Morgunblaðið - 27.04.1969, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. APRÍL 19©9
Iðnaðar- og verzlanarhúsnæði
til leigu á góðum stað í Hafnarfirði Húsnæðið leigist í smærri
eða stærri einingum.
Uppl. veitir Árni Grétar Finnsson, hrl „Strandgötu 25, Hafnar-
firði, sími 515000.
Ingveldur
dóttir —
f dag fyllir frú Ingveldur Ein
arsdóttir Rauðalæk 65 sjðunda
tuginn. Hún er fædd í Garð-
húsum í Grindavík 27. apríl 1899
Foreldrar hennar voru Einar G.
Einarsson Jónssonar Sæmunds-
21 FODS MOTORJOLLE
n í mT i mL rf n ; p i 1" lf_> —--Ty
Cj P 1 1 L..JI 1
Nú er auðveldleaa hægt að ná hinu langþráða marki að eignast
bát, sem getur verið í senn hentugur fiskibátur og skemmtilegur
sportbátur með lúxusbúnaði.
TRILLUBATUR
FISKIBÁTUR
SPORTBÁTUR
Við bjóðum þrjár gerðir
danskra tref japlastbáta,
með eða án yfirbygginga.
Lengd þessara gerða er 16,
21 og 23 fet. Danir eru
kunnir fyrir hæfni sína í
bátasmíði og dönsk báta-
smíði kemur hvergi betur
fram en í þessum trillu-
bát. Við Grænland, þar
sem miklar kröfur verður
að gera til sjóhæfni ekki
síður en hér við land, hafa
hinir dönsku trillubátar
þótt framúrskarandi.
Trefjaplastið, hefur sannað
kosti sína og viðhaldskostr
aður er enginn. í stærri
gerðunum er hægt að hafa
kojur og borð. Sjóhæfni er
framúrskarandi. Nú er
tækifæri að kaupa góðan
bát við góðu verði. Er ekki
vorið einmitt rétti tíminn?
Tökum einnig notaða trillu
báta í umboðssölu.
PREBEN
SKOVSTED
Barmahlíð 56
sími 2-38-59.
ÓMETTUÐ
SÓLBLÓMAOLÍA
er kaldpressuð, óblandin olía, sem býr yfir
miklum, líffræðilegum kostum, enda inni-
heldur hún að miklum hluta ómettaðar feiti-
sýrur, eða alls 90.9%, og þar af nálægt 60%
linolsýru. Vitaquell hefur líka inni að halda
0,07 — 0.90% náttúrlegt E-fjölvi, og joð-
töluna 17,1 — 134,2. Er því hér um að ræða
hreina afurð náttúrunnar, án nokkurrar efna-
fræðilegrar meðferðar.
LEIÐARVÍSIR
1 teskeið hvern morgtm á fastandi
maga.
Á líka heima í eldhúsínu til suðu,
steikingar og baksturs.
Einnig í salöt og majónes. Er ágæt
út á soðninguina beint úr dósinni.
Domus Medica — Sími 12614.
Mosfellssveit — Mosfellssveit
Þjóðmálaverkefni
næstu ára
- Scamgönguvnál
Fundur verður haldinn þriðjudaginn 29. apríl kl. 20.30 að Hlégarði,
Mosfellssveit.
1. Ávarp: Flemming Jessen form. F.U.S. í Kjósarsýslu.
2. Frummælandi: Ingólfur Jónsson, samgöngumálaráðherra.
3. Fundarstjóri: Jón Atli Kristjánsson form. Týs F.U.S.
Sjálfstaeðismenn í Reykjaneskjördæmi og Reykjavík eru hvattir
til þess að fjölmenna.
F.U.S. í Kjósarsýsiu — Heimir F.U.S. Keflavík — Stefnir F.US
Hafnarfirði — Týr F.U.S. Kópavogi — Samband ungra
Sjálfstæðismanna.
Einars-
Sjötug
sonar hreppstjóra Húsatóftum í
Grindavík. Kona Einars Jóns-
sonar var Guðrún Sigurðardótt
ir frá Götu í Selvogi. Móðir
Ingveldar var Ólafía Ásbjarnar
dóttir hreppstjóra ólafssonar í
Innri-Njarðvík. Móðir Glafíu var
Ingveldur Jafetsdóttir Einarsson
ar gullsmiðs í Reykjavík. Jafet
var bróðir Ingibjargar konu Jóns
forseta. Ingveldur er því að góðu
bergi brotin, enda ber hún glögg
einkenni ættar sinnar, gædd
miklum og góðum hæfileikum og
farsælli skapgerð. Hún hefur að
mínu áliti mikla hæfileika til að
umgangast meðbræðuæ sína glað
legt viðmót, létta og trausta skap
gerð og sérstaklega gott lag á
því að gleðja þá, sem í kringum
hana eru.
Ingveldur giftist 1929 Rafni Sig
urðssyni skipstjóra glæsilegum I
og vel gefnum dugnaðarmanni.
Eignuðust þau tvö börn: Ólaf
íu, sem gift er Nils P. Sigurðs-
syni ræðismanni, og Sigurð stúd
ent, útlærður skipstjóri, giftur
Sólveigu hjúkrunarkonu, Ing-
veldur á fjögur mjög efnileg og
vel gefin barnabörn, sem hún hef
ur mikla ánægju af. Mann sinn
missti Ingveidur 1960.
Inga mín, ég þakka þér fyrir
ágæt kynni frá fyrstu tíð, síðan
við vorum hoppandi stélpur í
Grindavík, og þegar ég dvaldi á
heimili foreldra þinna og afa og
ömmu um margra ára skeið. Þú
lagðir alltaf gott il allra mála,
og ef þú vissir, að mig langaði
til einhvers, þá vildir þú alltaf
greiða fyrir því. Ég þakka lika
fyrir vináttuna við mig og míima,
síðan ég flutti í fjarlæg héruð
og allar gjafimar. Ég get með
engu launað þér alla framkomu
þína fyrr og síðar í minn garð
með öðru en því að óska þér og
ástvinum þínum allrar blessunar
í nútíð og framtíð. Megi ævi-
kvöld þitt verða bjart og hlýtt.
Þökk fyrir allt.
Guðrún Jóhannsdóttir.
Vymura vinyl-veggfóður
<§> MEUVÖLLUR
Reykjavíkurmótið í dag kl. 14
VALUR - KR
Dómari: Magnús V. Pétursson.
Línuverðir: Einar Hjartarson og
Grétar Norðfjörð.
Mótanefnd.