Morgunblaðið - 25.09.1971, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 1971
Valur vann FH 21:14
í mjög góðum leik
„Nýliðarnir“ Viðar og Gísli stóðu sig vel
SL. FIMMTUDAGSKVÖLD fór
fram í íþróttahúsi Hafnarfjarðar
vináttuleikur milli Vals og F.H.,
toppiiðanna frá siðasta íslands-
móti í handknattleik. Leikurinn
var í alla staði mjög vel leikinn
og sennilega það bezta, sem lið-
in hafa sýnt svo snemma á
keppnistímabili. Gils Stefánsson
skoraði fyrsta mark leiksins fyr
ir F.H. úr nokkuð þröngri stöðu
af línu. Valsmenn svöruðu strax;
Ólafur Jónsson bezti maður vall-
arins, skoraði með langskoti.
Gisli Blöndal bætir við og Berg-
ur Guðnason skorar úr víti. Sjö
minútuf eru liðnar og staðan er
3:1 fyrir Val. Þá skorar Geir
Hallsteinsson annað mark F.H.
og var það eina mark hans í
þessum leik, fyrir utan mark úr
vítakasti síðar í leiknum. Er
óhætt að segja, að langt er síðan
slíkt hefur komið fyrir í leik
hjá Geir, en hann sýndi þó ágæt-
an leik og var óvenju góður i
vöm. Næst skora Vadsmenn 7
mörk á móti 1 frá F.H. og 23
mínútur liðnar. Eftir þennan
leikkafla var sigur Vals aldrei í
hættu og héldu þeir þessu for-
skoti til leiksloka. í hálfleik va«r
staðan 10:4 og leikurinn endaði
21:14 fyrir Val.
Athygli manna beindist að
sjálfsögðu mikið að nýliðum lið-
anna, þeirra Viðars Simonarson-
ar og Þórarins Ragnarssonar
hjá F.H. og Gisla Blöndal hjá
Val. Um þá er það að að segja
að þeir eiga vafalaust eftir að
sóma sér vel i stöðunum, en i
þessum leik voru þeir nokkuð
óákveðnir og áttu erfitt með að
finna sér stöðu í sókninni. Viðar
kom mjög vel frá leiknum, sér-
staklega í seinni hálfleik og áber
andi er að hann hefur ekki æft
eins vel með F.H. og Gisli með
Val, en hann átti mun auðveld-
ar með að ná samspili og opna
fyrir samherja sína. Þórarinn
Ragna.rsson verður höfuðverkur
fyrir F.H.-inga og erfitt fyrir dr.
Ingimar að finna honum stöðu. í
þessum leik stóð hann sig alls
ekki vel, hvorki í vörn né sókn.
LIÐIN í HEILD
F.H.-liðið virðist vera í góðri
úthaldsæfingu, en náði ekki vel
saman. Sóknin var illa samstillt
og vörnin illa skipulögð. Við
þessu var að sjálfsögðu hægt að
búast í byrjun keppnistímabils,
og verður auðvelt fyrir þá að
laga og ekki er ósennilegt að F.H.
verði í baráttunni um toppinn í
ár eins og undanfarið. Bezti mað
ur liðsins var Birgir Björnsson,
einnig áttu þeir Geir og Viða*r
sæmilegan leik.
Gunnsteinn Skúlason og Birgir Björnsson liggja þarna í gólf
inu, en boltinn berst út á völlinn.
Valsmenn sýndu mjög góðan
varnarleik og sóknin var ákveð-
in með stórskyttumar Ólaf, Gísla
og Berg fyrir utan, sem skoruðu
samtals 15 mörk. Auðséð var á
leik Vals-liðsins að þeir ætla sér
að ná langt á þessu keppnistíma
bili, sem þei.r og vafalaust gera
með sama áframhaldi. Bezti mað
ur liðsins og vallarins var Ólafur
Jónsson, einnig áttu Bergur og
Gísli góðan leik. Ólafur Bene-
diktsson í markinu stóð sig mjög
vel og er hann sennilega okkar
bezti markvörður í dag.
MÖRKIN:
F.H.: Viðar Símona*rson 3,
Birgir Bjömsson 3, Þórarinn
Ragnarsson 3 (eitt víti), Geir
Hallsteinsson 2 (eitt viti), Gils
Stefánsson, Auðunn Óskarsson
og Ólafur Einarsson eitt mark
hver.
Valur: óiafu.r Jónsson 5, Berg-
u.r Guðnason 5 (4 víti), Gísli
Blöndal 4 (1 víti), Ágúst Ög-
mundsson 3, Gunnsteinn Skúla-
son 3 og Stefán Gunnarsson 1.
Dómarar í leiknum voru Hann
es. Þ. Sigurðss. og Eysteinn Guð-
mundss. og dæmdu þeir leikinn
mjög vei og þá sérstaklega Hann
es og hefur hann sennilega aldrei
verið í jafngóðri æfingu og nú.
í þau fáu skipti, sem Eysteinn
fiautaði var um einhver vafamál
að ræða, sem aldrei kom fyrir
hjá Hannesi og mega ýmsir af
honum mikið læra.
— B.
Þrír leikir á morgun
— í Reykjavíkurmótiim
í handknattleik
ÞRÍR leikir í meistaraflokki
karla í Reykjavíkurmótinu í
handknattleik fara fram á morg-
un. Leika þá fyrst IR og Ár-
mann, siðan Víkingur og Fram
og loks Valur og Þróttur. Má
ætla að iR, Fram og Valur sigri
i þessum leikjum, en þó er ekki
gott að segja hvað gerist i leik
Víkings og Fram.
Þá fara fram tveir leikir í
meistaraflokki kvenna. Ármann
og Valur og Fram og Víkingur
keppa. Keppnin fer fram í Laug-
ardalshöllinni og hefst kl. 19.
Met í 3000 m hlaupi
ÍA leikur á Möltu
á morgun
SL. miðvikudag héldu leikmenn
Akraness áleiðis til Möltu, en þar
keppa þeir á morgrun við maltn-
eska knattspyrnumeistaraliðið
Sliema. Er það fyrri leikur lið-
anna í undankeppni Evrópubik-
arkeppninnar í knattspyrnu, en
Akurnesingar leika báða leikina
ytra og fer siðari leikurinn fram
nk. miðvikudagskvöld.
Lítið er vitað um styrkleika
Sliema, en liðið mun þó vera til
muna betra lið en það, sem Fram
kepptl við á dögunum. Eins og
flestir muna sigruðu Möltubúam-
ir í þeirri viðureign 3:0 í fyrri
STJÓRN K.K.I. hefur ákveðið að
halda bikarkeppni í körfuknatt-
leik í október 1971.
Sigurvegari í þessari keppni
öðlast rétt til þátttöku í Evrópu-
keppni bikarmeistara 1972.
leiknum, en Fram vann síðari
leikinn 2:0. Að sögn Framara var
liðið, sem þeir kepptu við, ekki
ýkja sterkt, en aðstæður allar
mjög þeim i hag, bæði hitinn,
sem var gífurlegur, og eins völl-
urinn, sem mun vera ákaflega
slæmur. Enginn grasvöllur er til
á Möltu og því er leikið á leir-
eða malarvelli.
Eftir öllum sólarmerkjum að
dæma ættu Akurnesingar því að
eiga sigurmöguleika í þessum
leikjum, falli liðið vel saman, en
sem kunnugt er hefur það átt
Þátttökutilkynningar verða að
berast fyrir 1. okt. 1972 til stjórn-
ar K.K.Í., íþróttamiðstöðinni í
Laugardal.
(Frá K.K.l.)
mjög misjafna leiki í sumar.
Flestir leikmannanna, sem verið
hafa i liðinu í sumar, fóru til
Möltu. Þó átti fyrirliði þess,
Þröstur Stefánsson, ekki heiman-
gengt og skipar ungur piltur,
Friðþjófur Helgason Daníelsson-
ar stöðu hans.
ANNA Haraldsdóttir, IR, setti
met í 3000 m hlaupi kvenna á
ÍR-móti, sem fram fór á fimmtu-
daginn. Hljóp Anna á 12:04,8
mín., en eldra metið átti Ragn-
hildnr Pálsdóttir, UMSK, og var
það 12:05,0 mín. Önnur í hlaup-
inu varð Bjarney Árnadóttir, ÍR,
sem hljóp á 15:50,8 mín.
Keppt var í sleggjukasti og
kringlukasti og urðu úrslit þessi:
Sleggjukast:
1. Erlendur Valdimarss., IR, 52,08
2. Óskar Sigurpálsson, Á, 46,24
3. Björn Jóhannss., UMFK, 36,44
4. Stefán Jóhannsson, Á, 32,38
5. Elías Sveinsson, iR, 31,70
6. Jón Þ. Ólafsson, iR, 31,64
7. Marteinn Guðjónsson, lR, 31,52
Kringlukast:
1. Erlendur Valdimarss., IR, 52,88
2. Jón Þ. Ólafsson, ÍR, 38,10
3. Eiias Sveinsson, IR, 35,02
Grétar Guðmundsson, KR, kast-
aði drengjakringlu 44,10 m, Ósk-
ar Jakobsson, ÍR, kastaði sveina-
kringlu 52,28 m og Ágúst Böðv-
arsson, iR, kastaði 37,50 m.
Fjórða kastmót IR fer fram
á Melavellinum kl. 14.30 í dag og
verður þá keppt i kringlukasti og
sleggjukasti.
14,6 sekúndur
RANGLEGA var sagt að Val-
björn Þorláksson, Á., hefði hlaup
ið 110 metra grindahlaup á 14,7
sek., á innianfélagsmóti ÁrmannB
í vikunni. Hann hljóp á 14,6 sek.,
og jafnaði þar með Islandsmetið.
Akurnesingar bíða þess að leggja af stað í Möltuferðina og
hafa dregið fram spilin til þess að stytta sér stundir. Eftir svipn-
um að dæma virðist Matthías Hallgrimsson (t.h.) hafa fengið
betri spil en Da víð Kristjánsson.
Bikarkeppni í körfu