Morgunblaðið - 11.06.1971, Side 20
U , ........ ........■.-_______________-_____________________________
I 20 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. jUNl 1971
BHÆUÐBOHG AUGLÝSIR
Munið veizlubrauðið okkar í stúdentaveizluna.
Coctailpinnar, kaffisnittur, % sneiðar og brauðtertur.
Pantið tímanlega í síma 18680 og 16513.
BRAUÐBORG, Njálsgötu 112.
KOSNIMGAHÁTÍÐ
r
i
HAFNARFIRÐI
SJÁLFSTÆÐiSMENN í HAFNARFIRÐI efna til kosninga-
hátíðar í Skiphól í kvöld klukkan 21.oo
Matthías
Geir
Elín
Dagskrá:
ÁvÖrp flytja:
Geir Hallgrímsson, vara-
form. Sjálfstæðisfl., Elín
Jósepsdóttir frú, Matt-
hías Á. Mathiesen.
Skemmtiatriði:
Sænska óperusöngkonan
Suzanne Brenning, sem
nú syngur á íslandi
í Zorba.
LÍTIÐ EITT, hafnfirzka
þjóðlagatríóið.
ÓMAR RAGNARSSON
með nýjan kosningaþátt.
Dans
Suzanne
Aðgöngumiðar afhentir í kosningaskrifstofu Sjálfstæðisflokksins
í Hafnarfirði og öðrum kosningaskrifstofum í Reykjaneskjördæmi.
Sjötugur:
Síra Benjamín
Kristjánsson
' í dag, 11. júni, verður einn
umsvifamesti ag oft umdeildasti
prestur islenzkrar klerkastéttar
samtíðarinnar, sira Benjamín
Kristjánsson fyrrv. prófastur,
sjötugur. Una áratuga skeið hef-
ir hann yerið.. sískrifandi, ag
ætiíð staðið í fylkingarbrjósti
gegn hverjum þeim, er vegið hef
ir að kirkju og kristni, og jafn-
íramt hefir hann staðið á verði
gegn þröngsýni og ortodoxiu,
hvaðan sem þær hafa skotið
upp kodiinum, þvi að kristni
síra Benjamíhs ér víðsýn og
miQd. Víðtæik þekking hans og
meðlfædd lyndiseinkunn hefir
skaipað hónum þá afstöðu.
Strömg réttlætisikennd og sann-
teiksásí hefir knúið hann til bar
daga, þótt hann í eðfli sínu sé
friðsamur maður og mildur. En
þegar á vígvöllinn kemur er
hann bæði vígfimur og stórlhögg
ur, svo að ýmsum hefir þótt nóg
um.
S4ra Renjamín er fæddur á
Ytri-Tjörnum i Eyjafirði 11.
júní 1901. Að honum standa ey-
fjrzkar bændaættir, og eru í ætt
um hans góðir búhöldar, grernd
ir ag margir stórtorotnir i skapi.
Hann varð stúdent 1924. Settist
hann þá I guðfræðideiid Háskól
ems, en þó hygg ég að heimspeki
og sagnfræði hefðu eigi siður
verið að skapi, ag kandídat
varð hann 1928. Síðan var hann
um nakkurra ára skeið prestur
Sambandssafnaðar i Winniþeg
og tók þá mikinn þátt I félags-
Mfi, einkurn þjóðræknismálum,
Vestur-lslendinga, en 1932 hvarf
hann til heknabyggðar sinnar,
er honum voru veitt Grundar-
þing i Eyjafirði, er hann þjón-
aði þar til fyrir fáum árum, að
hann fluttist til Reykjavikur.
Sat hann lengst þess tóma á
Ytra-Laugalandi. Hann kvæntist
1928 Jónínu Björnsdóttur,
hinni ágœtustu konu. Sköpuðu
þau hjón I sameiningu hið fag-
ursta heimili, sem víðkunnuigt
var fyrir hibýlaprýði, rausn og
menningarbrag, er þau hjón
voru samhent um. Var það ein-
róma dómur allra hinna mörgu,
er þaú sóttu heim, að heimili
þeirra væri fágætur menningar-
reitur, ræktaður af hiýhug,
risnú og víðtækri menningu hús
bændanna. Á meira en þriiggja
áratuga prestsskap vann sira
Benjamín margt utan kirkju að
félags- og menningarmálum
sveitár sinnar, sem ekki verður
hér rakið, en ekki má þó gleyma
þeim mi’kla skerf, er þau hjón
bæði lögðu til Húsmæðraskólans
á Laugalandi, bæði í kennslu og
marglhiáttaðri umsjá. Ekki lét
hann þó prestsstörfin sitja á
hakanum, fórust bonum þau öll
úr hendi með hinni mestu prýði,
sem vænta máitti um jafnmikinn
andans mann og trúmann sem
hann er.
Ég gat áður um baráttumann
inn sira Benjamín, en miklu
stærri verður þó sá hlutur rit-
starfa hans, e.r hann hefir lagt
til fræðiiðkana, en öðrum þræði
hafa fræðistörf tekið hug hans,
og eru afköstin furðu mikil
á því sviði, sem er þó einkum ís
lenzk mannfræði ag ættfræði.
Tvær bækur eyfirzkra sögu-
þátta hefir hann gefið út, ætt-
artölurit þans. í handriti eru
géysimikil', en lengst munu þó
Vestur-íslenzkar æviskrár halda
nafni hans á ioft í þeim fræð-
um. Af þeim eru komin út þrjú
bindi, og hið fjórða komið í
prent.un, auk mdkils safns til
fleiri binda. Mér er persónulega
feunnugt um hviMka ótoemju
vinnu síra. Benjamin hefir lagt í
þetta verk, þar eð ég vann með
honum að söfnun efnis í fyrstu
toíndin, og hefi fylgzt með þvi
síðan. Mundi flestum meðai-
mánni hafa nægt það váðfángs-
éfni eitt tíl starfa, en ekki læt-
ur síra Benjamín sér slikt í aug-
um vaxa, og kemur þar til
óhemju vinnusemi ag vinnu-
hraði, sem þó gengur ekki á
hlut vandvirkninnar.
Á þessutrh tímamótum væri
margs að minnast áf hær háífrar
áldar kynnum, aiit frá þvi við
sátum saman i fjórða bekk
Merinfaskólans í Reykjavík.
Margir okkar bekkjarbræðr-
anna þóttumst ekki allilitíir bóg-
ar i þann tíma, en engum okk-
ar blandaðist hugUr um, að síra
Benjamm bar höfuð og herðar
yfir okkur í þekkingiu á bók-
menntum og ýmsum fræðum.
Kailaði Jakob Smári, kennari
okkar, hann oft í gamni (jhinn
biblíufróða" enda ræddu þeir odDt
saman um hina helgu bók af
skilningi og þekkingu, þar sem
við hinir stóðum á gati. Kornai
þegar í skóla í ijós þeir eðllis-
kostir, sem einkennt hafa hann
æ síðan, óvenjuleg fjölihæfni, —
hann mátti heita jafnvígur á ali-
ar námsgreinar, — afköst og
vinnuhraði með fádœmum, og
hjálpsemi og góðvild, því að tii
einskis manns var betra að leita
um aðstoð við úrlausn erfiðra
verkefna, en jafnframt ötf-
undileysi hans og ijúfmennska. 1
Amerikuferð okkar kynntist ég
enn einum þætti í gerð hans, en
það var hversu skemmtiiégur fé-
lagi og förunautur hamn . er. Ég
gæti haidið lengi áfram um þessa
h-Jiuti, en einhvers Staðar Verðiur
að staðnæim.ast.
í goðsögum fornum var sagt
frá eplum Iðunnar, sem héldu
goðunum síungum. Síra Benja-
mín á þau Iðuriiniarepli, sem ekki
bregðast, hvorkí honúm rié öðr-
um, sem þeirra eiga kost, en það
er mannúð og síMfandi áhugi á
öl’lu, sem mannlegt er.
Margir munu á þessum degi
sækja þau hj’ón heim og senda
þeim skeyti í sdma og huga. En
hlýjastar og f’lestar munu þó
kveðjurnar verða heiman úr
Eyjafirði; þar á hann rætur sín-
ar, og þar hafa þau hjón sáð
fræjum menningar og kristinn-
ar trúar um áratugi.
Steindór Steindórsíton
frá Hlöðum.
Vélsmiðja til sölu
Vélsmiðja með góðum vélum og verkfærum ásamt 4—600
ferm. húsplássi. Mikið athafnapláss. Gott bílastæði.
Upplýsingar í síma 19877 & 32842.