Morgunblaðið - 11.06.1971, Qupperneq 32
RUCIV5incnR
HU~«22480
FÖSTUDAGUR 11. JUNÍ 1971
DflCLECn
Skeiðar
árhlaup
á hverri stundu
YFIRBORÐ Grímsvatna í
miðjum Vatnajökli stendur
mi hærra en það hefur nokk-
urn tíma staðið án þess að
hlaup kæmi í Skeiðará. Má
því búast við miklu hlaupi á
Skeiðarársandi hve«ær sem
er. Þetta kom fram í mæl-
ingaleiðangri Jöklaramnsókna
félagsins á Vatnajökul fyrir
skömmu. Isinn á vatninu
liggur nú 2—3 metrum hærra
en fyrir hlaupið sem varð í
janxiar 1965.
Hlaup verður með þeim hætti
að vatnið, sem safnazt hefur
smám saman í Grímsvatnahvos-
ina, fær útrás neðanjarðar þeg-
ar yfirborðið er komið i vissa
hæð. Tæmist þá þessi stóra
hvos og íshella Griansvatna
hrapar um 70—90 metra, en
þetta mikla vatnsmagn leitar
Framhald á bls. 19 Rússneskur eldflaugakafbátur af „G“-gerð skammt undan suðurströnd Islands. Myndin var tekin í júníbyrjun 1971 af varnarlið-
_____________________ inu. Eldflaugarnar geta borið kjarnorkusprengjur.
Stóraukin ásókn rússneskra
kafbáta og hervéla við ísland
SAMKVÆMT upplýsingum
Atlantshafsbandalagsins hafa
ferðir rússneskra kafbáta,
herskipa og herflugvéla við
ísland stóraukizt síðustu árin.
Ferðir rússneskra kafbáta
hafa aukizt um 400% á sl. 4
árum á Norður-Atlantshafi
og á síðasta ári fóru þotur
varnarliðsins rúmlega 300
sinnum á loft til að hrekja
rússneskar herflugvélar frá
íslenzkri lofthelgi, en árið
1965 um 20 sinnum.
Upplýsingar þessar koma fram
í grein, sem fréttamaður Associ-
ated Press, Fred Coleman, hefur
skrifað og birzt hefur víða um
heim, m.a. í stórblaðinu Washing
ton Post. Coleman starfar nú í
London, en starfaði áður um
þriggja ára skeið fyrir AP í
Moskvu. Hann kom hingað á
EFTA-ráðstefnuna og viðaði þá
m.a. að sér upplýsingum í grein
sina. Hún verður birt í heild i
Morgunblaðinu á morgun.
1 grein Colemans kemur fram,
að Sovétríkin eigi um 350 kaf-
báta og að um 160 þeirra tilheyri
þeim hluta flotans, sem athafnar
sig á Norður-Atlantshafi. Eina
vikuna í maí sáust alls 15 rússn-
eskir kafbátar á þeim slóðum.
Álitið er, að allt að 60% kafbáta-
flotanis séu staðsett á Atlants-
hafinu öllu og flestir þurfa að
fara fram hjá Islandi á leið frá
stöðvum sínum i Murmansk og
nágrenni.
1 grein sinni segir Coleman
m.a.: „Þessi hernaðarmikilvæga
eyja —• nærri miðsvæðis milli
Moskvu og New York — vakir
yfir mikilvægum flug-, skipa- og
kafbátaleiðum yfir Norður-At-
lantshafið. Þar er lykillinn að
vestrænu öryggi, sem Sovétríkin
leynt og ljóst reyna að gera
óvirkan."
Höfundur
stállungans
í heimsókn hérlendis
Philip Drinker og frú um borð í Statendam í gær. — (Ljósm.
Mbl.: Kr. Ben.)
MEÐAL farþega fyrsta
skemmtiferðaskips sumarsins,
Statendam frá Rotterdam,
sem kom til Reykjavíkxir í
gær, var einn af velgjörðar-
mönnum mannkynsins, Banda
ríkjamaðurinn Philip Drinker
— maðurinn, sem fann upp
stállungað. Hann er nú 74
ára; var prófessor við Har-
vard-háskóla í röska fjóra
áratugi, en stállungað fann
hann upp 1928.
„Eruð þið skiðamenin?“
spurði hann, þegar frétta-
menn Morgunblaðsina hittu
hann um borð í Statendam í
gær. Hann sagði skíðaferðir
hafa verið sitt írístundayndi
áður, ,,en nú er ég orðinn of
gamall. Sennilega mymdi ég
hálsbrjóta mig, ef ég stigi á
skíði núma.“
Drinker og kona hans, sem
með honum ferðast nú, sögðu
það lengi hafa verið ósk
þeirra að koma til íslands.
Ekki létu þau af því verða að
fara í lamd í gær, þar sem
prófessorinn er hrumur orð-
imn, „en við sátum á þilfariinu l
og dáðumst að íslenzku fjöll-
unutn," sagði frúin.
Drinker vann að stállung-
anu í tvö ár. „Ég vissi alltaf
að mér myndi takast það,“
sagði hann. Og það kemur
glampi í augu hans, þegar
hanin rifjar þetta afrek sitt
upp. Fyrsti sjúklimgurimm,
sem það bjargaði, var átta
ára gömul telpa, sem var lögð
Framhald á bls. 31.
Dregið í
happ-
drætti
Sjálf-
stæðis-
flokksins
í kvöld
1 KVÖLD verður dregið í hinu
milkla landshappdrætti Sjálf-
Stæðisflokksins — um bílaina
þrjá — hina þrjá glæsilegu fólks-
bíla: Chrysier og Ford-Capri.
Drégið verður seint í kvöld og
sala happdrættismiðanna stend-
ur því í allan dag — og fram á
kvöld í bílunum, em þeir verða í
Bankastræti og Austurstææti. —
Það eru því allra síðustu forvöð
fyrir þá, sem ekki hafa enm náð
sér í miða, að gera það í dag eða
í kvöld.
Framh. á bls. 31
Blóð-
skort-
ur —
BLÓÐBANKINN er fátækur
af blóði um þessar mundir.
Því hafði bankinn samband
við Mbl. í gær og bað fyrir
orðsendimgu til fólks um að^
það gæfi blóð í dag og næstu
daga. Gott getur verið að
eiga innistæður í Blóðbamk-
anum, því að engimm veit
hvenær hann þarf á hjálp
að halda.