Morgunblaðið - 11.06.1971, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 1971
Ellert B. Schram:
Straumur unga fólksins \igg-
ur til Sjálfstæðisflokksins
NÚ sem endranœr biðla
stjórnmálaflokkarnir mjög til
unga fólksins, þegar nær dreg
ur kjördegi. Þeim er ljóst, að
ungt fólk getur haft úrslita-
áhrif í þessum kosningum. 1
Reykjavík einni kjósa nú
rúmlega sjö þúsund nýir kjós-
endur í fyrsta sinni í alþing-
iskosningum.
Hvað flokkur hlýtur stuðn-
ing þessa hóps?
Hvert liggur straumurinn?
Ungt fóik hefur í ríkari
mæli en áður kvatt sér hljóðs
og varpað fram nýjum sjón-
armiðum og viðhorfum, lítur
gagnrýnni augum á þjóð-
félagið og lífsbaráttuna, vill
sporna við fótum gegn múg-
sefjun og vélmenningu.
Stjórnmálaflokkarnir hafa
orðið fyrir áhrifum af þessum
viðhorfum, einkum hvað
snertir lýðræðislegri vinnu-
brögð, en allir munu viður-
kenna, að þeirra hafi mest og
bezt gætt í Sjálfstæðisflokkn-
um. Innan flokksins hefur
dregið. úr miðstjórnarvaldi,
framboð eru ákveðin með f jöl-
mennum prófkjörum og mörk
uð hefur verið stefna í þá átt,
að dreifa valdinu í þjóðfélag-
inu út til fólksins sjálfs.
MÁLSVARI
EINSTAKLINGANNA
Þetta þarf engum að koma
á óvart. Sjálfstæðisflokkurinn
hefur alla tíð verið samtök
þeirra, sem viljað hafa hlut
hvers einstaks borgara sem
mestan. Andstæðingar Sjálf-
stæðisflokksins hafa nefnt
þessi sjónarmið staðnaða
íhaldsstefnu, dragbít á um-
bætur. Þau slagorð standast
ekki dóm reynslunnar.
Það, sem hefur laðað mig
að Sjálfstæðisflokknum og
veldur mínu framboði, eru
einmitt hinar gagnstæðu stað-
reyndir. Flokkurinn hafnar
alræði ríkisvaldsins, en hann
er málsvari einstaklinganna,
ekki sízt þeirra, sem miður
mega sín. Andstætt sósíalism-
anum lítur hann hins vegar
ekki á almannatryggingar
sem markmið í sjálfu sér,
heldur tæki, aðferð, til auk-
innar velferðar og betra lífs.
Slík viðhorf eru ekki stefna
stöðnunar.
Sjálfstæðisflokkurinn vill
stuðla að þeirri aðstöðu í
þjóðfélaginu, að allir fái tæki-
færi til áhrifa og ábyrgðar,
hann tortryggir ekki þá, sem
fram úr skara, hann vill við-
urkenna sjálfsbjargarviðleitni,
dugnað og menntun og launa
menn að verðleikum.
Slík stefna er ekki dragbit-
ur á umbætur, heldur stað-
festing á þeim sannindum, að
enginn getur gert meiri kröf-
ur til þjóðfélagsins en hann
gerir til sjálfs sín.
Margt má betur fara í
Ellert B. Schram.
þessu þjóðfélagi, en jafn frá-
leitt er að halda því fram, að
hér séu ekki framfarir, vel-
megun og réttlæti. Slíkt tal er
eingöngu fordæming á þjóð-
inni sjálfri og störfum henn-
ar.
BIAKTSYM
OG frjAlsræði
Ég er sá bjartsýnismaður
að telja mér trú um, að ungt
fólk kunni að meta þá lífs-
hamingju, sem er fólgin í því
að búa í þessu landi. Hvergi
er frelsið og lýðræðið opin-
skárra, hvergi er einstakling-
urinn meira virði, hvergi kom
umst við í nánari snertingu
við ómengaða náttúru, hvergi
er samhjálpin og bróðurhug-
urinn meiri, öfgarnar og spill-
ingin minni.
Hér þykir okkur ölium gott
að lifa.
Slíkt ástand er ekki einum
stjórnmálaflokki að þakka.
En ef Sjálfstæðisflokkurinn
ber ábyrgð á ástandinu í þjóð-
félaginu, eins og andstæðing-
arnir halda óspart fram þessa
dagana, þá getur hann með
góðri samvizku axlað þá
byrði. íslenzkt þjóðfélag er
ekki til að skammast sín fyr-
ir.
Það er vissulega rétt, að
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
verið ráðandi afl í íslenzkum
stjórnmálum og íslenzku þjóð-
lífi um langan aldur. For-
senda þess er ekki sízt sú, að
stefna hans mótast af bjart-
sýni, frjálsræði, jákvæðum
viðhorfum. Ekki neikvæðri af-
stöðu, niðurrifi, úrtölum.
Ég hef þá trú, að straumur
unga fólksins liggi til Sjálf-
stæðisflokksins. Ungt fólk vill
ekki kalla yfir sig ofstjórn
hins opinbera, ungt fólk vill
vera sem mest sjálfs sín ráð-
andi, ungt fólk kann að meta
björtu hliðarnar á lífinu.
Uhgt fólk kýs Sjálfstæðis-
flokkinn.
— Engin kynslóð
Framhald af l>ls. 5.
d. farin skoðunarferð í þjóð-
minjasafnið, Árnagarð og Nor-
ræna húsið. Voru þátittakendur
um 100 manms. Öll þessi félags-
starfsemi er rekin í náimni sam-
vinnu við sjálfboðaliða frá
kii'kjufélögum kvenna i Reýkja-
vlkurborg, Rauða kross konum
og eldri skátum. Er sú s'amvinna
afar athyglisverð og i rauninmi
ómetanleg.
Telja verður mjög æskilegt að
auka þessa félagsstarfsemi. Er
ætlunin að auka hana og ýmiss
komar þjónustu, er jarðhæð íbúð-
arbyggimgarimimar við Norður-
brún, sem áður var nefnd verður
tekin til afnota. Mun þar senni-
lega verða aðstaða til að auka
að mun fjolbreytni félagsstarfa-
ins. Ætlunin er ti;l dæmis að
hafa þar leikfimistima eða ti'l-
sö'gn í líkamsþjál'fun, sem ryður
sér nú til rúms og á mi'kJum
vinsæJdum að fagna hjá frænd-
þjóðum okkar á hinurn Norður-
iöndumum. Ennfremur mun þar
skapast aðstaða tii að hafa smá
sal með hljóðeinan'grun. Verður
þá hægt að uppfylla óskir þeirra
þátttakenda, sem vilja leggja
stund á tungumálanám og einn-
ig þá aðra þætti félagsstarfsins,
sem þurfa ró og næði, svo sem
skákklúbb, frímerkjaklúbb, bók-
menntaklúbb, kvikmyndaklúbb,
tón'lisitarkiúbb og svo framvegis
Síðan en ek'ki sízt vona ég því,
að nú verði hægt að koma á
fót aðstöðu ti'l að auka þann þátt
félagsstarfsins, sem ætla mætti,
að karlmenn hefðu mestan
áhuga á, þar sem sumir þeirra
klúbba, sem nú eru startfandi, t.
d. allt föndur eru vinsælii með-
al kvenna. Vonandi verður nú
opnuð smíðasitofa með ötfflum
nauðsynfegum tækjum til afnota
fyrir þá, sem þes's ósika.
Með því að þæta hag elztu
kynslóðarinnarí dag, reynum við,
sem yngri erurn, að greiða upp
í þá steuld, sem áldrei verður að
fullu greidd.
Eruð þér
Með Flugu í Höf ðinu
Ef ekki
þá verðið þér að fá hana
"Mk /m x
\/l <Cká\ h lllfTll
■ílTT5í5!_„'';;
í HnfAinu
»tt notkun þeirr
'n
Bókin um fluguveiði er komin í bókaverzlanir
Bókaútgáfa GuðjónsÓ