Morgunblaðið - 26.02.1972, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 26.02.1972, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 1972 5 f TILEFNI af sjötugsafniæli Halldórs Laxness 23. apríl n.k. teknr Þjóðleikhúsið til sýning:a „Sjálfstætt fóik“, fært í ieikbún- ing; af höfundi og Baldvin Hall- dórssyni, sem jafnframt er leik- stjóri verksins. Leikmyndir og búningateikningar gerir Snorri Sveinn Friðriksson, leikmynda- teiknari sjónvari>sms, og aðstoð- arleikstjóri er Geirlaug Forvalds dóttir. Með aðalhlutverkið, Bjart í Sumarhúsum, fer Kóbert Arn- finnsson. Æfingar hófust fyrir nokkru, en búizt er við að frum Atómstöðin frumsýnd um mánaðamótin 1 BYRJUN næsita miánaðar frum- sýnir LeiiMélag Rey'kjavíkur leik- gerð sína á Atómstöðinni eftir Haildór Laxness. Æfingar á Iciknum hófust í des., og hafa staðið óslitið síðan Skugga- Sveinn var frumsýndur. Atóm- stöðin er eitt af afmælisleikritum Leikfélagsinis, en auk þess sýnt í tilefni af sjötugsafmæli Nóbels- skáldsins. Það eru þeir Sveinn Einársson og Þorsteinn Gunnarsson, .sem eintouim hafa unnið að ieitogerð- inni í samráði við skáldið, en Þorsteinn er jafnframt leiks'tjóri. Þetta er fyrsta svið'ssetningarverk efni Þorstein®, en hanin er airki tekt að mennt jafnframt því sem hann er leikskólagenginn, og nú í hópi fastráðinna leikara hjá L. R. Magnús Pálsson teiknar leikmyndir og búninga, en hann hefur ekki unnið í Iðnó nú um nokkurt skeið, en einbeitt sér að skúlptúr. Síðast teiiknaði Magn- ús leikmynd fyrir barnaóperuna Rabba eftir Þorkel Sigurbjörns- son 1969, en þar áður m. a. íyrir sýning verði seint í aprílmánuði. Á þessari mynd sjást ræða sam- an, talið frá vinstri, þeir Guð- laugur Rósinkranz, þjóðleikiiús- stjóri, Halldör Laxness, Baldvin Halidórsson og Snorri Sveinn Friðriksson. Mál'Sóknina eftir Kaffca og Sú gamla kemur í heiimsóton eftir Dúrienmatt. Atómst'öðin er fjórða verk Halldórs Laxness, sem tekið er tiil sviðssetningar í Iðnó. Fyrst kom Straumrof 1933, þá Dúfna- veislan 1966 og lotos Kristnihald- ið 1970 í leikgerð Sveins Einars- sonar. Sú sýning er reyndar enn á fjölunum og hefur ekkert dreg- ið úr aðsókn, þannig að leikhús- gestum gefst núna á útmániuðum tækifæri ti'l að sjá tvö verk eft:r okkar fremsta höfund í sama leikhúsimu. Angela Davis látin laus gegn tryggingu Kalifomiu, 24. febr. AP—NTB. ANGELA Davis var i gær látin iaus úr fangelsi gegn 102.500 doll ara tryggingu. 2.500 dollarar voru greiddir i reiðnfé, en vildar menn hennar ábyrgðust afgang- inn. Þetta fyigir í kjölfar þess að í síðnstu viku úrskurðaði hæsti- réttur Kaliforníu að dauðarefs- ing skyldi felld úr lögum. Fangar sem hafa átt dauða- refsingu yfir höfði sér, hafa lög- um samikvæmt ekki átt rétt á því að vera látnir lausir gegn tryggingu, og ef Angela Davis hefði verið sek fundin hefði hún getað hlotið dauðadóm. Með laga breytinigunni i síðiustu viku, varð hins vegar ekkert því til fyrir stöðu að hún yrði látin laus. Réttarhöldin yfir henni eiga að hefjast næstkomandi mánudag, og henni hefur verið bannað að yfirgefa Santa Clara-héraðið, fyrr en þau eru til lykta leidd, og þá auðvitað því aðeins að hún verði sýknuð. Nýtt frumvarp á Alþingi: Mjólkursala verði frjálsari LAGT hefur verið fram á Al- þingi frumvarp til laga um breytinigu á lögum um fram- leiðsiuráð landbúnaðarins, verð- sikráningu, verðmiðlun og sölu á landbúnaðarvörium o. fl. Enu flutningsmenn þaiu Elert B. Schram, Lárus Jónsison, Matthías Bjamason og Ragnhiiidur Helga- dóttir. Breytinigin hljóðar svo: „Aftan við 25. gr. laganna komi ný málsgr., svo hljóðandi: Skylt er samsölustjórn að heinnla matvöruverzl'umum, sem um það sækja, söiu og dreifingu framon- greindrar mjóilkurvöru, enda sé þeim aiknennu sikilyrðum full- nægt, sem samsölustjóm ákveð- ur um aðbúnað, greiðsiufyrir- komuiag og me-ðferð mjóikur- vöru í viðko-mandi verzlun. Þau skilyrði skuiu ákveðin mieð reglugerð. Samiþykikt hlutaðeig- amdi heilbrigðisyfirvaida skal liggja fyrir,“ 1 greinargerð með frumvarp- inu benda flutningsmienn á, að eitt aif einkennum neyZluþjóð- félagsins sé aukin verzlunar- þjónusta. Með sem frjálsustum markaði og vaxandi samkeppni skapist fullkomnari þjónusta og aukin neyzla. FHutningsmenn telja að hjá yfirstjórm mjólkur- sölumála hafi gætt viðhorfa, sem hvorki þjóni hagsmunum frarn- leiðenda né neytenda og þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir verzlana með fullkomna aðstöðu til Sagði einhver SÆLDARLÍF? HLJÓMSVEITIN Haukar er nú í Luxemborg og átti í gærkvöldi að leika á þorrablóti Islendinga þar í iandi. Var það vafalaust góð skemmtun og ekki verður hægt að saka þá Haukana um að hafa ekki lagt nóg á sig henn ar vegna. Haubar léku á miðvikudags- kvöldið á árshátíð í Reykjavík og lauk henni kl. 2 eftir miðnætti. Tóku þeir þá saman hljóðfæri sín og héldu til Keflavíkurflugvall- ar, þaðan sem þeir héldu með Loftleiðaflugvél til Luxemborgar kl. 5:45 aðfararnótt fimmtudags. í fyrrakvöld áttu þeir að leika fyrir dansi á dansstað í Luxem- borg, en í gærkvöldi áttu þeir að leika fyrir dansi á þorrablóti ís lendinga, sem búsettir eru í Lux emborg eða starfa þair. Um há- degi í dag fara Haukar síð- an aftur heim með flugvél og er áætlað að hún lendi á Keflavíkur flugvelli kl. 15,15. Mega þeir fé- lagar hafa sig alla við, því að í kvöld eiga þeir að leika fyrir dansi á árshátíð nemenda Sam- vinnuskóians að Bifröst i Borgar firði og verða að vera komnir þangað upp eftir eigi siðár en kl. hálf níu í kvöld. — Má af þessu vera ljóst, að ekkerí má út af bera, því að öll áætlunin er byggð á því að allt gangi sem fljótast fyrir sig. — Oft hefur heyrzt talað um það að bítla- hljómsveitir hefðu það alltof náð ugt og þyrftu lítið fyrir pening unum að vinna, en þetta dæmi ætti að sýna, að svo er ekki — a.m.k. ekki í öllum tilvikum. — sh. Japanir kynna sér ísl. aðstæður Á ÍSLANDI eru nú staddir 13 Japanir í sambandi við tækni- viwruu vegna hugsanlegrar hönniumar togara fyirir íslenzka aðila. Fóru tveir þeirra í veiði- ferð með Barða frá Neskaup- stað til að kanina aðstæður við ísienzkan veiðiskap. Voru þeir að athuga aðstöðu í Skipinu, botnlagið þar sem togað er og fleira. Bru Japanarnir að kyrana sér hinar ýmsu hliðar þosisa máls hér, en í móvemfoer og desemhcr var hér einniig jap- anskur hópur í 8 vikur í sömu erindum. General Motors ráð- leggja viðgerðir á 6,7 milljón bílumi BREZKA blaðið „The Times“ hefur skýrt frá því, að banda- rísku bifreiðaverksmiðjnrnar Generai Motors, séu að hefja mestu atliuganir á öryggi bif- reiða, sem þeir hafa selt, í sögu bifreiðaiðnaðarins. Tæplega sjö milljón eigendur bifreiða frá fyrirtækinu, munu fá bréf þar sem þeim er ráðiagt að fara með farartæid sitt á verkstæði og láta koma fyrir i því sterkum fetii, sem á að hindra að vélin fari á kreik þótt aðrar festingar bili. General Motors verða að bera kostnaðinn og hann er talinn nema sem svarar níu milljörðum íslenzkra kiróna. Innkölliunin nær til Chevrolet-bifreiða af venjulegri stærð, af öJlum ár- göngum frá 1965 til 1969, til Nova-gerðanna frá 1967 til 1969 og til Camaro-sportbifreiða og flutningabifreiða, sem nota vél- ar af svipaðri stærð og fyrr greindar tegundir. Þesisi inn- köllun nær þó aðeins til bifreiða sem eru með V8 vélar. General Motors gera þetta að kröfu einar af öryggismálastofn- mjóitourdreifinigar hafi þeim verið synjað um hana. 1 sitað þess séu reistar sérsta.kar mijólk-. urbúðir mieð ærnum kostnaði, jafnvel viS hlið nýtizfcu matvörtu- verzlana og einni verzlun er heimiiuð mjólkursaia, en ekki annarri, án þess viðhMtandi skýring sé fyrir hendi. Bent er á hagræði framileiðenda, þar sem bændur losni við óþarfa fjárfestingu, er nemi tugum miHjóna, neytendur eigi auð- veldara með að nálgast vör ina og myndi það auka sölu og neyzlu, heildardreifingarkostnað- ur myndi minnka oig eytt’ yrði viðskiptalegu misrétti. Greinar- gerðin endar með þessum orðum: „Með þessu frumvarpi er ekki gert ráð fyrir, að mjólkursala verði gefin fullkomiega frjáls. t Eins og að framan er greint, er faMizt á það sjónarmið, að sam- sölustjórn vilji hafa hönd í bagga með söiu og dreifimgu mjöl'kur, og þetta frumvarp gerir ekki ráð fyrir, að yfirsfjórnin hverfi úr höndum samsölustjóma. Ekki er heldur loku fyrir það skotið, að reknar séu áfram sjálfstæðar mj ólkurverzlan ir, og raunar verður það að teljast sjálfsagt út-frá sjónarmiði fram- leiöenda. Hér er einungis lagt til, að þeim verz'.unum, sem um það sæfcja og fu'llnægja almennum kröfum heilbrigðisyfii'valda og yf irst j ómar m jólkursölunnar, verði heimilað að selja og dreifa mjólkurvörum. Þáð er skoðun fflutninigsmanna, að m-eð framgan-gi þessa máls sé verið að gæta hagsimuna jafnt framleiðenda sem neytenda." LEIÐRETTING UNDIR mynd af íslandsmeistur um Fram í hamdknattleik, var farið rangt með nafn eins af markvörðum liðsins. Heitir hann Jón Sigurðsson, og biðjum við Jón velvirðingar á þessum mis- tökum. unum ríkisins og Ralphs Nader, sem er einn helzti baráttumað- ur neytendasamtakanna í Banda- rikjunum. Morgunhlaðið sneri sér til Jóns Þórs Jóhannssonar, fram- kvæmdastjóra véladeilkiar SlS, sem hefur umboð fyrir GM á Is- landi. Hann sagði að þarn-a væri senn-ilega aðeins um Bandaríkja- markað að ræða. Honum hefð: ekki borizt nein tilkynning um þetta, né vissi hann till að aðrir umboðsmenn i Evrópu hefðu ver ið látnir vita. Hann sagði að auk þess væru aðeins örfáir bíl- ar af þessari gerð hér á landi, með V8 vélum, hinir væru allir með V6. Nú eða ... næst er þér haldið samkvæmi; FERMINGAR- AFMÆLIS- eða T7EKIF7ERISVE1ZLU erum við reiðubúnir að útbúa fyrir yður: Kalt borð, Heita rétti, Smurbrauð, Snittur, Samkvæmissnarl. Auk þess matreiðum við flest það, sem yður dettur í hug, — og ýmislegt fleira! Sœlheri %nti HAFNARSTRÆTI 19

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.