Morgunblaðið - 17.10.1973, Side 11
MORC.UNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAÍJUR 17. OKT0BKR 1973
11
Borgarstjórn:
Hlutverk Félagsmála-
stofnunar umdeilt
A fundi borgarstjórnar Reykja-
víkur 4. þ.m. urðu nokkrar um-
ræður um hlutverk Félagsmála-
stofnunar Reykjavíkur. Umræður
þessar spunnust vegna tillögu frá
Sigurjóni Péturssyni (K) um að
vísa ákvörðun stofnunarinnar aft-
ur til félagsmálaráðs til endur-
mats.
Sigurjón Pétursson (K):
Nýlega sótti stúlka nokkur um lán
til Félagsmálastofnunarinnar,
lánið ætlaði stúlka að nota til bila-
kaupa, þar eð án bíls getur hún
ekki stundað nám það, er hún
hyggst stunda, vegna þess að svo
stendur á strætisvagnaferðum mi-
lli heimilis hennar, barnaheimils
þess, er hún hefur ungt barn sitt
á, og skólans, sem hún stundar, að
hún mundi daglega missa
nokkrar stundir úr skóla, ef hún
þyrfti að nota strætisvagna. Það
er skoðun mín, að
stúlkan hefði átt að fá þetta lán,
en það fékk hún ekki, enda þótt
hún lofaði endurgreiðslu innan
árs og hefði góðar tryggingar. Eg
legg því til, að félagsmálaráð taki
til velviliaðrar endurskoðunar
fundargerð starfsmanna Félags-
málastofnunarinnar sem inni-
heldur þessa ákvörðun.
Albert Guðmundsson (S): Ég
mótmæli því harðlega, að þvi fé,
sem tekið er af borgurum til þess
að styrkja þá, sem vegna veikinda
eða annarra alvarlegra erfiðleika
þurfa að leita á náðir opinberra
aðila um aðstoð, sé varið til bíla-
kaupa. Rétt er og skylt að aðstoða
það fólk sem erfitt á vegna
óviðráðanlegra aðstæðna, en lán
til bilakaupa á bankakerfið
hiklaust að veita. Bankarnir fara
með fé fólksins, og að sjálfsögðu
á það að hafa fullán aðgang að
þeim með slík lán, sem hér um
ræðir.
Sigurjón Pétursson (K) tók
aftur til máls og harmaði afstöðu
Alberts, sem hann kvað dæmi-
gerða fyrir kaupsýslustéttina og
þá menn, sem ekki þekktu til
skorts á nokkru sviði
Albert GuðmundssondS)tók þá
aftur til máls og ræddi um hlut-
verk verzlunarstéttanna og þann
eilífa róg, sem um þær væri
kveðinn af þeim mönnum, sem
aldrei þyldu, að einum vegnaði
betur en öðrum. Sjálfur kvaðst
Albert áreiðanlega þekkja miklu
meiri skort en Sigurjón Pétursson
hefði nokkurn timann komizt i
kast við. Hann myndi vel þann
tíma, er ekki hafði einungis þurft
að velta fyrir sér hverri krónu,
heldur hverjum eyri. Og vissu-
leea skil ég bað vel. sagði Albert.
að ekki skiptir meginmáli,
hversu upphæðin er stór, ef mann
vantar hana. Það þekkja kaup-
sýslumenn ekki síður en aðrir. En
eins og ég sagði áðan, þá höfum
við bankana til þess að greiða úr
siíkum vandræðum. Þá ræddi
Albert um þá menn, sem eins og
Sigurjön notfærðu sér launþega
og verkalýð sér til framdráttar og
lffsviðurværis. Þeir rækju verka-
lýðinn eins og nokkurs konar
fyrirtæki í eigin þágu. Og
hugsuðu þá ekki endilega alltaf
mest um hag umbjóðenda sinna.
Að lokum kvaðst Albert leggja
eindregið til, að tillaga Sigurjóns
yrði felld. Að tillögu Sigurjóns
var þessu umrædda máli síðan
vísað til félagsmálaráðs með 10
atkvæðum gegn2.
Loftverkfæri
nýkomin
Landssmidjan
20680
Um dýraspítala og gamla skuld
Bezt að auglýsa í Morgunblaðinu
Þegar litið er yfir farinn veg
íslendinga í þessu harðbýla landi,
hafa menn einatt furðað sig áþví,
að þjóðin skyldi lifa af allar þær
hörmungar, sem yfir hana gengu í
þúsund ár. Ýmissa skýringa hefur
verið leitað og margar ástæður
tilgreindar, svo sem andlegt og
líkamlegt atgervi fólksins,
kóngsins náð og handleiðsla
Drottins. En ef grannt er skoðað,
þá reyndist kóngsins náð ærið
stopul og tvieggjuð, og vegir
Drottins stundum órannsakan-
legir.
Þegar i harðbakkann sló, áttu
landsmenn aðeins einn áþreifan-
legan og nærtækan bjargvætt,
sem var sauðkindin og húsdýrin
011, sem námu hér land um Ieið og
mannfólkið.
Raunar má segja, að Islending-
ar eigi húsdýrum sínum það að
þakka, sem hverri þjóð er dýr-
mætast, sem sé lffið í brjóstinu á
sér.
En nú er öldin önnur, og Is-
lendingar búa ekki lengur við
þröngan kost. Ætla mætti, að þá
ræki nú minni til gamallar
skuldar við þessa fornvini sina
fyrir dygga þjónustu og vinarþel,
sem aldrei brást, og miðuðu þeim
nokkru af allsnægtum sinum. En
annað virðist sýnna. Dýravernd-
unarfélagið, sem er gamall og
virðulegur félagsskapur, er nú á
heljarþröm vegna fjárskorts og
sinnuleysis almennings. Árlegt
framlag til félagsins af opinberri
hálfu mun vera kr. 50.000.00—
fimmtiu þúsund krónur. Sjaldan,
liklega aldrei, hafa menn hér-
lendis talað jafnhátt um
menningarmál, stórstigar fram-
farir, náttúruvernd, umhverfis-
vernd o.s. frv., og þótt Islendingar
séu ekki sammála um margt.ljúka
þeir allir upp einum munni um
framtak sitt i þessum efnum og
syngja sætlega sitt eigið lof. En þá
kemur eins og skrattinn úr
sauðarleggnum talan 50.000.00
krónur á ári til allra dýra-
verndunarfélaga landsins. Ef
þetta er gleymska, þá er sú
gleymska þjóðarskömm. Fáar
þjóðir í Bvrópu byggðu um alda-
raðir tilveru sína jafn einhliða
á landbúnaði, einkum saufjár-
rækt og einmitt Islendingar, og
eins og áður sagði eiga fáar þjóðir
bústofni sinum jafnstóra þökk að
gjalda og við. Það er því sjálfsagt
réttlætismál, að látið verði til
skarar skriða og málum þessum
kippt I viðunandi horf, svo að
íslendingar búi að dýrum
sinum arðbærum og óarðbærum,
eins og tíðkast með menningar-
þjóðum.
Nýverið hefur enn dregið til
tíðinda á þessum vettvangi. Er-
lendur maður færir lands-
mönnum að gjöf dýraspftala, en
gjöfin er afH>>kkuð á þeim for-
sendum, að rekstrarkostnaður
spítalans, sem er áætlaður ein og
hálf milljón árlega verði þjóðar-
búinu ofviða. Af þessu tilefni
ávarpaði landbúnaðarráðherra
landslýðinn í sjónvarpi og spurði
meðal annars, hvort mönnum
þætti ekki „hlægilegt" að kosta
þessu til, einkum og sér í lagi þar
sem hundahald væri bannað í
Reykjavík. Því er til að svara, að
okkur finnst það ekki
„hlægilegt", okkur finnst það
Framhald á bls. 25.
ÓTRÚLEGT
KR. 14.250.-
I Unicom 805
Unicom 805 er vélin sem margir hafa óskað sér.
Ótrúlega ódýr, en hefur samt allt sem þarf.
Minni, prósentulykil, sjálfvirkan konstant (margf. og
deiling) endurköllun o.s.f.v.
gæðavara með árs ábyrgð.
Sérhæfð varahluta og viðgerðarþjónusta
SlMNEFNI ESKUL
SlMAR 2 41 30
HVERFISGÖTU 89
REYKlAVlK
© ALLTAF FJÖLGAR VOLKSWAGEN ®
V0LKSWAGEN
ÁRGERÐ 1974
- VALKOSTALISTI -
,, a la carte "
- LÆKKAÐ VERÐ -
Hver þeirra hentar yður? Yður er boðið upp á mismun-
andi vélarstærðir, undirvagna og margvíslegan búnað.
— En þrátt fyrir þessa valkosti, þá er mjög margt
sameiginlegt með þeim ollum. — Tökum til dæmis:
Frábær vinnubrögð og frágangur bæði að utan og innan.
— Hátt endursoluverð — Orugg varahluta og viðgerð
arþjónusta — og nú síðast en ekki sizt, lægri verð, eða
frá kr. 358 600
© HEKLA HF.
Laugavog. 170—172 — Sim, 21240