Morgunblaðið - 26.02.1972, Síða 14

Morgunblaðið - 26.02.1972, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 1972 XIV UMFERÐ Hort missti forystuna - Spennan í hámarki tJRSLIT Reykjavíkurskák- mótsins koma til með að ráð- ast af úrslitum skáka í síð- ustu umferð. Eftir 14. umferð er staða efstu manna sem hér segir: 1.—2. Hort og Georghiu l0’/2 v., 3.—4. Friðrik og Stein 10 v., 5. Timman 9 Vi v., 6. Andersson 8 v. og 2 biðsk. Það eru þvi æði margir, sem geta sigrað. Helztu möguleik- arnir virðast þessir: a) að Hort vinni Guðmund, Stein vinni Georghiu og Friðrik vinni Timman. I»á sigrar Hort en Friðrik og Stein verða í 2.—3. sæti. b) Að Hort og Georghiu vinni báðir og skipt- ir þá ekki máli vegna efsta sætisins hvernig skák Friðriks endar. c) Að Hort og Georg- liiu tapi báðir, en Stein og Friðrik vinni báðir, en þá verða þeir síðarnefndu jafnir og efstir. d) Að Hort geri jafntefli en Friðrik og Stein vinni og yrðu þá þrir jafnir og efstir. Enn einn möguleiki er, að Andersson vinni báðar biðskákirnar og verði þar með jafn þeim Friðriki og Stein. Geta þá fjórir orðið jafnir og efstir. Má því búast við harðri og skemmUlegri keppni í síðustu umferð, og ættu menn ekki að láta hana fara framhjá sér. En vikjuin nú að 14. umferð. Fyrsta skákin sem lauk, var milLli þeirra Timmans og Gunnars. Teíld var Réti byrj- um og fékk Gurunar þirönga og erfiða stöðu út úr byrjuninni. Framhaldið tefldi Timman srvo mjög vel og vánm örugg- lega. Vantar hann miú aðeinis hálfan vinmimg tU þesis að ná stórmeistaraáramigri. Bragi Kristjánsson hafði hvítt gegm Hort, sem béiibti Piirc-vöm. Tókst stórm'eistar- anum snetmma að jafna taflið og ná fruimkvæðinu. f erfiðri stöðu og bímahraki hél't Bragi hins vegar vel á simu og eftir 35 leiki blasti jaánteflið við. Jón Torfason teffldi köngs- indverska vöm með sikipbum litum gegn Ulf Andersson. Náði Svíinm fruimikvæðiniu eftir uppskipti, em aldrei tóíkist honum þó að ógna stöðu Jóns veruilega. Var samið jafnbefli eftir 39 leiki. Freysteinn Þorbergsson beiitti kóngsindversikri vörn gegn Magnúsi. Á tímabiíli mátti svo virðast sem Frey- steinm væri að ná undirtötoum- um en Magnús bægði hætt- unni frá og er biðstaðan tví- sýn. 1 skák þeirra Harveys og Tukmakovs var tefflt lokaða afbrigðið af Silkiil'eyjiairvöm. Um tima leit úr fyrir að Tufkmakov gæti umnið á alla vegu em hann missti af bezlu leiðinni og Skömmu fyrar bið fæddust tvær nýjar drottn ng- ar. Biðsbaðan er þassi: Hvítt, Harvey: Kf5, Db8, a3, f4, h2. Svart, Tukmakov: Ka2, Dcl, a7, c4, h6. Hvitur lék biðleik. Þá eru það ská'kiir frá uim- ferðinmi og fyrst skulum við sjá, hverni'g Leonid Stein teflir þegar honum tekst upp. Hvítt: Giiðmundiir Sigurjónss. Svart: Leonid Stein Sikileyjarvörn. 1. e4 - c5, 2. Rf3 - d6, 3. Rc3 - a6, 4. d4 - cxd4, 5. Rxd4 - Rf6, 6. Í4 - Rbd7 (!), (Hér er einnig leikið 6. - e5, 6. - g6, 6. - e6, en himm gerði leikur er sá langsterkasti í stöðumni þar eð svartur getuir nú hagað tafl- mennSku simmi í samræmi við uppbyggingu hvíts). 7. Rf3 - e6, 8. Bd3 - Rc5, 9. 0-0 - Be7, 10. a4 - 0-0, 11. Khl - b6, 12. b4 - Rxd3, 13. cxd3 1 Bb7, 14. Dl>3 - Hc8, 15. Be3? (Þótt furðulagt megi viirðast, þá er Framh. á bis. 21 Sovézki stórmeistarinn, Eeonid Stein, vann einhverja glæsileg- ustu skák mótsins i 14. umferð. Jón Ormur Halldórsson, forseti Mótmælaaðgerðir á menntaskólastiginu Það gerist sem betnr fer ekki á hverjum degi, að þegnar okkar litla þjóðfélags rísi upp og mótmæli opinberlega kjörum sín um og aðbúnaði. Svo hefur þó heil stétt manna nú gert. Þar á ég við þær samræmdu mótmæla- aðgerðir, sem Landssamband ís- lenzkra menntaskólanema stóð fyrir á öllu menntaskólastiginu í g»r. Tilgangnr þessara aðgerða var fyrst óg fremst sá, að vekja athygli ráðainanna og ekki síð- ur hins almenna borgara á þvi ófremdarástandi, sem nú ríkir í menntaskólum landsins. Eðlilegt má teljast, að almenningi séu þessi mál lítt kunn, þar sem þau hafa lítið verið kynnt til þessa. Ekki væri því hægt að lá mönn- um, þótt þeir teldu að hér væri aðeins um að ræða óþarfa æs- ing æskumanna. Þetta er þvl miður rangt, menntaskólakerfið er i megnasta ólestri; um það eru allir sammála, sem til þess þekkja og mun ég þvl hér á eftir leitast við að benda á ör- fáar staðreyndir, máli mínu til stuðnings. Kröfur menntaskólanema eru í höfuðatriðum þrjár. 1. Reglugerð þeirri um mennta skóla, sem sett var 1971 verði í höfuðatriðum framfylgt. 2. Kennsla verði færð í nú- tímalegra form. 3. Aðstaða manna til náms verði jöf n. Þetta eru sanngjarnar kröfur, enda skilja menntaskólanemar aðstöðu þeirra er skattana greiða og vita, að í mörg horn er að líta. Þess vegna vonumst vlð til, að valdamenn verði jafn sanngjarnir við okkur og reyni að skilja afstöðu okkar, og geri sér grein fyrir því, að ný loforð án framkvæmda stoða okkur lít- ið meira en þau gömiu, sem aldrei voru efnd. Fyrsta krafa okkar, sem er sú að reglugerð um menntaskóla fná 1971 verði framfylgt, virð- isl við fyrstu sýn fráleit. En svo er þó ekki. Reglugerð þessi hef- 'Ur verið þverbrotin af 'hálfu yf- irvalda menntamála, svo lítið stendur eftir, nema nafnið eitt. Það er hættuleg stefna, og má ætla að virðing manna fyrir reglum, og þeim, er þær setja, vaxi ekki, meðan þær eru snið- gengnar og þverbrotnar af yfir- völdunum. I fyrstu grein þessarar títt- nefndu reglugerðar segir, að menntaskólar skuli vera svo margir, sem þörf er á. Til sanns vegar má færa, að slíkt hljóti að vera matsatriði á hverjum tíma. Engum manni dettur þó í hug að halda þvi fram, að húsa- kostur menntaskólastigsins sé nokkuð í námunda við að vera nægilegur og má í því sambandi benda á, að húsnæði á hvern nemanda í menntaskólanum í Reykjavík var meira árið 1845 en árið 1972. Dönsku nýlendu kúgararnir voru sem sé fram- sýnni í menntamálum en inn- lendir valdamenn vorra daga. Við gerum okkur fyllilega ljóst, að þessi mál verða ekki leyst á einum degi. Til þess eru þau i of miklum ólestri. En við gerum okkur líka ljóst, að við óbreytt ástand verður ekki un- að. Húsnæðisskorturinn stendur í vegi fyrir nýjum og eðlilegri kennsluháttum og hann hefur lamandi áhrif á námsgetu og námsárangur nemanda. Kennt er I heilsuspillandi húsnæði og svo mörgum hrúgað í hverja stofu, að borðum verður ekki við komið. Sérkennsiustofur séu þær þá fyrir hendi, eru teknar undir almenna kennslu. Vinnuað staða kennara er óvíða fyrir hendi og félagsaðstaða nemenda jafnvel enn minni. Kennt er hálfan sólarhringinn án þess að nemendur hafi aðstöðu til að matast. Hér eru hvergi nærri talin öll þau atriði, sem miður fara í menntaskólakerfinu. Þessi upp- talning ætti þó að gefa örlitla innsýn í þann mikla vanda, sem nemendur og kennarar eiga við að etja. En hver hafa þá úrræði hins opinbera verið? Hefur ekkert verið gert? Jú, vissulega hefur ýmislegt verið gert, en úrræðin hafa flest verið bráðabirgða- lausnir, sem orðið hafa dýrari, þegar fram í hefur sótt, en var- anleg lausn vandans. Nokkuð hefur þó vel verið gert og ber að þakka það, en þó hefur stöð- ugt sigið á ógæfuhliðina i þess- um málum, og sígur enn. Þessi mál verða ekki leyst með öðru en stórátaki, sem þegar verði hafizt handa um og stefnt verði að einsetnlngu á öllu menntaskólastiginu innan fárra ára. Allar aðrar úrbætur eru óraunhæfar, og aðeins kák, SMkt kák verður dýrara, þegar til lenigdar lætur, þótt ótalinn sé sá skaði, sem þjóðfélagið bíður af því að mennta ekki einstakl- inga sína, svo sem kostur er. Allra þjóða sízt höfum við ís- lendingar, fámennis okkar vegna, efni á slíkri óhæfu. Fleiri greinar þessarar, að mörgu leyti ágætu reglugerðar, eru brotnar af yfirvöldum. Of langt mál yrði að tíunda hér öll þau lögbrot, sem nemendur og kennarar hafa orðið að þola af hálfu hins opinbera. Má þó í þvi sambandi nefna eftirtaldar greinar: 18. grein, sem fjallar um tengsl skólanna út á við, og ger ir ráð fyrir kynnisferðum nem- enda í hinar ýmsu stofnanir og fyrirtæki þjóðfélagsins, en lít- ið hefur bólað á þeirri starf- semi. 53. grein, sem fjallar um starfs lið skólanna, en skólayfirvöld- um hefur ekki tekizt að fram- fylgja henni, einkum vegna skorts á fjárveitingum til þess arna. 61. grein, sem fjallar um hús- rými, og er í henni gert ráð fyr ir ýmsum húsakosti, sem óviða hefur fundiztr, og þá aðeins ein- Jón Orimir Halldórsson. angruð dæmi, reglunni til sönn- unar. 62. grein, sem fjallar um tækjakost, bókasöfn, og ýmsa smáhluti aðra, sem reynzt hafa einkar fáséðir á þessu skóla- stigi. Þessi fáu atriði, sem ég hef drepið hér á, ættu að sýna nokkuð það óhagstæða hlutfall milli loforða og efnda, sem ríkir hjá yfirvöld'um menntamála. Undrar þvx nokkurn, að menntaskólanemendur séu orðn ir þreyttir á straumi loforða og efnda? önnur aðalkrafa okkar mennt skælinga er að kennsla verði færð í nútímalegra form. Með þessu eigum við þó ekki við að gjörbylting verði gerð á öllu kennslufyrirkomulagi, síður en svo, sUkt ,væri hrein glæpa- mennska. Hins vegar viljum við, að skólayfirvöld þreifi sig áfram og þrói kennsluhætti í samræmi við niðimstöðu r til- rauna. I títtnefndri reglugerð um menntaskóla er gert ráð fyr ir, að settur verði á stofn til- raunaskóli. Slíkt væri að sjálf- sögðu mjög æskilegt, en enda- laust er ekki hægt að bíða eftir honum og má benda á,. að Hamrahlíðarskólinn var að nokkru leyti hugsaður sem slík- ur. Væri því til að byrja með eðlilegt, að gefa þeim skóla aukið svigrúm, til þess að hann geti fullnægt að einhverju leyti þeim tilgangi sínum. Þess má geta, að í athugun er að reyna hið svoka'laða punkta- og stiga- kerfi í þeim skóla náista ár, en það er kennslufyrirkomulag, sem að flestra dómi er það, sem koma skal. Ýmislegt bendir þó til þess, að það verði ókleift i framkvæmd vegna húsnæðis- skorts, en kerfið gerir ráð fyr- ir einsetnum skólum. Þriðja aðalkrafa okkar menntaskólanema er sú, að að- staða manna til náms verði jöfn uð. Er þá átt við fjárhagsað- stöðu. Hver maður hlýtur að sjá í hendi sér, hver hrópandi óhæfa það er, að aðstaða manna til náms miðist við bú- setu þeirra, eða öllu heldur framfærenda þeirra. Allir eru sammála um nauðsyn „jafnvægis í byggð landsins", en gera sér þá Hklega ekki grein fyrir einni aðalástæðunni fyrir hinum mikla flóttamannastraumi til Reykjavíkursvæðisins. Einu sinni stóð ég í þeirri meiningu, að fulltrúar landsbyggðarinnar væru í meirihluta á Alþingi! Svo virðist þó ekki vera. Þessi mál verða í bráð a.m.k. ekki leyst með öðrum hætti en þeim, að stórhækka þá styrki til dreifbýlinga, sem örlítill vísir er kominn að. Hér hafa verið taldar þær helztu af þeim kröfum, sem menntaskólanemendur með stuðningi kennara sinna hafa viljað vekja athygli á með nýaf stöðnum mótmælaaðgerðum sín- um. Þekki greinarhöfundur yfir völd menntamála þessa lands rétt, er þó aðeins fyrsta stig mót mæla okkar afstaðið. Því bar- áttunni verður haldið áfram, unz sigur vinnst. Á því er eng- inn vafi, að nemendur mennta- skóla þessa lands ætla þó ekki að feta í fótspor æðstu yfir- valda mála sinna, þvert á móti munu þeir í einu og öllu virða lög þessa þjóðfélags og treysta því, að almenningur skilji af- stöðu okkar og styðji okkur, þessar réttlausustu verur þjóð- félagsins. Ef svo reynist, höfum við engu að kvíða.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.