Morgunblaðið - 11.06.1971, Page 17
Hér sést yfir þéttskipaffan salinn í Laugardalshöllinni í gærkvöldi.
Vinnum góðum málstað sigur
Framliald af bls. 1.
dómsmálaráðherra. Auk for-
sætisráðherra fluttu ávörp:
Geir Hallgrímsson, Ellert
Schram, Ragnliildur Helga-
dóttir, Gunnar Thoroddsen og
Pétur Sigurðsson.
Geir Hallgrímsson, varafor-
maður Sjálfstæðisflokksins, flutti
fyrsta ávarpið og sagði m. a.:
„Valið er einfalt; viljum við
halda áfraim á þeirri braut, sem
hefur reynzt vel, eða viljum við
óvÍ3su.“ Geiir Hallgrímiason ræddi
síðan um stefnu Sjálfstæðis-
flokksiins, um einstaklingsfrelsið,
andleg og efnaleg verðmæti ein-
staklingamna, man'nhelgina. Síð-
an sagði hann að lokum: „Göng-
um héðan út í kvöld staðráðnir
í að vintna góðum málstað sigur.“
Ellert Schram sagði m. a., að
það væri ekki spumimg um það,
hvort sjálfstæðismenn væru í
sókn; það væri spurming um það,
hversu mikil sú sókn væri. For-
senda sóknarinnar væri stefnain
sjálf, sjálfstæðisstefnan. Þessar
kosningar gætu orðið hápunktur
þeirrar sóknar, sem Sjálfstæðis-
flokkurinn hefði verið í á undan
förnum árum.
Ragnhildur Helgadóttir gerði
að umtalsefni málefni aldraðra.
Hún sagði, að með nýjum lög-
um, er samþykkt hefðu verið á
síðasta þingi hefði ellilífeyriir
verið ákveðinn 1200 kr. á mán-
uði. Vegna persónufrádráttar
væri ellilifeyririnn nú í rauii
skattfrjáis og sjálfsagt væri að
fella niður skatta af ellilífeyri,
þegar hann myndi hækka á
næsta ári.
Gunnar Thoroddsen ræddi um
stjórnmálaskrif Framsóknar-
flokksins og minnti á ummæli
Tímans, er hann sagði, að þjóð-
hollusta Framsóknarflokksins
hefði náð hámarki, þegar Her-
mann Jónasson sagði af sér.
Undir þetta tökum við, sagði
Gunnar. Síðan sagði hann:
„Stefna okkar sjálfstæðismanna
stendur á gömlum merg, en hún
er jafnan fersk og ný.“
Pétur Sigurffsson sagði m.a.,
að styrkur Sjálfstæðisflokksins
væri fólginn í því, að han-n
væri spegilmynd þjóðarinnar,
flokkur allra stétta. Flokkurinn
hefði styrkzt og hlotið trúnað
allrar þjóðarinnar.
Jóhann Hafstein flutti loka-
orðin á fundinum og ræddi um
sliörf Sjálfstæðisflokkains og
andstæðinganna og mælti að lok
um: „Hér er vagga hinmar ís-
lenzku sjálfstæðisstefnu. Kjós-
andinn í Reykjavík hefur ætíð
verið sverð og skjöldur sjálf-
stæðisstefnunnar. í sameinuðu
átaki skulum við á sunnudag-
inn kemur treysta öryggi og
framtíð Reykjavíkur og íslenzku
þjóðarinnar allrar í skjóli vax-
andi gengis og sigurs Sjálfstæð-
flokksins.“
Oktett skipaður: Ásgeiri
Hallssyni, Garðari Cortes, Há-
koni Oddgeissyni, Kristni Halls-
syni, Margréti Eggertsdóttur,
Ruth Magnússon, Svölu Nielsen
og Þuríði Pálsdóttur söng is-
lenzk þjóðlög í útsetningu Jóns
Ásgeirssonar við undirleik
Krystyna Cortes. Jörundur
skemmti og söngtríóið „Lítið
eitt“ lék nokkur lög. í upphafi
fundarins lék Lúðrasveiit Reykja
víkur.
Svipmynd frá kjósendafundi D-listans í gærkvöldi.
I