Morgunblaðið - 17.10.1973, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 1973
3
Á100 ára af-
mæli Halldóru
,J>essi ár hafa gengið siysa-
laust. Guð gaf mér góða heilsu.
Ferðirnar mfnar gengu vel og
fólk f öllum landsfjórðungum
tók mér vel. Eg átti góða móður
og dreymir hana enn á hverri
nóttu. Eg tel mig gæfumann-
eskju. Þessi sfðustu ár á
Héraðshælinu á Blöndósi hefur
mér liðið ágætlega. Svo óska ég
landi og lýð guðblessunar.“
Þetta sajíði Halldóra Bjarna-
dóttir m.a. í 100 ára afmælis-
hófi sínu, er hún ávarpaði um
100 gesti, sem komnir voru til
að óska henni til hamingju, frá
fjarlægum stöðum innanlands
og utan. Hófið héldu Samband
austur-húnvetnskra kvenna og
Heimilisiðnaðarfélag íslands í
Kvennaskólanum á Blönduósi,
og stýrði því Elísabet Sigur-
geirsdóttir, formaður þess fyrr-
nefnda. I tilefni afmælisins
hafði verið komið fyrir sýningu
í nýju heimilisiðnaðarsafni,
sem húnvetnskar konur eru að
koma upp í litlu burstahúsi við
hliðina á kvennaskólanum. —
Er það sérstakt áhugamál Hall-
dóru Bjarnadóttur, og verður
ein sérstök deild í því með
hennar munum, sem hún hefur
gefið safninu eftir sinn dag, og
er ætlunin, að safn þetta verði á
einhvern hátt tengt nafni henn-
ar. Hafði Halldóra látið í ljós þá
ósk, að þeir, sem vildu eitthvað
gera í tilefni afmælis hennar,
létu það ganga til safnsins og
var það vissulega gert, því
safninu bárust hátt á þriðja
hundrað þús. krónur í gjafir.
I ræðu sinni þakkaði Hall-
dóra vinsamlegt boð og virðu-
lega samkomu henni til heið-
urs, um leið og hún þakkaði
góða samvinnu á undanförnum
áratugum. — „Ég óska fram-
fara og framkvæmda í öllu ykk-
ar starfi," sagði hún. „Og svo
þakka ég bókasafnsnefnd, að
hún vill gera svo vel að þiggja
bréfasafn mitt og bókasafn. Og
konunum fyrir að vilja þiggja
muni mína i heimilisiðnaðar-
safnið."
Þarna kom fram, að Halldóra
hefur gefið allt sitt bréfasafn,
sem er mikið að vöxtum og
bókasafn, sem í eru margar
gamlar, dýrmætar bækur til
nýrrar bókhlöðu, sem er að rfsa
á Blöndósi við Blöndubrú.
I afmælishófið voru komnir
góðir gestir, m.a. fulltrúar frá
Noregi og Danmörku, frú Signe
Rutlin, yfirheimilisráðunautur
í Noregi og frú Gertie Wandel,
formaður Haanderbejdts
Fremme 1 Danmörku, sem báð-
ar þekkja Halldóru og segja
hana vel þekkta meðal áhuga-
fólks um heimilisiðnað á
Norðurlöndum. Færðu þær
Halldóru góðar gjafir.
Framkvæmdastjóri Heimilis-
iðnaðarfélagsins, Gerður Hjör-
leifsdóttur, formaðurinn,
Stefán Jónsson og stjórn voru
þarna, og flutti S.tefán afmælis-
barninu kveðju og færði henni
50 þúsund krónur frá Heimilis-
iðnaðarfélaginu til safnsins.
Einnig sagði hann, að félagið
hefði óskað eftir að fá að gefa
út aftur vefnaðar- og útsaums-
mynstur Halldóru, sem hún gaf
út 1935. Og 1 þriðja lagi hafði
Heimilisiðnaðarfélagið ákveðið
að gefa út fyrsta áganginn af
Hugur og hönd, en þar eru
dæmi úr vefnaðarbók Hall-
dóru í litum.
Fulltrúar úr stjórn Búnaðar-
félags íslands sátu afmælishóf
Halldóru, og hafði Hjörtur Eld-
járn orð fyrir þeim. Flutti hann
kveðjur félagsins og þakkir og
tilkynnti að stjórnin hefði
ákveðið að eita 100 þúsund
krónur til heimilisiðnaðar-
safnsins á Blöndósi í tilefni af-
mælis Halldóru. En Halldóra er
eina konan, sem er heiðurs-
félagi Búnaðarfélagsins, hún
hagði gefið félaginu merka
gamla muni, sem þar eru til
sýnis.
Jón ísberg sýslumaður ávarp-
aði afmælisbarnið og tilkynnti,
að Halldóra hefði verið gerð að
heiðursborgara á Blönduósi.
Einnig hafði honum verið falið
að færa henni 10 þús. krónur
frá Tryggingastofnun ríkisins.
Kona hans, Þórhildur Isberg,
sem er stjórnarformaður heim-
ilisiðnaðarsafnsins veitti við-
töku fyrir þess hönd 15 þús. kr.
frá Ofnasmiðjunni, 1000 kr. frá
Ragnheiði Brynjólfssóttur, 10
þúsund krónum frá Huldu
Stefánsdóttur og 1000 kr. frá
Guðbjörgu Björnsdóttur.
Sr. Árni Sigurðsson, frændi
afmælisbarnsins, ávarpaði
Halldóru og færði henni m.a,
kveðju frá forseta Islands og
forsetafrú. Einnig þakkir frá
fslenskum ullarverksmiðjum.
Þá barst kveðja frá Helgu
Níelsdóttur með þakklæti frá
Heimilsihjálpinni fyrir frum-
kvæði Halldóru að heimilis-
hjálp á Islandi.
Kvenfélagasamböndin áttu
þarna sína fulltrúa, sem færðu
Halldóru þakkir og heillaóskir.
Sigríður Torlacius, formaður
Kvenfélagasambands Islands,
tilkynnti, að Halldóra hefði ver-
ið kjörin heiðursfélagi sam-
bandsins. Emma Hansen, for-
maður Sambands norðlenzkra
kvenna flutti þakkir kvenna af
Norðurlandi og tilkyitnti um 90
þús kr. gjöf frá þeirn, sem nota
skyldi til að koma upp skápum i
heimilisiðnaðarsafninu. Ásdís
Sæmundsdóttir, formaður Sam-
bands austfirzka kvenna, flutti
kveðjur frá sambandinu og
Búnaðarsambandi Austur-
lands. Sigurveig Sigurðardótt-
ir, formaður Sambands sunn-
lenzkra kvenna flutti kveðjur
og færði Halldóru fyrsta fána
sambandsins. Sigríður J.
Magnússon flutti kveðjur
Kvenréttindafélagsins, og
sagði, að þótt Halldóra hefði
kannski ekki verið hrifin af
því, þá væri hún bezta kvenrétt-
indakona á landinu. Hulda
Stefánsdóttir flutti ávarp til
þessarar vinkonu sinnar og af-
henti gjafir til safnsins Þór-
hildi Isberg, sem fyrr er getið.
Og Hrafn Sveinbjörnsson, odd-
viti á Hallormsstað, færði Hall-
dóru forkunnar fallegt, ofið
teppi eftir konu sina Þórnýju
Friðriksdóttur, vefnaðarkenn-
ara og skólastjóra á Hallorms-
stað. Og fylgdi visa:
Halldóra, ég held ég sleppi
að halda nokkra ræðu hér
Þiggðu frá mér þetta teppi
þvi fylgir kveðja og þökk frá
mér
Auk þessa barst Halldóru
Framhald á bls. 31.
Halldóra ávarpar gesti á afmælinu sínu.
Ljósm. Bjöm Bergman.
Utflutningur eykst — en Ut-
flutningsmiðstöðin fiárvana
ar, en gert er ráð fyrir, að a.m.k.
Utflutningsmiðstöð iðnaðarins
hefur nú miklar áhyggjur af
tekjustofnum sfnum, eftir að
fjárlög voru lögð fram og í ljós
kom, að þar eru henni aðeins
ætlaðar 6 milljónir til starfsemin-
Jens Pauli
les upp
Upplestrarkvöld verður í
Norræna húsinu n.k. miðviku-
dagskvöld og verður þar lesið
úr bókinni Gestur, smásagna-
safni eftir Jens Pauli
Heinesen frá Færeyjum, en nú
f vikunni kom Gestur út f
íslenzkri þýðingu hjá
Almenna bókafélaginu.
Á upplestrarkvöldinu
munu tveir kunnir fslenzkir
leikarar lesa úr verkum Jens
Pauli auk hans sjálfs.
12 millj. kr. þurfi til rekstrarins á
næsta ári. Allt er þvf f mikilli
óvissu um framhald starfseminn-
ar, þó að 30—40% aukning hafi
orðið á útflutningi iðnaðarvara
fyrir utan ál á sl. ári.
Hefur stofnunin verið byggð
upp að undanförnu og búið sig
undir að halda áfram, en nú þegar
hún hefur komið upp þjáifuðu
fólki, lítur út fyrir að þurfi að
draga saman seglin. Og það um
leið og iðnaðurinn er illa staddur,
m.a. vegna gengisbreytinga.
Þetta kom m.a. fram á blaða-
mannafundi, er Bjarni Björnsson
stjórnarformaður útflutningsmið-
stöðvarinnar og Úlfur Sigur-
mundsson framkvæmdastjöri
hennar efndu til og voru þá einn-
ig til upplýsinga starfsmennirnir
Guðlaugur Björgvinsson og
Kornelíus Sigmundsson. Kynntu
þeir m.a. starfsemi Útflutnings-
miðstöðvarinnar og útskýrðu þró-
un iðnaðarútflutnings frá 1968.
Þar kom m.a. fram, að útflutning-
ur iðnaðarvara án áls hefur aukizt
frá 220 millj. kr. 1968 í 1167 millj.
kr. 1972 eða frá 3—7% af heildar-
útflutningi landsmanna. Á tíma-
bilinu janúar til ágústs 1972 til
Seðlabanki tslands hefur nú f
þriðja sinn boðið út happdrættis
skuldabréf til þess að afla fjár I
vegamannvirkin yfir Skeiðarár-
sand. Þetta þriðja útboð nemur
100 millj. kr. og er þá búið að
bjóðaút alls 330 millj. kr.
I tveimur fyrri útboðunum seld-
ust skuldabréfin upp á fáum dög-
um, en nú er salan hins vegar
hægari, en jöfn þó. Happdrættis-
skuldabréfin voru sett í sölu um
miðjan september, en ennþá eru
tveir þriðju þeirra óseld.
Seðlabankinn bauð fréttamönn-
um austur á Skeiðarársand um
1973 hefur útflutningur iðnaðar-
vara aukizt úr 744 í 1065 millj. kr.
Virðist útflutningur f ár án áls
ætla að verða 1600 milljónir. Frá
1968 hefur þýðing markaðssvæða
Framhald á bls. 31.
helgina til þess að kynnast fram-
kvæmdum. Allar framkvæmdir
ganga mjög vel og er reiknað með
að hringvegurinn opnist í byrjun
næsta sumars. Svanbjörn
Frímannsson Seðlabankastjóri
var með í förinni og sagði hann að
framkvæmdir væru í rauninni á
undan áætlun enda hefði Vega-
gerðin verið fljótari að eyða pen-
ingum, en Seðlabankinn að safna
þeim.
Kvað Svanbjörn samvinnuna á
milli Vegagerðarinnar og Seðla-
bankans hafa verið mjög góða.
Happdrættisskuldabréfin voru
Stórtjón í
eldsvoða í
Nesjahreppi
Höfn í Hornafirði 15. október.
Um klukkan sex í gærmorgun,
er gangnamenn voru á leið til
smölunar, tóku þeir eftir þvf, að
reyk lagði frá bænum Austurhól í
Nesjum. *Er komið var að, var
eldur í heystakk, sem stóð við
nýtt fjárhús. Fjárhúsið,
hænsnahús og srníðahús með
miklu af verkfærum brunnu öll
til kaldra kola. Slökkviliðsmenn
komu strax á vettvang og tókst
þeim að verja íbúðarhúsið. Aðal-
slökkvistarfið tók eina og hálfa
klukkustund. Tjón bóndans á
Austurhól er mikið.
Gunnar.
Hlöðubruni
að Hæli
Geldingaholti 15. október
I gær brann hlaða að Hæli. í
hlöðunni voru um 700 hestar af
heyi og talið er að þriðjungur
þess, sem í henni var, hafi eyði-
lagzt. Verið var að byggja fjárhús
við hliðina á hlöðunni og voru
menn að vinna með hjólsög. Með
einhverjum hætti komst neisti frá
hjólsöginni í hlöðuna og skipti
það engum togum, að hlaðan varð
alelda á tveim mínútum.
Hlaðan, sem er stálgrindarhús,
skemmdist mjög mikið, t.d eyði-
lagðist þakið á henni, Slökkvilið
kom frá Flúðum og fjölda fólks
dreif að frá nágrannabæjum. Var
unnið að slökkvistarfi langt fram
á nótt. Bóndinn á Hæli heitir
Bjarni Einarsson.
—fréttaritari
Þrír seldu
í Þýzkalandi
Islenzk fiskiskip selja nú afla
mörgum sinnum I viku f Þýzka-
landi. I fyrradag seldu þar þrjú
skip og vitað er um fjölda skipa,
sem eiga að selja þar f vikunni.
Tveir netabátar seldu ufsa í
Cuxhaven og Bremerhaven í gær.
Hrönn seldi 61.9 lestir í Cuxhaven
fyrir 83.556 mörk eða 2.8
milljónir. Meðalverðið var kr.
46.80. Eitt tonn af afla bátsins var
dæmt ónýtt. I Bremerhaven seldi
Gunnar Jónsson 56.7 lestir fyrir
62 þúsund mörk eða 2.1 milljón.
Meðalverð hjá bátnum var kr.
38.15. Af afla Gunnars voru 6.5
lestir dæmdar ónýtar.
Það hefur verið nokkuð
áberandi upp á síðkastið að hluti
af afla netabáta, sem hafa selt í
Þýzkalandi, hefur verið dæmdur
ónýtur. Ekki er vitað um ástæður,
en margt bendir til þess, að fisk-
urinn sé orðinn of gamall þegar
hann kemur á markað í Þýzka-
landi.
Þá seldu skuttogarinn Vest-
mannaey f Bremerhaven 151.5
lestir fyrir 194 þúsund mörk eða
6.7 milljónir. Meðalverð var 44.67
kr.
fyrst sett á markað í marz 1972, en
þau eru visitölutryggð og verð-
gildi þeirra hefur því hækkað um
33,8% siðan. Þannig gefa þessi
bréf af sér auk þess að hvert bréf
er happdrættismiði og er dregið
einu sinni á ári í þau 10 ár, sem
bréfin eru bundin. Vinningar nú
eru tveir 1 millj. kr. vinningar,
einn 500 þús. kr., tuttugu 100 þús.
kr. og tvö hundruð og fimmtfu 10
þús. kr. vinningar.
Áætlaður kostnaður við fram-
kvæmdirnar til að opna hringveg-
inn er miili 700 og 800 millj. kr.
Hringvegarbréfin enn í boði