Morgunblaðið - 17.10.1973, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 1973
21
ilTYINNA
Sölumenn
Hefi mikið af erlendum viðskipta-
samböndum, nokkurt fjármagn, og
möguleika á að afsetja víxla. Mig
vantar samband við duglegan og
samvizkusaman sölumann, með sam-
bönd um land allt, sem hefði áhuga
fyrir samvinnu og ef til vill, ein-
hverskonar sameign.
Tilboð merkt „Gagnkvæmur hagn-
aður 5170“ sendist afgreiðslu blaðs-
ins fyrir n.k. föstudag. —
Bakari
— og aðstoðarmenn óskast nú
þegar. Upplýsingar í
Björnsbakarí,
Vallarstræti 4,
sími 11530.
Laus staBa
deildarstjóra vi5 Norrænu menningarmálaskrif-
stofuna í Kaupmannahöfn.
Staða deildarstjóra deildar þeirrar, er fer með almenn
menningarmál í Norrænu menningarmálaskrifstof-
unni (Sekretariatet for Nordisk Kulturelt Samar-
bejde) í Kaupmannahöfn er laus til umsóknar. Staðan
verður veitt frá 1. janúar 1974 að telja.
Norræna menningarmálaskrifstofan starfar sam-
kvæmt samningi Norðurlandaríkja um samstarf á
sviði fræðslu-, vísinda- og annarra menningarmála, en
samningur þessi tók gildi 1. janúar 1972.
Deildarstjórinn verður ráðinn af Ráðherranefnd
Norðurlanda og verður meginhlutverk hans að annast,
undir yfirstjórn framkvæmdastjóra, skipulagningu og
stjórn starfa skrifstofunnar á þvi sviði, er undir
deildina fellur. Gert er ráð fyrir, að starfinu verði að
örðu jöfnu ráðstafað með ráðningarsamningi til 2—4
ára í senn. Gerður verður sérstakur samningur um
launakjör og skipan eftirlauna.
Umsóknir, ritaðar á dönsku, norsku eða sænsku, með
upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf skulu
stílaðar til Nordisk Ministerrád og sendar til
Sekreteriatet for Nordisk Kulturelt Samarbejde,
Snaregade 10, 1205 Köbenhavn K. Skulu umsóknir
hafa borist þangað eigi síðar en 15. nóvember n.k.
Nánari upplýsingar um starfið má fá hjá fram-
kvæmdastjóra Norrænu menningarmálaskrifstof-
unnar, Magnus Kull (sími (01) 114711, Kaupmanna-
höfn), eða Birgi Thorlacius, ráðuneytisstjóra mennta-
málaráðuneytisins, Hverfisgötu 6, Reykjavik. Vakin
er athygli á, að framangreindur umsóknarfrestur er
ekki bindandi fyrir þann aðila, er ráðstafar starfinu,
þar sem samkomulag er um það — með hliðsjón af
mismunandi tilhögun í Norðurlandaríkjunum á ráð-
stöfun opinberra starfa — að í stöðuna megi einnig
ráða án formlegrar umsóknar.
11. október 1972.
Lausar stöBur
Tvær dósentsstöður við læknadeild Háskóla íslands,
önnur í lyflæknisfræði, en hin í handlæknisfræði, eru
lausar til umsóknar með umsóknarfresti til 10. nóvem-
ber 1973. Um er að ræða hlutastöður, sbr. 2.gr. laga nr.
67/1972, um breytingu á lögum nr. 84/1970, um
Háskólalslands.og skal dósendsstaðan í lyflæknisfræði
tengd sérfræðingsstöðu við lyflækningadeild Borgar-
spítalans i Reykjavík, en dósentsstaðan í handlæknis-
fræði tengt sérfræðingsstöðu í skurðlækningadeild
sama sjukrahúss. Gert er ráð fyrir, að dósents-
stöðurnar verði hvor um sig sem næst hálft starf og að
i þær verði ráðið til f jögurra ára i senn.
Laun samkv. launakerfi starfsmannaríkisins.
Umsækjendur um framangreindar dósentsstöður
skulu láta fylgja umsókn sinni rækilega skýrslu um
vísindastörf þau, er þeir hafa unnið, ritsmíðar og
rannsóknir, svo og námsferil sinn og störf.
Menntamálaráðuneytið,
10. október 1973.
Bifvélavirki
Óskum eftir góðum bifvélavirkja.
Æskilegt að viðkomandi hafi ein-
hverja reynslu í mótorstillingum.
Upplýsingar ekki gefnar í síma.
Ó. Engilbertsson h.f.,
Stilli og vélaverkstæði,
Auðbrekku 51,
Kópavogi.
Skuttogari
1. vélstjóra vantar á nýjan 460 lesta
skuttogara, sem gerður verður út
frá Suðurnesjum. Tilb. sendist afgr.
Mbl. fyrir 20. okt. merkt:
„Skuttogari — 1265“.
Skrifstofustúlka
óskast. Þarf að vera vön vélritun,
kunna skil á almennum skrifstofu-
störfum, og hafa ensku- og
reikningskunnáttu. Stúlka yngri en
20 ára kemur ekki til greina. Tilboð
merkt „Góð kunnátta 5171“ sendist
afgreiðslu Mbl. fyrir n.k. föstudag.
Viljum ráöa sendil
hálfan eða allan daginn. Æskilegt
væri að fá pilt 15—16 ára gamlan,
sem hefur vélhjól til umráða.
Kristján Ó. Skagfjörð h.f.,
Tryggvagötu 4,
sími 24120.
Atvinna
Menn óskast nú þegar til starfa í
verksmiðju okkar:
Mann í blautvinnslu,
mann í þurrklefa,
mann í almenn störf.
Allar nánari upplýsingar hjá verk-
stjóra.
SÚTUNARVERKSMIÐJA,
Grensásvegi 14, sími 31250.
Skipstjóri
Skipstjóri óskast á góðan 75 lesta
bát frá Grindavík. Sameign kemur
til greina. Uppl. óskast sendar Mbl.
fyrir 24. okt. n.k. merktar: „Grinda-
vík 1017“.
Verkamenn
Óskum að ráða nokkra verkamenn.
Upplýsingar í síma 41363 á kvöldin.
VÉLTÆKNI H.F.
Statia starfsmanns
Verkalýðsfélags Húsavíkur og Líf-
eyrissjóðsins Bjargar, Húsavík er
laus til umsóknar nú þegar.
Umsóknir sendist skriflega til
verkalýðsfélags Húsavíkur við
Ketilsbraut, Húsavík.
Félagslíf
I.O.O.F. 9 = 155101 78'/2 =
Spkv.
i O.O.F. 7=í 15510178’/2 =
RMR — 17 — 10 — 20.00
— SÚR — K — 20.20 — HS
— K — 20.30 — VS — KS
— K — HV.
gg Helgafell 597310177. IV/V
— 2.
OT
Frá Guðspekifélaginu
Hugleiðingakennsla dyrir byrj-
endur verður í Guðspekifélags-
húsinu, Ingólfsstræti 22, í dag
miðvikudag kl. 6.15. Öllum
heimill aðgangur
Skrifstofa
Félags einstæðra foreldra
að Traðarkotssundi 6, er opin
mánudaga og fimmtudaga kl
3—7, þriðjudaga, miðvikudaga
og föstudaga kl. 1—5. Sími
1 1822.
Mæðrafélagið
heldur fyrsta fund vetrarins að
Hverfisgötu 21, fimmtudaginn
1 8. okt. kl. 20.30 Mætið vel og
takið með ykkur gesti.
Stjórnin.
Kvenfélag Óháðasafnaðarins.
Fjölmennið í Kirkjubæ i kvöld,
miðvikudagskvöld 1 7. október
Litskuggamyndir, kaffiveitingar.
Kvenréttindaféla íslands
heldur fund í kv/öld kl 8.30 á
Hallveigarstöðum. Á fundinum
flytur Anna Sigurðardóttir erindi
sem hún nefnir „Verkakonur á
íslandi 11100 ár",
Allir velkomnir á fundinn meðan
húsrúm leyfir.
Stjórnin.
Félag einstæðra foreldra
Minningarkort FEF eru seld I
Bókabúð Lárusar Blöndal, Vest-
urveri, og I skrifstofu FEF I Trað-
arkotssundi 6.
Kvenfélag Neskirkju
Aðalfundur félagsins verður haldinn, fimmtudaginn 18. okt. kl. 20.30 í Félagsheimilinu. Venjuleg aðalfundarstörf, Kaffi-
veitingar. Stjórnin.
Hörgshlíð 1 2. Almenn samkoma — boðun
fagnaðarerindisins í vikudag, kl. 8. kvöld, mið-
Flladelfla
Almennir blbliulestrar I dag kl.
17 og 20 30. Ræðumaður
Gunnar Sameland.
Kvenfélag Kópavogs.
Fundur verður haldinn, fimmtu-
daginn 18. okt. kl. 8.30. I
félagsheimilinu uppi.
Frásögn og litskuggamyndir frá
Róm.
Sýnikennsla verður á Pizza, sem
Guðrún Ingvarsdóttir annast.
Stjórnin.
Slysavarnarkonur
Keflavík, Njarðvík
Fundur verður haldinn f Tjarn-
arlundi. fimmtudaginn 18. okt.
kl. 9. e.h. Rætt um vetrarstarf-
ið.
Myndasýning.
Konur fjölmennið.
Stjórnin.
i
Gott loonuskip til SðlU 260 lesta byggt 1967 nótfylgir 150 — — 1971 útbúinn fyrir loðnutroll 92 — — 1972 loðnudæla, loðnutroll 130 — — 1960 tog-og netaútbúnaður 88 — — 1960 mikið af veiðarfærum 50 — — 1972 stál Einnig 140 — 100 — 82 — 74 — 63 — 55 — 23 — 10 lesta eikarbátar. FISKISKIP, Austurstræti 14, 3ja hæð sími 22475, heimasími 13742.