Morgunblaðið - 18.04.1971, Page 18
18
MOBGUNBLADIÐ, SUNNUDAGUR 18. APRÍL 1971
Bifreiðarstjóri óskast
Heildsölufyrirtaeki óskar eftir að ráða strax mann
til vöruútkeyrslu í sumar.
Æskilegt er að viökomandi sé vanur slikum störfum.
Aðeins reglusamur og áreiðanlegur maður kemur til greina.
Umsóknir sendist i pósthólf 555, merktar: „Bifreiðastjóri".
Skrifstofustúlka
Stúlka óskast nú þegar á skrifstofu okkar til að annast
vélritun, frágang aðflutningsskýrslna og almenn skrifstofu-
störf. Starfsreynsla æskileg.
Upplýsingar veittar daglega kl. 2—5 e. h., ekki í síma.
HR. HRISTJANSSON H.F.
II M B 0 fl Ifl SUDURLANDSBRAUT 2 • SÍMI 3 53 00
Vestmannaeyingor
Hversvegna ekki að spara 8—33,3% á
LJÓSASTILLINGUM OG BÍLAVIÐGERÐUM?
Bilaskemman Vestmannaeyjum veitir félagsmönnum F.I.B.
33,3% afslátt af IjósastiHingum og 8% af bílaviðgerðum.
Bílaver, Vestmannaeyjum, veitir félagsmönnum F.I.B. 8%
afslátt af bílaviðgerðum.
Félag islenzkra bifreiðaeigenda.
Volvo NB 88 fyrir troiler
til sýnis og sölu hjá okkur.
Sölumaður
Viljum ráða strax reglusaman mann til bilasölu á nýjum bilum.
Málakunnátta nauðsynleg.
Upplýsingar um menntun, aldur og fyrri störf sendist blaðinu
merkt: „Sölumaður — 7363".
Hemlaviðgerðir
Ameriskir bremsuborðar í allar tegundir bifreiða.
HEMLASTILLING HF.,
Súðavogi 14 — Sími 30135.
Afgreiðslumaður
Óskum að ráða strax reglusaman mann til afgreiðslu
í varahlutaverzlun vorri.
Upplýsingar ekki veittar í síma.
VELTIR HF„
Suðurlandsbraut 16.
Nýir bílar
Viljum ráða strax duglegan mann til þrifa á nýjum bilum.
Upplýsingar ekki veittar í síma.
VELTIR HF„
Suðurlandsbraut 16.
3ja herbergja íbúð
óskast fyrir reglusöm, barnlaus hjón.
Fyrirframgreiðsla.
Upplýsingar í sima 33721.
Skrifleg tilboð óskast gerð í bílinn.
Tilboðin opnuð 30. apríl klukkan 17.00.
Simi 35200.
ÚTSKIPTING Á GLERI
Tilboð óskast í útskiptingu á 75 gölluðum einangrunarrúðum
(verksmiðjugler) í fjölbýlishúsi við Kleppsveg.
Verkið þarf að framkvæma í maí.
Allar upplýsingar veita Sverrir Skarphéðinsson, sími 36199,
og Einar Guðjónsson, simi 81998.
Fyrirtœki til sölu
Vel staðsett hótel í stórum kaupstað norðan lands.
★ Nýtizkuleg og velstaðsett kjötvöruverzlun í Austur-
borginni.
★ Kven- og bamafataverzlun við Laugaveginn.
★ Hef til sölu rikisskuldabréf og fasteignabréf til 10 ára.
RAGNAR TÓMASSON HDL„
Austurstræti 17
(Silli og Valdi).
Tilkynning nm loknn götu
o. fl. í Kópnvogi
Frá og með mánudeginum 19. aprfl nk. verður Digranesvegi
lokað milli Hafnarfjarðarvegar og Vogatungu.
Engar breytingar á umferðarreglum hafa verið gerðar vegna
þessara breytinga.
Akstursleyfi milli bæjarhluta fyrst um sinn verða Kársnes-
braut/Nýbýlavegur, Kópavogsbraut/Hliðarvegur frá vestri til
austurs, svo og Auðbrekka.
Umferð verður væntanlega flutt á hina nýju brú Digranes-
vegur/Borgarholtsbraut um miðjan maí.
Byggingarnefnd Hafnarfjarðarvegar í Kópavogi.
Afgreiðslumaður
Viljum ráða mann t?l að annast stjórn á vöruafgreiðslu okkar.
Þarf að vera góður í reikningi og vanur skriftum.
Aðeins traustur og reglusamur maður kemur til greina.
PALL ÞORGEIRSSON & CO„
Armúla 27.
Fjölskylda í New Yorh
óskar eftir ungri stúlku, um 20—30 ára, til aðstoðar við
gæzlu á ungbarni og við létt heimilisstörf. Einbýlishús. Sér-
herbergi, sjónvarp og baðherbergi fyrir stúlkuna.
Upplýsingar um fyrri störf, laun og leggið mynd með í
bréfi.
MARTIN KOTLER 1010 East 22 nd. street Brooklyn
New York, 11210 — U.S.A.
CORRECT ■ COLOUR
eru vönduðustu myndirnar á markaðnum.
7—8 stillingar og stækkun.
Eina stofan er getur boðið þessa þjónustu er
Stjörnuljósmyndir.
Pantið með fyrirvara. Sími 23414.
STJÖRNULJÓSMYNDIR,
Flókagötu 45.
— Reykjavíkur-
bréf
Framhald af bls. 17.
stæðismanna sé enginn meiri-
háttar málefnalegur ágreining-
ur, heldur sé flokkurinn sam-
einaður um þær grundvallar-
hugsjónir, sem starf hans bygg
ist á og þjóðin þekkir. Menn
deili að vísu um minniháttarat-
riði, eins og vera ber, enda ekki
til þess ætlazt, að allir séu sam
mála um allt, heldur hljóti
menn að skiptast á skoðunum,
vega og meta stjónarmið hver
annars og komast síðan að hinni
heppilegustu hiðurstöðu ýmist
með málamiðlun eða atkvæða-
greiðslum.
Enginn vinstri flokkanna get
ur hins vegar haldið því fram,
að ekki sé um djúpstæðan skoð
anaágreining að ræða meðal
flokksmannanna, og kannski sízt
hinn nýi flokkur þeirra Hanni-
bals og Björns, enda náðist ekki
einu sinni samkomulag um nafn
flokksins, og urðu þau þess
végna að vera tvö!
Helzt kynnu menna að ætla að
innan Alþýðuflokksins ríkti mál
efnaleg samstaða, en í borgar-
stjórnarkosningunum á sl. voru
kom í ljós, að þverbrestir eru í
flokknum, enda voru uppi um
það háværar kröfur næstu daga
eftir að kosningaúrslit urðu ljós,
að stjórnarsamstarfi við Sjálf-
stæðisflokkinn yrði slitið og í
framhaldi af þeim umræðum tók
sjálfur formaður Alþýðuflokks-
ins upp viðræður við vinstri öfl
in í landinu til þess að reyna að
koma á vinstri samfylkingu.
Um kommúnista er það að
segja, að þar finnast áhangend
ur allra hinna mismunandi öfga
afla í röðum heimskommúnism-
ans, Maó-sinnar, Moskvu-menn,
Castró-aðdáendur — og svo enn
nokkrir nytsamir sakleysingjar.
Ungir Framsóknarmenn hafa
sem kunnugt er tekið upp við-
ræður við annan stjórnmála-
flokk og birt sameiginlega yfir-
lýsingu með honum, en eldri
menn í Framsóknarflokknum
geta naumast rætt við hina
yngri. Þar logar allt í illdeilum.
Þegar kjósendur skoða þá
mynd, sem við þeim blasir, ann
ars vegar heilsteyptan öflugan
flokk, sem sýnt hefur, að hann
er fær um að ráða málefnum
þjóðarinnar farsællega til lykta,
og hins vegar hina margsundr-
uðu fylkingu vinstri aflanna, þá
hljóta þeir að verða margir, sem
skoða hug sinn tvisvar, áður
en þeir greiða sundrungaröfl-
um atkvæði sitt. Þess vegna
vænta Sjálfstæðismenn líka
góðrar útkomu úr þeim kosn-
ingum, sem framundan eru.
í Reykjavík hafa Sjálfstæðis-
menn einir ráðið framvindu
mála, og um það verður ekki
deilt, að stjórn höfuðborgarinn-
ar hefur verið til fyrirmyndar.
Liklega geta Sjálfstæðismenn
ekki nú fremur en áður unnið
hreinan meirihluta í þingkosn-
ingum. Þó væri slík niðurstaða
kosnihganna í vor eina verð-
uga svarið, sem kjósendur gæfu
vinstri flokkunum — og ef til
vill yrði slík ráðning til þess,
að heilbrigðari öfl fengju ráðið
meðal hinna svonefndu vinstri
manna og gæti það þá stuðlað
að því, að einnig í þeim armi
stjórnmálanna gætti betra and-
rúmslofts en verið hefur fram
að þessu.
Myndavél stolið
STOLIÐ var myndavél úr einni
af sterifstofuim Landsíma ís-
lands og var málið kært til rann
sóknarlögreglunnar i gær. Mynda
vélin var af gerðinni Ashai Pent
ax — Spotmatic og var í svartri
leðurtösku. Þeir, sem geta gefið
upplýsingar um þessa myndavél
eru vinsamlegast beðnir um að
hafa samband við rannsóknarlög
regluna í Reykjavík.