Morgunblaðið - 18.04.1971, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. APRÍL 1971
John Rhode:
BLÓÐ-
TURNINN
• •
• •
og enginn veit það betur en ég
sjálfur.
Þér eruð þá sannfærður
um, að Benjamin sé maðurinn,
sem við erum að leita að?
til. Þér eruð að gefa i skyn, að
hópur manna, sem var andvigur
Woodspring i bæjarmálum, hafi
tekið sig upp með kaðla og tæki
og fellt turninn fyrir honum.
Það er óhugsandi, því að þeir
hefðu þó að minnsta kosti beðið
þangað til hann hefði fengið
eignarhaid á turninum. En skitt
með turninn. Við ættum heldur
að athuga þetta, sem hann sagði
um samtal sitt við Benjamin.
Jimmy glotti ólundarlega.
— Ég veit, sagði Hann. Verið
þér ekki að brýna mig á þvi.
Ég hef hagað mér eins og bjáni
— Ég er hræddur um, að
á þvi sé ekki lengur neinn vafi.
Fjandinn hirði þennan bóksala
snuðrara! Hefði hann ekki far-
ið að kjafta þetta við Benjamin,
hefði hann sennilega ekki hreyft
sig úr stað!
Já—, kannski og kannski
ekki. En eins og nú er komið,
höfum við loksins beinar sann-
anir gegn honum. Hann er tvisv
ar búinn að koma upp um sig.
1 fyrsta lagi þetta, hvernig skot
in hefðu borizt til Klaustursins.
— Ég veit, sagði Jimmy. — Ég
sagði honum, að kassi með
Nimrodskotum hefði verið send
LÆKNIR
RÆÐIR AF
HREINSKILNI
UNI
KYNFERÐI
NIAL
BÓK, sem á erindi til allra hjóna
Leikhúskjallarinn
Kvöldverður framreiddur frá kl. 18
Vrandaður matseðill.
Njótið rólegs kvölds hjá okkur.
Borðpantanir í síma 19636 eftir kl 3.
f
-Wt
- ■ íy . ■ íðM
^ w4i WtHlÉfrTÉi ’ -'
•L WMsk
ge
ur Caleb og við héldum, að eitt-
hvað hefði verið fiktað við eitt
skotið. Þá hefði verið eðlilegt,
ef hann hefði spurt, hver hefði
sent skotin, en það gerði
hann ekki. Hann spurði, hvort
við vissum, hvernig þau hefðu
komizt til Klaustursins, og það
er nokkuð annar handleggur.
Hann var sýnilega að snuðra
eftir því, hvort við vissum, hver
hefði sett þau í bílinn
hjá Mowbray. Og þessi um-
hyggja hans fyrir böggl-
inum, sem skilja átti eftir í
Drekanum, er næstú'm enn-
þá eftirtektarverðari. Mér þætti
gaman að vita, hvort Benjamín
spyr eftir honum i Sjómanna-
heimilinu. Ég held ég verði með
yðar leyfi að fara í símann og
tala við Scotland Yard. Þeir
geta látið vakta Sjómanna-
heimilið og gá að manni, sem
líkist lýsingunni af Benjamín.
Og svo ætti líka að tala við
næturvörðinn í hótelinu hans
Woodsprings. Ég efast ekki um,
að hann hafi sagt okkur satt
um ferðir sínar, en það er betra
að hafa allt á hreinu.
En svo fór, að Woodspring
þurfti ekki lengi að bíða
þess, að samningur hans öðl-
aðist gildi. Símon Glap-
thorne dó, án þess að hafa kom-
izt til meðvitundar siðdegis
sunnudaginn 12. september.
Darlington læknir, sem hitti
Appleyard af hendinguð lét ekki
neina undrun í ljós. — Það var
frá fyrsta fari engin batavon,
sagði hann. —Hjartað í honum
hefði aldrei þolað annað slag.
Ég varaði hann við þvi fyrir
löngu, áð allur æsingur eða
taugaæsingur mundi ríða hon-
um að fullu.
Hrunið á turninum var þá
óbein orsök dauða hans? spurði
Appleyard.
Já, sennilega hefur það ver
ið. Eða öllu heldur taugaáfailið
sem stafaði af því. Það var í
Nú eða...
næst er þér
haldið samkvæmi;
FERMINGAR-
AFMÆLIS-
eða
T7EKIFÆRISVEIZLU
erum við reiðubúnir
að útbúa tyrir yður:
Kalt borð, Heita rétti,
Smurbrauð, Snittur,
Samkvæmissnarl.
Auk þess matreiðum
við flest það, sem
yður dettur í hug,
— og ýmislegt fleira!
Soelkerimt
HAFNARSTRÆTI 1?
13835-12388
Hrúturinn, 21. marz — 19. april.
Þú hcfur fyllstu ástæSu til að vcra bjartsýnn á næstunni.
Nautið, 20. apríl — 20. mai.
Þér er í sjálfsvald sett, hvort þú vilt taka það rölega.
Tvíburarnir, 21. maí — 20. júní.
Það er annríki framundan hjá þér í svipinn, en þú ræður
við það.
Krabbinn, 21. júní — 22. .júlí.
Flestum finnst þú hugaður, en þii vei/l. að málið er einfalt.
Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst.
Ef þú styður ekki við bakið á félögum þínum, er heldur ckki
hjálpar að vænta af þeim.
Meyjan, 23. ágúst — 22. september.
Viljirðu hljóta viðurkenningu, er ekki annað að gera en að
vinna fyrir lienni,
Vogin, 23. september — 22. október.
!»ú hefur iengst af verið seigur, og slærð ekkert af núna.
Sporðdrekinn, 23. október — 21. nóvember.
Bjartsýnin er þér mikill liðsauki.
Bogmaðurinn, 22. nóvember — 21. desember.
Þú hlýtur viðurkenningu fyrir vel unnin störf.
Steingeitin, 22. desember — 19. janúar.
Nú er um að gera að verjast og herjast eins og ljón tii að
halda rétti sínum.
Vatnsberinn, 20. jauúar — 18. febrúar.
Þig brestur kjark til framkvæmda.
Fiskarnir, 19. febrúar — 20. marz.
Þú ert áfram um, að einhver tengdur þér njóti sannmælis.
hans augum augljós sönn-
un þess, að Glapthorneættin
væri búin að vera. En fyrr eða
seinna hefði eitthvert ann-
að áfall orsakað annað slag. Til
dæmis hefði hann verið neydd-
ur til að yfirgefa Klaustrið. Það
hlaut að þessu að koma af ein-
um eða öðrum ástæðum. Og feðg
arnir svona með hálfsmánaðar
millibili! Mig skyldi ekki furða
þó að dauði Calebs hafi orkað
meir á hann en nokkur vissi.
En, vel á minnzt, Appleyard hef
urðu nokkuð frétt af Benjamín
enn?
—Það hefur enginn frétt af
honum síðan á fimmtudag. Ég
get gjarna sagt þér það, svona
í trúnaði, læknir, að það er eitt-
hvað skrítið við allt þetta mál.
—Skrítið? bergmálaði lækn-
irinn. — Við hverju öðru er að
búast þegar jafn skrítið fólk og
Glapthornarnir eru, á í hlut?
Ég hef alltaf sagt, að þeir eru
skritnasta fólk, sem ég veit af,
utan geðveikrahæla.
Appleyard kinkaði kolli. —
Rétt segir þú, læknir. Þú gef-
ur auðvitað dánarvottorðið?
—Já, hjálpi mér . . . auðvit-
að! Hér verður ekki um réttar
hald að ræða . . . þú getur verið
óhræddur um það. Jæja,
ég verð að flýta mér. Á eftir að
líta á marga sjúklinga enn.
Ef frá er talið fráfall
Símonar, gerðist ekkert í Lyd-
enbridge yfir helgina. Benjamín
sýndi sig ekki og samkvæmt
frásögn Scotland Yards, hafði
enginn orðið hans var. Enginn,
sem gæti átt við lýsingu hans
hafði komið í Sjómannaheimilið.
Hins vegar gat næturvörðurinn
í hótelinu þar sem Woodspring
gisti oft, staðfest frásögn hans.
Hann hafði verið fluttur í gisti-
húsið í leigubíl steinsöfandi um
klukkan hálf tvö þessa um
ræddu nótt. Næturvörðurinn
hafði varla ætlað að þekkja
hann fyrst, þar eð hárkollan
var dottin af honum, og var I
vasa hans, en hann hafði komið
honum upp i herbergið og gat
fullyrt, að hann hefði ekki
hreyft sig þaðan, það sem lifði
nætur.
Woodspring var meirihluta
árdegis á sunnudag á vakki
kring um turnrústirnar og pot-
aði í þær með stafnum sinum.
Hann virtist vera að reikna út,
hve mikið það mundi kosta að
endurreisa turninn. Þegar hann
hitti Jimmy á leiðinni heim, varð
honum tíðrætt um dáðleysi lög-
reglunnar, og taldi það hrein-
asta hneyksli.
— Já, en hvað ætlizt þér til,
að við gerum? sagði Jimmy, sem
hafði hálfgaman af æsingnum í
bóksalanum.
Nú, auðvitað skyldu ykk-
ar, sagði Woodspring. — Hafið
þið gaman af að standa með
hendur i skauti meðan eignir
borgaranna eru eyðilagðar? Þér
getið verið viss um, að ég skal
ekki láta þetta kyrrt liggja, fyrr
Kaupmannafundur
Kaupmannasamtökin efna til almenns kaupmannafundar í
Þjóðleikhúskjallaranum mánudaginn 19. apríl kl. 20.30.
Umræðunefni: Vandamál verzlunarinnar.
Raeddar verða hugmyndir, sem fram komu
í umræðuhópum á aðalfundi samtakanna.
Kaupmerin eru hvattir til að mæta vel og stundvíslega.
Framkvæmdastjórn.