Morgunblaðið - 11.06.1971, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. JÚNl 1971
;
M J 7 Ití LA LEHwA \
MJAIAIt"
t=^-25555
(^ 14444
wmifí
BILALEIGÁ
HVERFISGÖTU 103
V W Seodrférðabif re»ð-VW 5 rranrsi-VWsveínvagn
YW 9manna-Landrover 7manna
TITIA
BÍLALEIGAN
Bergstaðastræti 13
Sími 14970
Eftir lokun 81748 eða 14970.
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
T? 21190 21188
BÍLASALAN
HLEMMTOBGI
Sími 25450
BÍLALEICA
Keflavík, sími 92-2210
Reykjavik — Lúkasþjónustan
Suðurlandsbraut 10, s. 83330.
Bilaleigan
SKULATUNI 4 SÍMI15808 (10937)
LEIGUFLUG
FLUGKENNSLA
FLUGSTÖÐIN HF
Símar 11422. 26422
§ Hvar í skrambanum er
þetta Hondúras?
Ema Ósk Ámadóttir skrifar:
„Velvakandi!
Það er einkennandi fyrir
skrítilegheitin í mannaráðn-
ingum menntamálaráðherra,
að þegar tvo fréttamenn vant-
ar við sjónvarpið, lætur hann
E. plata þar inn einum vinstri
f ramsókn armanni (dömunni)
og einum kommúnista (herran-
um). Að sjálfsögðu var ekki
leitað til sjálístæðismanna eða
Alþýðuflokksmanna og engar
minnstu kröfur gerðar um
reynslu eða menntun; vírtist
jafnvel vera kostur að hafa
aldrei komið nálægt frétta-
mennsku, hvað þá að skemma
sig á þvi að vera íélagsbund-
inn í Blaðamánnafélagi Islands.
Svona geta sumir orðið hrædd-
ir við sumá (Vegna hvers?
A-ha!).
Nú er fólk búið að sjá
frammistöðuna hjá nýliðun-
um! Nú á þriðjudagskvöldið
hélt ,,kommissarinn“ því t.d.
fram, að Hondúras væri í
Suður-Ameríku. Hefur hann
ekki einu sinni landspróf í
landafræði?“
biláleigan
AKBBAVT
car rental service
8-23-át
sendutn
Ekki er nú bréfið of kurteis-
lega orðað, sízt niðurlagið. En
stúlkan stendur sjálfsagt fyrir
sínu.
^ Loksins!
I»á fyrirsögn setur Dagný
Jónsdóttir í Hafnarfirði bréfi
sínu og skrifar síðan:
„Sjómannadaginn 1971.
Já, loksins kom að því, að
sjómannskonunnar var minnzt.
Tími til kominn að minn-
ast þess, að engin kona í þjóð-
félaginu hefur meira á
herðum sér en sjómannskonan,
og á hún miklar þákkir og
viðurkenningu skilið. >ökk
hafi Helgi Hallvarðsson fyrir
að minnast sjómannskon-
unnar í ræðu sinni í dag.
Sjómannskona".
0 Græni garðurinn
Ólafur E. Björnsson
skrifar:
„Heiðraði Velvakandi!
Einhver skrifaði yður á dög-
unum um sneiðinguna neðan af
Stjórnarráðstúninu og flutn
ing myndastyttnanna af
Hannesi ráðherra Hafstein og
Kristjáni konungi stjórnar-
skrárgjafa. Vel get ég fallizt
á flestar skoðanir hans og rök-
semdir, en illa snerti mig, þeg-
ar hann tæpti á því, að brjóta
mætti steinvegginn umhverfis
Alþingishússgarðinn (Tryggva
garð) og „opna“ hann, aðallega
til suðurs, muni ég rétt.
f>að er nú einu sinni svo, að
það, sem gefur þessum friðsæla
og unaðslega gróðurreiti i
hjarta Reykjavíkur einna mest
gildi í mínum augum og ann
arra tryggra vina hans, er
einmitt steinveggurinn. Fyr-
í Vesfurborginni
er til sölu vegna brottflutnings úr borginni.
3/o herb. jarðhœð
um 90 ferm. Ný eldhúsinnrétting og sjálfvirk þvottavél inn af
eldhúsi. Ný teppi. Laus strax ef óskað er. Otb. 600-—700 þús.
Nánari upplýsingar gefur
Nýja fasteignasalan, Laugavegi ’2
Sími 24300. Utan skrifstofutíma 18546.
Hestamannafélagið Máni Murnesjum
Kappreiðar félagsins verða haldnar sunnudaginn 20. júni á
nýrri 800 M BEINNI BRAUT á Mánagrund við Garðveg.
Keppnisgreinar: 250 m skeið, 250 m folahlaup. 300 m stökk,
800 m brokk og 800 m stökk.
1. verðlaun 8000 KR.
Þá verður góðhestakeppni í A og B flokki.
Þátttaka tilkynnist Guðfinni Gíslasyni, sími 92-231C og Einari
Þorsteinssyni í síma 92-1681.
Lokaskráning kl. 13 lofaæfing kl. 20 föstudaginn 18. júní.
STJÖRNIN.
ir nú utan það, að hatm er
fallegur í sjálfum sér og til-
heyrir húsinu (líklega hlaðinn
um leið og húsið var reist), þá
veitir hann skjól gegn skark-
ala borgarlifsins, ysi þess og
þysi. Það er gott að geta stung-
ið sér inn í iðjagrænan garð-
inn á sumrin, komandi þreytt-
ur utan úr hávaðanum og um-
ferðinni í Miðbænum. Þama er
lágvært hljóðskraf fólks á
bekkjunum, því að það er eins
og gestir í garðinum skynji
ósjálfrátt, að þama á að vera
hljóðlátur hvíldarstaður, þar
sem ekki má hafa hátt, og tala
þess vegna lágt saman eða
hvíslast á. Sem betur fer, er
eins og fáir viti af garðinum
þarna í miðju borgarinnar, og
þess vegna er oftast fámenn.t
þar inni. Væri veggurinn brot-
inn, breyttist þetta allt. Garð-
urinn yrði aldrei samur aftur.
Annað mál er, að væri sam-
þykkt að leggja bifreiðastæði
þingmanna (gengt Þórshamri i
Templarasundi) undir garðinn,
eins og bréfritari leggur til og
mér finnst ágæt hugmynd,
þyrfti að brjóta suðurvegginn,
en skilyrðislaust æfeti að hlaða
nýjan meðfram Vonarstræti.
Ófært er að hafa opið inn í
slikan rósemdar- og friðargarð.
0 Blái brunahaninn
Svo er enn eitt merkilegt við
steingarðinn. Austan undir
honum stendur eini blái bruna-
haninn i Reykjavík.
Velvakandi! Ég hef ekki
skrifað yður áður og geri það
sennilega ekki aftur. En vegna
þess að mér þykir vænt um
garðinn, þætti mér vænt um,
það að þér birtuð þetta.
Virðingarfyllst,
Ólafur E. Bjömason".
Þetta er satt. Hann er blár!
Velvakandi hefur gáð að þvl.
Ætli þétta sé ekki eini blái
brunahaninn í heiminum?
(Góðu, farið þið nú ekki að
mála hann gulan og rauðan,
þótt þið lesið þetta, kæru
slökkviliðsmenn. Lifi undan
tekntngin!).
0 Guli kafbáturinn
Þórðtir Þórðarson skrifar:
„Sæll, Velvakandi.
Viltu gera svo vel að skila
þvi til þeirra í útvarp-
inu, að lögin eftir bítlana
séu enn i góðu gengi hjá öllu
smekkfólki á tónlist, þótt þeir
hafi slitið samstarfi sin á miili.
Af hverju heyrast gömlu, góðu
bítlalögin svona sjaldan? Til
dæmis i morgunútvarpinu?
Hvað skyldi eiginlega vera
langt síðan lag eins og „Guli
kafbáturinn" heyrðist í frum-
útsetningu?
Þessi ómerkilega lagavella
úr Hárinu ætlar allt að
yfirkeyra. Eins og hún er nú
frumleg og skemmtileg! Þetta
minnir á, þegar morgunútvarps
mennimir fengu dálæti á þess-
ari simplu grikkjamúsík eftir
Maraþonakis, eða hvað hann
nú hét. Hann komst í "tízku, af
þvi að hann var á móti her-
foringjakörlunum í póli-
tík. Eða þá Jörundarlögin öll
sömun við þennan hrylli-
lega leirburð og vandræðastagl
úr honum Jónasi þingtrúði.
Allt það spilverk 1 morgunút-
varpinu átti' sér nú kannski
eðlilega og bróðurlega skýr-
ingu. Nóg um það.
Jæja. Upp með bítlana!
Þórður Þórðarson."
0 Rauði listinn
Guðni Jónsson skrifar:
„Kæri Velvakandi!
Það var í senn skoplegt og
fyrirlitlegt, jafnvel aumkun-
arvert, að sjá þá svarabræð-
urna, Stefán fréttamann og
Magnús á orðabókarstyrknum
(átti hann ekki að semja þýzk-
sænska orðabók fyrir vissa áð-
ilja í Kaupmannahöfn á styrj-
aldarárunum?) keppast um að
sverja af sér kommúnisma Og
Moskvuþjónkun í sjónvarpinu.
(Þó ekki nasisma). Gamla
kommúnistagrýlan átti að vera
dauð! Halda þeir, að almenn-
ingur sé minnislaus?
Annars er það í sjálfu sér
ágætt, að enginn skuli lengur
þora að standa við það opin-
berlega að vera kommúnisti.
Þetta er orðið skammar-
yrði hjá kommúnistum sjálfum.
Það er i mesta lagi, að þeir
kunna við að taka sér orðið
sósíalisti i munn án þess að
roðna.
En kommúnistamir á lista
Alþýðubandalagsins svonefnda
hafa auðvitað ekkert breytzt,
þótt þeir reyni að hressa upp
á listann sinn með metnaðar-
gjörnum puntudúkkum. Þetta
er gamli, rauði kommúnistalist-
inn. Menn þurfa ekki að skoða
listann lengi eða aðstandendur
hans, áður en þeir gera sér það
ljóst. Þetta eru gömlu rauð-
fasistarnir, bara með útþynnt
an andlitsfarða og daufbleikt
smink að þessu sinni.
Guðni Jónsson".
TIL ALLRA ATTA
L0FTLEIDIR