Morgunblaðið - 04.11.1971, Blaðsíða 1
32 SIÐUR
250. tbl. 58. árg. FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1971 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Indland-Pakistan:
25 Pakistanar
féllu í átökum
Nýju Delhi, 4. nóv., AP.
„IJNITED New-s of India“ segir
frá þ\í í dag, að minnst 25 pak-
istanskir hermenn hafi fallið í
gær, miðvikudag, í átökum við
indverska landamæraverði. llafi
komið til átaka í námunda við
þorpin Gede og Sikarpur í mið-
hluta Vestur-Bengals og um
sama leyti hafi indverskir landa-
mæraverðir skotið á pakistanska
þyrlu, sem flaug inn yfir ind-
verskt landsvæði.
Hættan á meiriháttar átökum
miili Indlands og Pakistans er
sögð fara dagvaxandi. Segja
fréttamenn eftir opinberum
embættismönnum í Pakistan, að
indverski herinn sé reiðubúinn
til átaka og þurfi ekki annað en
ákvörðun stjómmálamanna í
Nýju-Delhi til þess að styrjöld
brjótist út milli rikjanna.
Kosningar í USA:
Myndin hér að ofan, var tekin, þegar þeir hittust að máli fyrir helgina, Tito forseti Júgó-
slavíu og Nixon, Bandaríkjaforseti. Tito er nú kominn til Kanada i opinbera heimsókn, sem
stendur yfir í fimm daga.
Deilan um bandaríska aöstoð við erlend riki:
Stjórnin reynir að tala
um f y rir þingmönnum
Wasihington, 3. nóv. NTB-AP
WILLIAM Rogers, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna,
ræddi í dag við utanríkis-
málanefnd öldungadeildar
Bandaríkjaþings nieð það fyr-
ir augum að reyna að fá
deildina til þess að endur-
skoða ákvörðun sína um tak-
mörkun efnahagsaðstoðar við
eriend riki.
1 frétt AP í kvöld af viðræð-
unum segir, að Rogers hafi far-
ið fram á það við nefndina, að
haldið verði áfram efnahagsað-
stoð, eins og áður hafði verið
ráðgert, að minnsta kosti til loka
fjárhagsársins, það er að segja
U Thant
i sjúkrahús
New York, 3. nóv. NTB
U THANT, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, var í gær-
kvöldi iagður á sjúkrahús til
rannsóknar — og tilkynnt var í
kvöld, að hann væri með blæð-
andi magasár. Ekki þykir ástæða
til uppskurðar, en hann verður að
liggja á sjúkrahúsinu í háifan
mánuð. Hann hafði áður fengið
magasár árið 1964. I dag eru lið
in 10 ár frá því U Thant varð
framkvæmdastj. samtakanna og
stóð til að halda starfsafmæli
hans hátíðlegt í dag, — en ftf
þvi gat ekki orðið.
-— Heilsu U Thants hefur
hrakað verulega á síðustu ár-
um og er nú fullvíst, að hann
muni ekki fást til að gegna etmb-
ætti framkvæmdastjóra S.Þ.
'áfram.
til 30. júní næsta ár — og þann
tíma verði miðað við óskir stjórn
arinnar um 3500 milljón dollara
fjárveitingu í þessu skyni.
AP segir eftir formanni
nefndarinnar, William Fulbright,
að nefndin geti vissuiega unnið
nýjar tillögur um þetta mál í
næstu viku, en hann sjái ekki
miklar líkur til þess að fulltrú-
ar í deildinni gefi miikið eftir i
þessu efni.
Aðrir andstæðingar efnahags-
aðstoðarinnar, svo sem Frank
Church og Gale McGee, sem báð-
ir eru í flokki demókrata, töl-
uðu að viðræðunum loknum um
nauðsyn þess að minnka efna-
hagsaðstoð um að minnsta kosti
30%.
1 fréttum AP og NTB kemur
fram, að helzta röksemd öld-
ungadeildarinnar virðist sú, að
Framhald á bls. 31.
Stuðningur við
„lög og reglu“
Washington, 3. nóv. AP-NTB
STUÐNINGSMENN „laga og
reglu“ og hvatamenn umbóta í
efnahagsmálum voru sigursælir
í ýmsum kosningum til borgar-
og fylkisstjórna í Bandaríkjunum
í gær og getur það gefið nokkra
vísbendingu um það hvernig kosn
ingabaráttunni á næsta ári verð-
ur hagað, að sögn stjórnmála-
fréttaritara.
Frank Rizzio, fyrrum lögregJu
stjóri, var kosinn borgarstjóri í
Fiiadelfíu, fjórðu stærstu borg
Bandaríkjanna, eftir harða viður-
eign við frambjóðanda repúblik-
anna, Tacher Longstreath. — 1
Kentucky var Wendell Ford vara
ríkisstjóri kosinn rikisstjóri og
sigraði öldungadeildarmann repú
blikana, Thomas Enverto, og tvo
aðra frambjóðendur. Kosninga-
barátta Fords byggðist á baráttu
gegn stefnu Nixons forseta i
efnahagsmálum.
1 Mississippi mistókst fyrsta al
varlega tilraun sem þar hefur ver
ið igerð til þess að kjósa blökku-
mann rikisstjóra. Blökkumanna
London:
Verkfall lamar starf
Heathr o w-f lug vallar
London, 3. nóv. AP—NTB.
ÁSTANDIÐ á Heathrow-flug-
velli við Uondon fer siversnandi
og ennþá eygja menn enga lausn
á deihi þeirri, sem leiddi til verk-
falls starfsmanna flugstöðvarinn
ar þar s.l. mánudag. Verkfallið
nær nú til nær tíu þúsund starfs-
manna og má heita, að flugum-
ferð um flugvöllinn hafi alveg
stöðvazt. Erlend flugfélög hafa
bægt fhigvélum sínum frá Bret-
landi eða starfseminni verið
beint yfir á aðra brezka flugvelli.
Tvívegis í dag var flugstöðin á
Heathrow-flngvelli rýmd vegna
símatilkynninga imi, að sprengj-
uni hefði verið komið þar fyrir.
í fyrra skiptið var hrinigt um
tíu leytið í morgun og sagði sá,
er hringdi, að hann heyrði til
írska Iiýðveldishernum. Hefði
spretngju verið komið fyrir í flug
sitöðinini ag hún rnundi springa
innan 40 mínútna. Þrátt fyrár ít-
arlega leit fannst ekkert grun-
samleigt, en alit fólk, utan leitar-
manna, — starfsfólik og farþegar
— var fliutt úr stöðinni. Síðari
tilkynningin barst eikki löngu eft
ir, að al'lit var orðið eðlilegt aft-
ur og var þá hafin leit að nýju.
Forystumenn verkfallsmanna
rædd'U i dag við stjórn flugstöðv-
arinnar, sem lagði frarn málamiðl
unartillögu síðdegis. Henni var
haifnað og ákveðið að halda verk
failiniu áfram, en jafnframt
hvatt til áframhaldandi samninga
viðræðna. Konur, sem starfa í
fluigsitöðinni, taka ekki þátt í verk
faillinu á þeirri forsendu, að
verkalýðsfélag &tarfsfólksins hef
ur ekki lýst stuðningi við verk-
faliið og það er gert með ólög-
legum hætti.
Verkfailið náði upphaflega til
um tvö þúsund manna, sem
starfa í flughöfninni, flestir hjá
BOAC og BEA. Voru þeir að mót
mælia samningi, sem gerður hef-
ur verið milli spánska flugfélags-
ins Iberian Airlines og kana-
díska félagsins General Aviation
Services um meðferð og af-
greiðslu farangurs. Telja þeir, að
saimninigur þessi muni hafa í för
með sér uppsagnir starfsfólks í
flughöfninni.
Á mánudag kom til átaka
milli verkfallsimanna og lögreglu.
Voru rúður brotnar, flutninga-
bifreiðum var velt og ferðatösk-
um farþega kastað hingað og
þangað. Tugþúsundir manna
hafa orðið fyrir óþægindum og
töfum sökum verkfallsins. Meðal
annars biðu þúsundir manna
klukkustundum saman í flug-
stöðinni bæði í gær og í dag í
von um að komast leiðar sinn-
ar, en hvert félagið af öðru varð
að feila niöur ferðir eða breyta
áætliunum.
frambjóðandinn Charles Evers
beið mi'kinn ósigur fyirir lögfræð
ingnum William Waller úr flokki
demókrata. Margir frambjóðend-
ur blökkumanna i kosningum tii
annarra opinberra embætta voru
á framboðslista Evers og töpuðu.
Ljóst er að margir blökkumenn
hafa kosið Walier. 1 Gardy í Indi
ana var blökkumaðurinn Richard
Hatcher endurkjörinn borgar-
stjóri.
I Virginíu bauð alþýðlegur mað
ur úr flokki demókrata sem tókst
ekki að hljóta tilnefningu flokks
s'íns sig fram sem óháður gegn
demókrötum jafnt sem repúbhk
Framhald á bls. 31.
Kaþólskir prest-
ar áf ram ókvæntir
Róm, 3. nóv. — AP-NTB
Á HEIMSÞINGI kaþólskra bisk-
upa, sem nú stendur yíir i Páfa-
garði, hefur verið samþykkt með
yfirgnæfandi meirihluta at-
kvæða að halda fast við þá
reglu, sem gilt hefur, að róm-
versk-kaþólskir prestar séu ekki
kvæntir menn. Hins vegar náðist
ekki tilskilinn meirihluti tveggja
þriðju hluta atkvæða til sam-
þykktar tillögu um, að kvæntir
menn geti ekki í undantekning-
artilfellum fengið vígslu.
Tilkynna
úrsögn úr
EFTA í dag
Genf, 3. nóvember, NTB.
NTB hefur eftir áreiðanlegum
heimildum í Genf, að Geofírey
Rippon, markaðsmálaráðherra
Bretlands, muni á morgun til-
kynna aðildarríkjum EFTA —
Fríverzlunarsvæðisins — úrsögn
Breta úr því sambandi. Samj
kvæmt samningum EFTA ber
aðildarríkjum að segja sig úr
því með árs fyrirvara. Segir
NTB-lieimiIdin, að Bretar niuni
væntanlega hætta aðild að
EFTA 31. desember 1972 — og
líklega ganga inn í Efnahags-
bandalag Evrópu daginn eftir
sem fullgildnr aðili.