Morgunblaðið - 07.05.1971, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. MAl 1971
7
99
Nú stendur bara á vinnukrafti
Fossvogsstöðin
heimsótt
„Máski er ekki fallegt að
segja þa<5, en samt er það satt
að gagnvart vinnukraftinum
hjá skógræktinni, lýkur skól-
um almennt allt of seint. Verzl
unarskólinn er þegar hættur,
og þar höfum við núna feng-
ið dýrmætan vinnukraft,“
sagði Vilhjálmur Sigtryggs-
son, forstöðumaður skógra-kt
arstöðvarinnar í Fossvogi,
þegar við hittum hann á förn
um vegi suður i Fossvogi
núna í vikunni.
Ailtaf er skemmtilegt að
koma í stöðina i Fossvogi.
Grenitrén standa þarna keik
og beinvaxin, sígræn, og gefa
byr undir báða vængi. Máski
er ekki allt að marka þann,
sem þessar línur ritar, því að
hann er einlægur skógrækt-
arunnandi, trúir á það, að
hér sé hægt að rækta skóg,
m.a.s. nytjaskóg, hvað svo
sem líður einstaka Velvak-
andakerlingum, sem tala í
nöldurtón um barrkarla. Svo
er guði fyrir að þakka að
við, sem séð höfum þessi tré,
taka árlegum framförum, er-
um ekkert upþnæmir yf-
ir þessum aðfinnsium. Við
látum þær, eins og blessuð
trén, sem vind um eyrun
þjóta. Einhvern tima kemur
að því, að jafnvel augu þess-
ara efasemdarmanna munu
opnast fyrir fegurð og nyt-
semi skógræktar á landinu
okkar fagra.
„Já, það stendur núna aðal
lega á vinnukrafti," heidur
Vilhjálmur áfram. „Við erum
um þessar mundir að taka
upp plöntur úr græðireitum,
búa þær undir að sendast til
hinna ýmsu skógræktarfé-
laga og einstaklinga, sem að
þessu vilja vinna. En skóla-
krakkarnir eru enn í skóla,
flest í prófum. Við erum í
dag með 15 stúlkur, en hér
munu starfa í stöðinni um 40
manns, þegar skólum lýkur.
Þá kemur vinnuskóli borgar-
innar til sögunnar, og frá
honum munu starfa um 200
börn og unglingar í Heið-
mörk og 10—15 leiðbeinendur
frá okkur verða með þeim. 35
unglingar munu starfa í
Öskjuhilíð. Ragnar JúMusson,
skólastjóri Álftamýrarskól-
ans hefur umsjón með vinnu-
skólanum."
„Hefur þetta góða vor haft
voninni um skógivaxið land vilhjálmur Sigtryggsson inni í gróðurhúsinu, þar sem 100.000
plöntur eru að sjá dagsins Ijós.
(Myndirnar tók Sveinn Þormóðsson.)
einhver áhrif á störf skóg-
ræktarinnar, Vilhjálmur?“
„Já, óhætt er að segja það.
Líklega er al'lt eins og hálf-
um mánuði fyrr til en venju
lega. Fyrir utan verkið að
taka plöntur úr græðireitum
til þess að fólk geti fengið
þær til útplöntunar, erum við
núna að gróðursetja plöntur,
mest birki í mópotta, og þær
plöntur getum við sett niður í
júli, og þannig lengt gróður-
»;etningartímann allverulega.
1 þessum mópottum er einnig
fólginn áburður, og það verð
ur siðan gott vegarnesti þess
um plöntum í framtíðinni.“
„Hækkar verð á plöntum
frá ykkur í ár?“
„Nei, ekki neitt að ráði, við
höfum þegar gefið út sölu-
lista, bæði yfir skógarplönt-
ur og garðplöntur, og höfum
sent hann til félagsmanna
skógræktarfélaganna, og við
vonumst til, að pantanir fari
að berast, því að það gildir
allra helzt um skógræktina,
sá gamli málsháttur, að ekki
er ráð, nema í tíma sé tek-
ið.“
Við göngum með Vilhjálmi
um stöðina. Alls staðar er ver
ið að vinna. Hröð handtök,
en nákvæm, eru alls staðar
að verki. 1 stóru gróðurhúsi
hefur verið sáð fræjum, bæði
af greni, birki og ýmiss konar
runnum.
„1 þessu gróðurhúsi einu
eru nú að vaxa upp um
100.000 plöntur," segir Vil-
hjálmur og beygir sig niður
hjá Geitblöðungaplöntum,
sem hægt er að klippa i kútu,
líkt og i Versalagarði Frakka-
konunga. „Hér eru líka birki
plöntur, sitkagreni og sitt-
hvað fleira, sem of lcfngt yrði
upp að telja. Og þó má ég
til með að minnast á Döggl-
ingskvistinn. Þetta er gamalt
og gott nafn, og planta þessi
er mjög falleg."
„Og mér heyrist á þér, Vil
hjálmur, að þú sért bjartsýnn
um alla skógrækt þetta vor-
ið.“
„Já, það er ég sannarlega.
Þetta grænkaði eiginlega um
leið og vetur var úti, miklu
fyrr til en venjulega. Og þess
ar ungu dömur hér eru að
raga birki, fleygja þeim plönt
um, sem dauðar eru, velja úr
úrvalið, þær plöntur, sem í
gjöfula islenzka mold komast
í vor. Sumar geymum við I
kæli fram eftir sumri. Einnig
það lengir gróðursetningar-
tímann."
„En hversu lengi er óhætt
að planta út trjáplöntum, Vi'l-
hjálmur"
„Miður júni hefur venju-
lega verið okkar mark, en ég
held, að óhætt sé með ár-
angri að planta út tölu-
vert lengur. Og mig iang'ar
til að enda á nokkrum setn-
ingum, sem prentaðar eru í
sölulista okkar í ár, sem eiga
erindi til allra, sem vilja
leggja hönd á plóginn í skóg-
ræktarstarfinu í ár, en þær
eru þessar:
„Gróðursetjið aldrei trjá-
plöntur í óræktað land án
áburðar. Vandið gróðursetn-
inguna. Gerist félagar í Skóg
ræktarfélögunnm. Með því
stuðlið þið að því að gera um
hverfi ykkar lilýrra, fegurra
og frjórra.“
„Og ég vil þá enda mál mitt
á því, að óska öllum þeim,
sem leggja hönd að verki að
skógrækt á þessu vori, gæfu
og gengis, og vonandi hafið
þið öll erindi sem erfiði."
— Fr.S.
ANTIK-HÚSGÖGN TiLKYNNIR
Skyndisala næstu daga til
rýmingar næstu vörusend-
ingar. Gefum 10—30% afsl.
Opið frá kl. 2 e.h. Antik-hús-
gögn, Vesturg. 3, kjallara.
ÓSKA EFTIR AUKAVINNU
kvöld og/eða næturvinnu.
Hef bíl. Uppl. i síma 84526
milli kl. 6 og 7 næstu daga.
LOFTPRESS TIL SÖLU
diesel, ekki stór.
Upplýsingar í síma 23470.
4—6 TONNA
ódýr vörubíll óskast keyptur
með eða án palls. Þarf ekki
að vera i lagi. Gjörið svo vel
að hringja i Sima 15581 eða
21863.
4RA—5 HERB. ÍBÚÐ
eða einbýlishús óskast til
leigu sem fyrst. Fyrirfram-
greiðsla eftir samkomulagi.
Upplýsingar í síma 10909.
KEFLAVÍK
Reglusaman miðaldra mann
vantar herbergi. Upplýsingar
í simum 1123 og 1131.
TIL SÖLU
Moskwitch árg. 1968, mjög
vel með farinn í góðu lagi.
Upplýsingar í sima 1848,
Keflavík, kl. 18.30—20 e.h.
TRJAPLÖNTUR
Birkiplöntur o. fl. trl sölu að
Lynghvammi 4, Hafnarfirði.
Sími 50672. Jón Magnússon.
UNG KONA
óskar eftir atvinnu. Uppl. i
sima 52236.
BÓKHALDSVÉL
Til sölu bókhaldsvél, liitið
notuð, hentug fyrir lítil fyrir-
taeki. Uppl. í sima 19296 og
26660.
IBÚÐ ÓSKAST á leigu, helzt nálægt Mið- ATVINNA ÓSKAST stúlka með góða enskukunn- áttu óskar eftir léttri skrif- VOLKSWAGEN 1300, '67 vel með farinn til sölu. Stað-
bænum. Vinsamlega hringið í síma 14666 eða 14276. stofuvinnu eða afgreiðslu- störfum. Uppl. i síma 33660. greiðsla. Uppl. i sima 36980.
GALLABUXUR HAFNARFJÖRÐUR OG NAGR.
TIL KAUPS ÓSKAST lækkað verð Valdar unghænur kr. 129.00
4ra herb. íbúð á hæð eða 4 og 6 kr. 220.00 kg. 1 10 stk pökkum kr.
stór 3ja herb., má vera i 8—10 — 230.00 125.00 kg. Nýreykt dilkakjöt.
blokk. Má þarfnast stand- 12—14 — 240.00 3 teg., nýtt hakk frá kl.
setingar, helzt i Hliðum. — Litliskógur, 139.00 kg. Kjötkjallarinn,
Sími 18989. Snorrabraut 22, simi 25644. Vsturbraut 12.
TIL GEFINS KETTLINGAR
í Suðurgötu 8, neðri hæð.
FJÖLSKYLDA
utan af landi óskar eftir 5
herb. íbúð 1. júní n. k. Tilb.
merkt: „Reglusemi 7300"
sendist auglýsingaskrifstofu
Mbl.
2JA—3JA HERB. IBÚÐ
óskast til leigu sem fyrst.
Uppl. í síma 18778.
BlLAÚTVÖRP
Blaupunkt og Philips viðtæki
í allar tegundir bila, 8 mis-
munandi gerðir. Verð frá kr.
4.190.00. — TÍÐNI HF„ Ein-
holti 2, sími 23220.
STÚLKA ÓSKAST
á heimili i Englandi (Au pair)
Uppl. i síma 15620 eftir kl. 6.
brotamAlmur
Kaupi allan brotamálm lang-
hæsta verðí, staðgreiðsia.
Nóatún 27, sími 2-58-91.
HAFNARFJÖRÐUR OG NAGR.
Nýtt hrossakjöt i buff og
gúllas. Hrossahakk kr. 139.00
kg. Léttsaltað dilkakjöt. —
Kjötkjallarinn, Vesturbr. 12.
SKRIFSTOFUHERBERGI
til leigu að Laugavegi 28.
Uppl. í sima 13799 og 42712.
; A næstunni ferma skip voij
jtil Islands, sem hér segir:
SANTWERPEN:
Skógafoss 14. maí
Reykjafoss 25. maí*
Skógafoss 2. júni
Reykjafoss 12. júní
^ROTTERDAM:
Reykjafoss 10. maí *
Skógafoss 13. maí
Reykjafoss 24. maí
Skógafoss 1. júni
Reykjafoss 11. júní
jFELIXSTOWE
Mánafoss 11. mai
Reykjafoss 12. maí *
Skógafoss 15. maí
Dettifoss 18. maí
Mánafoss 25. mai
Dettifoss 1. júni
Mánafoss 8. júni
PHAMBORG:
Mánafoss 13. maí
Dettifoss 20. maí
Mánafoss 27. maí
Dettifoss 3. júní
Mánafoss 10. júní
^WESTON POINT:
Askja 25. mai
Askja 10. júni
•’NORFOLK:
Ljósafoss 7. mai
Selfoss 18. mai
Goðafoss 2. júní
SKAUPMANNAHÖFN.
Tungufoss 12. maí
Gullfoss 18. maí
Tungufoss 26. mai*
Gullfoss 9. júní
Tungufoss 14. júni
^HELSINGBORG
Tungufoss 13. mai
Tungufoss 27. maí*
Tungufoss 12. júni
ÍGAUTABORG:
Mánafoss 7. maí
Tungufoss 25. maí*
Tungufoss 15. júni
pKRISTIANSAND:
Askja 10. mai
Askja 29. mai
Askja 14. júní
.GDYNIA:
Tungufoss 10. maí
Fjallfoss 30. mai
Lagarfoss 2. júní
'KOTKA:
Fjallfoss 25. mai
Lagarfoss 31. maí
ÍVENTSPILS:
Fjallfoss 29. maí
ÍSkip, sem ekki eru merkt<
f með stjömu, losa aðeins í<
sRvik.
Skipið lestar á allar aðal-'
jhafnir, þ, e. Reykjavík, Hafn-^
arfjörður, Keflavík, Vest-‘
^mannaeyjar, Isafjörður, Akur-í
^eyri, Húsavík og ReyðarfjÁ