Morgunblaðið - 07.05.1971, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. MAl 1971
15
Af mælisk veð j a
til Rannveigar Jónsdóttur
ÞANN 7. þessa mánaðar verður
Rannveig Jónsdóttir, Gröf, Reyð
arfirði, 80 ára. Mér er það sönn
ánægja, að senda þessari vin-
konu minni litla afmæliskveðju,
ekki sízt þegar það er haft í
huga, að það má segja, að hún
eigi að miklu leyti í mér líf-
tóruna, svo vel hugsaði hún um
mig, þegar ég var óþroskaður
unglingur og reri á árabáti með
föður mínum. Þetta tækifæri vil
ég nota til að færa henni mínar
alúðarþakkir fyrir alla þá um-
önnun og hlýhug, er hún veitti
mér og raunar má segja að hafi
haldizt æ síðan. Ekki treysti ég
mér til þess að rekja ævisögu
þessarar merku konu, þó að
hins vegar að ég muni reyna að
stikla á því helzta. Rannveig
Jónsdóttir hefur lifað tímana
tvenna og hefur kynnzt bæði fá-
tækt og velmegun, en í gegnum
árin hefur hún kunnað að taka á
móti breyttum tímum og breytt-
um aðstæðum, eins ög bezt verð
ur á kosið af einni húsmóður.
Rannveig er ein af þeim kon-
urri, sem hefur orðið að fást við
ýmisleg störf, bæði úti og inni.
Meðal annars minnist ég þess,
að þegar börnin voru ung stund
aði maður hennar sjóinn, sem
og hann gerði alla sína löngu
ævi. Hann lá í veri, sem kallað
var og gerði það í mörg sumur
á stað, er Breiðivík heitir og er
yzt í Reyðarfirði. Öll þau sum-
ur var kona hans með honum
og lagði virka hönd með honum
við hans atvinnugrein. Rann-
veig stundaði bæði fiskvinnu og
alls konar útistörf, ásamt
heimilinu og mér er kunnugt
um það, að marga vökunóttina
átti hún, er maður hennar var
á sjónum, til þess að veita hon-
um hlýjar móttökur með heit-
um og góðum mat og sýnir
þetta litla dæmi, hve mikla
mannkosti þessi virðulega kona
hefur yfir að ráða, enda skal
það tekið fram, að ég hefi aldrei
kynnzt eins elskulegu hjóna-
bandi eins og þessara hjóna. Þar
hefur aldrei borið skugga á.
Rannveig var ein af framákon-
um Kvenfélags Reyðarfjarðar og
starfaði með því í fjölda ára og
lét sér mjög annt um velgengni,
þess, en það sem mér fannst
mest einkenna þessa góðu konu
var það, að hún stundaði mikið
og í mörg ár líknarstörf. Hún
hjúkraði mörgum og hún var
ljósmóðir margra barna í byggð
arlagi sinu, þótt hún væri ekki
lærð, en ég fullyrði, að hún
leysti ekki síður þessi störf af
hendi en þær, sem lærðar voru
og veit ég að margar reyðfirzk-
ar konur kunna henni þakkir
fyrir þá alúð og nærgætni, er
hún sýndi undir slíkum kring-
umstæðum og senda henni nú á
þessum tímamótum ævi hennar
ámaðaróskir með hlýjum huga
og þakklæti fyrir störf hennar.
Rannveig er mikil trúkona og
Guðsmanneskja og hefur alla
tíð stundað mikið Guðshús og
mér er kunnugt um það, að ef
hún komst ekki í kirkju, þá
vaír það áreiðanlega vegna las-
leika, svo mikla kirkjurækni
hafði hún í hjarta sínu. Hún
var formaður kirkjusóknar
Reyðarfjarðar í fjölda ára og lét
sér mjög annt um Guðshúsið.
Margt fleira mætti segja um
þessa góðu og elskulegu konu,
en ég læt hér staðar numið og
bið hana að taka viljann fyrir
verkið. Þó vil ég geta þess, áður
en ég enda þessi orð mín, að
Rannveig hefur alla tíð verið
mjög gestrisin og margur mað-
urinn og konan hafa notið bæði
matar og drykkjar hjá Veigu
í Gröf, eins og við vinir hennar
köllum hana. Rannveig er gift
Birni Gíslasyni frá Bakkagerði,
Reyðarfirði. Þau hafa eignazt 3
mannvænleg börn, sem öll eru
góðir þjóðfélagsþegnar.
Rannveig er nú stödd hjá
dóttur sinni og tengdasyni,
Blönduhlíð 29.
Ég sendi svo þessari elsku
vinkonu minni mínar beztu árn-
aðaróskir á þessum merku tíma
mótum ævi hennar og um leið
bið ég hana að taka viljann fyr-
ir verkið. Guð blessi þín átta
tíu ár, elsku Veiga mín.
Þinn vinur
Jóhann Þórólfsson.
Jarðýta til sölu
Caterpillar D 6 C, árgerð 1967. 5 þúsund vinnustundir.
Upplýsingar á venjulegum skrifstofutíma í síma 85546 og frá
klukkan 6—7 í síma 37874 næstu daga.
Nœlon hjólbarðar
Sólaðir nylon hjólbarðar til sölu á mjög hagstæðu verði.
Ýmsar stærðir á fólksbíla.
Stærð 1100x20 á vörubíla.
Full ábyrgð tekin á hjólbörðunum.
BARÐINN HF„
Ármúla 7, sími 30501,
Reykjavík.
Tryggingafélag óskar eftir að ráða nú þegar
stúlku til vélrítunurstarlo
hálfan eða allan daginn.
Góð vélritunarkunnátta nauðsynleg.
Nokkur enskukunnátta áskilin.
Tilboð sendist Morgunblaðinu merkt: „7287".
Bifvélavirkjar
Okkur vantar góða bifvélavirkja til ýmissa
starfa við Ford-bíla.
Uppl. veitir verkstjóri, Bent Jörgensen.
SVEINN EGILSSON,
FORD -UMBOÐIÐ
SKEIFAN 17.
Y f irverkst jór i óskast
Vel þekkt vélaverkstæði, sem annast viðgerðir á skipum og vélum
(Diesil- og gufuvélum) ásamt hverskonar járnsmíði, óskar að ráða
yfirverkstjóra.
Þ»eir sem kynnu að hafa áhuga á slíku starfi, sendi nöfn sín, ásamt
upplýsingum um menntun og fyrri störf, á afgreiðslu Morgunblaðs-
ins fyrir 15. þessa mánaðar, í lokuðu umslagi, merktu: „Yfirverk-
stjóri — 7172“.
Farið verður með slíkar umsóknir eða fyrirspurnir sem algeTt
trúnaðarmál.
íbúð óskast
3ja herbergja íbúð, helzt i Vesturborginni, ókast til leigu.
Uppiýsingar gefur
LOGI GUÐBRANDSSON,
hæstarétta rlögmaður,
Túngötu 5, sími 2.3207.
Snyrtisérfrœðingur
FRÁ CORYSE SALOME
verður til leiðbeininga í dag
í verzluninni llmbjörg.
LAUGAVEGI 33.
Útboð — Gungstéttugerð
Tilboð óskast í gérð steyptra gangstétta og kanta við Lækjar-
götu, Fjarðargötu og Strandgötu í Hafnarfirði.
Otboðsgögn verða afhent á skrifstofu bæjarverkfræðings,
Strandgötu 6, gegn 2000 króna skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 13. maí næst-
komandi klukkan 10.30 að viðstöddum bjóðendum.
Bæjarverkfræðingur.
Sumarbúðir KFUM og K
Kaldárseli
Dvalarflokkar verða í sumar, sem hér segir:
Drengjaflokkur 4 vikur frá 28. mai til 25. júni.
Telpnaflokkur 2 vikur frá 1. júlí til 15. júlí.
Telpnaflokkur 2 vikur frá 15. júlí til 29. júlí.
Drengjaflokkur 4 vikur frá 29. júlí til 26. ágúst.
Upplýsingar um drengjaflokka í sima 50630.
Upplýsingar um telpnaflokka í síma 51273.
Forstöðukona
Staða forstöðukonu við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri er
laus til umsóknar. Staðan veitist frá 1. júlí nk. eða eftir sam-
komulagi.
Laun samkvæmt kjarasamningum opinberra starfsmanna.
Umsóknir sendist stjórn Fjórðungssjúkrahússins fyrir 1. júni
næstkomandi.
Upplýsingar um stöðuna gefur framkvæmdastjóri i sima 11031
eða 12872.
Stjóm Fjórðungssjúkrahússins
á Akureyri.
Þessi trillubátur er til sölu.
Upplýsingar hjá Helga Veturliðasyni, sími
30900, og Grétari Ingvasyni, sími 32000.