Morgunblaðið - 17.10.1973, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 17.10.1973, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 1973 13 Sláið skjaldborg um sveitar- stjórnarkerfið Að læðast inn bakdyramegin Jón Isberg, sýslumaöur: Fyrir nokkrum árum var mikið rætt um að sameina sveitarfélög í stærri heildir, eða sameina hreppa. Hugmyndin var mjög at- hyglisverð og það átti fullkomlega rétt á sér að kanna^llar leiðir. En þeir, sem að unnu, gerðu það svo klaufalega, að öll þessi áform runnu út i sandinn. Fyrst og fremst af því, að aðaláherzlan var lögð á að fækka hreppum, að skera niður eða gjörbylta í stað þess að vinna að samvinnu hreppa, sem hefði getað orðið til þess, að hreppar sameinuðust í fyllingu tímans, eða m.ö.o. þá og ef samvinnan hefði sannfært hreppsbúa um, að sameining væri þeim fyrir bestu. Þetta kallast -uppbygging, þróun, byggð á reynslu lifandi og horfinna kyn- slóða, en gjörbylta ekki. Sem sagt, allt þetta brambolt minnir á sög- una, þegar fjöllin tóku jóðsótt en fæddist lítil mús. Nú hefir stjórn Samb. ísl. sveitarfél. aftur hafið útrýming- arherferð á þætti í stjórnkerfi landsins og nú eru það sýslu- nefndirnar, sem skulu fjúka. Ég segi stjórn Samb. ísl. sveitarfél. vegna þess, að eins konar blaða- fulltrúi hennar hefir látið Tíman- um í té tillögur eða gefið upplýs- ingar um tillögur frá fundi full- trúaráðs sambandsins, sem hald- inn var á Höfn nú í byrjun septembermánaðar. Blaðið birtir viðtalið undir þversíðu fyrirsögn á forsíðu: „Gjörbylting á stjórn- kerfi landsins er í nánd ( og með undirfyrirsögn), ef Samb. ísl. sveitarfél. fær vilja sfnum fram- gengt. “ Við þessa frétt hefir stjórn Samb. ísl. sveitarfél. mér vitan- lega ekki gert athugasemd. Hún hefir þvi með þögninni gert þessa skoðun að sinni, sem Tíminn hef- ir eftir deildarstjóra sambands- ins. Beini ég því grein minni að stjórn Sambands fsl. sveitarfél. og það því fremur að framkvæmdast. sambandsins hefir sveigt að sýslu- nefndum í annars ágætri og fróð- legri grein 12. hefti Sveitarstjórn- armála nú í ár, þar sem hann gerir samanburð á hreppum og kaupstöðum. En þessi munur er sáralítill. Ef hann er sagður í stuttu máli, þá er hann helztur sá, að krafist er fullkomnara bók- halds og framkvæmdastjórnar, eftir því sem sveitarfélagið er stærra og að ýmsum ágreinings- atriðum hreppa er skotið til sýslu- nefndar, til úrskurðar í stað þess að kaupstaðir leita beint til félagsmálaráðuneytisins. Ur- skurður sýslunefndar er ýmist endanlegur eins og úrskurður stjórnvalds getur verið, áfrýjan- legur til félagsmálaráðuneytisins eða riftanlegur, með samþykkt aukins meirihluta almenns hreppsfundar. Framkvæmdastjórinn segir: Því er ekki að leyna, að skattlagn- ing sýslunefndanna er mikill þyrnir í augum margra hreppa, bæði að því er varðar sýsluvega- sjóðsgjöld og sýslusjóðsgjöld (bls. 61.). Hér vil ég gera þá athuga- semd, að það er ekki sýslunefnd, sem skattleggur til sýsluvegasjóð- anna, heldur er það alþingi, sem sett hefir þau lög, að hvert sveit- arfélag, kaupstaðir undanskildir, skuli greiða andvirði þriggja vinnustunda til sýsluvegasjóðs. Þéttbýlisstaðir greiði þó aðeins hálft gjald. Nú í ár er innheimt um kr. 350.— á hvern ibúa I hreppnum til sýsluvegasjóðs. Það er í sjálfu sér ekki rökrétt að leggja sýsluvegasjóðsgjald, þótt aðeins hálft sé, á kauptúna- hreppa, því í raun er það aðeins skerðing á þéttbýlisvegafé. En fyrir þá, sem ekki vita, er rétt að taka fram, að vegasjóður ver 1214- % af tekjum sínum til gatnagerð- ar í kaupstöðum og kauptúnum, en kauptúnahreppirnir verða sem sagt að endurgreiða um fimmta part í formi sýsluvegasjóðsgjalds.* Sýslunefndin leggur aðeins á lögboðið gjald og veitir svo fénu til mismunandi sýsluvega, en vegagerðin annast allar fram- kvæmdir. Vald sýslunefndarinn- ar er því aðeins að skipta fénu og er það frekar vinsælla. En vilji nú svo til, að sýsluvegir viðkomandi sýslu þurfi ekki á fénu að halda, rennur það til þjóðveganna í sýsl- unni, svo eðli gjaldsins segir til sín. Auðvitað veit framkvæmda- stjórinn þetta allt, en hefur ekki gætt sín sem skyldi, og því geta ófróðir lesendur haldið það vera f verkahring sýslunefnda að ákveða sýsluvegasjóðsgjöld. 1 áðurnefndri frétt kemur fram svo mikil fákunnátta um stjórn- kerfið að fáheyrt er. Ef til vill er fréttamaðurinn H.H.J. svona ófróður um það, sem hann skrif- ar, eða deildarstjórinn veit bara ekkert um hvað hann talar. Þvf ég vona, að hér komi til þekkingar- leysi, en ekki vilji til þess að blekkja. I niðurlagi fréttarinnar segir „Sýslukerfið hefur m.a. þá annmarka, að ibúar fjölmennra byggðakjarna á borð við Ölafsvík og Dalvík með þúsund íbúaog þar yfir, verða að sækja algenga þjón- ustu eins og útborgun almanna- tryggingagjalda og endurnýjun ökuskirteina, svo að dæmi séu tekin, til sýslumanna, sem búsett- ir eru annars staðar, þ.e. í Stykkishólmi og á Akureyri í þessum tilvikum.“ Hér ruglar maðurinn, deildar- stjórinn eða fréttamaðurinn, sam- an sýslum og lögsagnarumdæm- um. Sýslur og sýslunefndir hafa ekkert með tryggingamál eða út- gáfu ökuskírteina að gera. Það hafa sýslumenn, sem eru umboðs- menn Tr. st. og einnig lögreglu- stjórar. Húnavatnssýla er eitt lög- sagnarumdæmi en tvær sýslur, Vestur- og Austur-Húnavatns- sýsla. Ég vona bara að hér hafi vanþekking ráðið rfkjum, en ekki sé gerð tilraun til blekkingar. Hitt er svo allt annað mál, að vel getur verið, að sumir sýslu- menn geri sér ekki grein fyrir þeirri miklu þjónustu, sem skrif- stofur þeirra eiga að veita al- menningi og hafi því ekki fylgst með þróuninni sem skyldi. Hér I Húnavatnssýslu er þetta þannig, að greitt er út 6 sinnum á ári á Blönduósi og Hvammstanga svona 7 — 10 daga i hvert sinn. Auk þess er farið til Skagastrand- ar til útborgunar. Þá geta menn, ef þeir vilja, fengið greitt inn á reikning sinn í sparisjóði, í banka eða fengið bætur sendar f ávísun. Vel getur verið, að sýslumenn sem skipaðir starfsmenn ríkisins eigi ekki að vera oddvitar og framkvæmdastjórar sýslunnar, en því er þá ekki barist fyrir því að fá t.d. kosna oddvita sýslu- nefnda eins og t.d. sveitarstjóra og byggja þannig upp, í stað þess að rífa það niður, sem menn virð- ast ekki vita hvernig byggt er upp? Þá er rætt um í margnefndri frétt, að koma eigi upp stjórn- sýslumiðstöðvum í hverjum landshluta og þær fengju ýmis verkefni frá ríkisstofnunum og þau verkefni, sem nú eru f hönd- um heimamanna. M.ö.o. ef þetta er rétt eftir haft, á að taka vald frá heimamönnum og þá senni- lega frá þessum voðalegu sýslu- nefndum og fá þau í hendur stjórnsýslumiðstöðvum Iands- hlutasamtakanna. Er þetta.í sam- ræmi við þá yfirlýsingu núver- andi ríkistjórnar, sem segist vilja efla byggðarlögin og auka sjálfs- forræði þeirra? Ég læt þessar athugasemdir nægja um fréttina af fundinum á Höfn en vil ræða nokkuð sýslu- nefndir og hlutverk þeirra og landshlutasamtökin. Sveitarstjórnarkerfi það, sem við nú búum við, erfrá árinu 1872 eða liðlega 100 ára og hefir staðið í höfuðatriðum óbreytt. Það var miðað við okkar bændasamfélag og er eðlilega sniðið samkvæmt því, og því, að yfirstjórnin var úti í Kaupmannahöfn. Kjarninn er hreppurinn, sem átti að sjá um fátækramál, hafði eftirlit með til- sjón prestsins um uppfóstur og uppeldi barna, (á nútíðarmáli: fræðslumál), átti að sjá um notk- un afrétta, fjallskil, fjárheimtur og eyðingu refa, átti að hafa gæt- ur á heilbrigðisásigkomulagi í hreppnum og „þar að auki skal bera undir hreppsnefndina önnur mál, sem snerta sveitina sjálfa, án þess að nefndin eigi að gjöra út um þau. — og skal nefndin einnig hafa heimild til þess, að gjöra uppástungur og senda bænarskjöl til stjórnarinnar um allt það, sem getur verið sveitinni til gagns" (23. gr. Tilsk. 4. mai 1872.). 1 sveitarstjórnarlögunum frá 1963 heitir þetta „Skylt ersveitar- félagi að annast þau hlutverk, sem því eru falin í lögum eða á annan löglegan hátt —. Hlutverk sveitarfélaga er ennfremur það að vinna að sameiginlegum vel- ferðarmálum þegna sinna — og gera ráðstafanir til þess að koma 1 veg fyrir almennt atvinnuleysi eða bjargarskort, eftir þvi sem fært er á hverjum tirna,, (10.gr.). Svo segja má að hreppsnefnd og bæjarstjórn sé ekkert mannlegt óviðkomandi. Sýslunefndin átti svo að hafa eftirlit með þessum störfum hreppanna og auk þess sjá um vegi, brýr, hafnir, ferjur o.fl., gefa út reglugerðir og samþ. fyrir alla sýsluna eða hafa eins konar yfirstjórn allra sveitarmála sýsl- unnar. Amtsráðið (eiginlega forveri landshlutasamtakanna) átti svo að hafa yfirumsjón með sýslu- nefndinni og landshöfðingi hafði eftirlit með amtsráðinu og loks kom stjórnarráðið og kon- ungurinn. Þetta var kerfi þeirra tíma, en eftir að við fengum heimastjórn breyttist þetta og ömtin féllu nið- ur, en frumeiningarnar, hrepp- arnir og sýslurnar lifðu og hafa þróast fram til þessa tíma. Sums staðar á landinu, þar sem stórir kaupstaðir hafa tekið að sér mörg af verkefnum sýslunnar, t.d. heil- brigðisþjónustu, þ.e. rekstur sjúkrahúsa, og menntamálin, hafa sýslurnar orðið nánast gagnslausar, en þar sem þessu er ekki til að dreifa, hafa sýslurnar orðið viðkomandi héruðum sam- vinnuvettangur til þess að koma á fjölmörgum sameiginlegum stofnunum. Til þess að skýra þetta betur vil ég nefna Gullbringusýslu og Húnavatnssýslur. Kerfið, eins og áður segir, var fyrst og fremst sniðið við okkar gamla bænda- þjóðfélag. í Gullbringusýslu eru mörg kauptún og þéttbýlisstaðir en búskapur ekki mjög þýðingar- mikill, auk þess eru þar nærri helstu kaupstaðir landsins, sem veittu alla almenna þjónustu, t.d. voru og eru þar sjúkrahús, menntastofnanir, slökkvilið, svo eitthvað sé nefnt. Þjóðvegir liggja um sýsluna þvera og endilanga. Þetta hefir orðið til þess að minna og minna hefir þurft á sýslunni sem slíkri að halda og hún orðið verkefnalaus að mestu. I staðinn hafa öll sveitarfélögin myndað samband í kjördæminu, sem er i raun valdalaus útvíkkun á sýsl- unni. En eins og þekktum íslenzk- um rithöfundi þótti hæfa að vega að sauðkindinni, sem þó hefir haldið lfftórunni í þjóðinni á um- liðnum öldum, þegar hann var kominn í álnir, þannig töldu sum- ir leiðtogar þessara kaupstaða í Gullbringusýslu eitthvað sveita- legt við sýslunafnið og ekki sam- boðið fínum kaupstöðum, að ekki sé Reykjavík nefnd, að taka þátt i slíku samfélagi og því beri að afnema þær. Nei, þar sem hið þægilega og fallega orð lands- hlutasamtök gat ekki átt við, áttu samtökin að heita „Samvinnu- nefndir sveitastjóra" eða „Héraðsnefndir". Það er margt skrýtið i kýrhausnum. Ég tek hins vegar Húnavatns- sýslur, sem dæmi um raunhæfa sýslur, ef orða mætti það svo. Bæði þekki ég ég best til þar og svo eru þar engir kaupstaðir, og skera þær sig þannig úr norð- lenskum sýslum. Hér hefir sýslunefndin orðið nauðsynlegur samvinnu- og fram- kvæmdaaðili allra sveitarstjórna í sýslunni. Auk hinna venjulegu verkefna sýslunefnda, þ.e. eftirlit með sveitarstjórnum og setning samþykkta og reglugerða, þá hafa sýslurnar með heilbrigðismál að gera. Sjúkrahús eru bæði á Hvammstanga og Blönduósi og okkur hefir tekist að halda lækn- um. Vestur-Húnavatnssýsla byggði í samvinnu við Stranda-_ sýslu Reykjaskóla og sýslurnar" ráku þann skóla þar til rikið yfir- tók héraðskólana, illu heilli. Aust- ur-Húnavatnssýsla hefir rekið kvennaskóla og siðar húsmæðra- skóla nú í tæp 100 ár. Sýslum var skipt 1907. Fyrstu áratugina eftir þá skiptingu ráku báðar sýslurnar skólann. Þetta geta menn sagt sé arfur frá liðnum tíma. Ég ætla þvi að taka nokkur atriði úr nútíman- um og tek aðeins A-Hún., svo greinin verði ekki of löng og rek söguna aftur á bak. Nú er sýslan í samvinnu við Blönduóshrepp að byggja 330 fm. bókhlöðu á tveimur hæðum og kjallara, sem er upp úr jörð. Húsið er uppsteypt og verð- ur glerjað í haust og það kemur til að kosta milli 10—20 millj. og ef til vill meira, ef verðbólgan vex með sama hraða og hún hefir nú gert. Þarna verður einnig skjalasafn sýslunnar. Ætlunin er að þarna verði geymdar bækur þeirra lestrarfélaga sýslunnar, sem hafa ekki samastað og bækur sendar út um sýsluna i bókakössum, eins og t.d. áhafnir skipa geta nú fengið sums staðar. Nú i haust á að reisa hér slökkvistöð yfir slökkvitæki, tvo bíla m.fl., sem er eign Blönduóss og innhreppa sýslunnar. Þessari samvinnu kom sýslunefndin á fyrir um 15 árum, en bein stjórn þessara samvinnusamtaka eru i höndum oddvita hreppanna. Fyrir um 10 árum var byggt hér á Blönduósi myndarlegt héraðs- félagsheimili með þátttöku sýsl- unnar. Ákveðið hafði verið að byggja héraðsfélagsheimili og kannaður vilji sýslubúa í sam- bandi við almennar sveitarstjórn- arkosningar, hvort hrepparnir ættu beina aðild að þvi eða sýslan. Samþykkt var með yfirgnæfandi meirihluta, að sýslusjóður væri beinn aðili að byggingunni. Báðar Húnavatnssýslur ásamt Strandasýslu hafa byggt upp byggðasafnið við Reykjaskóla. Sýslan rekur tvær vegagerðarvél- ar (ámokstursvélar) og svona mætti halda áfram með ýmsa minni þætti. Þegar heilbrigðiseftirlitið var endurskipulagt nú fyrir fáum ár- um beitti sýslunefndin sér fyrir einni heilbrigðísnefnd, fyrir alla sveitahreppa sýslunnar í sam- vinnu við Blönduós, og hefir það gefið góða raun. Fyrir liðugum 10 árum beitti sýslunefndin sér fyrir því, að sem flestir sveitahreppar sýslunnar sameinuðust um byggingu skóla að Reykjum við Reykjabraut. Nú er sá skóli orðinn staðreynd og hefir starfað i 3 ár, þótt auðvitað sé þar aðeins um byrjunarfram- kvæmdir að ræða. Fyrir nokkrum árum var sam- þykkt, að greiða 10% stofnkostn- aðar vegna iþróttamannvirkja i sýslunni. Greiðslur hafa orðið minni, en ráð var fyrir gert, vegna þess að ríkið, eða iþrótta- sjóður, greiðir ekki sinn hluta og framkvæmdir þvf orðið minni, en æskilegt væri. Þessi upptalning á störfum sýslunefndar sýnir aðeins, að þessi stofnun hefir orðið að leysa þörf samfélagsins, vegna þess að annar aðili var ekki til staðar. En þar sem kaupstaðir voru, leystu þeir margir hverjir þessi mál, byggðu sjúkrahús, skóla eins og áður er tekið fram. Hér hefir það verið venja, að sýslan styrki félagasamtök, sem ná yfir alla sýsluna t.d. Ung- mennasambandið, Kvennasam- bandið, Sögufélagið, Skógræktar- félag sýslunnar o.fl. og til sýsl- unnar er leitað, þegar eitthvað meiriháttar á að gera. Ég hefi bent hér á tvö dæmi um sýslur. Annað sýnir, að þróunin hefir minnkað gildi sýslufélags- ins eins og það er nú upp byggt, en kallað á annað víðtækara. Hitt dæmið sýnir aftur á móti hvernig þróunin hefir eflt sýslufélagið og gert það að nauðsynlegum hluta sveitastjórnarkerfisins. Þá er aðeins rétt að minnast á þá athugasemd talsmanns stjórn- ar Sambandsins, þegar hann segir: „Sýslurnar eru tengd- ar samgöngukerfi miðalda og henta þvi ekki i nútíma þjóðfélagi." Þetta eru lokaorð frásagnar um, að sýslu- mörk falli oft á tíðum ekki saman við eðlileg mörk byggðar- laga. Þetta er að vísu rétt, en má ekki breyta þessu, ef óskað er? Hér á Norðurlandi falla sýslu- mörk og héraðsmörk nokkuð vel saman. Og ég tel þetta upp fyrir þá, sem ekki þekkja, sem eru lík- lega nokkuð margir, fyrst starfs- maður sveitarstjórna landsins þekkir það ekki, maður, sem ætti að kynna sér þetta a.m.k. áður en hlaupið er til og yfirlýsingar eru gefnar, sem geta varðað miklu fyrir byggðarlögin, ef mark er á þessu tekið. Vestur-Húnvetningar sækja mest alla verslun sina til Hvammstanga og þangað eiga allir erindi. Til gamans má geta þess, að nú um eins árs skeið hefir sýslumaður eða fulltrúi hans komið vikulega á skrifstofu á Hvammstanga til þess að veita fbúum sýslunnar betri þjónustu. En þetta gerir hann sem sýslu- maður, en ekki sýslunefndarodd- viti. Miðstöð austursýslunnar er Blönduós og þangað liggja flestra leiðir. Að vísu hefir Skagaströnd sérstöðu, því hún byggir afkomu sína á útgerð, en aðeins eru nú 23 km á milli og nú orðinn greiður vegur svo varla telst það langt. A.m.k. yrði lengra að sækja i Framhald á bls. 18

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.