Morgunblaðið - 06.03.1971, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 06.03.1971, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. MARZ 1971 Meistaramótið um helgina Búast má við spennandi keppni í mörgum greinum MEISXARAMÓT íslands í frjáls- nm íþróttum innanhúss fer fram nú um helgina og verða flestir beztu frjálsiþróttamenn lanðsins meðal keppenda. Hefst mótið kl. 14 á iaugardag undir stúku Laugardalsvallarins og verður þar keppt í langstökki með og án atrennu, þrístökki án atrennu, 50 metra hlaupi, langstökki kvenna án atrennu og 50 metra hlaupi kvenna. Um kvöldið heldur svo keppnin áfram í Laugardalshöllinni og keppt í stangarstökki, kúluvarpi, hástökki með atrennu, 600 m hlaupi og 1000 metra hlaupi. Á sunnudaginn hefst keppnin kl. 14 undir stúku Laugardals- vallarins og verður þá keppt í eftirtöldum greinum: þrístökki með atrennu, hástökki án atrennu og 50 metra grinda- hiaupi karia og hástökki með atrennu, iangstökki með atrennu og 50 metra grindahiaupi kvenna. Svo sem áður segir verða flestir fremstu frjálsáþrótta- menn landsins meðal keppenda á mótinu, m.a. Bjarni Stefáns- son, sem keppti við góðan orð- stír á sænska meistaramótinu á dögunum og sigraði þá marga af fremstu spretthlaupuxum Norðurlanda. Bjarni tekur nú Framhald á bls. 12 Landslið- ið - KR — á Þróttar- velli á sunnudag LANDSLIÐIÐ í knattspyrnu leik ur sinn níunda æfingaleik á sunnudaginn og mætir þá KR- ingnm á Þróttarvellinum. Hefst leikurinn kl. 10.30. Landsliðsein- valdurinn, Hafsteinn Guðmunds son, hefur valið 15 menn til leiksins, og koma nú í fyrsta sinn í vetur tveir Akureyringar inn í iiðið, þeir Skúli Ágústs- son og Kámi Ámason. Útkoma landsliðsins i þeim átta æfingaleikjum sem það hef- ur leikið í vetur er mjög góð. í>að hefur 6 sinnum sigrað, tví- vegis gert jafntefii og engum leik tapað. Markatalan er 21 mark gegn 7. Eftirtaldir leikmenn voruvald ir til leiksins á sunnudaginn: Þorbergur Atlason, Fram Magnús Guðmundsson, KR Róbert Eyjólfsson, Val Jón Gunnlaugsson, lA Halldór Björnsson, Völsungum Einar Gunnarsson, iBK Guðni Kjartansson, IBK Haraldur Sturlaugsson, lA Ásgeir Elíasson, Fram Skúli Ágústsson, tBA Kári Ámason, ÍBA Jón Ólafur Jónsson, iBK Ingi Bjöm Aibertsson, Val Kristinn Jörundsson, Fram Guðm. Þórðarson, Breiðabliki jGöngu-trimm4 — fyrsta ferð á morgun NÚ HEFUR verið gengið frá skipulagi á nýrri grein í „trimm- herferðinni". Er kominn út bækl ingur um „Göngu-trimm" og er hann gefinn út af ÍSl í sam- vinnu við Ferðafélag íslands. I bæklingnum er bent á að Ferðafélag Islands gengst fyrir ferðalögum viðs vegar um land- ið og eru nú skipulagðar á ann- að hundrað ferðir, stuttar og langar. Vakin er athygli á göngu ferðum. Þær falla einstaklega vel Framhald á bls. 12. Þessi mynd er frá 60 metra hlaupinu í sænska meistaramótinu, og em kappamir þarna afl nálgast markið. Sigurvegaii varð Per Olof Sjöberg (í svartri treyju), annar varð Torsten Johansson, sem er við hliðina á hornun til hægri og þriðji varð svo Bjarni Stefánsson, sem er lengst til vinstri á myndinni. Tvísýnir leikir í körfuknattleiknum t*ór og KR á Akureyrl og Valur - UMFN í Njarðvík Blak: ;3ja landa : ALLS verða leiknir fimm leikir í Islandsmótinu nú um helgina, þar af þrír leikir í 1. deild. Tveir þessara leikja hafa mikla þýð- ingu fyrir þau félög sem þar eigast við, og hið sama má einn- ig segja um hinn þriðja, þótt ekki geti hann breytt miklu um úrslit mótsins héðan af. Akureyri í dag kl. 16: KR og Þór í m.fl. kvenna og I. deild karla. Nokkuð öruggt má nú teija, að bæði þessi lið séu nú búin að missa af voninni um Islands- meistaratitilinn, en keppnin um 2. verðlaun er enn í fullum gangi. Þar eiga fjögur lið möguleika, og þeirra á meðal eru bæði ÞÓR og KR. Leikir KR og Þórs hafa undanfarin ár verið mjög skemmtilegir og í fyrri umferð Islandsmótsins sigraði KR með litlum mun. Njarðvík í dag kl. 16: Vahir — UMFN Hér veltur sannariega á miklu fyrir liðin að sigra. Þetta eru neðstu liðin, Valur með 4 stig og þrjá leiki eftir og UMFN með 2 stig og aðeins tvo leiki eftir. Framhald á bls. 12 keppni |Rússa- Banda- Iríkjanna og ís- lendinga | EINS og áður hefur verið I auglýst efnir Iþróttaféiag ' stúdenta til blakmóts í dag, I laugardag, í íþróttahúsi Há- (skólans. Keppnin hefst kl. 2 I eftir hádegi, og keppa auk stúdenta, Kennaraskólanem- I ar, lið frá rússneska sendiráð |inu og lið Bandarikjamainna j af Keflavíkurflugvelli. Þetta er fyrsta opinbera blakmótið ' á íslandi. Dómaravandamálið MARINÓ Sveinsson körfu- knattleiksdómari gerir athuga semd í Mbl. 4. þ.m. um grein þá er ég skrifaði um dómara- vandamál í körfuknattleikn- um í Mbl. 2. þ.m. Afstaða Marinós til þessara mála var mér ekki kunn fyrr en við lestur greinar hans, og þar aí leiðandi vissi ég ekki hvers vegna hann mætti ekki austur á Laugarvatn um síð- ustu helgi. Mér þykir rétt að benda á það hér að ég hef sjálfur rætt um það mikið í vetur að sett yrði á stofn aganefnd. Og hef ég fært að þvi sömu rök og Marinó gerir i grein sinni. En einhverra hiuta vegna (og er þar að sjálfsögðu við stjóm K.K.I. að sakast) hef- ur ekkert orðið af því enn þrátt fyrir að stjórnarmenn K.K.I. hafi ekki tekið illa í málið. En það breytir ekki þvl, sem var aðaiefni greinar minnar, að ófært er með öllu að leikmenn þurfi sjálfir að sjá um að dómarar fáist á leiki sína. Ég harma það að Marinó sér sér ekki fært að dæma meira í þessu móti, og vona að forráðamenn K.K.l. sjái að ekki er lengur hægt að sitja aðgerðarlausir í þess um málum. — gk. íþróttir fyrir alla ÍÞRÓTTABLAÐIÐ Iþróttir íyrir alla, 1. thl. 2. árgangs er nýkom- ið út. Blaðið flytur mjög íjöl- breytt efni að venju. M.a. eru viðtöl við íorustumanninn Sig- urð Guðmundsson, skólastjóra á Leirárskóla i Borgarfirði og Ásgeir Eyjólfsson skiðakappa, Grein er um Cassius Clay, og Zagalo þjálfara Brasilíu i knatt- spyrnu. Kynnt eru liðs Vals I handknattleik og lið KR og Þórs i körfuknattleik. Grein uxn áhugamennsku I frjálsum iþrótt um, um ísknattleik, um Puskas og margt fleira efni er í blaðiniu sem er 50 síður og vel frágeng- ið. Ritstjóri biaðsins er Ágúst Karlsson. — gk. Myndina tók ljsmyndari Mbl. Kristinn Ben. er rúmensku beimsmeistaramir komu til Kefla- víkurflugvallar í gærkvöld. Olli það töluverðum vonbrigðum að hinn heimsfrægi leikmaffur, Gruia, var ekki með í hópnum. Fyrri leikur Rúmenanna við isienzka landsliffið hefst kl. 15 á sunnudaginn. Akureyrarunglingar á skíðamót í USA NÚ UM helgina, 6.—7. marz, fer fram ungiingamót á skiðum í Hliðarfjalli, þar sem keppt verð- ur i svigi og stórsvigi. Mót þetta er haldið i sambandi við boð Rot aryklúbbs í Portsmouth i Banda ríkjunum um að senda 3 ungl- inga frá Akureyri til skíðaiðk- ana og keppna í USA. Unglingarnir munu fara utan 17. marz n.k. með Loftleiðaflug- vél og er þvi mótið nefnt LOFT- LEIÐAMÓTIÐ. Keppt verður í 1 fl. stúlkna, þ.e. 14—15 ára fl. og tveimur drengjaflokkum, 14— 15 ára og 16—17 ára. Alls verða famar sex ferðir, tvær ferðir I stórsvigi og 4 í svigi. Stig verða gefin fyrir hverja ferð og stig- hæsti unglingur i hverjum flokki vinnur sér rétt tU utanferðar. 1 Bandaríkjunum sér Harry Pollard jr. um móttökur f.h. Rot aryklúbbs Portsmouth. Poilard hefur áður komið við sögu ak- ureyskra skíða-unglinga. Á sl. ári gaf klúbbur hans verðlauna- gripi til að keppa um á unglinga móti sem opið er unglingum alls staðar af að landinu. Mót þetta fer fram á Akureyri fljótlega eft ir páska. Stefnt er að þvi aff gera þetta að alþjóðlegu móti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.