Morgunblaðið - 20.12.1970, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGU'R 20. DESEMBER 1970
27
Krúsjeff.
var alltaf að skora á menn í
drykkjukeppni sem endaði með
því að allir urðu dauðadrukknir.
Krúsjeff segist yfirleitt hafa
verið sammála Stalin um þessi
mál, en segir að hann hafi þurft
að vera varkár í svörum, þvi að
eitt af uppáhalds brögðum
Stalíns var að reyna að fá menn
til að gefa yfirlýsingar um til-
finningar sínar í garð annarra.
Það var öllum ljóst að Stalín og
Bería voru mjög nánir vinir og
Krúsjeff segir að flestum hafi
verið ljóst að til að halda vin-
áttu Stalíns yrðu þeir einnig að
skriða fyrir Bería. Kaganovieh
var að sögn Krjúsjeffs einstak-
ur smjaðrari, en Molotof lagði
sig aldrei niður við slíkt og
sjálfur segist Krúsjeff aldrei
hafa smjaðrað fyrir Beria.
inn innan flokksins. Vaxandi á-
hrif hans komu bezt í Ijós, er
litið var á fólkið, í kringum
Stalín. Þegar ég kom til Moskvu
úr ferð minni til Úkraníu, sá ég
að allt starfsliðið heima
hjá honum voru Georgíumenn.
Maðurinn, sem matreiddi uppá-
haldsirétt Stalins varð gerður
að hershöfðingja og maðurinn,
sem sá um að útvega kjötið og
vinið var gerður að undirhers-
höfðingja. í hvert skipti, sem ég
kom heim til Stalíns var búið að
sæma þessa menn fleiri heiðurs-
merkjum. Einu sinni skammaði
Stalín Krúsjeff, er hann sá að
hann var að horfa á alla borð-
ana á einkennisbúningi kokks-
ins. Krúsjeff vissi hvað Stalín
var að hugsa og Stalín vissi
hvað Krúsjeff var að hugsa.
Enginn minntist á þetta, því að
það hefði ekki komið að nokkru
gagni.
Bería kemst
til valda og áhrifa
Hér á eftir fer sá hluti frá-
sagnar Krúsjeffs, sem f jallar um
dauða Stalíns 1953 og valda-
baráttuna, sem á eftir fór, eink-
um af hálfu Laverentys Beria,
yfirmanns hinnar illræmdu
leynilögreglu N.K.V.D. Krjúseff
segir frá hve kvíðafullur hann
var, er hann fylgdist með klifi
Beria upp valdastigann og svo
virðist sem iiann hafi verið bú-
inn að komast að þeirri niður-
stöðu löngu fyrir dauða Stalíns,
að losna þyrfti við Bería með
einliverjum hætti. Krúsjeff og
Bería voru oft á öndverðum
meiði, einkum gagnrýndi Bería
stefnu Krjúsjeffs í landbúnaðar-
máliim.
Svo var nú kamið að ég hitti
Berfa oft heima hjá Stalin. 1
fyrstu kunni ég ágætlega við
hann, við ræddum vinsam-
lega saman, en fljótlega fór ég
að sjá í gegnum hann og póli-
tíska tvöfeldni hans. Ég man að
mér varð verulega bilt við, er
mér varð ljós hin ógeðs-
lega sýndarmennska hans. Eftir
komu Beria til Moskvu 1938,
breytist fljótlega andrúmsloftið
meðal nánustu samstarfsmanna
og vina Stalíns. Ég man oft eft-
ir því að Stalín sagði við mig
að hann væri ekki ánægður með
áhrifamátt Bería. Áður er Bería
kom til sögunnar voru matveizl-
ur hjá Stalín yfirleitt skemmti-
legar og við áttum margar ár-
angursríkar viðræður. En Beria
BERÍA RÍS TIL, VALDA
Beria veir að sögn Krúsjeffs
óhemju afbrýðisamur gagnvart
öllum, sem hann hélt að gætu
minnkað áhrif sin á Stalín.
T.d. nefnir hann sögu um mág
Stalíns, Redens að nafni, sem
var undirmaður Beria í Georgíu.
Áður en Berfa var kallaður til
Moskvu ákvað hann að hrekja
Redens frá Georgíu, til að Stalín
hefði engain heiimfflldarimaran þar
nema hann sjálfan. Hann lét því
nokkra af mönnum sínum tæla
Redens inná knæpu, þar sem
þeir helltu hann blindfullan og
köstuðu honum svo út í götu-
ræsið og skildu þar eftir. Bería
sá til þess að Stalín bærist þessi
hegðun Redéns til eyrna og það
var ekki að sökum að spyrja,
Redens var sparkað. Þannig fór
Beria að og svona war hans inn-
ræti. Mörgum árum eftir fall
Bería fékk Miðstjórnin bréf frá
Georgíu, þar sem skýrt var frá
vinnubrögðum Bería og hinir út-
skiúfuðu voru hreinsað'iir.
Hroki Bería og sviksemi uxu
í beinu hlutfalli við aukin völd
hans. Eitt af uppáhalds orðatil-
tækjum hans var: „Látið mig fá
hann í hendumar 1 einn dag og
ég skal fá hann til að viður-
kenna að hann sé konungur
Bretlands.“
Þegar Stalín missti stjórnina
og viljastyrkinn er sovézki her-
inn var á flótta undan Þjóðverj-
um 1941, varð Bería ógnvaldur-
Maienkoff.
ÖTTI STALÍNS ÁTTI
RÆTUR SÍNAR AÐ REKJA
TIL . .
„Þegar Bería fékk sjálfur
sæti í stjómmálanefndinni,
byrjaði Stalín að óttast hann.
Ég vissi ekki þá hversvegna, en
ég komst að því seinna, þegar
upp komst um útrýmingarkerfi
Beria. Stalin varð ljóst, að ef
Bería gæti drepið hvem þann,
sem hann benti á, gæti hann
einnig losað sig við þá sem hann
sjálfur vildi."
Krúsjeff heldur áfram.“ Mér
var fyrst Ijóst hve ofsalega
Stalín var hræddur, er ég var
i matarboði heima hjá honum
eitt skipti sem oftar. Undir
miðju borðhaldi leit hann allt í
einu upp og hrópaði“: Hvers-
vegna er ég umkringdur
af Georgíumönnum?" Beria var
strax á verði.“ Félagi Stalín,
þetta eru allt tryggir þjónar
þínir.“ Stalín reiddi.st." Þýðir
það að Rússar séu ekki tryggir
þjónar mínir“? „Nei, sagði Bería
ég sagði það aldrei, en fólkið
sem valið hefur verið til að
þjóna þér er framúrskarandi
traust.“ Nú öskraði Stalín: „Ég
þarf ekkert á tryggð þeirra að
halda, út með allt þetta pakk."
Fólkinu var umsvifalaust visað
á dyr og Bería skjögraði út úr
herberginu, eins og maður, sem
hefur verið lúbarinn.
Krúsjeff segir síðan, að nú
hafi Stalín haldið að sér hefði
tekizt að loka Bería út úr eld-
húsinu, en Stalín var að verða
gamall og hann skildi ekki
hvernig Bería hélt á málunum.
Það skipti Bería engu máli
hvort hann skipaði Georgíu-
menn í stöður heima hjá Stalín
eða einhverja aðra. Hann stjóm-
aði öllu sjálfur og allir skriðu
fyrir honum. Stalín gat ekki
einu sinni treyst Mfverði sínum.
Bería varð nú æ hrokafyllri
og Krúsjeff segist hafa furðað
sig á því hvernig Stalín gat
þolað við. Það kom oft fyrir
undir borðhaldi að Stalín vísaði
á bug einhverju sem Bería var
að segja. Yrði svo einhverjum
öðrum á að fitja upp á því sama
sló Beria í borðið og sagði: „Ég
er búinn að segja að það þarf
ekki að ræða þetta mál frekar.“
Stalín sagði aldrei orð, þótt
hann vissi að hann hefði sjálfur
verið að skamma Bería fyrir
þetta sama. Ktúsjeff segir að
svo hafi verið komið að ekkert
hafi þýtt fyrir menn að gefa
Stal'ín skýrslu um einhver mál,
nema tala fyrst við Bería. Yrði
einhverjum á að byrja að segja
Stalín frá einhverju í návist
Beria, án þess að hafa fyrst
rætt málið við hann, þurfti ekki
að spyrja að þvi að Beria rakk-
aði málið niður með öllum hugs-
anlegum ráðum. Sjálfur var
hann sífellt að styrkja stöðu
sina.
SLÁTRUNIN
„Ég fékk staðfestingu á ótta
Stalins við Bería, þegar Stalin
bjó til Mingrelamálið, en Bería
var Mingreli og ég er handviss
um að Stalín ætlaði að losa sig
við Bería." Stalín hélt því fram,
sem Krjúseff segir hreinan upp-
spuna, að hópur Mingrela hafi
bundizt samtökum við Tyrki,
og að sumir þeirra aðhylltust
tyrknesk stjórnmál. Bería sá þó
við þessu og snéri málinu sér í
hag og skipaði sjálfan sig böðul
Stalíns. Mingrelar eru búsettir í
Georgíu og auðvitað hefði eng-
inn Georgiumaður þorað að
skipta sér af einhverjum mál-
um, sem Georgiu snerti, nema
Betría. Haran fór til Georgiu og
Beria.
hóf að refsa hinum ímynduðu
óvinum og undirróðursmönnum.
Krúsjeff segir að veslings menn-
irnir hafi verið eins og lömb,
sem leidd eru til slátrunar.
Hann segir einnig að þessar að-
gerðir hafi sannfært sig um að
aðeins væri hægt að koma í veg
fyrir slíkar aðgerðir, ef stjórn-
endur landsins væru undir eftir
liti almennings.
Eftir þetta byrjaði Malenkoff
einnig að safna sínu liði, enda
þótt aðstaða hans hafi í raun og
veru versnað. Stalín rak hann
meira að segja einu sinni úr
miðstjórninni og sendi hann til
Mið-Asíu. Bería kom Malenkoff
þá til aðstoðar og sá til þess að
hann fengi að koma aftur til
Moskvu. Upp frá þessu virtust
Framhald á bls. 22.
VICTOR LOUIS
HVER ER HANN?
VICTOR Louis er einn kunn-
asti fréttairitari vestrænna
blaffa í Moskvu. Hann er
Rússi, en fær samt aff því er
fréttamenn segja aff skrifa
hluti, sem engum sovézkum
borgara hefffi dottiff í hug aff
skrifa. Sumir segja aff hann sé
hálfgedður James I5«|id og
hafi gert furffulegustu hluti.
Danska blaffiff BT heldur
þeirri kenningu m.a. fram aff
þaff hafi veriff Louis, sem
smyglaffi handritinu aff endur
minningum Krúsjeffs tU Vest-
urlanda. Hvaff, sem til er í
þvi skal látiff milli hluta
liggja, en maðurinn hefur
greinilega víða komið viff. —
Hér á eftir fara nokkur dæmi.
• 1. Það var hanm, að því
er sagt er, sem útvegaði vest
rænum sjónvarpsstöðvum
myndir frá fundi þeirra Kosy
gins og Chou En Lais í Pek-
ing hauistið 1969.
• 2. Nokkrum mánuðum
áður hafði hann ritað frásögn
í vestræn blöð um heimsókn
til Solzhenitsyn, sam síðan
var rekinn úr sovézku rithöf-
undasamtökunum og fékk Nó
belsverðlaun in,
• 3. Átta klukkustundum
áður en Tass skýrði frá falli
Krúsjeffs hafði Louis sent
fréttina til brezka blaðsirua
Evening Newa.
• 4. í febrúar var Louis
blaðafulltrúi sovézka rithöf-
undarins Valery Tarsis, sem
fékk að fara frá Sovétríkjun
um til Vesturlanda, þar sem
hann hóf að níða niður sov-
ézka kerfið.
• 5. í október 1966 kom
ga'a**'ú.#’iV'5''5s
Victor Louis
Louis til Bandaríkjanna, þar
sem hann fékk 30 mínútna
einkaviðtal við Hubert Hump
hrey varaforseta Bandaríkj-
anna.
• 6. Árið 1967 útvegaði
hann bandarísku sjónvarps-
stöðinni NBS einkaviðtal við
eftirlaunamiánininn Nikita
Krúsjeff.
• 7. Um haustið 1967 á Lou
iis að hafa ferðazt um Vestur
lönd og selt stolnar endur-
minningar Svetlönu Stalín
ásamt furðulega mörgum ljós
myndum úr fjölskyldualbúm
inu fyrir offjár.
• 8. í október 1968 heim-
sótti hann Formósu og tók þá
sonur Chiang Kai-ehecks á
móti honum, sem fyrsta sov-
ézka ríkisborgaranum, sem
komið hafði til Formósu í 19
ár.