Morgunblaðið - 18.04.1971, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 18.04.1971, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. APRÍL 1971 Snjólétturvetur Fréttabréf úr Skagafirði BÆ, Höfðaströnd. Það Mður að sumarmáJlurn og eftir mjög snjóléttan vetur haía áhyggjur margra bænda, sem óttuðust heyþröng eftir óvenju- mikið kal í túmum og gi-asleysi síðastliðið sumar, horfið að rmestu. Viða hefur sauðtfé létt á fóðrum og hross óviða komið í hús. 1 Fljótum og þá sérstak- lega Austurfljótum, hefur fönn kyngt annað slagið, en Fljóta- menn eru snjónum vanir, og hinir landskunnu skíðameran þeirra myndu áreiðanlega sjá eftir mögulei'kum til skíðaiðk- ana. Annars telja þeir nú vetur- inn góðan, og vegur til Sig'lu- fjarðar fyrir Stráka verið oftast nær opimn til umferðar vi'kulega og stundum tvisvar i viku. Umferð um vegi héraðsins er alloft mikil, og þá sérstaklega um sæluviku, þegar ungir sem gamlir kasta atf sér vetrarhíði og keyra til Sauðárkróks á fjöl- breyttar gkemmtanir. Veit ég til, að sótt voru 5 kvöld í röð dans- leikir sæluviku, auk s«ng- og leilksýninga, enda Skagfirðing- um viðbrugðið fyrir glaðværð og féiagslyndi og þá sérstak- lega sönggieði og sönghneigð. 1 sveitum Skagafjarðar hatfa í vetur æft söng að staðaldri um 70 manns, undir stjóm Áma Ingimundarsonar frá Akureyri. 1 Karlakómum Heimi eru að mestu búandi menn úr 5 hrepp- um sýsilunniar, og einnig er blandaður kór starfandi á Hofs- ósi, þar sem æfir fólk úr 4 hrepp um. Öll þessi starfsemi vekur óneitantega mikinn og góðan tfélagsanda. Eru nú fyrirhugaðar söngskemmtanir hjá báðum kór- unum og einnig sameiginlegar, áður en vetrarsfarfi lýkur. Bridg(‘-kef)pni hefur oftast nær verið einu sinni i viku í sköia- húsi i ÓSlandshlíð, þar sem fól'k safnast saman úr 4 hreppum og gerir sér glaða kvöldstund. Forráðamenn á Hólum í Hjalitadal segja mér að Skóla- hald og búrekstur gangi þar vel, en nú líður að lokum skóla. Skólastjóri, Haukur Jörundsson, sem fékk frí frá skólastjóm frá áramótum siðustu vegna veik- inda, hefur nú sagt af sér skóla- stjóm. Skagfirðimgar allir og unnendur Hóla bíða með eftir- væmtingu eftir að vita, hver við tekur, þvi að sú skipan ræður miMu um viðgang skólans og skólabús. Sjósókn gekk treglega fyrri hluta vetrar, en þá stunduðu eln- göngu togbátar veiðar. Var mest um kennit óstiMitu veðri. Nú hef- ur afli glæðzt að mun, og koma bátar með allgóðan afla etftir fárra daga útivist. Grásleppu- veiði hefur verið rýr til þessa, en togbátarnir hafa þó komið með nokkur tonn i hverri sjó- ferð. Rauðmagaveiði er orðin töluverð og veit ég til að 500 st. fengust í 3 net. Nokkuð hefur veður þó hamlað veiðum. Veikindafaraldur hefur gengið yfir héraðið. Te'lja læknar að þar geti verið um inflúensu að ræða með ýmsum fylgikvillum. Nýlega eru láitwar i Austur- Skagafirði 3 fyrrverandi hús- mæður: Sigurlaug Sigurðardótt- ir, Brimnesi, Salbjörg Jónsdóttir, Ho'fsósi og Hótantfríður Þorgite- dótitir frá Bt'úai’landi. Björn í Bíp. GIMU Ensk ullarefni í frískandi sumarlitum, köflótt mynstur breidd 1,40, verð kr. 943 pr. m. Slétt crimpiene efni í Ijósum litum, smáköflótt, breidd 1,70, verð 840 pr. m. Hvít helanca blúndu- afni, tevgjanleg, 2 mynstur. Bráðfalleg efni í blússur, breidd 1,40, verð kr. 461 pr m. GangiÓ vió í Gimli. Verzhmin Gimli, Langavegi 1. sími 14744 | L IK MADDAMA Að vera stór .... Oxi'ord, Englandi. EINHVERN tímann í vetur skrifaði „Ein, sem notar stór föt, 46-48“ í Vel- vakanda um þá erfiðleika, sem hún á við að etja í sambandi við fatakaup. Hana langaði auðvitað til að vera „smart“ og sæi hún failtega kápu í búðargilugga gat hún verið nokkuim veginn viss um að svarið, er inn var komið, yrði: „Þvi miður, við hötfum ekki stæri’a en 44“. Og þessu svari fylgja áreiðanlega oft svipbrigði, sem eiga að gefa til kynna að hún sé ótta- legt flón að ímynda sér, að „svona kápa“ sé til í númer 46 eða 48. í þeim stærðum eru aðeins til svokallaðar „frúarkápur", venjulega beinir, snið- lausir sekkir, sem gera viðkomandi feitari og ólögulegri en efni standa til. Ég hef mikla samúð með fyrrnefndri, því ég hef oft furðað mig á því að fatasalar skuli ekki hugsa um þann stóra hóp kvenna, sem þarf stærri föt en 42-44. í þessu felst líka virðingar- leysi í garð þessa hóps, og sumu af- greiðslufólki virðist einkar lagið að koma því á framfæri með því að setja upp kæruleysistegan svip, biandinn fyr- irlitningu, og segja eins og sigri hrós- andi: „Nei, við höfum ekki svo stór föt.“ Hvers eiga þeir að gjalda, sem verða að burðast með nokkur auka- kíló, meðfædd eða áunnin? Vil ég beina því til afgreiðslufólks að það íhugi þess'i mál, áður ein það svarar þeirri næstu, sem spyr um stór föt. Sjálf er ég með þeim ósköpum fædd að hafa stóra fætur, þurfa hvorki meira né minna en skó númer 39—40. Þegar ég kem inn í skóbúð, bendi á ein- hverja álitlega skó, sem ég hef séð í glugganum, er oft litið á mig rann- sakandi augnaráði og spurt hægt og rólega „hvaða stærð?“. Og ekki hef ég fyrr svarað en afgreiðslumanneskjan (það eir vissara að segja hvorki karl né kona) hristir höfuðið og segir ann- aðhvort, að svona stór númer hafi bara ekki komið, eða þá að stóru núm- erin séu búin, þau seljist alltaf strax. Og einhvern veginn finnst mér ég eiga að skammast mín, bæði fyrir að hafa svona stóra fætur og einnig fyrir að vera svo frökk að spyrja um svo stóra skó. Ég verð þó að viðurkenna að ástandið í skómálunum hefur heldur batnað síðustu árin, eftir að skór fóru almennt að breikka, því það er eins og breiddin geti tekið við einhverju af lengdinni. Því má skjóta hér inn, að fyrirtækí eitt í Bretlandi, sem sérhæf- ir sig í framleiðslu á skóm fyrir þreytta og breiða fætur (skórnir eru auðvitað „púkalegir“ og rándýrir), er nýfarið að auglýsa að það sé ekki glæpur að hafa breiða fætur. Sú staðreynd, að stóru númerin seljast alltaf strax sýnir, að það er þörf fyrir þau. En hvernig í ósköpun- um stendur þá á því að verzlanirnar hafa ekki meira af þeim? Þetta á ekki aðeins við um íslenzkar verzlanir, því erlendis er ástandið oft litlu betra. Hér í Englandi, sem íslendingum finnst paradís skóverzlana, er ástandið ekki betra en svo, að fyrir dyrum stendur að taka málið til umræðu í þinginu. Ég held þó að ekki hafi orðið af því enn, því umræður um írland, Efna- hagsbandalagið og verkalýðsmál ganga fyrir. Það er ein af konunum í þing- inu, Renee Short, sem ætlar að bera fram fyrirspurn til framleiðenda, hvernig á því standi að þeir hugsi ekki um konur með stóra fætur. Sjálf notar hún númer 8Vz, sem er líklega 41%, og þarf breiða skó. Segir hún algengt að henni sé vísað á karla- deildirnar, þegar hún spyrji um skó í verzlunum. Smáfættum vinkonum hennar sé hins vegar vísað á barna- deildirnar, svo einnig þurfi að koma málum þeirra í lag. Þótt ástandið í skómálum þeirra stórfættu og smáfættu sé ef til vill ekki mi'k'lu betra á Bretlandi en á ís- tl ilil ^-iTSSTSliLlíH Ein af verzlununum, sem sérhæfir sig í fatnaði fyrir stórar konur. landi, þá eiga þær, sem nota stór föt, betri daga hér en á íslandi. Flestar stórverzlanir hafa sérstakar deildir með stórum fötum — ekki aðeins „frúarkjólum“ heldur og nýtízkuleg- um buxnadrögtum o.s.frv. — og einn- ig deildir fyrir þær, sem eru óvenju háar og grannar. Þær smávöxnu, hvort heldur grannar eða þybbnar, eiga einn- ig að geta fundið eitthvað við sitt hæfi, án þess að fara í barnadeildirnar. Þá eru og sérstakar verzlanir, sem hafa á boðstólum „afbrigðileg" föt og geng ég nær daglega framhjá einni slíkri. í gluggum þessarar verzlunar eru gínurnar í réttri stærð, en ekki þvengmjóar, og gefa því rétta mynd af fötunum, sem í flestum tilfellum eru mjög klæðileg og „smart“. Og þá ætla ég að víkja að öðru, sem mér hefur lengi legið á hjarta, einnig í sambandi við fataframleiðslu. Fatakaupstefnur, sem nú er farið að halda í Reykjavík vor og haust, eru mikið þarfaþing, því þar er hægt að sjá rjómann af íslenzkri fatafram- leiðslu (fjöldaframleiðslu). Meðan á kaupstefnunum stendur eru daglega haldnar tízkusýningar þar sem ungar stúlkur (já reyndar einnig piltar og börn) trítla um gestum til augnayndis og ánægju. Stúlkurnar eru auðvitað tágrannar og bera sig vel og fötin fara vel á þeim. En þessi föt sem þær sýna, eru nær eingöngu ætluð táningum og þeim öðrum, sem hafa vaxtarlag tán- inga, og hef ég jafnan spurt sjálfa mig, hverníg á þessu standi — og er lík- lega ekki ein um það. Á fatakaup- stefnunni sl. haust ákvað ég því að gera smákönnun í „básunum" og komst að því, að tízkusýningin hafði gefið rétta mynd af því, sem þarna var á boðstólum. Er ég spurði, hvern- ig á því stæði að ekki væru framleidd föt fyrir þær, sem komnar eru af gelgjuskeiði og kannski búnar að fá svolítinn maga og keppi á lærin, fékk ég þau svör, að þarna gilti reglan um framboð og eftirspurn. Ungu stúlkurn- ar væru beztu viðskiptavinirnir, sem keyptu mest af fötunum og því væri mest upp úr því að hafa að framleiða föt á þær. Ég vil taka það fram að þetta gildir ekki um alla fatafram- leiðendur, sem þarna sýndu og virtist mér þeir, sem framleiða undirfatnað og yfirhafnir spanna stærstu aldurs- bilin. Ég hef dálítið furðað mig á þessari afstöðu íslenzkra kvenfataframleið- enda og það á þeim tíma, sem stöðugt er verið að leggja meiri áherzlu á að efla íslenzkan iðnað og gera hann fjöl- breyttari. Úr því að íslenzkum fata- framleiðendum hefur tekizt að fram- leiða unrgliínigafatnað saimkeppnishætf- an við erlendan, því skyldu þeir ekki geta framleitt annan samkeppnishæfan kvenfatnað. Þótt dæturnar séu fata- frekar þá ganga mæðurnar ekki nakt- ar og einhver staðar verða þær að fá sín föt. — Ég ér ekki að falast eftir svari í orðum en vonast til þess að mér verði svarað jákvætt á næstu fatakaupstefnum í Laugardalnum. Þórdís Ámadóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.