pér getið verið viss um, að peir bragðast
vel. Notið pað sem til er á heimilinu og gefið hugmyndafluginu lausan
tauminn. Möguleikarnir eru ótakmarkaðir. Hér fylgja nokkrar hugmyndix,
Leggið heilan valhnetukjarna ofan á
teninga af goudaosti.
2.
Vefjið skinkulengju utan um staf af
tilsitterosti, setjið sultulauka efst á
pinnan og skreytið með steinselju.
3.
| Skerið gráðost í teninga, ananas í
litia geira, reisið ananasinn upp á
rönd ofan á ostinum og festið saman
með pinna.
4.
Helmingið döðlu, takið steininn úr og
fyllið með gráðostlengju.
5.
Skerið tilsittcrost í teninga, setjið
lifrakæfubita ofan á ostinn og
skreytið með agúrkusneið og stein-
selju.
6.
Mótið stafi úr goudaosti, veltið þeim
upp úr þurrkaðri papríku og skreytið
með sultulaukum.
Setjið ananasbita og rautt kokkteilbei
ofan á gcira af camembert osti.
8.
Setjið mandarínurif eða appelsínu-
bita ofan á fremur stóran tening af
ambassadorosti.
Festið fyllta olífu ofan á tening af
ambassador osti. Skreylið með stein-
selju.