Morgunblaðið - 07.05.1971, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 1971
Hverogerði — Hveragerði
Ung, reglusöm hjón með tvo drengi, óska eftir góðu húsnæði
á leigu í minnst eitt ár.
Góðri umgengni lofað.
Upplýsingar i Reykjavík í síma 85194 næstu daga.
Slottlisten
Tökum að okkur þéttingu á opnanlegum gluggum, útihurðum
og svalahurðum.
Þéttum nær 100% g?gn vatni, dragsúg og ryki.
Varanleg þétting.
ÓLAFUR KR. SIGURÐSSOIM OG CO.,
Suðuriandsbraut 6, sími 83215.
Sölumannadeild
Hádegisverðarfundur
Næsti fundur deildarinnar verður haldinn í Átthagasal Hótel
Sögu laugardaginn 8. maí klukkan 12.15.
Gestur fundarins verður
ERLENDUR EINARSSON, forstjóri,
og nefnir hann erindi sitt: SiS og sölumálin.
Félagar eru hvattir til að bjóða gestum.
Athugið! Síðasti fundur vetrarins.
STJÓRNIN.
Olíugeymar
Kauptilboð óskast í 7 olíugeyma, staðsetta
við Reykjavíkurflugvöll.
Ennfremur 840 m af 8" leiðslum og 1950 m
af 4" leiðslum.
Hlutatilboð eru heimil.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri,
Borgartúni 7.
Tilboð verða opnuð 21. maí nk., kl. 11.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 10140
Lögtaksúrskurður
Hér með úrskuiðast lögtak fyrir fyrirframgreiðsl-
um þinggjalda ársins 1971, hjá þeim gjaldendum,
sem eigi hafa innt greiðslur af hendi á mánaðar-
legum gjalddögum, skemtanaskatti og miðagjaldi,
svo og söluskatti af skemmtunum, gjöldum af
innlendum tollvörutegundum, matvælaeftirlits-
gjaldi, gjaldi til styrktarsjóðs fatlaðra, söluskatti
fyrir janúar og febrúar 1971, svo og nýálögðum
viðbótum við söluskatt fyrri ára, lesta-, vita- og
skoðunargjaldi af skipum fyrir árið 1971, skipu-
lagsgjaldi af nýbyggingum, almennum og sér-
stökum útflutningsgjöldum, aflatryggingarsjóðs-
gjöldum, svo og tryggingaiðgjöldum af skipshöfn-
um ásamt skráningargjöldum, bifreiðaskatti, vá-
tryggingagjaldi fyrir ökumenn, gjöldum samkvæmt
vegalögum, umferðabreytingagjaldi, vélaeftirlits-
gjöldum, öryggiseftirlitsgjöldum, rafstöðvargjöld-
um og rafmagnseftirlitsgjöldum.
Lögtök fyrir gjöldum þessum geta farið fram að
liðnum átta dögum frá birtingu úrskurðar þessa
ef ekki hafa verið gerð full skil fyrir þann tíma.
Lögtökin fara fram á kostnað gjaldenda en ábyrgð
ríkissjóðs.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
29 april 1971,
Sigurgeir Jónsson.
— Hafnarbréf
Framhald af bls. 5.
leifar af henni sáum viS félagar
daginn eftir að við komum hing-
að. Ég tel það hafa verið sam-
hljóða álit okkar, að hið skásta
er við sáum þar, hafi naumast
tekið fram því er lélegast mætti
teljast á sýningu okkar, heldur
taki sýning okkar henni langt
fram. Slíkt væri náttúrlega hæp
ið að fá viðurkennt opinberlega
í henni Höfn, nú.
Einn Englendingur hér, góð-
viljaður okkur, sagði: Þið þurf-
ið að fá árásir á sýninguna, þá
verður hún ákaflega vel sótt.
Ekki hef ég þó trú á, að t.d.
gagnrýnin í Politiken, eða
sleggjudómurinn, sé skrifaður
með það fyrir augum að auka
aðsókn að sýningu okkar. Mér
er sagt hér á Karlottuborg, að
hvenær sem listsýning sé hér í
byggingunni, fái hún skammir í
Politiken, áþekkar þeim, er við
fengum þar. Afgreiðsla gagnrýn
anda Politiken á sýningu okkar
virðist gerð með mikilli gremju
eða geðvonzku og hann setur
alla, aðra en Kjarval, í einn og
sama hóp, Kjarval gersamlega
vansæmandi, án þess að athuga
hið minnsta, að Dönum mundi
veitast erfitt að tilgreina verk
lifandi danskra listamanna, er
þyldu fyllilega samanburð við
verk á sýningu okkar eftir t.d.
Ríkarð, Magnús Á. Árnason og
jafnvel fleiri. (Ég sleppi málur-
unum, af því að ég er einn
þeirra.)
Ekki er hægt að segja, að að-
sóknin hafi farið fram úr von-
um, en hefur þó verið vel við-
unandi, jafnvel ágæt á danska
vísu, er mér tjáð. Til okkar hef-
ur vissulega komið margt lista-
fólk og skólafólk og látið í ljós
hrifningu yfir sýningunni. Jafn
vel heilar bekkjadeildir ungs
fólks hafa komið og lýst gleði
sinni. Sumir hafa komið mörgum
sinnum.
Af félögum mínum er það að
segja, að Pétur Friðrik og Ragn
ar Páll, listmálarar, eru farnir
til Þýzkalands, ásamt konum sín
um, Magnús Á. Árnason er rétt
farinn til Sviþjóðar og Noregs,
þar sem honum verður fagnað
vel, en eftir sit ég hér í Höfn,
þar til sýningunni lýkur, og
rifja upp fyrri kynni mln af
borginni við sundin sólhýru, eins
og Matthías kallaði þau, og bæti
einhverju af nýrri þekkingu við.
Selzt hafa þegar nokkrar
myndir, eftir þá Ragnar Pál og
Jón Jónsson og væntanlega ein
eftir hvorn okkar Magnús Á.
Árnason.
Frá því er við komum hingað
til Hafnar, hefur skaparinn ver
ið að hjálpa fólkinu til þess að
búa sig og borgina undir vorið
og sumarkomuna, með þvi að
láta sólina, blessaða, baða allt í
geislum sínum hvern einasta dag.
Hann má því eiga það, blessað-
ur skaparinn, að hann hefur tek
ið okkur vel.
Þótt eitthvað af austan-næðingi
hafi verið að flækjast fyrir sól-
skininu, undanfarið, er enginn
vandi að hitta fyrir gott fólk,
hér sem annars staoar, — og
mjög áberandi finnst mér, hve
miklu minna ber hér á hippalýð
og ókrjálega klæddu fólki held-
ur en þegar ég var hér fyrir
hálfu öðru ári, hvað sem veld-
ur. Litið hef ég þó enn getað far
ið á ýmsa menningarstaði borg-
arinnar, en ánægjulegur viðburð
ur varð hér á föstudagskvöldið,
er hinn ungi og efnilegi landi
okkar, Gunnar Kvaran, hélt hér
hljómleika fyrir þétt setnu húsi.
Þeim atburði munu hinsvegar
aðrir skýra nánaf frá.
Sé hins vegar skyggnzt undir
yfirborðið, er óneitanlega ýmis-
legt meira en Htið gruggugt í
borgarlífi Káupmannahafnar,
svo gruggugi, áð ég leiði hjá
mér að minnast á það. Höfn
virðist orðin að allra þjóða mark
aðstorgi á tveimur eða fleiri
hæðum undir þeirri efstu. En
ekki meira um það, að sinni.
Þurfi einhver heima að eiga
erindi við mig, á meðan ég verð
hér, skriflega eða munnlega, er
aðsetur mitt daglega:
Charlottenborgudstillingen
Nyhavn 2,
1051 Köbenhavn K.
og sími: Minerva 370.
Beztu kveðjur heim.
Mánudag, 26. apríl ’71.
Freymóður Jóhannsson.
Kona óskast
til starfa við mötuneyti á vinnustað.
GLIT HF., SÍMI 85411.
Hreppstjórinn d Hrounhomri
Eftir Loft Guðmundsson.
Leikstjóri: Margrét Björnsdóttir
á Neistastöðum.
Sýning í félagsheimilinu á Seltjarnarnesi í
kvöld kl. 8.30. Aðgöngumiðar við innganginn.
Ungmennafélagið Baldur,
Hraungerðishreppí.
r 1
r L LUDVH STORI r* 1 \Á
L J
Nýjar gerðir af speglum
teknar upp i dag.
SPECLABUÐIN
Laugavegi 15. Sími: 1-96-35.
Verzlun okkar, sem við höfum starfrækt í 50 ár í Pósthússtræti 2,
Eimskipafélagshúsinu, er nú flutt að Laugavegi 24, þar sem verzlun-
in hefur einnig verið undanfarið.
Höfum nú sem áður mjög fjöl-
breytt úrval af allskonar
skófatnaði
Um leið og við þökkum viðskiptin á liðnum áratugum, vonum við að
mega njóta þeirra framvegis á Laugavegi 24.
£jívann6ergs 6rœbur