Morgunblaðið - 07.05.1971, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 1971
Oska eftir
3ja herbergja íbúð
frá og með 1. júní. — Sími æskilegur.
Upplýsingar í síma 84526 milli kl. 6 og 7 næstu daga.
Vélritunarstúlka
Stórt fyrirtæki í Reykjavik, óskar eftir að ráða vélritunarstúlku.
Enskukunnátta nauðsynleg.
Tilboð er tilgreini aldur, menntun og fyrri störf, sendist af-
greiðslu Morgunblaðsins, merkt: „Vélritun *— 7498”, fyrir
mánudagskvöld.
■■H
■ ^\ 1 FÉLAGSSTARF SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
SELT J ARN ARNES
Sjáifstæðisfélag Seltirninga heldur umræðu- og spilakvöld í
Félagsheimili Seftjarnarness. mánudagskvöldið 10. maí kl. 8.30.
FUNDAREFNI:
1. Matthías Á. Mathíesen, alþingis-
maður, fyrsti maður á lista Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjaneskjör-
dæmi, talar um stjómmálaviðhorfið
og svarar siðan fyrirspurnum.
2. Félagsvist.
Góð kvöldverðlaun
Þriggja kvölda verðlaun.
Félagsfólk er hvatt til að fjölmenna og taka með sér gesti.
Sjálfstæðísfélag Seltirninga.
Egilsstaðir Egilsstaðir
Almennur kjósendafundur
verður haldinn í Valaskjálf á Egilsstöðum næstkomandi sunnu-
dagskvöld, 9. maí, og hefst hann klukkan 21.00.
Ræðumenn: lugólfur Jónsson, Sverrir Hermannsson og
Pétur Blöndal.
Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins.
Seyðisfjörður Seyðisfjörður
Sjálfstæðisfélagið Skjöldur, Seyðisfirði, heldur fund i kvöld,
föstudagskvöld, og hefst hann klukkan 21.00
Fundarefni: Sjómmálaviðhorfið.
Ræðumenn: Sverrir Hermannsson og Pétur Blöndal.
Ibúar Seyðisfjarðar eru hvattir til að fjölmenna.
STJÓRNIN.
Selfoss Árnessýsla
FÉLAGSMÁLANÁMSKEIÐ
Ungir Sjálfstæðismenn efna til félagsmálanámskeiðs 11., 12.,
18. og 19. maí n.k. í Sjálfstæðishúsinu, Austurvegi 1, Selfossi.
Dagskrá: Þriðjudag 11. maí kl. 20:30
um RÆÐUMENNSKU.
Leiðbeinandi Jón Atli Kristjánsson, deildarstjóri.
Miðvikudag 12. maí kl. 20:30
um FUNDARSKÖP OG FUNDARFORM.
Leiðbeinandi Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson stud. jur.
Þriðjudaginn 18. maí og miðvikudaginn 19. mai kl. 20:30
UMRÆÐUFUNDIR.
Samband ungra Félag ungra Sjálfstæðis-
Sjálfstæðismanna. manna i Amessslu.
KÓP A V OGSBÚAR
Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins Eggert Steinsen verður til
viðtais laugardaginn 8. maí kl. 2—4 í Sjálfstæðishúsinu Kópa-
vogi.
Sjálfstæðiskvennafélögin
1 Reykjaneskjördæmi
Félags- og sálfræðirannsóknir
— Aths. menntamálaráðuneytis
MBL. hefur borizt eítirfarandi
frá Men'ntamálaráðuneytinu:
Vegna blaðaskrifa, sem nýlega
hafa orðið um félag’sfræðirami-
söknir, er dr. Bragi Jósepssom
hiefur starfað við að uondan-
fömu, tekur menntamá laráðu -
neyfið fram eftirfarandi:
1. Ráðuneytið er hJymnt þvi,
að féflags- og sálfræðileigar rann-
sófcnir verði autanar og efldar á
íslandi. Margs konar gagn get-
ur orðið af sflífcum rannsóknum.
Geta niðursitöður þeirra t. d. oft
orðið leiðarljós og vlsbiending
við töfcu ákvarðana um ýmis fé-
lagsmálefni siðar meir. Um til-
vifc dr. Braga er það að segja,
að honum var skýrt frá slnkum
atmennum stuðningi ráðuneytis-
ing við tannsókn á áhrifum sjón
varps á afbrotaihneigð ungflinga,
sbr. hréf ráðuneytisins, dags 19.
nóvember 1969 og 20. janúar
1970.
2. Sérstakar reglur um veit-
ingu leyfis til félagsflegra rann-
sókna hafa aildrei verið til hér-
lendis. Einstaikir menn, þ. á. m.
erlendir sérfræðingar, hafa t. d.
gert hér mjög nákvæmar félags-
eða þjóðlifsfræðirannsóknir, sem
staðið hafa árum saman, án
þess að sótt væri um eða veitt
opintoert leyfi fyrir þeim. Nú er
hins vegar svo komið, að áhugi
ýmissa aðila, innlendra sem er-
lendra, á félagslegum rannsókn-
um á Isflandi hefur mjög vaxið.
Má þá teflja, að timabært sé að
setja regliur um sflSkiar rannsófcn
ir, og mun ráðuneytið beita sér
fyrir þvi, að slifct verði gert.
3. Samkvæmt framansögðu
hefur ráðuneytið ekki veitt sér-
staika heknáld til þess, að dr.
Bragi Jósepsson iegði nannsófcn-
argögn sin fyrir í sfcóflum lands-
ins, heldur aðeins lýst yfir afl-
mennum stuðningi við rannsófcn
á umræddu viðfangsefni. Sér-
stakrar heimildar verður fræði-
maðuiinn að leita hjá skólaistjór
um, svo og þeim, sem sputrðir
eru í rannsóikninni. Af hálfu
ráðuneytisins er skólastjórum
heimilt og frjálst að veita dr.
Braga aðstöðu til rannsófcnar í
sfcólum sínum. Nemendum og/
eða foreldrum er frjálst, hvort
þeir svara umræddum rannsófcm
argögnum, eins og til er mæflzt,
eða ekfci. Einsitafclinigar hfljóta
jafnan að ráða því sjálifir, hvort
þeir láta í té svör við spurning
um í félagslegri yfiriitsrannsófcn
eða skoðanakönnun.
4. Leiði blaðaskrif og deiflur
um rannsókn dr. Braga Jóseps-
sonar til þess, að ókleift reynist
að ljúfca henni, er um mjög
varasamt fordæmi að ræða, sem
gæti dregið dilk á eftir sér. ís-
lendingum er ekfci minni nauð-
syn að ná góðu samstarfi við
félagslegar rannsóknarstofnanir
í ýmsum löndum en þessum
stofnunum er að fá í vissum til-
vikum rannsóknaraðstöðu hér-
lendis. lslendingar þurfa á
þessu sviði mjög á að hallda
góðu samstarfi við aðrar þjóðir,
þ. á m. til að fá menntun,
vinnuaðstöðu og námsstyrki fyrir
ísilenzfca stúdenta og fræðimenn,
sem eru að fullnuma sig á hinu
félagslega fræðasviði. Yrði er-
lendum háskóla gert ókieift að
ijúka hérlendis félagsfræðirann-
sófcn, sem mjög mikil vinna og
fjármagn farið í að undir-
búa, er viðbúið, að sflí-kt yrði ær-
ið kunnur attourður, sem sfcapað
geeti neikvæð viðtoorf gagnvart
samvinnu við íslendinga um fé-
iagslegar rannsóknir og féflags-
fræðimenntun. Sflifc mistök þarf
að reyna að forðast, og leiðin
til þess er sú, að gagnikvæmt
traust skapist milfli fræðimanna
og aflmennings.
Menntamálaráðuneytið,
30. apríl 1971.
— Minning
Kristján
Atvinna í boði
fyrir laghenta menn til iðnaðarstarfa.
GLIT HF., SÍMI 85411.
jr
Atthogofélog Stroodaoiaooa
Býður öllu eldra Strandafólki til skemmtun-
ar og kaffidrykkju í Dómus Medica sunnu-
daginn 9. maí kl. 3 stundvíslega.
Verið velkomin.
STJÓRNIN.
íbúð — Staðgreiðsla
Nýleg 3ja herb. íbúð óskast til kaups.
íbúðin þarf að vera á 1. eða 2. hæð.
Upplýsingar í símum 16201 og 81384.
Framh. af bls. 22
gjarnan viijað gera betur, en veit
að sá, sem um er ritað, erfir ekki
við mig ódugnaðinn. Og einnig,
að ég mæli fyrir munn okkar
allra sundfélaga, er ég fuiiyrði,
að karlmannlegur hugur Krist-
jáns, hressileg gflettni og traust-
ur félagsandi mun fylgja okkur
i framtíðinni.
Guð blessi minningu hans,
f jölskyldu og heimili.
Kveðja frá simdfélögum.
N auðungaruppboð
Eftir kröfu skiptaréttar Reykjavíkur verða eftirtaldar skósmiða-
vélar, taldar eign þb. Einars L. Guðmundssonar, seldar á opin-
beru uppboði að Víðimel 30, fimmtudag 13. mai nk. kl. 14.00:
Gegnumsaumavél, randssaumavél, skurðarhnífur, pússrokkur,
þvinga, þynningarvél, kósavél.
Greiðsla við hamarshögg.
Borgarfógetaembættið í Reykjavik.
Húsbyggjeodur
Asfalt þakpappi
Pappasaumur
Al-þakpappi
Al-einangrunarpappi
Veggpappi
Þakþéttiefni
Þakniðurföll
Þaklofttúður
Þakkantar
Plast þakrcnnur
Niðurfallsrör
Asbestplötur
T. Hannesson & Co. hf.
Ármúla 7, símar 85935 og 85815.
N auðungaruppboð
sem auglýst var í 26., 27. og 28. tbl. Lögbirtingablaðs 1970
á hluta í Laugavegi 81, þingl. eign Sigrlðar M. Magnúsdóttur,
fer fram eftir kröfu Búnaðarbanka islands á eigninni sjálfri,
þriðjudag 11. maí 1971, klukkan 11.30.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 8., 9. og 12. tbl. Lögbirtingablaðs 1971 á
Víkurbakka 4, þingl. eign Helga Oddssonar, fer fram eftir kröfu
Gjaldheimtunnar í Reykjavik á eigninni sjálfri, þriðjudag 11. maí
1971, klukkan 11.
Borgarfógetaembættið í Reykjavik.
EDDA Kópavogi — SÓKN Keflavík — VORBOÐI Hafnarfirði
halda sameiginlegan fund í Sjálfstæðishúsinu Hafnarfirði
fimmtudaginn 13. maí kl. 8,30.
Fjórir efstu menn á framboðslísta Sjálfstæðisflokksins
i Reykjaneskjördæmi flytja ávörp og ræður og svara
fyrirspumum.
SjáHstæðiskonur i Reykjaneskjördæmi eru hvattar til að
Ijöbnenna á fundinn.
Sjálfstæðiskvennafélögin
EDDA, SÓKN og VORBOÐI.
Sumarvinna
Viljum ráða kokka eða vanar matráðskonur á Hótel Eddu.
Umsóknareyðublöð fást á Ferðaskrifstofu ríkisins, Lækjargötu 3.