Morgunblaðið - 04.01.1973, Side 16

Morgunblaðið - 04.01.1973, Side 16
16 MORGLTNBLAÖIÐ, FIMMTUDAGUR 4. JANUAR 1973 Otgefan di hf, ÁrveTcur, Rfeyfq'avfk Pr«mkva9mda&tjóri HaraWur Sv«mseon. Ritsitíóirar Mattlhías Joharmasswi, Eyá'óllfiir Konráð Jónsson. St/rmir Gunnorsson. RHstfórfwrfitlH'rúi Þorbjörn Guðmimdsson. Fréttastjóri Björm JÓhannseon Au^ýsingastjóri Ámi Garðar Kriatinsson. Rrtstjórn og afgreiðsla Aðerlstraati ©, sfmi 1Ó-100. AugFýsingar Aðabtræti 6, sfrrvi 22-4-60 Aokrrftergjetd 226,00 kr á iriárrnuði mnaniefxte I teusasðifu 15,00 ikr eintokið. Jóhann Hafstein, formaður Sjálfstæðisflokksins, rit- aði að venju áramótagrein í Morgunblaðið á gamlársdag. þar sem hann fjallaði um stjómmálaviðhorfið á liðnu ári og horfumar framundan. í áramótagrein sinni vakti Jóhann Hafstein athygli á þvíyað vinstri stjórnin hefur gripið til margra sömu úr- ræða og stjórnarflokkarnir gagnrýndu mest í efnahags- stjórn viðreisnarinnar á sín- um tíma. Þegar viðreisnar- stjómin framkvæmdi verð- stöðvun haustið 1967 og 1970 töldu núverandi stjórnar- flokkar það blekkingu eina og kosningabrellu, en þeg- ar vinstri stjórnin hafði set- ið að völdum um tæplega eins árs skeið, setti hún bráðabirgðalög um tíma- bundna verðstöðvun. Þegar viðreisnarstjórnin ákvað haustið 1970 að fresta greiðslu tveggja vísitölustiga í sambandi við verðstöðvun- araðgerðir töluðu núverandi stjórn:. rflokkar um vísitölu- rán, en þegar þeir sjálfir framkvæmdu verðstöðvun á sl. sumri var einn þáttur þeirra aðgerða að fresta greiðslu 2,5 vísitölustiga til áramóta. Þegar viðreisnar- stjórnin ákvað haustið 1970 að taka hækkun áfengis og tóbaks út úr vísitölunni, töldu núverandi stjórnar- flokkar það hið mesta hneyksli og tóku þessa hækk un inn í vísitöluna á ný eftir að þeir tóku við völdum, en nú er það helzti boðskapur þeirra, að ekki einungis hækkun áfengis og tóhaks heldur einnig margvíslegar aðrar fjáröflunaraðgerðir rík- isvaldsins eigi ekki að koma fram í vísitölunni. Þannig rakti formaður Sjálfstæðisflokksins í skýru og glöggu máli hinn furðu- lega hringsnúning vinstri stjómarinnar í efnahagsmál- um, en stærsta kollsteypan í efnahagsmálastefnu vinstri stjórnarinnar var þó sú, er hún tók ákvörðun um lækk- un á gengi íslenzku krón- unnar fyrir hátíðar, en áð- ur hafði gengið verið fellt, er krónan var látin falla með dollaranum. Fyrir kosningar hétu ráðherrarnir því, að þeir mundu aldrei grípa til slíkra ráðstafana, skjalfestu það í málefnasamningi ríkis- stjórnarinnar og hafa ítrekað það fyrirheit æ síðan og sjálf- ur forsætisráðherrann í út- varpsviðtali nú síðast í haust. í áramótahugleiðingu sinni fjallaði Jóhann Hafstein um landhelgismálið og sagði m.a.: „Hvað hefur unnizt og hvar er sú virðing, sem þessi litla eyþjóð hefur skapað sér í umheimsins augum. Við erum taldir hafa unnið sigur á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna með samþykkt til- lögu um rétt strandríkis til auðæfa hafsins í hafsbotni og á og yfir honum — í hafinu sjálfu. En má spyrja: Var þetta ekki inntakið í sa.m- þykkt Alþingis þann 7. apríl 1971, sem talinn var of óákveðin í kosningunum 1971 og þáverandi stjórnarand- stæðingar töldu sig vera menn að meiri að vilja miða landhelgina við 50 mílur. Það var kjairni hinnar samhljóða álvktunar Alþingis 15. febrú- ar 1972, að Alþingi ítrekaði þá grundvallarstefnu íslend- inga, að landgrunn íslands og hafsvæðið yfir því séu hluti af íslenzku yfirráða- svæði. Á þessum grundvelli höfum við unnið sigur á vett- vangi Sameinuðu þjóðanna, á þessum grundvelli eigum Við nú að sækja og verja mál okkar fyrir alþjóðadómstóln- um. Hin minnista þjóð, sem þorir að standa á rétti sín- um, verður ekki sigruð af stærstu þjóðum. Af þessurn sökum voru landhelgissamn- ingarnir, sem íslendingar gerðu við Breta og Þjóðverja árið 1961 okkar „stærsti stjórnmálasigur“, eins og Bjarni Benediktsson orðaði það af alkunnri lögspeki og vitsmunum.“ Þá fjallaði formaður Sjálf- stæðisflokksins einnig um ut- anríkismál önnur en land- helglsmálið í áraimótagrein sinni og sagði m.a.: „En hver er okkar eigin „sjálfstæða“ utanríkisstefma, undir for- ustu núverandi ríkisstjórn- ar? Sú, að innan sjálfrar rík- isstjórnairinnar er einmitt ágreiningur um það, sem máli skiptir. Hvergi í vestr- ænum löndum gæti það gerzt, að mynduð væri rík- isstjóm þriggja stjórnmála- flokka, sem lýsti því yfir, að innan hennar væri ekki sam- staða um stefnuna í öryggis- og varnarmálum landsins. Meirihluti Alþingis fylgir ríkisstjórninni ekki í örygg- is- og vamiarmálum. Meiri- hluti þjóðarinnar gerir það ekki heldur. Hvaða stefnu gæti núverandi ríkisstjórn lagt fyrir íslenzku þjóðina til úrskurðar í þjóðaratkvæða- greiðslu? Enga — vegna þess, að hún hefur enga samstæða stefnu sjálf.“ KOLLSTEYPA VINSTRI STJÓRNAR Hörkulegar ofsóknir gegn stuðningsmönnum Dubceks Fimm % þjóðarinnar styðja vStjórnina - segir tékkneski skákmeistarinn Ludek Pachman Tékkneski stórmeistarinn í skák, Uudek Paehman, hefur verið „þög’ull" í nokkur ár, eftir að hann snerist gegn rik isstjóm þeirri, sem við tók í Tékkóslóvakiu, þegar Alex- ander Dubcek og stuðnings- menn hans létu af völdum. Paehman neitaði að vera í skáksveit Tékkóslóvakíu á Ólympíuskákmótinu, þegar valdaskiptin áttu sér stað og hélt heim tii þess að mótmæia því, sem gerzt hafði. Mót- mælaaðgerðiim hans Iauk með þvi, að hann var settur í fangelsi, þar sem hann dvald- ist í 18 mánuði. Frá þvi að hann vrar fangelsaður, hefur heyrzt lítið til þessa skák- meistara, sem er löngu heims- kunnur í sinni grein fyrir skákafrek sín og ekki síður fyrir umfangsmikil og vönd- uð skákrit. Snemma i desember var Paehman loks veitt langþráð leyfi til þess að haida úr landi og fara til Vestur- Þýzkalands og átti þessi ákvörðun stjórnarvalda i Tékkóslóvakíu örugglega rót sína að rekja til þess, hve hart hafði verið lagt að þeirn að veita skákmeistaranum frelsið af hálfu kunnra og áhrifamikilla manna inn an alþjóðaskákhreyfingarinn ar. Pachman er talinn einn fremsti kunnáttumaður í nú- tima skákfræði og bækur hans hafa verið þýddar á mörg tungumál. Skömmu eft ir komuna til V-Þýzkalands ræddi Pachman við frétta- mann bandaríska vikuritsins Newsweek, Milan .1. Kubic, um stjórnmálaástandið í Tékkóslóvakiu og fer það hér á eftir. Kubic: Hver var ástæðan fyrir síðustu réttarhöldum yf ir frjálslyndum mönmum i Tékkóslóvakíu ? Pachman: 1 fyrsta lagi var þar um að ræða hefnd nokk- urra lítilfjörlegra manna eft- ir þann ósigur, sem þeir biðu á frelsisskeiðinu, er þjóð in sneri bakinu við aftur- haldssinnum. Þeir fulnægja nú sínum auvirðilegustu hvöt um með þvi að slá til baka, þrátt fyrir það að slikt spilli stórlega fyrir orðstir alls sov ézka nýlendukerfisins. Önnur ástæðan er skiljan- legri, nefnilega sú, að það á að hræða fólkið. Ríkisstjórn, sem ekki er studd af meira en 5% þjóðarinnar, verður stöðugt að vera með svipuna á lofti til þess að halda völdunum. — Það bætir varia úr skák að handtaka eins og fimmtíu menntamenn. — Réttarhöldin eru aðeins efsti hluti ísjakans. Efnahags lega eiga sér stað miklar hefndaraðgerðir. Samkvæmt skýrslu, sem lögð var fyrir konrwnúnistaflokk Tékkóslóv- akiu fyrir tveimur árum, voru í Prag einni 40.000 manns reknir úr starfi fyrir að vera „óáreiðanlegir í stjórnmálalegu tilLiti", eftir að Rússar hernámu landið. Flestir þessara manna vinna nú sem ófaglærðir verka- menn eða í öðrum láglauna- störfum. Þar að auki er veitzt að börnum þeirra manna, sem neituðu að láta af sannfær- ingu sinni. Rithöfundurinn frjálislyndi, Ludvik Vaculik á ungan son, sem neitað var um leyfi tíl þess að fá að Ijúka menntaskólanámi og þegar hann reyndi að komast að sem læriingur í verksmiðju nokkurri, var honum tjáð, að hann gæti aðeins fengið vinnu sem byggingaverkamað ur. Aliee Battek, sem er dótt ir annars kunns umbótasinna varð tíunda í röðinni í eink- unn af um 500 stúdentuim, sem tóku inntökupróf i há- skólann í Prag. Henni var vís að frá sökum „hæfnisskorts á öðrum sviðuim". IUNDA VONIR VIÐ KÍNA — Hvemig bregðast lands- menn við þessu? — Það viðhorf ríkir, að úr því að Dubcek-timabilinu lauk ekki á þann veg, að við fengjum frelsið, þá getum við aldrei náð þvi með eigin at- beina. Nokkrir horfa fram til Öryggismálaráðstefnu Evrópu og vaxandi mátt Kína sem tveggja hugsanlegra þvingunarþátta, sem á endan uim kunni að fá Rússa til þess að fallast á hliutlausa, frjáls- lynda og þess vegna trausta Tékkóslóvakiu. En eins og er, þá er þjóð mín vondöp- ur vegna þess, hve lítil at- hygli beinist að henni. Fóik ósker þess t.d., að Nixon for- seta þætti það nauðsynlegt, að geta. Tékkóslóvakíu með nokkrum setninguim i ein- hverri af ræðum sínum. — Hvemig er ástandið innan kommúnistafioiklksins? — Forsætisnefndin skiptist nær jafnt milli harðlínu- manna og raunsæismanna, sem ekki kæra sig um slikar aðgerðir sem réttarhöldin yf- ir menntamönnunum. Gustav Husak, leiðtogi kommúnista- flokksins, er í hópi þeirra síð arnefndu, en vald hans er takmarkað. Á ftokksþingimu í október flutti hann t.d. til- tölulega rnilda ræðiu og það svo, að harðlíniumömnunum tókst að koma i veg fyrir það í hálfan mánuð, að ræðan yrði birt. Og þegar ræðian loks var birt, höfðu verið máðar burt úr henni mild- ustu yfirlýsingaraar. I’I,OKKSBÓKIN VERÐUR A» VERA f EAGI Gæti Husak veitt Tékkó- slóvakíu visst frelsi, svo sem eins og Janos Kadar hefur tekizt að gera lífið léttaira í Ungverjalandi? — Gagnstætt Dubcek, sem hefði átt að verða skáid í stað stjórnmálamanns, er Husak Framhald á bls. 22.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.