Morgunblaðið - 07.05.1971, Síða 21
MORGUNBL/AÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 1971
21
Minnzt hjónanna:
Margrétar Jónsdóttur
°9 Kristmanns
Eyleifssonar
Þegar við komumst á þann ald-
ur, að hafa tilhneigingu tiil að
lita yfir gengnar götur, hlýtur
það næstum að vekja furðu hve
mörgum við höfum mætt á veg-
inum. Við hlið okkar hafa stað-
naemazt ótal manneskjur lengur
og skemur. Flestar síðan fjar-
lægzt og horfið sjónum og lifað
aðeins sem óljós minning, sumar
reyndar alveg gleymdar.
Aftur á móti er nokkur hóp-
ur, sem alltaf hefur verið í sjón
máli. Það sem i upphafi voru
ókunnar manneskjur urðu brátt
kunningjar og vinir. Ósjálfrátt,
en alveg eðlilega rann þeirra
lífsfarvegur við hlið okkar eig-
in. Þeirra sorg og þeirra gleði
varð okkar. Ég sem þetta skrifa,
hef oft hugsað um hve skemmti-
leg staðreynd þetta er. 1 mínum
sjónhring hafa margar mætar
manneskjur átt langa og góða
dvöl. Tveggja þeirra vii ég minn
ast í þessum línum, hjónanna
Margrétar Jónsdóttur og Krist-
manns Eyfleifssonar, Holtsgötu
18. Kristmann andaðist þann 21.
febrúar 1967, Margrét 1. mai s.l.
og er tii moidar borin i dag.
Margrét var fædd 3. ágúst
1878 að vestra Fíflholti í Vestur-
Landeyjum. Foreldrar hennar
voru Þuríður Steinsdóttir og Jón
Brandsson, sem þar bjuggu, bæði
ættuð úr Landeyjum. Margrét
ólst upp með foreldrum sinum til
fermingar en upp úr þvi fór
hún í vinnumennsku svo sem þá
var tíðast. Um aldamótin fluttist
hún til Reykjavíkur og vann
þar ýmis störf. Á sumrum mun
hún þó oftast hafa farið i kaupa
vinnu. Að minnsta kosti veit ég
með vissu að hún vistaði sig eitt
sumar í Borgarfirði eystra.
Kristmann Eyleifsson fæddist
á Akranesi 4. júlí 1881. Foreldr-
ar hans voru Oddný Jóhannes-
dóttir og Eyleifur Eyleifsson,
* '^r--
um Baldri frá Reykjavík. Leiðir
sjómanna liggja oft víða og eitt
sumar, laust eftir aldamót lágu
leiðir Kristmanns austur á Borg
arfjörð. Þar var þá í kaupavinnu
jstúlkan úr Landeyjum, sem áður
er getið. 18. febr. 1911 voru þau
gefin saman í hjónaband, og
reistu bú i Reykjavík, nánar til
tekið i Vesturbænum. Fyrst að
Gíslaholti sem nú mun vera Rán-
argata 44, síðan að Garðbæ sem
nú er Brekkustígur 7. Um 1928
réðust þau í að reisa myndarlegt
steinhús að Holtsgötu 18, eitt
fyrsta steinhús þar á holtinu.
Þetta heimili sitt gerðu þau svo
vel úr garði, að glöggt mátti
greina dugnað húsbónda við að-
drætti og ráðdeild. húsfreyju.
bæði ættuð úr Borgarfirði. Þeg-
ar Kristmann var 9 ára gamall,
drukknaði faðir hans. Oddný
varð þá að bregða búi og dreng
urinn fór til vandalausra.
Snemma mun hafa verið sýnt að
frekar hneigðist hugur hans til
sjávar en sveitar, og 12 ára gam
all hóf hann sjósókn, og er hon-
um óx fiskur um hrygg varð
hann dugandi sjómaður. Á þeim
árum voru það skúturnar sem á
höfunutm ríktu, en þegar seglin
urðu að víkja fyrir vélunum var
Kristmann ffljótur að átta sig
sem endranær og gerðist togara
sjómaður. Hann var á ýmsum
skipum, en um 20 ár á togaran-
Þau eignuðust 3 syni, Guðjón
giftan Kristínu Þorleifsdóttur,
Gunnar giftan Árdísi Sæmunds-
dóttur og Ólaf giftan Ingibjörgu
Magnúsdóttur.
Þegar synirnir voru í æsku,
var Kristmann sem fyrr segir,
sjómaður. Kom það þvi í hlut
Margrétar að ala daglega önn
fyrir þeim. Lífi sjómannskonunn
ar hefur ætið fylgt mikil ábyrgð,
og þeirri byrði lyfti Margrét
með sóma. Hún bjó þeim vistlegt
heimili, sem hún prýddi högum
höndum, enda einkar sýnt um
aliar hannyrðir og undravert
hve miklu hún afkastaði á því
sviði. Hún var mjög bókhneigð
og minnug á hvers konar fróð-
leik, og stjómaði húsi sínu a£
myndugleik og festu. Að laun-
um fékk hún það hnoss, sem
hverja konu dreymir dýrast —
ástrika umhyggju eiginmanns og
sona.
Þegar Kristmann hvarf úr röð
una togarasjómanna, gerðist hann
skipverji á mótorbátnum Dag-
nýju, sem var í póstferðum i
Hvalfirði og fiskiróðrum. Þar
var hann í 12 ár. Alils munu sjó-
mannsár hans hafa verið milli 40
og 50. Hve lengi hann var í sama
skipsrúmi lýsir betur en mörg
orð hve farsæll hann var í starfi
og umgengni. Ég kynntist Krist-
manni um 1940, en þá hafði
hann nýlega hætt sjómennsku.
Ég laðaðist mjög að þessum
roskna manni, sem réð yfir svo
skemmtilegum frásagnarmáta.
Hann var hvergi spar á sterk
lýsingarorð, ör í lund og ómyrk-
ur í tali. En ef ég ætti að lýsa
Kristmanni Eyleifssyni með einu
orði, myndi ég þó velja orðið
ljúfmenni. Síðustu árin, átti
hann við vanheiilsu að stríða og
varð iðulega að dvelja á sjúkra-
húsum, síðast á Vifilsstöðum þar
sem hann varð aðnjótandi um-
hyggju hins dáða læknis Helga
Ingvarssonar.
Eftir að Margrét varð ekkja,
bjó hún í húsi sinu í skjóli son-
anna. Með óvanalegum kjarki
barðist hún við ellina, þar til á
síðasta ári að hún varð að flytj-
ast á sjúkrahús.
Þessi sæmdarhjón eru gengin,
eftir lifa góðar minningar hjá
vinum og góðir eiginleikar í niðj
unum.
Hanna Haraldsdóttir.
Njósna-
hnöttur
Kennedyhöfða, Flórida, 5. maí.
— AP-NTB —
BAN D ARÍSKIR vísindamenn
skutu í dag á ioft nýjum njósna-
linetti á braut umhverfis jörðu.
Er verkefni hnattarins að fylgj-
ast með eldflawgatilraunum í
Sovétríkjunum og Kína, fylgjast
með kjarnorkusprengingum, og
senda upplýsingar tafarlaust ef
til þess kemur að langdrægum
eldflatigum verði skotið áleiðis
til Bandaríkjanna.
Núverandi ratsjárkerfi banda-
riska hersins hefur fylgzt með
eldflaugatilraunum i Sovétríkj-
unum og Kína, og er reiknað
með að það geti sént aðvaranir
um hugsanléga eldflaugaárás
stundarfjórðungi áður en eld-
flaugarnar gætu hitt skotmörk
sín. Gæfist þannig varnarsveit-
unum bandarísku stundarfjórð-
ungs fyrirvari til að skjóta á
loft varnarflaugum. Nýja njósna
hnettinum er ætlað að tvöfalda
þennan fyrirvara þannig að
upplýsingar um hugsanlega árás
ættu að berast hálfri klukku-
stund fyrir áætlaðan lendingar-
tíma eldflauganna.
Njósnahnötturinn vegur rúm
800 kíló og er reiknað með að
hann fylgi snúningshraða jarð-
ar þannig að hann haldist í um
38.600 kílómetra hæð yfir Suð-
austur-Asíu. Upplýsingar sínar
sendir hnötturinn til stöðvar í
Ástralíu, en þaðan verða þær
sendar samstundir til Banda-
ríkjanna.
Grafið fyrir grunni
Skálholtsskóla
í GÆR var byrjað að grafa fyr
ir grunni lýðháskóláns að Skál
holti. Að sögn Þórarins Þórarins
sonar, fyrrverandi skólastjóra á
Eiðum, eru byggingaframkvæmd
lr í sumar miðaðar við það, að
skólahúsið og heimávistir verði
komnar undir þak fyrir næsta
vetur, en frestað byggingu á
bókhlöðu og einni álmu heima
vistai innar. Skólinn á að taka
til starfa haustið 1972 standist
allar áætlanir.
©va
.eva
eva
EVA OPNAR I DAG
Paradís evudætra
Eva freistar sem fyrr
Evu-klæði eru alltaf í tízku
Tízkuverzlunin EVA
Laugavegi 28b II hæð
Sími 20625
eva
m
m
eva